Tíminn - 15.10.1981, Síða 12
Fimmtudagur 15. október 1981
12
heimilistíminn
Valkostur veitingamannsins
VIKU Á RÁN
YFIRM ATREIÐSLU
MAÐUR TÍTÓS Á
JÚGÓSLAVNESKRI
■ — Yfirmatreiðslumaður
Titós heitins Júgóslaviuforseta
mun koma hingað til okkar i
nóvember og framreiða júgó-
siavneskan mat á júgóslavn-
eskri viku, sem verður hér hjá
okkur á Rán, sagði Rut Ragn-
arsdóttir, þegar við iitum inn á
veitingastaðinn i þeim tilgangi
að fá þar næsta réttinn i VAL-
KOSTUR VEITINGAMANNS-
INS fyrir Heimilis-Timann.
Rut rekur veitingastaðinn
Rán með manni sinum Ómari
Hallssyni, og hófu þau rekstur-
inn um siðustu áramót. Meðal
nýjunga hjá þeim i rekstrinum
eru þjóðlegar vikur. Nú hafa
verið haldnar tvær slikar,
frönsk vika og itölsk vika. Næst
verður svo júgóslavneska vik-
an, þegar yfirkokkur Tótós heit-
ins kemur og annast matinn.
Júgóslavnesk vin hafa þegar
veriö flutt til landsins, en þau
eru ekki fáanleg hér alla jafna,
og auk þess verður ýmislegt
hráefni fengið þaðan og fengnir
verða skemmtikraftar að auki.
Annaðhvort i desember-byrjun
eða i janúar er væntanlegur
hingað kinverskur kokkur, sem
beðið hefur verið eftir alllengi.
Breyttur matseðill
— Viö erum að breyta mat-
seðlinum hjá okkur um þessar
mundir. Við höfum tekið út rétti
og bætt öðrum inn á i staðinn.
Fiskréttir eru vinsælir, og segja
má að vinsældir þeirra fari allt-
af vaxandi.
— Réttur dagsins hjá okkur
kostar 65 krónur. Innifalið i hon-
um er annað hvort kjöt- eða
fiskmáltiö, súpa og gos. Hingað
kemur ævinlega mikið af vinn-
andi fólki i hádeginu og borðar,
og er oft tvi- og þrisetið.
— Þiö hafiö lifandi tónlist hér
bæði i hádegi og að kvöldinu,
hvernig mælist það fyrir?
— Já, Einar Logi Einarsson
spilar hér fyrir gesti bæði i há-
degi og á kvöldin. Hann spilar á
orgel, og virðast gestir mjög
ánægðir með það. Þetta skapar
vissa stemmningu, að geta setið
og notið góðs matar og hlustað á
tónlist á meðan.
— Kemur fólk oft með börn,
og geriö þið eitthvaö sérstakt
fyrir þau?
— Fólk kemur oft með börn
með sér, en þvi miður höfum við
ekki haft húsrými til þess að
sinna þeim sérstaklega. Við er-
um með i undirbúningi breyt-
ingar, sem gætu gert okkur
mögulegt að sinna börnunum
meira.
■ Kristján Hreiðarsson með skötusel I álpappir. (Timamynd Ella)
Fólk vill fá að
velja sjált
Vlnveitingaleyfi er nú oröið á
fjöldamörgum smærri veitinga-
húsum. Finnst þér þessi heimild
til að selja vin hafa á einhvern
hátt breytt veitingahúsmenn-
ingunni?
— Ja, það finnst mér. Fólk
kemur nú meira til þess að
borða og sitja lengur yfir matn-
um og njóta hans, en það gerði
áður. Þá kom það og borðaði i
fljótheitum og fór svo. Mörgum
finnstlikasvolitill „sjarmi” yfir
þvi að setjast niður og borða
góða steik og geta fengið sér vin
með matnum heldur en að
drekka bara gos. Flestir fá sér
nú vinglas með matnum, og fólk
vill greinilega hafa möguleika á
að velja sjálft hvað það drekk-
ur. A kvöldin dúkum við borðin
og notum tauserviettur, og þá
verðurá allan hátt meiri hátiða-
bragur yfir máltiðinni, en ann-
ars er.
— Hvað vinnur margt fólk
hérna hjá ykkur?
— Viðerum með um 25 manns
I vinnu. Hér eru fimm lærðir
matreiðslumenn og þjónar ann-
ast framleiðsluna.
Svo snúum við okkur að upp-
skriftinni og þeim rétti, sem þau
i Rán ætla að mæla með að
þessu sinni. Kristján Hreiðars-
son matreiðslumaður annast
matreiðluna og veiur Skötusel i
áipappir
Innbakaður skötuselur
Það sem til þarf eru 170
grömm af skötusel, 30 grömm af
rækjum, ca. 2 msk af smjöri, 1
tsk af grænu og brúnu dilli
blönduöu saman, safi úr
sitrónubát og svoiitiö af saiti og
pipar.
Takiðykkur álpappir og legg-
ið á borðið, setjið smjör i
pappirinn og siðan setjið þið
skötuselsstykkið á smjörið. Þar
ofaná er stráðdillinu, saltinu og
piparnum, rækjurnar látnar
ofaná og sitrónusafinn pressað-
ur yfir. Efst er látið það sem eft-
ir er af smjörinu.
Leggið nú pappirinn saman og
brjótið niður og rúllið upp, lokið
pakkanum vel, svo hann sé loft-
þéttur. Þetta er sett á pönnu eða
i ofn og steikt i 5 minútur (eða
bakað) eftir að suðan er komin
upp innan i álbréfinu. Það er
þegar bréfið er farið að bólgna
út.
Takiðykkur matardisk, opnið
álbréfið, setjið á diskinn með
innihaldinu i. Með þessu eru
bornar fram hvitar kartöflur,
hrásalat og sitrónubátur, auk
grænmetis, t.d. tómata og salat-
blaða.
Skötuselur framreiddur á
þennan hátt kostar 79 krónur á
Rán. fb
NÝJUNG í NEYTENDAMÁLUM
Frystipokar
sem auka geymsluþo) matvæla
Rétt meðferð matvæla
við frystingu hefur mikil
áhrif á gæði þeirra og
geymsluþol.
Nú hefur Plastprent h.f.
hafið framleiðslu á frysti-
pokum úr sérstöku frost-
þolnu plastefni sem ver
kjöt og aðra matvöru
betur en áður hefur
þekkst gegn rýrnun og
ofþornun ífrysti.
Tvær stærðir poka í hen-
tugum umbúðum.
Límmerkimiðar og bindi-
lykkjur fylgja. Fást í
næstu matvöruverslun.
Plastprent hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600
Sýning á
íslenskum
heimilis-
iðnaði
■ t tiiefni af 30 ára afmæli ts-
lensks heimilisiðnaöar hefur ver-
ið opnuð sýning i húsakynnum
verslunarinnar Hafnarstræti 3,
þar sem sýndir eru ýmsir munir
úr safni Heimilisiðnaðarfélags-
ins, sem nú þegar er orðinn visir
að heimilisiönaðarsafni. Höfuðá-
hersla er lögð á þrjú atriði, jurta-
litaö band, sjöl og hyrnur úr
handspunnu bandi og handprjón-
aða vettlinga. Prjónlesið er unnið
af mörgum höndum og ógerlegt
aö nafngreina aila, en jurtalitaöa
bandið er unnið af tveimur þing-
eyskum konum, Matthildi Hail-
dórsdóttur i Garöi og Ingibjörgu
Tryggvadóttur.
Heimilisiðnaðarfélag Islands
var stofnað 1913. Tilgangur fé-
lagsins er að auka og efla þjóðleg-
an heimilisiðnað á Islandi og
stuðla að vöndun hans og fegurð.
Verslun Heimilisiðnaðarfélags-
ins sem hlaut nafnið tslenskur
heimilisiðnaður var stofnsett i
október 1951, i fyrstunni sem
heildsala er jafnframt annaðist
leiðbeiningar.
Að stofnun IH stóðu að jöfnu
Heimilisiðnaðarfélagið og Ferða-
skrifstofa rikisins, en aðalhvata-
maður að þessari framkvæmd
var Helga Kristjánsdóttir frá
Laugum. Framkvæmdastjóri
versiunarinnar var frá upphafi og
fram til ársins 1967 Sigrún Stef-
ánsdóttir frá Eyjardalsá, og vann
hún mikið og merkilegt braut-
ryðjendastarf, sem verslurhnbýr
enn að.
Heimilisiðnaðarfélagið hefur
staðið eitt að rekstri verslunar-
innarfrá 1957 og hagnaður gengið
óskiptur til að standa straum af
margháttaðri menningarstarf-
semi félagsins, t.d. bókaútgáfu,
námskeiðarekstri og útgáfu árs-
ritsins Hugur og hönd, sem fyrst
kom út árið 1966. Islenskur heim-
ilisiðnaður á stóran þátt i þeirri
vöruvöndun á islenskum ullar-
vörum, sem orðið hefur hin siðari
ár og auknum markaði. Núver-
andi verslunarstjóri er Gerður
Helgadóttir, en formaður Heimil-
isiðnaöarfélagsins er Jakobina
Guömundsdóttir.
Sýningin i Hafnarstræti 3 verð-
ur opnuð i dag og stendur fram til
26. október. Sýningin er opin á
verslunartima, en á laugardaginn
verður opið frá kl.9 til 16. Þá má
geta þess, að auðvelt er fyrir fólk
að lita i glugga verslunarinnar og
sjá sýningarmuni, þótt verslunin
sjálf sé lokuð. Myndin er af sýn-
ingarmunum og tók GE ljós-
myndari Timans hana.
fh