Tíminn - 04.10.1981, Side 15
Sunnudagur 4. október 1981
15
/#Tek Skotland fram yfir
Birmingham"
— Nú ert þú búsettur I
Birmingham, ásamt fjölskyldu
þinni, en bjóst á&ur lengi i Skot-
landi. A hvorum staönum finnst
þér betra aö búa?
„Þaö er ekkert vafamál aö ég
tek Skotland fram yfir. Þar er ég
fæddur og uppalinn. Þar eru ætt-
ingjar minir og vinir. En engu aö
siöur þá likar mér ágætlega I
Birmingham og hef auövitaö
eignast marga góöa vini úr liöinu
og áhangendahópnum.”
— Hefur þú nægan tlma til þess
aö sinna þinu hlutverki sem fjöl-
skyldufaöir?
„Já,já. Viö æfum bara á
morgnana og restina af deginum
notum viö aö eigin vild. Ég stunda
mikiö garöyrkustörf og þá er kon-
an mín meö mér I þvi. Nú strák-
arnir þurfa sinn tlma og athygli
og ég hef nægan tima til aö sinna
þeim.”
//Erum ekki auðugir"
—Eruö þiö atvinnumenn I
knattspyrnu ekki vellauöugir
menn?
Des borir góölátlega og segir
slöan: „Nei, viö erum ekki auö-
ugir. Þetta er auövitaö mikil
áhættuvinna. Þegar vel gengur,
eins og t.d. siöasta keppnistima-
bil, þá er okkur vel borgaö, en
þegar syrtir i álinn, þá fáum viö
heldur lltiö. Viö komumst þó
ágætlega af, en þaö er ekkert
mikiö fram yfir þaö.”
— Þaö er varla aö ég þori aö
spyrja þig næstu spurningar, eftir
útreiöina sem ég fékk hjá Gary,
en ég læt mig hafa þaö. Att þú þér
einhverja uppáhalds knatt-
spyrnuhetju?
„Nei, ekki lengur. En þegar ég
var yngri, þá voru tveir menn I
afskaplega miklu uppáhaldi hjá
mér, — þeir Dennis Law og Billy
Bremner, báöir Skotar, aö sjálf-
sögöu.”
//Aston Villa mun standa
sig vel"
— Hvernig heldur þú aö liö þitt,
Aston Villa komi til meö aö
standa sig i ensku deildakeppn-
inni þetta keppnistímabil?
„Ég er sannfæröur um aö Aston
Villa mun standa sig vel. Viö
byrjuöum illa, en ég held aö þetta
sé allt á uppleiö hjá okkur.
„En þér aö segja, ef ég á aö
geta eitthvaö i kvöld, þá verö ég
aö yfirgefa þig núna og fara upp
og leggja mig”, segir Des og er
þar meö rokinn.
„Alltaf draumur minn að
verða atvinnumaður með
Liverpool"
— — Fyrirliöi Aston Villa,
Dennis Mortimer, myndarlegur
maöur, meö glampandi glettni i
augum, segir viö blaöamann?
„Ég ætti nú eignlega aö vera
öskureiöur viö þig, þvi þú vaktir
mig af eftirmiödagsblundinum
minum. En ef ég verö lélegur i
kvöld, þá get ég þó alltaf afsakaö
mig meö þvi aö þetta sé þér aö
kenna.”
— Segöu mér eitthvaö frá
knattspyrnuferli þinum, sem er
oröinn býsna langur, eöa hvaö?
„Hvaö áttu viö meö þvi?
Helduröu aö ég sé einhver gaml-
ingi? Fannst þér þetta ekkert
fyndiö? Jæja, góöa, ég skal vera
alvarlegur.
Ég er 29 ára gamall, fæddur og
uppalinn i Liverpool. Sem barn
gekk ég meö þann draum I mag-
anum aö veröa atvinnumaöur i
knattspyrnu meöLiverpool, en nú
er ég kominn á annaö þroska-
skeiö. Ég geröist atvinnumaöur
meö Coventry og var meö þeim i 8
ár og siöan kom ég til Aston Villa
þar sem ég hef veriö I 6 ár. Ég á
óefaö eftir nokkur ár i atvinnu-
mennskunni enn, þvi mér gengur
ágætlega og ég er á þvl stigi núna
þar sem leikreynslan og keppnis-
reynslan eru afskaplega dýrmæt-
ir þættir. Ég hef svo sannarlega
notiö þessa lifs sem égi hef lifaö —
ég hef séö mikiö, reynt mikiö,
feröast mikiö og kynnst mýmörgu
skemmtilegu fólki. Auövitaö er
þetta erfitt lff á körflum, sem
krefst mikillar vinnu og mikils
álags, en engu aö slöur er þaö
skemmtilegt.” ,
„Áhangendur ekki þreyt
andi"
— Pirrar þaö þig aldrei, aö fá
ekki aö vera i friöi fyrir aödáend-
um þinum? (Þar sem blaöa-
maöur og Dennis sitja inni á
Mimisbar og spjalla saman, er
stanslaus straumur af pollum,
sem allir vilja fá eiginhandarárit-
un fyrirliöans)
„Nei, áhangendur eöa aödá-
endur eru ekki þreytandi. Þaö eru
siöur en svo leiöinlegt, aö veröa
viö óskum þessara hnokka og
hripa fyrir þá nafniö sitt. At-
vinnumaöur i knattspyrnu hefur
fyrst áhyggjur, þegar enginn biö-
ur hann um eiginhandaráritun.
Þaö eina sem mér leiöist varö-
andi frægöina, er þegar ég ætla aö
verja tima meö konu minni og
syni og viö förum eitthvaö út, t.d.
á veitingastaö, aö fá ekki aö vera
I friöi meö þeim. Ég beinlinis
elska son minn, sem er mér
stööug uppspretta gleöi og
ánægju og ég held aö þaö sé ekki
gott fyrir hann aö sjá aö pabbi
hans njóti miklu meiri eftirtektar
og athygli, en t.d. mamma hans,
sem aö hans mati er besta veran i
heiminum. Hann er nú svo ungur
énn, aö hann skilur þetta ekki til
hlltar.”
//Hyggst leggja fyrir mig
Ijósmyndun"
— Hvaö hyggst þú taka þér fyr-
ir hendur, þegar þú leggur skóna
á hilluna?
„Byrjaröu aftur! Þú talar bara
viö mann eins og maöur væri um
það bil aö veröa elliheimilis-
matur! Jæja, jæja, allt i lagi, þú
meinar aö sjálfsögöu hvaö ég ætli
að gera eftir svona 6 til 7 ár. Ég er
mikill áhugamaöur um ljósmynd-
un og tak mikiö af myndum, sem
ég framkalla og stækka sjálfur.
Ég er meö ágætis myrkrakompu
heima hjá mér. Ég er svona hálft
i hvoru aö gæla viö þá tilhugsun
■ „Eignaöist son I gær”, segir hinn stolti faðir Des Bremner.
■ „Ég er einfaidlega herramaöur Ieöli minu”, segir hinn skapgóöi
framkvæmdastjóri Aston Villa, Konsaunders. Tlmamyndir — G.E.
að þegar ég hætti, geti ég oröið at-
vinnuijósmyndari og þá sérhæft
mig I knattspyrnumyndatökum.
Hygg ég aö ég, meö mina knatt-
spyrnureynslu standi betur aö
vigi en margir aörir ljósmynd-
arar, þvi ef svo má taka til oröa,
þá get ég séö leikinn innan frá, þó
ég standi fyrir utan völlinn.”
— Hver finnst þér vera helsti
munurinn á knattspyrnu þeirri
sem leikin er I Englandi og á
meginlandi Evrópu?
„Enskur bolti skemmti-
legri"
„Viö sjáum nú ekki svo mikiö af
þeirri knattspyrnu sem leikin er I
Evrópu, en þó hef ég þaö á tilfinn-
ingunni aö þar sé leikin hægari og
kerfisbundnari knattspyrna, en
hjá okkur I Englandi. Hjá okkur
eru þaö þrlr meginþættir sem
ráöa feröinni — harka, llkams-
hreysti og hæfni. Ég er þeirrar
skoöunar aö viö i Bretlandi leik-
um skemmtilegri knattspyrnu, en
þeir á meginlandinu, þvi þar
vantar hraöann og hörkuna.”
Maðurinn á bak við vel-
gengni Aston Villa
— Ekki má segja skiliö viö
kappana hjá Aston Villa, án þess
aö taka tali sjálfan manninn aö
baki velgengni liösins, eins og
framkvæmdastjóri iiösins, Ron
Saunders hefur gjarnan veriö
nefndur.
— Hvenær komst þú til Aston
Villa?
„Ég kom til liösins 1974, en þá
var þaö i 2. deild. Ariö eftir kom-
umst viö i 1. deild og höfum verið
þar siöan.”
— Hverju þakkar þú þann
árangur sem liöiö hefur náö og þá
sérstaklega þann árangur, sem
nú ber hæst, aö hafa orðið Eng-
landsmeistarar I fyrra?
„Ég þakka hann einungis mik-
illi vinnu og enn meiri vinnu.
Þetta hefur veriö djöf... puö, en
viö höfum lika uppskorið i sam-
ræmi viö þaö. Þá hefur uppbygg-
ingarstarf okkar meö yngri flokk-
ana veriö mjög gott. Viö höfum
fengiö I aöalliðiö marga frábæra
knattspyrnumenn úr yngri flokk-
unum og hlutfalliö hjá okkur af
aökeyptum mönnum er óvenju-
lega lágt miöaö viö önnur 1.
deildar liö.”
— Heldur þú aö Aston Villa
komist langt I Evrópukeppninni?
„Auövitaö vona ég þaö. Hver
veit? Meö smáheppni getur allt
gerst og ég er trúaöur á aö viö
höfum I dag þvi liöi á aö skipa,
sem getur komist I úrslitakeppn-
ina. Annars er þaö ekki mitt aö
spá um framtiðina — mitt starf er
i þvi fólgiö aö sjá svo um aö liöiö
fari I hvern leik meö besta mögu-
legan undirbúning aö baki.”
„Verðum í einu af toppsæt-
unum í 1. deildinni"
— Hvernig telur þú aö Aston
Villa muni vegna I 1. deildar-
keppninni I Englandi þetta
keppnistimabil?
„Ég held aö viö veröum I einu
af toppsætunum. Viö byrjuðum aö
visu illa. Síöan viö lékum viö Val
á Villa Park höfum viö gert þrjú
jafntefli, en áttum miöaö viö gang
leikjanna og marktækifæri, vinna
þá alla. Ég er engu aö siöur sann-
færöur um aö þetta er aö koma
hjá okkur og aö viö höfum liö sem
er eitt af þeim bestu i Bretlandi i
dag.”
//Knattspyrnan er mitt líf"
— Nú ert þú fjölskyldumaöur,
átt konu og fjögur börn. Er fjöl-
skylda þln aldrei þreytt á þvl
hversu miklum tlma þú verö I
starf þitt sem Aston Villa?
„Nei, þaö er ekki hægt aö segja
þaö. Ég geröist atvinnumaöur i
knattspyrnu þegar ég var 17 ára
og þegar ég hætti aö leika þá fór
ég beint út i framkvæmdastjórn
hjá knattspyrnuliöi, þannig aö
knattspyrnan hefur veriö mitt lif I
31 ár, svo fjölskylda min þekkir
ekkert annaö.”
//Er herramaður"
— Nú hefur þú fengiö þaö orö á
þig i breska knattspyrnuheimin-
um aö þú sért einstaklega ljúfur i
samvinnu og umgengni og sért
hreint ekkert likur flestum fram-
kvæmdastjórum breskra liöa sem
yfirleitt þykja bæöi skapstiröir og
frekir. Hvernig getur þú skýrt
þetta fyrir mér?
„Ég sé enga ástæöu til þess aö
skýra þetta fyrir þér”, segir Ron
og hlær. „Ég er einfaldlega
herramaöur i eöli minu, og þó aö
ég sé i þessu starfi, þá er ekkert
sem knýr mig til þess aö reyna aö
breyta eöli minu. Þaö er nú ekk-
ert til þess aö halda á lofti aö
maöur kunni almenna mannasiöi
og kurteisi. Þaö þætti þaö alla
vega ekki, þegar veriö væri aö
ræöa aörar stéttir. En þú mátt nú
ekki alveg hafa af mér eftirmiö-
dagsblundinn minn, svo ég ætla
að gerast óherramannslegur og
henda þér á dyr.”
—AB