Tíminn - 23.10.1981, Blaðsíða 8

Tíminn - 23.10.1981, Blaðsíða 8
Föstudagur 23. október 1981 , 4. . 8 Utgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiöslustjóri: Sig- uröur Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson. Elias Snæland Jóns- son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. ölafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaöur Helgar-Tímans: llluqi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir. Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Friöa Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Halldór Valdimarsson, Heiöur Helga- dóttir, Jónas Guðmundsson, Jónas Guömundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson! útlits- teiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guð- jón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn. skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verö i lausasölu 5.00. Askriftargjald á mánuöi: kr. 85.00- Prentun: Blaðaprent h.f. Farsæl forusta Steingríms ■ Um nokkurt skeið voru horfur á, að bæði sild- veiðar og loðnuveiðar myndu stöðvast um ófyrir- sjáanlegan tima vegna deilu um verð, sem út- gerðarmenn og sjómenn fengu greitt. Ástæðan var sú, að verð erlendis á þessum afurðum nægði ekki til að fullnægja þeirri hækkun, sem seljendur töldu sig þurfa að fá. Þessi deila hefur nú verið leyst og veiðarnar hafnar að fullu á ný. Það má að miklu leyti þakka það farsælli milli- göngu og afskiptum Steingrims Hermannssonar sjávarútvegsráðherra, að samkomulag náðist,að ógleymdum þeim þætti sjómanna og útvegs- manna, að sætta sig að lokum við nokkru lægra verð en upphaflega hafði verið ákveðið. Með þessu hafa sjómenn og útgerðarmenn sýnt þegnskap, sem vert er að virða og meta, og gefið öðrum gott fordæmi undir svipuðum kringum- stæðum. Þess er hins vegar ekki eðlilegt að vænta fram- vegis, að þessir aðilar einir, ásamt vinnslufyrir- tækjunum, taki á sig skakkaföll, sem kunna að hljótast af verðfalli eða sölutregðu erlendis. Eins og málum er komið eru sjávarútvegs- málin einna erfiðust þeirra mála, sem rikis- stjórnin þarf að fást við. Þau eru viðkvæmust fyrir öllum breytingum, sem verða á verðlagi og mörkuðum erlendis. Til þess að tryggja sem bezt hlut Islendinga á þeim vettvangi, þarf að skipu- leggja veiðarnar með þeim hætti, að vöruvöndun sé sem bezt tryggð. Þá verður einnig að gæta þess, að skipastóllinn dreifist eðlilega milli landshluta og tryggja atvinnulif sem viðast og jafnast um allt land. Reynslan sýnir einnig, að gæta verður þess vel, að viðhald flotans sé hæfilegt, en markaðslög- málið eitt ekki látið ráða þvi. Það er fyrst i tið Steingrims Hermanns- sonar sem sjávarútvegsráðherra, að hafizt er handa um að skipuleggja fiskveiðarnar með alla þessa þætti i huga. Það starf er jafn vandasamt og það er mikilvægt. Steingrimur Hermannsson hefur þegar sýnt, að hann er manna vænlegastur til að hafa forustu um að þessi mál leysist á farsælan hátt. Það sýndi hann nú á dögunum við lausn sildveiðideil- unnar og loðnudeilunnar. Prófkjör Vert er að vekja athygli á þvi samkomulagi stjórnmálaflokkanna á Akranesi, að efna til próf- kjörs samtimis i sambandi við bæjarstjórnar- kosningar næsta vor. Með þessu vinnst tvennt. óháðir kjósendur geta tekið þátt i prófkjöri, án þess að vera stimplaðir ákveðnum flokki. Flokkarnir eru jafnframt i minni hættu fyrir þvi, að andstæðingarnir reyni að ráða úrslitunum hjá þeim. Þ.Þ. i r Úr stefnuræðu forsætisráðherra: Sköpum skiptir að kjarasamningar tefli ekki efnahags- aðgerðum í tvfsýnu Gunnar Thoroddsen forsætis- ráöherra flutti stefnuræöu sina á Alþingi i gærkvöldi. Meginhluti ræöunar fer hér á eftir og eru les- endur beönir aö hafa i huga aö nokkru er sleppt úr: Efnahagsmál Stefna ríkisstjórnarinnar i efnahagsmálum byggir á þeirri meginforsendu, að árangurs sé þvi aöeins að vænta, að tekiö sé á öllum þáttum efnahagsmála i senn og jafnvægis leitaö á öllum sviöum. Þetta grundvallaratriði er sett fram i stjórnarsáttmála rikis- stjórnarinnar: „Rikisstjörnin mun berjast gegn verðbólgunni með aðhalds- aðgerðum, er varða verðlag, gengi, peningamál, fjárfestingu og rikisfjármál.” Þessa viöleitni til heildarsýnar og jafnvægis hefur rikisstjórnin haftað leiðarljósi i efnahagsmál- um. Á þessu byggist efnahagsá- ætlun rikisstjórnarinnar frá sið- ustu áramótum, en þar er höfuð- markmffium efnahagsstefnu rik- isstjórnarinnar lýst svo: „1 fyrsta lagi að efla atvinnulif- ið og tryggja ifllum landsmönnum næga atvinnu. 1 öðru lagi að draga svo úr hraða verðbólgunnar, að hUn lækki i um 40% á árinu 1981. í þriðja lagi að tryggja kaup- mátt launafólks”. Eftir þessari áætlun hefur verið unniö með góðum árangri. Tekist hefur að tryggja lands- mönnum næga atvinnu á meðan grannþjóðir okkar stynja undan böli atvinnuleysis. Atvinnuástand hefur verið gott, þrátt fyrir ein- stök, staðbundin vandamál og erfiðleiká i' sumum greinum at- vinnulifs. Tekist hefur að draga svo úr hraða verðbólgu, að hún verður um eða innan við 40% i ár, eins og að var stefnt, i stað um 60% verð- bólgu tveggja undangenginna ára. Þá hefur tekist að vernda kaup- mátt þannig, að hann er nú ívið meiri en orðið hefði án efnahags- aðgerða rikisstjórnarinnar um siðastliðin áramót. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur vaxið á þessu ári, þrátt fyrir umfangs- miklar aðhaldsaðgerðir til þess að draga úr verðbólgu. Rikisst jórnin mun á næsta ári fylgja i öllum grundvallaratrið- um sömu stefnu i efnahagsmálum og nú i ár. Afram verður stefnt að fullri atvinnu, hjaðnandi verð- bólgu, verndun kaupmáttar. Þessu hyggst rikisstjórnin ná fram með þvi að beita aðhaldi i fjárfestingu, gengismálum, pen- ingamálum, rikisfjármálum og verðlagsmá lum. Verðlag Þó að mikilvægur árangur hafi náðst iár, er veröbólgan enn mik- il meinsemd i efnahagslifinu. Ekki má lina þau tök, sem verð- bólgan hefur verið tekin á þessu ári. Verðbólgan minnkar um þriðj- ung á þessu ári, eða úr tæpum 60% i 40% mælt frá upphafi til loka árs. A komandi ári mun rikisstjórn- inleggja höfuðáhersluá að þrýsta verðbólgunnienn verulega niður i samræmivið þaö meginmarkmið rikisstjórnarinnar aö koma verð- bólgunni svo fljótt sem kostur er niður á svipað stig og er i helstu viðskiptalöndum okkar. Með þeim árangri, sem náðst hefur á þessu ári og þeim skref- um, sem fyrirhuguð eru á næsta ári, skapast möguleikar til þess að ná betra jafnvægi og meiri stöðugleika í islensk efnahagsmál en veriö hefur um langt árabil. Það er trú rikisstjórnarinnar, að unnt sé að ná þessum mark- miðum án þess að fórna öðrum meginmarkmiðum i efnahags- málum þ.e. fullri atvinnu og ó- skertum kaupmætti. Hér skiptir sköpum, að aðilar vinnumarkaðarins semji svo um kaup og kjör á næsta ári, að markmiðunum um fulla atvinnu og hjaðnandi verðbólgu verði ekki teflt í tvisýnu. Hér þarf að koma til samstillt átak rikisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins. Ríkisfjármál Halli i rikisfjármálum og skuldasöfnun i Seðlabanka er ein af meginástæðum þess óstöðug- leika jafnvægisleysis og verð- þenslu, sem einkennt hefur is- lenskt efnahagslif um langt ára- bil. Þessi árangur i' rikisf jármálum hefur náðstmeð þvi að beita að- haldi i' rekstri stofnana og fyrir- tækja rikisins. Á næsta ári verður áfram haldið á sömu braut. Nokkur skattalækkun varð i ár samkvæmt efnahagsáætlun rikis- stjómarinnar um siðustu áramót. Hlutfall útgjalda rikisins i þjóð- arframleiðslunni gefur gleggsta mynd af heildarskattlagningu. Þetta hlutfall varð hæst 30,4% um miðjan áttunda áratug, var riim 29% tvö siðustu árin áður en nú- verandi rikisstjórn tók til starfa, varð 28,5% árið 1980, verður væntanlega 28,2% f ár og um 28% á næsta ári, samkvæmt fyrir- liggjandi spá. Peningamál Undanfarin áratug hefur sú háskalega þróun átt sér stað i peningamálum , að sparifjár- myndum landsmannahefur minnkað ár frá ári. Þetta hefur stuðlað að jafnvægisleysi á fjár- magnsmarkaði og i utanrikisvið- skiptum. Þessi þróun hefur nú snúist við. Sparifé landsmanna hefur tekið að vaxa á ný og hefur aukist ört á þessu ári. Hhitfall innlána af þjóðarfram- leiðslu var fyrir 3 árum komið niður i 21,5%. Það hækkaði i fyrra upp i 23,8% og i ár i 26,5%. Horfur eru á, að þessi þróun haldi áfram á árinu 1982 og hlutfall innlána af þjóðarframleiðslu hækki þá i um 29% og yrði þá hærra en verið hefur sfðustu 8 ár. Þannig hefur fjármagnsmark- aðurinn komist i betra jafnvægi i ár en verið hefur um langt árabil. Þetta er flestu öðru þýðingar- meira fyrir atvinnulifiö og fyrir stöðugleika i efnahagsmálum. Með efnahagsáætlun rikis- stjórnarinnar frá siðustu áramót- um urðu umskipti i gengismálum. Horfið var frá gengissigi, þ.e. hægfara en mjög tiöri lækkun krónunnar. Þess I stað var ákveð- ið að stefna að stöðugu gengi og miðað við meðalgengi erlendra gjaldmiðla. Um nálega fimm mánaða skeið tókst að halda gengi islensku krónunnar ó- breyttu gagnvart meðalgengi helstu viðskiptalanda okkar. í lok mai' var gengi krónunnar lækkað um tæplega 4%. í ágdstlok var gengið að nýju lækkað og þá um tæplega 5%. Gengi islensku krónunnar hefur ekki verið jafn stöðugt um langt árabil. Viðskiptajöftiuður A þessu ári hefur mjög dregið úr halla á utanrikisviðskiptum ís- lendinga. Horfur eru á, að hallinn á viðskiptum landsmanna við út- lönd verði á þessu ári aðeins um 1/2% af þjöðarframleiðslu. 1 fyrra var þetta hlutfall um 2,4% af þjóðarframleiðslu. Allt frá þvi oliuverð tók að hækka.snemma á siðasta áratug, hafa flest vestræn riki búið við halla á viðskiptum við Utlönd. Svo er enn. tslendingum hefur tekist að ná hér betra jafnvægi. Mörg undanfarin ár hefur heildarfjárfesting landsmanna verið umfram getu þjóðarbUsins. I stjórnarsáttmála rikisstjórnar- innar er sett fram það markmið, að heildarfjárfesting nemi um fjórðungi af þjóðarframleiðslu. Þessu markmiði hefur verið náð á þessu ári. Fjárfesting er talin verða á þessu ári rúm 25% af þjóðarframleiðslu. Anæsta ári er gertráð fyrir, að heildarfjárfest- ing verði um 24%. af þjóðarfram- leiðslu. Með þessu er stefnt að þvi að færa fjármunamyndun nær heildarspamaði þjóðarbUsins og draga Ur viðskiptahalla. Með auknum sparnaði lands- manna aukast möguleikar á að fjármagna fjárfestingu með inn- lendum sparnaði, fremur en er- lendum lántökum. Þróun pen- ingamála áþessu ári gefur tilefni til bjartsýni á þessu sviði. Atvinnuástand hefur verið gott á þessu ári, þegar á heildina er litið. Tekist hefur að tryggja þeim fjölda manr.a, sem á vinnumark- aðinn komaá hverju ári, næga at- vinnu. Um langt skeið hefur hins vegar töluverður fjöldi fólks flust á ári hverju til útlanda. Á siðustu misserum hefur þessi brottflutn- ingur fólks verið minni en oft áð- ur. Þetta er þó enn nokkurt á- hyggjuefni, sem rikisstjórnin hef- ur ihuga við mótun stefnu sinnar i atvinnumálum. Forsenda nægrar og öruggrar atvinnu fyrir vaxandi fjölda fólks ertraustogþróttmikið atvinnulif. Staða atvinnuveganna verður best styrktmeð þvi að auka fram- leiðni og draga með þvi úr inn- lendum kostnaði. Hjöðnun verð- bólgu er afar mikilvæg fyrir at- vinnuh'fið i landinu, forsenda tryggari afkomu og aukinnar framleiðni, skilyrði fyrir vexti at- vinnulifs og þjóðartekna i fram- tiðinni. Miklu skiptir þvi, að unnt verði að tryggja þann árangur, sem þegar hefur náðst I verðlags- málum, peningamálum, rfkis- fjármálum og viðskiptum við út- lönd. Það ersá grunnur, sem hag- vöxtur næstu ára byggir á. Um leið og áfram verður beitt að- haldsaðgerðum á öllum sviðum efnahagsmála, hefur rikisstjóm- inundirbúið sókn i atvinnumálum til aukningar framleiðslutekna þjóðarinnar. Þannig eru nú áformuð stærri skref i virkjun vatnsafls, en áður hafa verið stigin. Virkjun þessarar miklu auð- lindar íslendinga er undirstaða þeirrar sóknar i atvinnumálum, sem rikisstjórnin undirbýr nú. Rikisstjórnin hefur þegar aflað heimildar Alþingis til þess að reisa og reka fjórar vatnsafls- virkjanir, auk heimildar til stækkunar Hrauneyjafossvirkj- unar og ráðstafana til að tryggja betur en nú er rekstur orkuver- anna á Þjórsársvæðinu og auka orkuvinnslugetu þeirra. En þaö verður aldrei nægilega undirstrikað, að þessi sókn i at- vinnumálum mun þvi aöeins skila íslendingum bættum li’fskjörum, að unnt verði aö ná og viðhalda jafnvægi og stöðugleika I þjóðar- búskapnum. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.