Fréttablaðið - 22.10.2008, Blaðsíða 8
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Lík hrannast nú upp í líkhúsum
í Bretlandi, en fjármálakreppan
þar í landi hefur gert að verkum
að aðstandendum gengur illa að
selja eignir úr dánarbúum til að
greiða fyrir útför ættingja sinna.
Hið opinbera veitir nærri 900
evra styrk til greftrunar, en seina-
gangur og skriffinnska í breska
ríkisbákninu gerir að verkum að
greiðslur berast seint.
Fjármálakreppan hefur orðið
til þess að útfararþjónusta, sem
reiðir sig á lánsfé til að fjár-
magna daglegan rekstur, er mjög
aðþrengd. Útfararstofur treysta
sér því ekki lengur til að veita
viðskiptavinum sínum lán fyrir
greftrunarkostnaði, með þeim
afleiðingum að dæmi eru um að
lík bíði í tvo mánuði eftir greftr-
un.
Líkin hrannast
upp í Bretlandi
Kaupmenn þykjast merkja
breytta hegðun landsmanna í
matarinnkaupum sökum efna-
hagslægðarinnar sem nú ríki. Á
þessu vekur Bændablaðið athygli
í forsíðufrétt þar sem rætt er
við Pétur Allan Guðmundsson,
kaupmann í Melabúðinni. Hann
segir samdrátt í margvíslegri
munaðarvöru, en kveðst þó ekki
merkja að fólk sé almennt að
færa sig frá innfluttum varn-
ingi í innlendan „þó megi
sjá mjög ákveðna
sókn í hefðbund-
inn íslenskan mat
– heimilismatinn
– eins og slátur,
svið og súpu-
kjötið“, hefur
B æ n d a b l a ð i ð
eftir Pétri.
Hefðbundinn
matur í sókn
„Hrun íslenska hagkerfisins
hefur verið ófögur sjón og hið
versta er að breskir sparifjár-
eigendur virðast hafa tapað
á öllu saman,“ sagði nýverið
í sunnudagsblaði The Times.
Blaðið benti þó á að fátt væri
svo með öllu illt að ekki boð-
aði nokkuð gott og kvað Breta
geta „endurheimt eitthvað af
peningum sínum og það án þess
að senda flotann á vettvang“.
Lausnin er sögð frí á Íslandi, því
hrun krónunnar þýði að ferða-
menn fái hér allt á hálfvirði.
Umfjöllun blaðsins er landinu
vinsamleg og sérstaklega virðist
blaðamaðurinn hrifinn af næt-
urlífinu, sem hann segir
„ólíklegt að
hægist nokkuð
þótt efnahags-
líf landsins sé að
hrynja“, enda séu
„ v í k i n g a r
harðari af
sér en svo“.
Fá peninginn
án flotaaðstoðar
11 breskir háskólar áttu fé á reikningum íslenskra banka. Oxford-háskóli átti sýnu mest og horfir fram á allt að sex milljarða króna tap. Cambridge er í öðru sæti með
tveggja milljarða tap.
1694 er árið sem horfa þarf aftur til í Bretlandi til að finna jafnlága innlánsvexti og við-skiptavinir breskra banka horfa nú fram á vegna þrenginga fjármálaheimsins. 20
milljónir starfa hverfa í heiminum gangi eftir
nýjasta spá Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
Samdrátturinn er rakinn til fjármálakrepp-
unnar.
45.600
83.900
60.
112.700
Skútuvogi 6 104 Reykjavík
Sími 510 4100 • www.danfoss.is
Danfoss hf
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Fyrir neysluvatns-, ofnhita-, gólfhita-,
snjóbræðslukerfi, setlaugar og fl.
Sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður.
Áratuga reynsla stjórnbúnaðar
við íslenskar hitaveituaðstæður.
Við erum leiðandi í hönnun og framleiðslu á
stjórnbúnaði og tengigrindum fyrir hitakerfi.
Sími 510 4100 www.danfoss.is