Fréttablaðið - 26.11.2008, Page 1
Jafet S. Ólafsson
Með hnullung
í skónum
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 26. nóvember 2008 – 49. tölublað – 4. árgangur
Ársreikningaskrá
Sektað í fyrsta sinn
fyrir vanskil reikninga
2
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Bílalán seðlabanka | Banda-
ríska viðskiptaráðuneytið ætlar
að verja á bilinu 25 til 100 millj-
örðum dollara til að auka fram-
boð ýmissa neytendalána. Kaupa
á skuldvafninga sem innihalda
bílalán, kreditkortaskuldir og
námslán.
Minni fasteignasala | Sala á
eldra húsnæði í Bandaríkjunum
dróst saman um 3,1 prósent milli
mánaða í október. Sölutölur í
mánuðinum voru undir vænting-
um hagfræðinga. Óseldum eign-
um á söluskrá fækkaði þó lítil-
lega milli mánaða.
Svart útlit í Bretlandi | Hrun
hefur orðið í umsóknum um fast-
eignalán í Bretlandi, en tölur frá
samtökum fasteignalánveitenda
sýna að bankar veittu helmingi
færri fasteignalán í október en
fyrir ári.
Minni DVD-sala | Sala á DVD-
diskum, sem eru helsta tekju-
lind kvikmyndavera í Hollywood,
hefur dregist saman um fjögur
prósent það sem af er ári. Mestur
er samdrátturinn í dýrum nýjum
myndum, 22 prósent. Þá er sala
á Blue-ray diskum langt undir
væntingum.
Hætt við kaup | BHP, stærsta
námufélag heimsins, er hætt við
yfirtöku sína á Rio Tinto, móð-
urfélagi álversins í Straumsvík.
Forstjóri BHP segir yfirtökuna
mjög kostnaðarsama og væri erf-
itt að selja eignir upp í skuldir nú
um stundir.
„Þegar skilanefnd Glitnis tók bankann yfir var til-
kynnt að allri erlendri starfsemi yrði hætt. Starf-
semin í Bandaríkjunum fór fram í hlutafélagi sem
bar nafnið Glitnir Capital Corporation og var með
tvenns konar starfsemi; fjárfestingar sem voru
bókaðar hjá móðurfélaginu á Íslandi og eru í eigu
þess félags og í öðru lagi ráðgjöf til viðskiptavina
sem var veitt af starfsmönnum skrifstofunnar,“
segir Magnús Bjarnason, einn fjögurra fyrrver-
andi starfsmanna Glitnis, sem hafa tekið yfir rekst-
urinn í New York.
Jónína Benediktsdóttir athafnakona spurði iðnað-
arráðherra út í sölu skrifstofunnar á borgarafundi
í Háskólabíói á mánudagskvöld. Hann kannaðist þá
ekkert við málið.
Magnús segir að eðli málsins samkvæmt sé ráð-
gjöf bundin við starfsmennina sem á sviðinu starfi,
Jonathan Logan, Ignacio Kleiman, Magnús Bjarna-
son og Timothy Spanos. Hafa þeir stofnað fyr-
irtækið Glacier Partners til þess að halda þeirri
starfsemi áfram. Hann segir útlán og fjárfestingar
Glitnis hafa gengið vel í Bandaríkjunum og slíkar
eigur séu áfram í eigu gamla Glitnis.
Skilanefnd Glitnis sendi frá sér yfirlýsingu
vegna málsins í gær, þar sem fram kemur að skrif-
stofa gamla Glitnis í New York hafi verið sölu-
skrifstofa í leiguhúsnæði með óverulegum eignum.
„Ljóst er að ekki var um hátt söluverð að ræða enda
eignir óverulegar. Lánasafn var ekki selt með starf-
seminni og bankinn losnaði við allar skuldbinding-
ar sem skrifstofunni fylgdu. Aðrar eignir, s.s. mál-
verk, voru undanskilin í sölunni í samræmi við til-
mæli menntamálaráðuneytis og hafa verið send til
Íslands.“ - bih
Taka yfir Glitni í New York
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Ef svo ólíklega vill til að leynd um einka- eða fjár-
hagsmálefni einstaklinga verða afnumin sem ber-
sýnlega er andstæð ákvæðum stjórnarskrár um
friðhelgi einkalífs og væntanlega einnig brot á til-
skipun Evrópusambandsins um þagnarskyldu fjár-
málafyrirtækja mun bankinn synja um afhendingu
gagna nema samkvæmt dómi Hæstaréttar og eftir
atvikum niðurstöðu Evrópudómstólsins.“ Svo segir
í svari Kaupþings við beiðni Markaðarins og Frétta-
blaðsins um gögn úr bankanum.
Blaðið skrifaði forsvarsmönnum Glitnis, Lands-
bankans og Kaupþings, auk Fjármálaeftirlits (FME),
viðskiptaráðherra og seðlabankastjóra. Óskað var
gagna eða vitneskju um útlán bankanna.
Bankarnir hafa þegar svarað, og eru svörin skýr.
Upplýsingar verði ekki látnar af hendi, vegna
bankaleyndar. Landsbankinn og Glitnir segjast ekki
munu láta af hendi nein gögn, nema til komi til-
mæli frá Alþingi, í formi laga. Kaupþing bætir við
að hæpið sé að lagasetning „geti með afturvirkum
hætti tekið til lánveitinga sem áttu sér stað fyrir
gildistöku slíkra laga“.
Þá fullyrða Kaupþingsmenn að verði upplýsingar
veittar, gerist starfsmenn sekir um að brjóta gegn
lögum um bankaleynd og upplýsingalög. Tveggja
ára fangelsi liggi við slíkum brotum. „Engin heim-
ild er til refsilækkunar á grundvelli þess að seðla-
bankastjóri telji að bankaleynd eigi ekki við um
þessi mál.“
Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði á fundi
Viðskiptaráðs fyrir viku, að bankaleynd ætti ekki
við, þegar fjallað væri um aðdraganda bankahruns-
ins. Hann fullyrti að einn aðili, sem hann nefndi
ekki, hefði fengið þúsund milljarða að láni hjá
bönkunum. Eftirlitsaðilar hefðu „teygt sig með ólík-
indum langt til að finna út að sami aðili væri óskyld-
ur sjálfum sér“.
Samkvæmt hálfsársuppgjöri bankanna námu lán
til venslaðra aðila um 275 milljörðum króna. Sam-
kvæmt nýjustu tölum Seðlabankans, sem birtar
voru í upphafi vikunnar, námu lán þeirra til inn-
lendra aðila hátt í 5.000 milljörðum króna. Um
þriðjungur þess fór til eignarhaldsfélaga.
Kaupþing segir í svari við fyrirspurn blaðsins,
að lán til tengdra aðila hafi verið komið á framfæri
við FME. Þá segir að reglur um friðhelgi um einka-
málefni hafi verið kallaðar grundvallarreglur rétt-
arríkisins. „Það ástand sem nú ríkir felur ekki í sér
réttlætingu á því að slíkum reglum sé vikið til hlið-
ar. Þvert á móti hefur sjaldan verið mikilvægara að
standa vörð um slík grundvallarréttindi.“
Bankaleynd ekki aflétt
Bankarnir óttast viðurlög, ef þeir segja frá viðskiptum sínum.
Kaupþing hyggst ekkert birta nema dómstólar krefjist þess.
„Nýi Glitnir hefur tilkynnt Fjár-
málaeftirlitinu um meint brot á
þagnarskylduákvæðum laga um
fjármálafyrirtæki,“ segir Tómas
Sigurðsson, yfirlögfræðingur
bankans.
Tómas vísar til þess að almenn-
ingur fékk aðgang að gögnum
úr lánabók gamla Glitnis, þegar
Morgunblaðið birti hluta þeirra
á sunnudag. Þar kom meðal ann-
ars fram að helstu stjórnendur
Glitnis hefðu, ásamt FL Group,
sem var stærsti hluthafinn, brot-
ið verklagsreglur við lánveiting-
ar. Tugmilljarðalán hefðu verið
ákveðin af fáum, án þess að lán-
veitinganefnd fjallaði um, eða
áhætta væri metin.
Tómas segir meint brot tvíþætt:
„Í fyrsta lagi er tilkynnt um þá
háttsemi að trúnaðarupplýsingar
um viðskiptamenn bankans hafi
verið afhentar blaðamanni og í
öðru lagi þá háttsemi Morgun-
blaðsins að birta upplýsingarnar.
Lög um fjármálafyrirtæki kveða
skýrt á um það að sá sem veit-
ir trúnaðarupplýsingum viðtöku
sé bundinn þagnarskyldu á sama
hátt og starfsmenn bankans.
Bankinn stendur vörð um þær
upplýsingar sem honum er trúað
fyrir af viðskiptamönnum sínum
og getur ekki látið það átölulaust
að skýlaus ákvæði um þagnar-
skyldu séu brotin.“
Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins, bendir á að dómar
hafi fallið þar sem almannahags-
munir væru metnir ríkari en þagn-
arskyldan. „Við mátum það svo í
þessu tilviki.“ - ikh, bih
Glitnir kærir
til FME
HÖFUÐSTÖÐVAR GLITNIS Í REYKJAVÍK.
6
Orðskýringin
Hvað er
skilanefnd?
Vistvæna
prentsmiðjan!