Tíminn - 05.02.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.02.1982, Blaðsíða 1
Jtr- Ur skemmtanalrfinu Kjallarakvöld alltaf jaf n vinsæl ■ Skemmtikvöld LeÍKnuskjali- okkur fyrr i vetur, eru núna föst arans, Kjallarakvöld hafa reynst mjög vinsæl i vetur, en þaö eru skemmtikvöld um helg- ar, þegar boöið er upp á skipu- lagða skemmtidagskrá og mat i einum pakka. Til þess að forvitnast um skemmtidagskrá þessara kvölda, hafði Timinn samband við eina aðaldriffjöður þessara skemmtana, sem er jafnframt leikstjóri þeirra, Gisla Rúnar Jónsson og á hálfgerðum hlaup- um veitti hann okkur eftirfar- andi upplýsingar. „Eins og sakir standa þá er- um við fimm leikarar sem kom- um fram hverju sinni. Vegna anna i öðrum leikstykkjum, þá skiptast þeir Bessi Bjarnason og Sigurður Sigurjónsson á um að leika á Kjallarakvöldunúm, en aðrir leikarar eru Edda Björg- vinsdóttir, Randver Þorláksson, Sigriður Þorvaldsdóttir og ég. Auk þessa sér Sigurður Þórar- insson, pianisti Kjallarans um tónlistina hjá okkur. Það hafa orðið svolitlar breytingar á mannskaphjá okkur i vetur, þvi t.d. Helga Backman og Þórhall- ur Sigurðsson, sem voru með i öðru.” — Hverjir eru svo höfundar að þessum þáttum? „Höfundarnireru ég,Edda og Randver.” — Út á hvað ganga þessir þættir ykkar? „Þetta eru stuttir þættir, eig- inlega alls staðar að, þvi það er víða komið við. Þeir halda ekki þræði — við köllum þetta kaba- rett — þetta eru svona stuttir sketsar, nokkuð óskyldir. Þetta er sem sagt ekki revia, þar sem svipuð gamanmál eru tekin fyr- ir, en þá alltaf með þræði. Við erum með tvö 50 minútna pró- grömm i gangi, sem að visu hafa tekið smávægilegum breytingum i vetur, svona eftir móttökum og öðrum aðstæðum. Ég held mér sé óhætt að segja að þetta séu lifandi prógrömm, þvi þau geta tekið breytingum frá einni helgi til annarrar.” — Eruðþið með eitthvað beint úr daglega lifinu, ss. það sem efst er á baugi i stjórnmálum o.s.frv.? „Nei, eiginlega ekkLÞetta eru hlutir sem ekki eiga 'sér beinar lifandi fyrirmyndir, eins og t.d. i ■ Gisli Rúnar Jónsson, I einu af þeim gervum sem hannbregður sér i á Kjallarakvöldum. revium. Við búum heldur til okkar eigin grófgeröu komik karaktera og setjum þá i fárán- legar sitúasjónir og semjum i kringum þá fyndinn texta.” — Hvernig hafa svo undirtekt- ir verið? „Þær hafa verið ákaflega góðar og aðsókn hefur verið mjög góð. Eins og þú veist, er þetta selt i einum pakka, skemmtun okkar og matur. Það segir sig auðvitað sjálft að þaðer mjög vandasamt að ná upp stemmningu i mjög litlum sal, sem tekur aðeins um 100 manns og fólkiðer auk þess ansi dreift i kringum leikarana á þriá vegu. Það má halda vel á spöðunum til þess að ná upp réttri húmor atmosferu i þetta litlu lókali, en ég held mér sé óhætt að segja aö það hafi geng- ið mjög vel hingaö til. Þetta er að visu mikil svitasýning fyrir leikarana, en meðan vel gengur þá kvarta þeir ekki.” — Hvað reiknið þið með að Kjallarakvöldin gangi lengi hjá ykkur? „Við reiknum fastlega með að þetta gangi út leikárið, þvi að- sókn hefur verið mjög góð, og við höfum enga ástæðu til þess að ætla að þar verði breyting á.” — Finnst þér skemmtilegra að taka þátt i svona sýningum, en föstum hefðbundnum leik- sýningum? „Nei, það finnst mér ekki. Á margan hátt er svona verkefni bæði ögrandi og erfitt, en það getur átt sinar neikvæðu hliðar. Segjum t.d. að það sé ofsalega fin stemmning i salnum hjá þessum 100 áhorfendum, en svo er kannski einn litill Jón Jóns- son, sem er ekki alveg stemmd- ur fyrir þetta og fer að láta heyra eitthvað aðeins i sér. Þessum Jóni Jónssyni gæti tek- ist að eyðileggja stemmningu heils kvölds, með framiköllum og þvi sem hann teldi vera fynd- ið. 1 svona litlum sal, þá getur einn slikur maður náð að spilla dálitið mikið fyrir og svona at- burðir geta kostað baráttu við slikt fólk, en sem betur fer þá gerist það ekki oft að einhver gesturinn vilji vera með svona einka uppákomu. En þegar þetta kemur fyrir, þa ér þetta heldur leiðinleg reynsla fyrir leikarana, og þá kýs maður óneitanlega heldur að vera á sviði þar sem áhorf- endur bera virðingu fyrir þvi sem maöur er að gera.” — AB Þeir sem hafa hug á að koma upplýsingum á framfæri í „Helgar- pakkanum” þurfa að hafa samband vid blaðid fyrri hluta viku og alls ekki sfðar en á miðvikudegi Velkomin á síld. Aftur er síldarævintýri í Blómasalnum. Yfir 30 fiskréttir á hlaóborði: Síld á marga vegu, hröpuskelfiskur, lax, reyktur og grafinn karfi, reykt og grafin grálúöa, reyksoöinn fiskur, salöt og ídýfur. Sannkallaöur ævintýra- málsverður á aöeins kr. 130.-pr. mann. Pantið borð tímanlega. HQTEL LOFTLEIÐIR Borðapantanir í síma 22322 SILDAR ÆVINTÝRI ■T> Á M # k ' AHOTEL XS> LOFTLEIÐUM ICEFOOD íslensk matvæli h.f. Hafnarfirði kynnir framleiðslu sína í samvinnu við Hótel Loftleiðir 4.-14. FEBRÚAR * * * * * * * * * * * * * * * * * * Elskaðu mig i kvöld kl. 20,30 Gppselt Þjóðhátíð laugardag kl. 20,30 lllur fengur sunnudag kl. 20,30 Sterkari en Supermann sunnudag kl. 15,00 Súrmjólk með sultu ævintýri i alvöru eftir Vertil Ahrlmark laugardag kl. 15.00. Leikstjórn Thomas Ahrins. Þýðandi Jórunn Siguröar- dóttir. Leikmynd og búningar Grétar Reynisson. Miðasala opin daglega frá w kl. 14.00. Laugardaga og ” sunnudaga frá kl. 13.00. Sala afsláttarkorta dae- . lega. -K Simi 16444. ^ * * * * * * * * * * * * ★ ★

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.