Fréttablaðið - 29.10.2008, Blaðsíða 25
MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2008
F R É T T I R
„Nýherji hefur undan-
farin ár byggt upp mikla
þekkingu og reynslu í
rekstri á Avaya-sím-
kerfum, svo sem fyrir
sveitarfélög, fyrirtæki
og stofnanir hér á landi
og víða erlendis,“ segir
Þorvaldur Jacobsen,
framkvæmdastjóri Nýh-
erja, en Nýherji hefur
tekið að sér rekstur og
viðhald Avaya-netsíma-
kerfis fyrir danska hugbúnaðar-
félagið SimCorp, en félagið hefur
12 starfsstöðvar í 11 löndum.
Starfsemin mun rekin í fjarþjón-
ustu frá Íslandi.
SimCorp þróar og selur
meðal annars fjárfest-
ingarbúnað fyrir stjórn-
endur fjármálafyr-
irtækja, en það hefur
starfsemi í 14 löndum
og hefur 1.100 starfs-
menn. Víðir Krist-
ófersson, yfirmað-
ur samskiptakerfa hjá
félaginu, segir því að
símkerfið sé mikilvægt
fyrir starfsemi félags-
ins. „Við þurftum því góðan sam-
starfsaðila fyrir rekstur kerfis-
ins og leituðum til Nýherja, sem
hefur áralanga reynslu á þessu
sviði.“ -msh
Reka símkerfi SimCorp
ÞORVALDUR
JACOBSEN
„Við ætlum að afhenda stjórn-
völdum pakka af tillögum með
slaufu,“ segir Björk Guðmunds-
dóttir söngkona. Henni er full al-
vara.
Átta vinnuhópar fólks úr
ýmsum kimum samfélagsins
hafa frá á sunnudag fyrir tæpum
hálfum mánuði unnið að tillögum
um nýsköpun og fjölbreytileika í
samfélags- og atvinnuþróun á Ís-
landi án stóriðju. Áætlað er að
hundrað manns hafi tekið þátt í
verkefninu.
Að fundinum fyrir hálfum mán-
uði stóðu Háskólinn í Reykja-
vík, Klak og Fræ, stofnun innan
HR um almannaheill. Björk segir
þátttakendur hafa verið ólma í að
hittast aftur svo einhver niður-
staða fáist um tillögur sem verði
afhentar stjórnvöldum. „Við
erum að vinna úr raunhæfum úr-
lausnum,“ segir hún.
Björk, sem lagði grunn að
verkefninu fyrir rúmum tveim-
ur mánuðum, segir meirihluta
hópsins búa yfir mikilli reynslu
á sviði nýsköpunar og rekstri
sprotafyrirtækja. „Við erum ekki
að finna upp hjólið en núna er
kannski grundvöllur fyrir því að
það sé hlustað á okkur,“ segir
hún. - jab
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR „Við erum
ekki að finna upp hjólið,“ segir Björk.
MARKAÐURINN/STEFÁN
Stjórnvöld fá tillögur að gjöf
Samkvæmt nýjum mælingum
Conference Board eru vænt-
ingar bandarískra neytenda nú
hinar verstu í sögu mælinganna,
en samtökin byrjuðu að mæla
væntingar neytenda 1967. Nærri
fjórir af hverjum tíu neytendum
telja að efnahagsástandið muni
versna næsta hálfa árið, meðan
innan við tíu prósent telja ástand-
ið muni batna.
Áhyggjur af efnahagsástand-
inu virðast einnig vera farnar
að hafa neikvæð áhrif á heilsu-
far fólks, því samkvæmt könn-
un sem fyrirtækið ComPsych
hefur gert sofa níu af hverjum
tíu bandarískum verkamönnum
illa vegna fjárhagsáhyggna. Um
þriðjungur sagðist hafa áhyggjur
af kreditkortaskuldum. - msh
Bandaríkjamenn
æ bölsýnni
BUSH BANDARÍKJAFORSETI Neytendur
vestanhafs hafa ekki verið svartsýnni
frá því mælingar hófust. Margir eru
sagðir svefnlausir af fjárhagsáhyggjum.
MARKAÐURINN/AP
„Upplýsingatækninni hefur verið
gefinn allt of lítill gaumur síðan
netbólan sprakk og menn einblínt
á önnur tæki-
færi meðan
fjármálageirinn
óx,“ segir Hall-
dór Jörgensson,
framkvæmda-
stjóri Microsoft
á Íslandi. Hann
segir mikil út-
flutningstæki-
færi í upplýs-
ingatækni.
Microsoft á Íslandi hefur til-
nefnt EJS og Landsteina Streng
sem samstarfsaðila ársins 2008, en
Landsteinar Strengur hefur, ásamt
LS Retail, fengið inngöngu í svo-
kallaðan „Inner Circle“-hóp sam-
starfsaðila Microsoft-fyrirtækis-
ins. Halldór bendir á að aðeins eitt
prósent samstarfsaðila Microsoft
fái inngöngu í hópinn.
„Það hefur vakið athygli í höf-
uðstöðvum Microsoft og er fram-
úrskarandi árangur fyrir land eins
og Ísland,“ segir Halldór. Hann
bendir á að þróun á viðskiptakerf-
um hér sé á heimsmælikvarða,
sem sjáist meðal annars af ár-
angri fyrirtækja eins og LS Retail,
sem hefur selt viðskiptakerfi fyrir
verslanir um allan heim. - msh
UT gefinn of
lítill gaumur
SIGURJÓN
PÉTURSSON