Tíminn - 20.12.1981, Side 9
Sunnudagur 20. desember 1981
9
menn og málefni
Lífsgæðin byggjast á
verðmætasköpuninni
Margri fromri ihaldssál hef-
ur vafalaust hlýnaö um hjarta-
rætur aö hlýöa á eöa lesa ræöu
þá er Geir Gunnarsson formaö-
ur f járveitinganefndar flutti viö
upphaf annarrar umræöu um
fjárlög. Nefndarformaöurinn
minnti þingheim á aö arðsemi
atvinnuvega er forsenda þess aö
halda uppi góðri þjónustu.
„Það eru takmörk fyrir þvi
hve stóran hlut þjóðarteknanna
við getum notað ár eftir ár til
þessaðauka þjónustuþættina og
þá um leið þjónustuútgjöldin i
framtiðinni, án þess að raun-
verulegur verðmætisauki sé
fyrir hendi”, sagði formaður
fjárhagsnefndar og átaldi hann
þngmenn fyrir að framleiða i
sifellu tillögur um bætt mannlif
með liprum greiðslum úr rikis-
sjóði.
Þeir aðilar eru til i þjóðfélag-
inu, og þeir eru margir, sem
aldrei þurfa að leggja hugann
að arðsemi. Menntakerfið,
heilsugæslan tryggingarnar og
margt fleira er rekið fyrir fé úr
rikissjóði. En það eru aðrar
greinar sem leggja sjóðnum til
fé, og þótt menntun,' heilbrigði
og fagurt mannlif yfirleitt se
sjálfsagt og eftirsóknarvert og
sannarlega þess virði að nokkuð
sé á þegnana leggjandi til að
standa undir þeim stofnunum
sem til þess eru ætlaðar að
stuðla að menntun, heilbrigði og
öryggi, eru takmörk fyrir þvi
hvað þær og rekstur þeirra má
kosta.
Islendingar setja markið hátt
til að efla opinbera þjónustu og
félagsleg réttindi og er það
sjálfsagt en einhvers staðar eru
takmörk. Fulltrúi frá kanadisku
heilbrigðisstjórninni var stadd-
ur hér á landi fyrir nokkru að
aðstoða við uppbyggingu tiltek-
innar greinar heilbrigðisþjón-
ustu ~en Kanadamenn standa
mjög framarlega á þeim
sviðum og eyða til þeirra miklu
fé. Hann var spurður hve lengi
væri hægt að auka heilbrigðis-
þjónustu á kostnað hins opin-
bera. Kanadamaðurinn glotti
við og svaraði að bragði:
„Þangað til búið er að veita öll-
um þjóðartekjunum til heil-
brigðisþjónustunnar”. Mikill
kurr hefur verið i háskólamönn-
um vegna þeirra fjárlaga sem
nú er verið að ganga frá. Tals-
vertskortir áað hægt sé að reka
háskólann með þeim framlög-
um sem honum voru ætluð i
fyrstu gerð fjárlaga. Málið er
það að í ár stunda nokkur
hundruð fleiri nemendur þar
nám en i fyrra og næsta haust
má búast við enn meiri fjölgun,
þ.e. á þvi fjárhagsári sem fjár-
lagafrumvarpið nær til.
Tryggingastofnun rfkisins
þarf ærið mikið viðbótarfé ef
hún á að sinna þeirri starfsemi
sem henni ber.
Frekir til fjárins
Fjárhagsnefndarmenn hafa
unnið baki brotnu vikum saman
við að útdeila framlögum úr
rikissjóði. Nær 200 aðilar hafa
átt erindi við nefndina og
áreiðanlega allirhiðsama að fá
viðbótarfjárveitingu við þá upp-
hæð sem stofnanirþæreða félög
er þeir bera fyrir br jósti þurfa á
næsta ári. Það er mörg holan
sem láta þarf i, en matarholan
aðeins ein, rikissjóður.
Til aðstanda straum af sífellt
auknum útgjöldum er aðeins ein
leið, meiri álögur. En þær vilja
allir m innka. Fjárlög eru mörk-
uð innan viss ramma. Fjár-
veitingavaldið hefur þvi nokk-
urn veginn ákveðna upphæð til
skiptanna. Og flestir eru frekir
til fjárins. Hver aðili sem á
undir fjárveitingavaldið að
sækja ber einkum hag sinnar
stofnunar fyrir brjósti og rekur
sinar raunatölur, hvað hann fái
nú lítinn skammt af allri fúlg-
unni. Ekki sé nú búið svona
hraksmánarlega að samsvar-
andi stofnunum eða greinum á
öðrum Norðurlöndum. 1 Sviþjóð
eða Danmörku sé svo miklu
meira fé varið i samsvarandi
starfsemi.
Það er nú svo. í Sviþjóð og
Danmörku eru stjómvöld og
landssjóðirnir að súpa seyðið af
opinberum flottheitum, og er
ekki alltsopið enn. Þá ber þess
að gæta að þegar einstakar
greinar á opinberu framfæri fá
það fé er þær vilja verður ein-
faldlega að minnka skammtinn
annars staðar. Af því leiða
kröfugerðarmenn aldri hugann.
Ersumir aðilar svo harðir i af-
stöðu sinni til f járveitingavalds-
ins að þegar þeir fá ekki það
sem þeim sýnist „hefna þeir i
útvarpi sem hallast á i frum-
varpi”. Þá er einfaldlega rokið i
fjölmiðla og klagað.
Vel á minnst. Hvaða smekk-
menn skyldu standa að þeim
auglýsingum i sjónvarpi, sem
Kennarasamband Islands skrif-
ar upp á?
Það er margt réttlætismálið
og sumu hverju af þvi tagi er
hrint f framkvæmd i formi alls
kyns félagsmálapakka og þeir
sem að þeim standa hæla séraf
og þykjast hafa háð harða bar-
áttu og haft sigur að lokum ef tir
mikið erfiði sem sagt með
liprum greiðslum úr rikissjóði.
Sömu aðilar kvarta gjarnan
sáran yfir óhóflegum álögum á
landslýð og skattpiningu.
Síðan er fjárhagsnefndar-
mönnum úthúðað i fjölmiðlum
fyrirað láta ekki hvern sem vill
ganga i sjóðinn og sækja sér
hnefa.
*
Oljós fjárhagsstaða
Alexander Stefánsson sem
sæti á i f járveitinganefnd talaði
iannarri umræðu um fjárlaga-
frumvarpið og gerði að umtals-
efni samskipti opinberra stofn-
ana við f járveitingavaldið.
Hann sagði m.a. að verkefni
sumra stofnana i kerfinu rekist
á, þannig að fleiri aðilar eru i
raun að vinna sama verkefni. A
þetta rækju menn sig iðulega
við fjárlagagerðina. Þá gagn-
rýndi hann að alltof mikil s jálf-
virkni væri i útþenslu margra
opinberra stofnana.
Væri full ástæða til að fara
rækilega ofan i þau mál.
Sem dæmi nefndi hann að út-
gjöld tíl tryggingamála eru 271
millj. kr. i f járlagafrumvarpinu
og eru fyrirferðarmest allra
rikisútgjalda. Forstjóri Trygg-
ingastofnunarinnar kom á fund
fjárveitinganefndar og óskaði
eftirhækkun um litlar 303 millj.
kr„ sem hann taldi að vantaði til
að hægt væriaðreka trygginga-
stofnunina meðeðlilegum hætti.
Það alvarlegasta við þessa
hækkunarbeiðni var sú blákalda
staðreynd að forstjóri stærstu
stofnunar i opinberum rekstri á
landinu viðurkenndi að hann
hefði ekki möguleika á að upp-
lýsa um raunverulega fjárhags-
stööu tryggingakerfisins t.d. frá
mánuði til mánaðar. Kerfið er
seinvirkt i uppgjöri og eru öll
sjúkrasamlög i landinu á floti
eins og forstjórinn orðaði það.
1 þetta mikla bákn þarf að
setja tölvukerfi leggja sjúkra-
samlögin niöur, breyta húsa-
skipun stofnunarinnar o.fl, o.fl.
Tryggingastofnunin er ein
þýðingarmesta stofnun landsins
en er bákn sem vaxið hefur yfir
höfuð stjórnenda.
Geta má að fjárveitinganefnd
hækkaði framlag til TR um 67
millj. kr. istað 303 sem stofnun-
in telur sig þurfa.
Alexander sagði að freistandi
væri að nefna ótal stofanir i
þjóðfélaginu sem augljóslega er
full þörf á að teknar séu til ræki-
legrar skoöunar og eiidurskipu-
lagningar og vafalaust væri
hægt að lækka útgjöld rikisins
verulega væri það gert af viti og
skoraði á Alþingi að taka mál
þessi fastari tökum en hingað
til. Þá nefndi hann fleiri málefni
i opinberum rekstri sem
sprengir af sér allar fjárhags-
áætlanir á sjálfvirkan hátt.
Lífsgæðin verður
að byggja á
verðmætasköpun
Fjárhagsnefndarmenn hafa
öðrum fremur yfirlit um
gengdarlausar fjárkröfur á
hendur rikissjóði og hvar skór-
inn kreppir i efnahagslifinu.
Alexander Stefánsson varaði
við óhóflegum kröfum og sagði
aö framundan væru mikilvægar
hernum völdin aðfaranótt
sunnudags. Alþingi tók fljótt við
sér og fyrsta mál á fundi sam-
einaðs þings á mánudag var
þingsályktun um þennan fá-
heyröa atburð i evrópsku
menningarriki. 1 upphafi fundar
kvaddi forsætisráðherra sér
hljóðs og las ályktun er rikis-
stjórnin samþykkti þá um
morguninn. Utanrikismála-
nefnd hafði þá einnig komið
saman og samþykkt ályktun er
lögð var fyrir Alþingi. Þá sendu
allir þingflokkarnir frá sér
ályktanir um málið.
ADar voru ályktanirnar á
sömu lund fordæming á afnámi
laga og mannréttinda i Pól-
landi. Þetta voru eðlileg og
sjálfsögð viðbrögð kjörinna full-
trúa ilýðræðisrikiog þjóðinni til
sóma.
A fundinum tóku fulltrúar
allra stjórnmálaflokkanna til
máls. Þingflokksformaður Al-
þýðubandalagsins var svo
ákafur i mótmælum sinum, að
hann heimtaði að þjóðþingið
legði niður störf og færi út á
Lækjartorg til að mótmæla lika
1 i j 1
’ 1P MMJi V J lliíSi
Ifl&allHB
ákvarðanir i efnahagsmálum
sem tryggja eiga li'fskjör
þjóðarinnar. ,,Það er skamm-
sýni og um leið þjóðarógæfa ef
landsmenn gera sér ekki fulla
grein fyrir þeirri staðreynd að
kröfurf um li'fsgæðin verða að
byggja á þeirri verðmæta-
sköpun sem atvinnuvegir okkar
lands eru færir um að framleiða
og þvi markaðsverði sem i' boði
er. Það þarf engum að koma á
óvart að ráðstafanir i efnahags-
málum til að ná jákvæðum
árangri við núverandi aðstæður
segja til sin i daglegu lifi allra
landsmanna. Full verðtrygging
peninga kallar á ný viðhorf i
viðskiptum meira aðhald og
sparnað i' atvinnurekstri og ná-
kvæmari hagræðingu, meiri
framleiðni og meiri vöru-
vöndun.
011 þessi mál þarf að ræða af
fullri hreinskilni fyrir opnum
tjöldum. Rikisstjórnin ræöir
efnahagsvandann og leiöir til að
ná þvi markmiði sem allir eru
sammála um að hljóti að vera
aðalmálið að ná verðbólgunni
niður. Þjóðin ætlast til þess að
rikisst jóm og alþingismenn geri
ráðstafanir sem tryggi lífskjör-
in í landinu. Til þess þarf að
vinna bug á veröbólgunni og
koma i veg fyrir afleiöingar
hennar”.
Afnám mann-
réttinda fordæmd
Fár það er kommúnistar hafa
leitt yfir pólsku þjóðina kom til
umræðu á Alþingis.l. mánudag.
K«nmúnistar í rikisstjórn Pól-
lands afhentu kommúnistum i
þar. Forseti sameinaðs þings
gaf li'tið út á svoleiðis hefur lik-
lega talið að Alþingi hafi mót-
mælt og ályktað á réttum vett-
vangi og mundi það duga. For-
seti sagði þó að hann hygðist
halda tvofundi i deildinni þenn-
an dag og ef þingmenn væru
ekki langorðir um of á fyrri
fundinum hefðu þeir tima til
þeirrar ráðstöfunar er þeim
sýndist.
Stendur þá ekki upp Þor-
valdur Garðar, sem að öllu
jöfnu er ekki orðaður við
flumbruhátt og sýndarmennsku
og tilkynnir að hann vilji lika
fara út á torg að „demonstrera”
og Itrekaði ósk um að Alþingi
hætti störfum svo að þingmenn
gætu farið að mótmæla. Forseti
endurtók fyrri ummæli. Undir-
ritaður var ekki lengur i Al-
þingishúsinu þegar kom að aug-
lýstum útifundartima og veit
þvi ekki hvernig þessu máli
lyktaði.
Fundur á Grenimel
En það voru aðrir fyrri til en
rikisstjórn og Alþingi að láta i
ljós hug sinn til Pólverja á ör-
lagatimum. Alþýðubandalagið
boðaði til mótmæla þegar á
sunnudag og fékk til liðs við sig
málpipur einhverra félaga úti i
bæ. Var sá fundur haldinn á
tröppum pólska sendifulltrúans
vestur á Grenimel.
Þann dag voru fréttir stopular
frá Póllandi vegna ráöstafana
hinnar allsráðandi herstjórnar
þar ilandi. Til að hafa einhverj-
ar fréttir og myndefni þaö kvöld
greip sjónvarpið tækifærið og
sýndi formannallaballanna lesa
*
Oddur Olafsson
skrifar
ræðu á tröppunum vestur i bæ.
Það var hugnæmt að heyra
hann lesa þann boöskap aö Al-
þýðubandalagið stæði með
pólskum verkamönnum og
samtökum þeirra, Samstöðu, i
baráttu þeirra til sósialisma.
Vafalaust hefur ræðan verið
lengri en sjónvarpaö var og
fjallað um þjóðfrelsi og fleiri
munntöm slagorð.
Liklega verður einhver bið á
að kaldri svangri og hrjáðri al-
þýðu Póllands berist baráttu-
kveðjan frá formanni Alþýðu-
bandalagsins og gildir það
kannski einu. Pólska þjóðin fær
áreiöanlega nóg af tali um bar-
áttuna til sósialisma yfir sig
þessa dagana, þar sem her-
stjómin hefur öll umráð fjöl-
miðla á sinni hendi til að hvetja
verkamennina i Lenin-skipa-
smiöastöðinni og félaga þeirra i
Samstöðu niðri í kolanámum, i
Ursus-verksmiðjunum og sæl-
gætisgerðinni Prins Polo til að
fara aö láta af verkalýðsbaráttu
en fara að sinna sósialisma í
þess stað.
Marga setti hljóða þegar
pólsku verkamönnunum var
send þessi kveðja og náðu litlu
samhengi. A þriðjudagskvöld
fóru málin að skýrast svolitiö. I
kostulegum umræðuþætti sem
fram fór i sjónvarpinu, eins og
vera ber, ogPólland bar á góma
lýsti ritstjóri Þjóðviljans þvi
yf ir að þaö sem fyrir pólskri al-
þýðu vekti með baráttu sinni við
stjórnvöld væri
„frumsósialismi”. Sú tegund
var ekki útskýrð með öðru en
þvi að verkamenn vildu ráða i
verksmiðjum og reka og ráða
forstjóra að vild. Hugmynda-
fræðingar allaballanna eiga
eftir að skýra þetta betur siðar
ef að likum lætur og tengja þaö
eigin stefnu með orðhengils-
hættisem þeim einum er laginn.
Hugmyndafræði
á hrakningi
Skammt er liðið siðan alla-
ballar unnu mikinn kosninga-
sigur að eigin sögn er Mitter-
rand var kjörinn forseti i
Frakklandi og stóð fagnaðar-
hátiöin vikum saman á siöum
málgagns þeirra. Um það leyti
sem Frakklandsforseti ákvað
að halda áfram að sprengja
bombur i tilraunaskyni og efla
kjarnorkuvarnir landsins upp-
götvuðu allaballarnir púðrið i
friðarboðskap kirkjudeilda og
fleiri aðila i' Vestur-Evrópu og
um skeið gekk ekki á öðru i
þeim herbúðum en gengdar-
lausum áróöri um að vestræn
riki leggi niður varnir sinar og
nú eru þeir farnir að styðja
pólska alþýðu til að koma upp
hjá sér sósialisma.
Þessir hugmyndafræðilegu
hrakningsmenn eru aldrei i
vandræöum með að snúa út úr
eigin oröum og gefa baráttu-
málum sinum og hugmynda-
fræði sifellt ný nöfn og verður
fróölegt að fylgjast með vanga-
veltum þeirra um hvar frum-J
sósialismans sé að leita.
Léttúð og orðhengilsháttur á
illa við þegar fjallað er um þær
hörmungar sem sósialistar hafa
leitt yfir pólska þjóð. Það vita
allir hver hinn raunverulegi
stjórnandi Póllands er, þótt
heita eigi að pólski herinn hafi
tekið völdin og stjórni sam-
kvæmt herlögum sem i raun er
ekki annaö en lögleysa og of-
beldi samkvæmt skilningi allra
frjálsborinna manna. Kristin og
upplýst alþýða Póllands á annaö
skilið en hugmyndafræðilega
útúrsnúninga á baráttu sinni og
þvi oki sem hún er aö reyna aö
velta af sér.