Tíminn - 04.10.1981, Page 11
AFTUR BARN
í GARÐINUM
■ Leikfélag Reykjavikur hefur nú
ákveöiö aö taka aftur til sýninga
leikritiö Barn i garöinum eftir
Sam Shepard sem frumsýnt var
siöastliöiö vor. Fyrsta sýning i
haust veröur annaö kvöld, sunnu-
dagskvöld, en þeir Leikfélags-
menn leggja áherslu á aö aöeins
sé unnt að sýna leikritiö nokkrum
sinnum vegna anna i leikhiisinu.
Ættu þvi þeir sem áhuga hafa aö
hraða sér.
SamShepard þykirnú vera ein-
hver fremsti leikritahöfundur
vestur i Bandarikjunum en hann
hefurskrifaðá fjóröatug leikrita.
Hann er, þrátt fyrir þessi afköst,
ungur að árum, 37 ára nánar til-
tekið. A sjöunda áratugnum fóru
leikrit hans aö vekja athygli meö-
al ungu kynslóöarinnar i Banda-
rikjunum en siöan hefur oröstir
hans breiðst út og er hann nú
mest leikna leikskáld i Banda-
rikjunum á eftir Tennessee
Willlams — sem ennþá heldur
velli, einhverra hluta vegna.
Leikritum Shephards verður lýst
i fáum orðum, hann býr yfir ákaf-
lega sérstæöum og persónulegum
stil — blandar saman raunsæi og
dularfullum, óvæntum atburöum.
Bygging verka hans þykir vera
sérlega meistarleg og málfarið
meitlaö og áhrifamikiö. Geta má
þess að á siöustu árum hefur
Shepard einnig vakið athygli fyrir
kvikmyndaleik.
Leikritið Barn i garöinum ger-
ist nú á dögum á bóndabýli i
Illinois i Bandarikjunum og segir
frá allfuröulegri fjölskyldu.
Vince, ungur maöur, kemur i
heimsókn til afa sina og ömmu
ásamtunnustu sinni. A heimilinu
eru einnig tveir uppkomnir synir
gömlu hjónannaog fljótlega kem-
ur i ljós að fjölskyldan býr yfir
óhuganlegu leyndarmáli. Leikrit-
iö hlaut Pulitzer-verölaunin áriö
1979., og hefur það veriö sýnt viöa
um lönd.
Meö helstu hlutverk i sýningu
þjóðleikhússins — en henni
stjórnaöi annar leikhússtjórinn,
Stefán Baldursson — fara Stein-
dór Hjörleifsson, Margrét Ólafs-
dóttir, Hjalti Rögnvaldsson, og
Hanna Maria Karlsdóttir. Aörir
leikendur eru Þorsteinn Gunnars-
son og Siguröur Karlsson og Guö-
mundur Pálsson.
Þýðinguna geröi Birgir Sig-
urösson, lýsingu annaöist Daniel
Williamson, búningar eru eftir
Þórunni Sigriöi Þorgrimsdóttur.
Eins og áöur segir getur aöeins
oröiö um örfáar sýningar aö
ræða.
Steindór Hjörleifsson og Hjalti Rögnvaldsson i hlutverkum slnum I
Barni i garöinum.
Óneitanlega heillandi
og spennandiáfanga-
staöur i stuttri helgar-
ferö og dagarnir
fimm veröa örugglega
alltof fljótir aö líöa í þessari rómuöu borg lifs-
gleöi og glæsileika. Efnt veröurtil skoðunarferöa
um borgina og til ýmissa markverðra staða, sér-
stakar kvöldferöir veröa skipulagöar og íslensku
fararstjórarnir munu sjá til þess aðferöin veröi
hnitmiöuö frá fyrsta degi til þess síðasta.
Og auðvitað gefst einnig nægur timi til þess aö
njóta frábærra veitinga- og skemmtistaða, kaupa
fatnaö sem óvíða finnstglæsilegri og heimsækja
gangstéttarkaffihúsin sem haldið hafa óbreyttum
„Parísar-sjarma" sinum áratugum saman.
Endalaust má nefna spennandi og markverða staöi í
skoðunarferöum, t.d. Champs-Elysées breiögötuna,
Eiffelturninn, Sigurbogann, Versali, Pompidou-
safniö o.m.fl. Og á kvöldin bíöa þín glæsilegir
veitinga- og skemmtistaöir, heimsfrægir nætur-
klúbbar á borö viö Rauöu Mylluna og Lido o.s.frv.
o.s.frv.
Fyrsta flokks gisting í hjarta
borgarinnar.
París Sheraton Hotel
„Lúxus klassi", öll herbergi meö baöi, litasjónvarpi,
og sima.
Verð aðeíns kr. 3.680
Innifalið: Flug, gisting meö morgunverði, akstur
til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Verð miðað við flug og gengi 22.09.81.
Sýningin „Do it yourself ’
Dagana 31.10. -11.11. stenduryfir í Paris
sýningín „Do it yourself ’
athyglisverð og stórskemmtileg Sýning
fyrirþá sem vilja gera hlutina sjálfir.
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
i beinu leiguflugi 30. okt - 3. no>
föstudagsmorgunn til þriðjudagskvöl
París
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF 80.23
auðvitað
GRUnDIG
LJ
n
LaugavegilO, simi 27788