Tíminn - 04.10.1981, Qupperneq 19

Tíminn - 04.10.1981, Qupperneq 19
Sunnudagur 4. október 1981 rick White nokkrum árum áður en hann hlaut Nóbelsverðlaunin. Lundkvist kvaðst hafa lesið Czeslaw Milosz, Nóbelsverð- launahafann frá i fyrra, i þrjátiu ár og Oddysseus. Elytes, sem fékk verðlaunin 1979 álika lengi. ,,Ég hefði kosið James Joyce” Lundkvist var skjótur til svars er hann var spurður hverjir rit- höfundar sem ekki fengu Nóbels- verðlaun hefðu átt þau mest skilið. Hann sagði: „Joseph Conrad, Maxim Gorki, Rainer Maria Rilke, Theodore Dreiser, André Breton. D.H. Lawrence dó of snemma. Ég hefði kosið James Joyce”. Osten Sjostrand var kosinn i Akademiuna árið 1975 og likt og Lundkvist fór hann þegar i stað inn I Nóbelsnefndina. Hann er fyrst og fremst ljóðskáld, en hefur einnig skrifað óperutexta og þýtt úr frönsku, ensku, þýsku, itölsku, dönsku og norsku og unnið með öðrum að þýðingum úr grisku, pólsku, tékknesku og rússnesku. Sjostrand lagði áherslu á þá gifurlegu vinnu sem lægiað baki úthlutuninni á hverju ári. „Maður verður að venja sig við að bóklestur verður manni ekki siður mikilvægur en matur”., sagði hann. Sjostrand kvaðst hafa þekkt til Odysseus Elytis i rúmlega tuttugu ár en þar sem hann hefur unnið að þýðing- um á verkum annars grisks skálds, Yannis Ristos, sem margir telja betri en Elytis var hann spurður hvers vegna Elytis hefði orðið fyrir valinu. Sjöstrand kvað mestu hafa valdið að Elytis hefði endurskapað hinar grisku goðsögur á nútimalegan hátt og þannig brúað bilið milli hins gamla og hins nýja. Þvi hefði hann hlotið verðlaunin. „Við reynum einnig að sýna minnihlutamenningu áhuga”, sagði hann. „Það er vegna þess að við viljum ekki blandast inn i stórveldaátök. Það er misskiln- ingur að við séum að velja heims- ins besta rithöfund, heldur velj- um við rithöfunda sem við álitum að séu mikilvægir fyrir bók- menntir á öðrum tungumálum en þeirra eigin. Það er stefna Nóbelsnefndarinnar ”. Óþekktir rithöfundar? Þetta skýrir undanfarnar verð- launaveitingar en mörgum hefur virst að þeir rithöfundar hafi veriðeinum of óþekktir — Grikki, Lithái sem skrifar aðallega á pólsku og býr i Ameriku, Banda- rikjamaður sem skrifar á jiddisku. Sjöstrand var tregur til að nefna menn sem ekki fengu verðlaunin en áttu þau skilið en að lokum nefndi hann þó Paul Valery, Rilke, Joyce «g Breton. „Eg fullvissa þig um Bð ég hef ekki minnstu hugmynd um hvers vegna þeir völdu mig”, sagði Ulf Linde er bandariski blaðamaður- inn heimsótti hann. „Ég hef mjög litið skrifað. Ég er ekki mjög vel heima i nútimabókmenntum, min deild er myndlistin. En ég les nú meira en ég gerði áður og er far- inn að vera samræðuhæfur i þess um hópi. Mitt hlutverk er eigin- lega aö gagnrýna skoðanir hinna. Ég skynja bókmenntir á sama hátt og ég skynja myndlist. Það sem mér fellur vel við hjá Matisse fellur mér einnig vel við hjá Dostoévskij”. Linde er kunnur aðdáandi Marcel Duchamp og John Cage en þeir hafa báðir skrifað bækur auk þess að starfa að myndlist. Hann hikaði er hann var spuröur hvort hann teldi þá verðuga Nó- belsverðlauna. „Þeir eru vissu- lega jafnokar margra þeirra sem hlotið hafa Nóbelsverðlaun en þeir skrifuðu ekki nógu mikið til að vera raunverulga verðugir verðlaunanna. öll Akademian myndi heldur aldrei fallastá það og þvi þá að stinga upp á þvi?” Ætti að gefa Nóbelverðlaun fyrir myndlist? ,,Já, en þá ætti aðeins að veita þau á fjögurra ár afresti. Það eru ekki eins margir verðugir myndlistarmenn og rithöfundar”. Linde var eins og spurður um rithöfunda sem hefðu átt að fá verðlaunin en gerðu það ekki. „Paul Valerý, Ezra, Pound, Breton, Kafka, Joyce og Proust”. Pearl S. Buck óverðug Sú gagnrýni sem oftast er beint gegn Nóbelsverðlaununum er að þau hafi engin áhrif önnur en að auka hróður viðkomandi rithöf-: undar. Oft er það lika svo að rit. höfundar fá verðlaunin ekki fyrr en svo seint að það eru i rauninni aðeins erfingjar þeirra sem hagn- ast eitthvað að ráði. Stundum er lika um að ræða löngu viðurkenna og rika höfunda sem ekkert hafa heldur aö gera við peningana. En nefndarmenn sem velja verðlaunahafana gera sér lika ljósa grein fyrir takmörkunum. verðlaunanna. Þeir sem verja verðlaunin segja að þau hafi vissulega gildi þótt það hafi af mörgum verið ýkt og mjög fáir rithöfundar hafi fengið verð- launin sem alls ekki hafi átt þau skiliö á sinum tima. Linde og Sjo- strand voru beðnir að nefna slika höfunda og þá lentu þeir i vand- ræðum. Báðum datt loks i hug eitt nafn og reyndist það vera sama nafnið: Pearl S. Buck. — ij endursagði íbúð óskast til leigu Þriggja til fjögurra herbergja ibúð óskast i Reykjavik. Upplýsingar i sima 24193 og 86387 (á kvöldin). Maria Anna Þorsteinsdóttir. Umboðsmenn Tímans Norðurland Staður: Nafn og heimili: Sfmi: Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson 95—1384 Blönduós: Olga Óla Bjarnadóttir, Arbraut10 95—4178 Skagaströnd: Arnar Arnarson, Sunnuvegi 8 95—4646 Sauðárkrókur: Guttormur Óskarsson, 95—5200 Skagfirðingabr. 25 95—5144 Siglufjörður: Friðfinna Simonardóttir, • Aðalgötu 21 95—71208 Ólafsfjöröur: Helga Jónsdóttir, 96—62308 Hrannarbyggð 8 Dalvik: Brynjar Friöleifsson, Asvegi9 96—61214 Akureyri: Viöar Garðarsson, Kambagerði 2 96—24393 Húsavik: Hafliöi Jósteinsson, Garðarsbraut 53 96—41444 Raufarhöfn: Arni Heiðar Gylfason, Sólvöllum 96—51258 Þórshöfn: Kristinn Jóhannsson, Austurvegi 1 96—81157 i fóUuð&onama? Er hópur á leið í höfuðborgina? T. d. í leikhúsferð, á mannþing eða annarra er- inda. Viðdvölin verður eftirminnilegri þegar Hlaðan er með í áætluninni. Til- valið er að þorða kvöldverð, í Hlöðunni, fara síðan í leikhús og fá sér síðan kaffi í Hlöðunni á eftir. örfá skref á dansgólf Óðals. Ath. að það er nokkurra mínútna ganguríöll leikhúsin. Þá er Hlaðan kjörin fyrir kvöldfagnaði starfsmannafélaga omfl. Allt að 100 manns borða saman í óvenjulegu um- hverfi Hlöðunnar. Verðlagið er hreint ótrúlegt, þríréttaður kvöldverður frá kr. 75,-. hringið í 91-11630 og sannfærist um ómótstæðilegt tilboð. HIAMN

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.