Fréttablaðið - 17.09.2008, Page 1
Staða sparisjóðanna:
Stór orð á
veikum grunni
6
Sagan á bak við
Lehman
Brothers heyrir
sögunni til
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 17. september 2008 – 38. tölublað – 4. árgangur
Skuldatryggingarálagið
Mikill áhugi á
CDS-inu
4
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„XL fékk tilboð í endurfjármögnun um mitt síðasta
sumar, en því var ekki tekið af því að menn töldu
að betri kjör gætu fengist annars staðar. Skömmu
síðar lokuðust allir lánsfjármagnsmarkaðir,“ segir
Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður XL Leisure
Group og fyrrverandi stjórnarformaður Eimskips.
Hann stýrði Avion Group á sínum tíma, þar á
meðal kaupum á Excel Airways og átti síðar þátt í
sölu til stjórnenda félagsins. XL Leisure Group varð
gjaldþrota fyrir helgi. Þar með misstu hátt í tvö þús-
und manns vinnuna og tugþúsundir viðskiptavina
XL urðu strandaglópar víða um heim.
Eimskipafélagið var í ábyrgð fyrir yfirtöku
stjórnenda á XL Leisure Group. Ábyrgðin nemur
280 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur ríf-
lega 25 milljörðum íslenskra króna. Ábyrgðin fellur
á Eimskipafélagið, en Björgólfsfeðgar hafa raunar
lýst því yfir að þeir taki hana yfir.
„Við fengum þetta tilboð í félagið. Stjórnin var ein-
huga um að það væri félaginu og þar með hluthöf-
um til hagsbóta að taka því, selja sig út úr flug-
rekstrinum og einbeita sér að öðru. Það var ef-
laust rétt ákvörðun á þeim tíma,“ segir Magnús
Þorsteinsson, en stjórnendur XL keyptu félagið af
Eimskipafélaginu. „Þá var líka allt annar aðgang-
ur að lánsfé og ágætar áætlanir uppi til framtíð-
ar af hálfu félagsins, sem menn höfðu fulla trú á.
Við létum sérstaklega kanna þá kosti sem væru til
endurfjármögnunar og það leit allt saman vel út,“
segir Magnús.
Magnús Stephensen, sem sat í stjórn XL og var í
hópi þeirra stjórnenda sem keyptu félagið af Eim-
skipafélaginu, segir að ýmsar tillögur um endur-
fjármögnun hafi borist. „Allar þessar tillögur voru
á umræðustigi.“ Stjórnin hafi engu hafnað. Allt hafi
verið reynt til að endurfjármagna félagið. „Það er
varla til sá banki eða fjárfestingarfélag sem við töl-
uðum ekki við,“ segir Magnús. „Tillögurnar voru
hins vegar allar háðar ýmsum skilyrðum sem fé-
lagið gat ekki endilega uppfyllt. Flest snerust þessi
skilyrði um afkomu fyrirtækisins.“ Hann segir að
hátt olíuverð hafi haft slæm áhrif á reksturinn.
Þetta sé ekki ár flugfélaga. „Ef fjórði stærsti fjár-
festingarbanki heims fær ekki endurfjármögnun,
þá held ég að það segi allt sem segja þarf.“ Sjá síðu 4
XL Leisure hafnaði
endurfjármögnun
Fyrrverandi stjórnarformaður Eimskips fullyrðir að tilboði
um endurfjármögnun XL Leisure hafi verið hafnað í fyrra-
sumar. Stjórnarmaður í XL segir að allt hafi verið reynt.
Lækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands hefst á
fyrsta fjórðungi næsta árs þegar komin verða fram
„sterk merki um kólnun“, segir í nýrri spá grein-
ingardeildar Kaupþings. Óvissuþættir gætu hvort
heldur sem er flýtt eða frestað lækkunarferlinu.
„Vextir gætu lækkað fyrr eða í desember næst-
komandi ef kólnunin verður hraðari, svo sem ef
aðstæður ytra versna enn frekar. Forsendur geta
skapast fyrir hraða verðhjöðnun og bratt vaxta-
lækkunarferli á árinu 2009 ef stöðugleiki eða styrk-
ing skapast á gjaldeyrismarkaði,“ segir í spá grein-
ingardeildarinnar. Í lok næsta árs er því spáð að
stýrivextir standi hér í níu til tíu prósentum.
Fram kemur að skortur á trúverðugleika standi
helst í vegi vaxtalækkunar á þessu ári, þar sem
markaðurinn kunni að túlka of bráða vaxtalækkun
sem eftirgjöf og undanlátssemi.
Um leið er bent á að hagtölur berist með nokkurri
töf og því muni nokkur tími líða frá því að kólnun-
in hefst og þar til hún fæst staðfest í tölum. „Þessi
skortur á trúverðugleika tefur því vaxtalækkunar-
ferlið og felur í sér töluverðan kostnað þar sem nið-
ursveiflan verður dýpri en ef vaxtalækkunarferlið
hæfist fyrr. Við þetta má bæta að mjög erfitt er að
hefja lækkun vaxta svo lengi sem krónan er undir
jafnmiklum þrýstingi,“ segir í spánni. - óká
Lækkun ekki fyrr en á nýju ári
Brann yfir | Kauphöllinni í
Moskvu í Rússlandi var lokað
í klukkustund í gær eftir að
MICEX-vísitalan hafði hrunið
um 16,6 prósent. Þetta er þar
með versti dagurinn í kauphöll-
inni í áratug. Vísitalan endaði í
nítján prósenta falli.
Óttast samdrátt | Olíuverð fór
niður fyrir 90 dali á tunnu í gær-
morgun. Mikill taugatitringur
hefur verið á fjármálamörkuð-
um í vikunni og hafa fjárfest-
ar losað um stöður sínar í olíu af
ótta við að samdráttarskeið sé að
renna upp.
Verðbólga eykst | Verðbólga
mældist 4,7 prósent í Bretlandi í
síðasta mánuði, samkvæmt gögn-
um bresku hagstofunnar sem birt
voru í dag. Hún hefur ekki verið
meiri í ellefu ár og kemur í veg
fyrir að Bretar geti lækkað stýri-
vexti í bráð.
Vondur skellur | Fall á banda-
rískum hlutabréfamörkuðum
á mánudag er það versta frá
hryðjuverkaárásunum á Banda-
ríkin 11. september árið 2001.
Fljúgandi jákvæðir | Norska
ríkisstjórnin veitti samþykki sitt
í vikunni fyrir hugsanlegri sölu á
norræna flugfélaginu SAS. Lík-
legt er að þýski flugrisinn Luft-
hansa leggi fram tilboð í félagið.
„Björgólfur Guðmundsson hefur
aldrei komið nálægt flugrekstri,“
segir Ásgeir Friðgeirsson, tals-
maður Björgólfsfeðga, í samtali
við Markaðinn.
Ásgeir bendir á að Björgólf-
ur Guðmundsson hafi verið stór
hluthafi í Eimskip frá árinu 2003
og til þess dags að félagið var
selt Avion Group. „Hann var
ótengdur félaginu þegar sölu-
samningar á flugrekstrareining-
um voru gerðir og skrifað var
undir ábyrgðir sem nú hafa fall-
ið á félagið. Hann var einnig
ótengdur félaginu þegar upplýs-
ingar komu frá XL–flugfélaginu
í aðdraganda skráningar félags-
ins í Kauphöll á Íslandi en frétt-
ir hafa verið um meinta föls-
un þessara upplýsinga. Björgólf-
ur kom aftur að félaginu eftir
skráningu í Kauphöllinni og eftir
að það var aftur orðið aðeins
skipafélag,“ bætir Ásgeir við.
Hann bendir ennfremur á að
Björgólfur Thor Björgólfsson
hafi ekkert komið að Eimskip frá
því það var selt til Avion Group.
„Það er af persónulegum ástæð-
um sem hann tekur nú á sig
ásamt föður sínum þær ábyrgðir
sem fallið hafa á félagið.“ - bih
„Persónulegar
ástæður“
7
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Svansmerkt
prentverk