Tíminn - 20.05.1982, Síða 5
Fimmtudagur 19. mal 1982
15
8Éte
Traust fólk
til forystu
Kristján
Kristján Benediktsson:
Fæddur 12. janúar 1923.
Hann fæddist í Dalasýslu og ólst
þar upp. Lauk íþróttakennara-
próf i og fór síðan í Kennaraskóla
Islands og lauk þaðan almennu
kennarapróf i. Kennari við Gagn-
fræðaskóla Reykjavíkur í 14 ár.
Árið 1963 gerðist Kristján fram-
kvæmdastjóri við Tímann og
gegndi því starfi í átta ár. Síðan
hef ur hann verið í hlutastarfi hjá
þingflokki Framsóknarflokksins
ásamt starfi að borgarmálum.
Kristján hefur átt sæti í borgar-
stjórn frá árinu 1962 og verið
borgarráðsmaður frá 1964. Auk
þessa hefur hann tvívegis verið
formaður Menntamálaráðs.
Er nú formaður Fræðsluráðs og
Framkvæmdaráðs.
Kristján er kvæntur Svanlaugu
Ermenreksdóttur og eiga þau
fjögur uppkomin börn.
Sigrún
Sigrún Magnúsdóttir: Fædd 15.
iúní 1944.
Otskrifaðist úr Kvennaskólanum
í Reykjavík vorið 1961.
Á árunum 1962 til 1967 bjó hún í
Þýskalandi og starfaði í
Deutsche Bank.
Hóf fyrst afskipti af stjórnmál-
um vorið 1970 er hún var kosin í
hreppsnefnd á Bíldudal. Árin
1978 og 1979 tók hún þátt í kosn-
ingum til Alþingis fyrir Fram-
sóknarf lokkinn í Reykjavík og er
nú varaþingmaður. Sigrún er
formaður Félags framsóknar-
kvenna í Reykjavík og á sæti í
miðstjórn Framsóknarflokksins.
Síðan árið 1971 hefur Sigrún átt
og rekið verslunina Rangá með
meðeiganda sínum Agnari Árna-
syni.
AAaki: Kári Einarsson yfirverk-
f ræðingur. Þau eiga tvær dætur.
Gerður
Gerður Steinþórsdóttir:
Fædd 17. apríl 1944.
Lauk B.A. prófi frá Háskóla (s-
Iandsl970og kandidatspróf i 1978.
Stundaði einnig háskólanám í
Skotlandi og var við rannsóknir í
Svíþjóð. Kennari við framhalds-
deildir gagnfræðaskólanna við
Lindargötu og Flensborgarskól-
ann í Hafnarf irði frá 1970 til 1977.
Varaborgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins frá 1970. Er formaður
Félagsmálaráðs, i stjórnarnefnd
dagvistunar og stjórn Borgar-
bókasafns. Er formaður Lands-
samtaka framsóknarkvenna, í
stjórn F.F.K. og í miðstjórn
f lokksins.
Var í f ramkvæmdanef nd
kvennafrís 1975 og í stjórn
Kvenréttindafélagsins frá 1976.
Maki: Gunnar Stefánsson bók-
menntafræðingur og eiga þau
þrjú börn.
Jósteirm
Jósteinn Kristjánsson: Fæddur
21. mars 1950.
Hann lauk sjúkraliðaprófi árið
1974. Starfaði að félagsmálum
sjúklinga á Kleppsspitalanum á
árunum 1972-1981.
Hann sat i Starfsmannaráði
Kleppsspítalans á árunum 1977—
1981, þar af sem formaður síð-
ustu tvö árin. Formaður starfs-
mannaráðs ríkisspítalanna 1980
1981 en er nú framkvæmdastjóri
Bílaleigunnar Vík.
Jósteinn hefur starfað innan
Framsóknarflokksins frá 1963, í
stjórn Félags ungra Framsókn-
armanna í 7 ár og þar af 1 ár sem
formaður. Á sæti i fulltrúaráði
Framsóknarfélaganna í Reykja-
vík.
Maki: Gyða Brynjólfsdóttir og
eiga þau fimm börn.
x0
BETRI
BORG!
BETRI
BORG!
• Ertu búinn að gleyma fyrirtækjaflóttanum frá Reykjavík
í stjórnartíð sjálfstæðismanna?
• Ertu buinn að gleyma að Reykvíkingum fækkaði um
1.500 manns síðustu tvö valdaár sjálfstæðismanna?
• Ertu búinn að gleyma hvernig gamli Miðbærinn var orðinn
síðustu kjörtímabil sjálfstæðismeirihlutans?
• Ertu búinn að gleyma biðröðunum hjá borgargjaldkera
í valdatíð Sjálfstæðisflokksins?
• Ertu búinn að gleyma að Sjálfstæðisflokkurinn gerði ekki
greinarmun á málefnum borgarinnar og flokksins?
• Ertu búinn að gleyma því þegar þeir sem vildu byggja
einbýlishús urðu að flytjast í önnur bæjarfélög?
• Ertu búinn að gleyma leigunámshugmyndum Alþýðubandalagsins?
• Ertu búinn að gleyma afstöðu Alþýðuflokksins /
til Landsvirkjunarsamningsins?