Tíminn - 20.12.1981, Page 24
24
Sunnudagur 20. desember 1981
■ Keppendur á tslandsmóti 1953.
Fyrir miðju á myndinni er norski
oly mpiumeistarinn Bjarne
Lyngas. — Mynd R. Vignir
Friðrik Á. Clausen, eigandi
Ásakaffis á Grundarfirði
■ Birgir Þorvaldsson, Jón Norðfjörð, Hrafn Jóns-
son, Thor Thors, Friðrik Á Clausen... fæstir kannast
sennilega við þessi nöfn en þetta eru allt fyrrver-
andi hnefaleikarar hérlendis sem gerðu garðinn
frægann í Hálogalandi á sínum tíma eða í kringum
1950.er hnefaleikar var vinsælasta íþróttin hér-
lendis.
Hnefaleikar voru bannaðir hérlendis fyrir tæpum
30 árum,eða árið 1954,og þá höfðu aðallega verið
kepptir sýningarleikir um tveggja ára skeið. Þeir
sem stunduðu þessa íþrótt á sínum tíma finnast
viða í þjóðlíf inu. Einn þeirra býr á Grundarf irði og
á þar veitingastaðinn Ásakaffi.
■ Mikiö úrklippusafn um gamla
tima er til á heimilinu. Tima-
mynd Arie Lieberman.
■ t keppni við varnarliösmann-
inn Crump en þann leik vann
Friðrik