Tíminn - 23.10.1981, Side 24
VARAHLUTIR
Sendum um land allt.
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Sími (»1) 7 - 75-51, (91) 7 - 80-30.
Skemmuvegi 20
Kópavogi
HEDD HF.
Mikiö úrval
Opid virka daga
9-19 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
(JJvarahlutir
Armiila 24
Sími 36510
mB&ZAtláMÍN
Z* «—srsv ******
** ** &* w *
,■**,*.**>.< 1
m- ~2 2 I *
— - -« 1- v-
Sr<r/J
*
í í :
1
f'U . . W „
V/e«.TUieLAIUD5VEGU« T
■ Likan aö hinu nýja ibúðahverfi á Artúnsholti sem nú er unniö viö deiliskipulagningu á. Timamynd: G.E.
Borgarrád samþykkir afmörkun og aðalgatnakerfi
nýs íbúðahverfis
LÓDUM ÚTHLUTAÐ A
SVÆÐINU NÆSTA VOR
■ Borgarráö Reykjavikur sam-
þykkti á siöasta fundi sinum meö
þremur samhljóða atkvæöum
(fulltrúar Sjálfstæöisflokksins
sátu hjá) tillögu að afmörkun og
aðalgatnakerfi nýs ibúöarsvæöis
á Artúnsholti. Knútur Jeppesen,
arkitekt, vinnur þessa dagana og
vikurnar að deiliskipulagningu
svæðisins, en gert er ráð fyrir að
lóðum á þessu svæði verði úthlut-
að jrið næstu lóðaúthlutun I
Reykjavik, þ.e. siðvetrar eða vor,
næsta ár.
Artúnsholt, þar sem ibúða-
byggðin á að risa, afmarkast af
Vesturlandsvegi að norðan,
Höfðabakka og Arbæjarhverfi að
austan, Arbæjarsafni og útivist-
arsvæði að sunnan og jarðhýsum
o.fl. að vestan, eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd af likani.
Þarna er gertráð fyrir liðlega 400
ibúöum á um 45 hektara svæði.
„Það er ansi mikil vinna eftir
við þetta skipulag, en það er
stefnt að þvi' að úthluta lóðum á
þessu svæði á næsta ári, þ.e.
næsta vor”, sagði Guðrún Jóns-
dóttir, forstöðumaður Borgar-
skipulags Reykjavikur i samtali
viö Ti'mann i gær.
Guðrún sagði að samkvæmt
skipulagsforsögn væri gert ráð
fyrir mjög lágri byggö á þessu
svæði, ekki hærri en 2-3 hæðir,
þ.e. hæstu hús. Tæplega 70%
byggðarinnar verða sórbýlishús,
en um 30% fjölbýli. Er farið inn á
nyja braut með þessu skipulagi,
meö þvi að ætla sérbýli svo mik-
inn hluta svæðisins eins og raun
ber vitni.
Allt frá þvi að skipulagsvinna
höfst hefur fulltrúa frá Fram-
farafélagi Arbæjar- og Selás-
hverfis verið gefinn kostur á aö
fylgjast með allri framvindu
málsins, og koma með athuga-
semdir. Eins hefur verið haft
samband við Arbæjarsafn og
Umhverfismálaráð borgarinnar
varðandi afmörkun safnlóðarinn-
ar, og hvernig þeim mörkum
verður háttað.
Sagði Guðrún Jónsdóttir að
sjálf ibúðarbyggingin væri upp á
Artúnsholtinu, og hröflaði hún
hvorki við útivistarsvæðinu i Ell-
iðaárdalnum, né skiðasvæðinu i
Artúnsbrekku. Ekki verður held-
ur hróflað við þeim mikla trjá-
garði sem Sveinbjörn heitinn
Jónsson, lögmaður, ræktaði og
kom upp á sinum tíma.
A mörkum ibúöabyggðarinnar
og Arbæjarsafns verður reistur
jarðveggur, svo safngestir þurfi
ekki að hafa það á tilfinningunni
að ibúðabyggðin sé yfirþyrm-
andi samanborið við safnhúsin.
í norð-austur horni svæðisins er
meiningin að gera ráð fyrir
nokkrum atvinnulóðum, „en það
■ Guörún Jónsdóttir, forstööu-
maöur Borgarskipulags Reykja-
vikur. Timamynd: Tryggvi
verður sennilega meira i formi
iðngarða eða staölaðra bygg-
inga”, sagði Guðrún Jónsdóttir.
Hugsunin er sú að atvinnuhús-
næðið getivirkað sem hljóðdeyfir
á þann hávaða sem óhjákvæmi-
lega hlýtur að fylgja mikilli um-
ferð á Vesturlandsvegi og Höfða-
bakka, sérstaklega eftir að
Höfðabakkabrúin hefur verið tek-
in i notkun.
Vegna legu sinnar er Artúns-
holt mjög eðlilegt framhald
byggðarinnar sem fyrir er i Ar-
bæjarhverfi. f nágrenni þess er
einnig stórt atvinnusvæði sem
gerir það enn ákjósanlegra til
ibúðabyggðar. Þar á ofan er út-
sýni frá svæðinu yfir mikinn hluta
borgarinnar, svo og fjallasýn.
Fjarlægð af svæðinu til Árbæj-
arskóla erfrá 800-1700 metrar, en
mun skemmra er i verslanir i Ar-
bæjarhverfi. Umferðartengsl
verða við Höfðabakka, Vestur-
landsveg, og hugsanlega Raf-
veituveg.Tenging Artúnsholts við
hin ýmsu veitukerfi eru mjög
auðveld og ekki mjög kostnaðar-
sián, þar sem það liggur milli
byggðra bóla.
Artúnsholterfyrsta svæðið sem
úthlutað verður á og skipulagt
samkvæmt hinu nýja aðalskipu-
lagi sem samþykkt var i sumar i
borgarstjórn, og oftast hefur ver-
ið kennt við Rauðavatn. Nú er
einnig i gangi deiliskipulagsvinna
við væntanlegt ibúöarsvæði i Sel-
ási, en vinnu við það miðar hægar
en á Artúnsholti, þar sem taka
þarf mið af sjónarmiðum hesta-
manna sem hafa bækistöðvar i
nágrenni þess.
—Kás
Föstudagur 23. október 1981
fréttir
26 skip með 16.680
tonn af loðnu
■ Kl. 17.00 I gær
höfðu 26 skip tilkynnt
afla til loðnunefndar
frá miðnætti með alls
16.680 tonn. Niu skip
með um 6.000 tonn
voru i gærkvöldi á leið
austur fyrir Langa-
nes. A leið i Faxaflóa
eða lengra voru þrjú
skip, Gisli Arni, Dag-
fari og Júpiter.
— HEI
Ekið á mann á
Kleppsvegi
■ Ekið var á mann á
mann á Kleppsvegi i
gærkvöldi. Það var
bill á leið vestur
Kleppsveginn sem ók
á gangandi mann við
gangbrautina nærri
Dalbraut. Maðurinn
var fluttur til rann-
sóknar á slysadeild en
ekki vitaö um hve al-
varlegt slys var að
ræða.
— HEI
Árekstur bíls og
skellinöðru
■ Arekstur varð milli
bils og skellinörðu á
Vifilstaðavegi um
hádegisbilið i gær.
Stúlka er ók skelli-
nöðrunni, var flutt á
Slysadeild Borgar-
spitalans til rannsókn-
ar, en samkvæmt
upplýsingum lögregl-
unnar i Hafnarfirði
var ekki taliö að hún
hafi slasast alvarlega.
—HEI
Harður árekstur
við Nesti.
■ Mjög harður árekst-
ur varð á gamla
Hafnarfjarðarvegin-
um við Nesti laust eft-
ir hádegið i gær.
Mazda bifreið sem
var að koma út úr inn-
keyrslunni við Nesti
ók i veg fyrir strætis-
vagn frá Landleiðum
sem kom suður
Hafnarfjarðarveginn.
Mazda bifreiðin er tal-
in ónýt eftir árekstur-
inn, en litið sást á
strætisvagninum.
ökumaður fólksbils-
ins slasaðist talsvert
og var fluttur með
sjúkrabil á slysadeild.
—Sjó.
dropar
Seint í rass-
inn gripid
■ Þetta hefur siðasta
tölubiað „Verkalýös-
blaösins” aö segja um
Vimma og Nýtt land (guö
blessi minningu þessi:
„Þrátt fyrir misjafna
fortiö Vilmundar á
stjórnmálaferlinum und-
anfarin ár (séö af sjónar-
hóii launafólks) og smá-
borgaralega og fremur
grunnhyggna stjórn-
málastefnu hans (séö af
sjónarhóli marxisma)
ætti fóik aö styöja vel við
bakið á honum nú. Þaö
skiptir þar ekki megin-
máii, þótt hvatinn að
framtakssemi hans nú, sé
e.t.v. aö einhverju leyti
atkvæöasmölun. 1 augna-
blikinu virðist máistaöur
hans I lýöræöisbaráttu i
verkalýöshreyfingunni
góöur. Hann gæti losaö
ýmsa hluti i skaöiegri
sjálfheldu. Sé þaö rétt,
þarf verkafóik og róttækl-
ingar og sannir kommún-
istaraöstyöja þá félaga á
Nýju Landi og jafnframt
aö veita þeim aöhaid
(gagnrýna og leggja á
ráöin). Aö sjálfsögöu má
ekki treysta þeim i
blindni, frekar en öörum
foringjum”.
Danskur
húmor
■ Þessi er stoiinn af loki
viröulegs hálstöflupakka
af danskri tegund: „Aliir
geta gert mistök, — sagöi
broddgölturinn og klifraöi
ofan af fataburstanum.”
Björgum
váknum
eins
og Valla!
■ Nú flýgur fyrir meöal
gárunganna aö Gunnar
Thoroddsen forsætisráö-
herra, hafi ákveöiö aö
taka málefni fjaliváksins
sem Timinn greindi frá i
gær, uppá sina arma.
Ætlun mun vera aö
senda varöskipiö Ægi
meö fuglinn til Nýfundna-
iands, en fyrst verður þó
Fokker-véi Landhelgis-
gæslunnar send i leiöang-
ur til þess aö aögæta I
hvort einhverjir aðrir j
staðir á norðurhveli jarö-
ar kynnu að henta fuglin-1
um betur.
Krummi ...
...heyrir þaö hjá Sjálf-
stæðismönnum, aö senni-
lega veröi minnstur hluti
landsfundarfulltrúa ekki i
framboöi tii varafor-
manns!