Tíminn - 18.01.1983, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Enska knattspyrnan - Enska knattspyrnan - Enska knattspyrnan
Urslit
Úrslit leikjanna á laugardag voru sem
hér segir:
1. deild:
Arsenal-Stoke 3-0
Birmingham-Manchester Uidted 1-2
Everton-Watford 1-0
Ipswich-Brighton 2-0
Luton-Tottenham 1-1
Manchester City-Norwich 4-1
Nottingham Forest-West Ham 1-0
Southampton-Coventry 1-1
Sunderland-Aston Villa 2-0
Swansea-Notts County 2-0
West Bronwich-Liverpool 0-1
2. Deild
Bamsley-Crystal Palace 3-1
Blackbum-Wolverhampton 2-2
Bolton-Bumley 2-2
Carlisle-Derby 3-0
Charlton-Leicester 2-1
Chelsea-Cambridge 6-0
Leeds-Grimsby 1-0
Middlesbrough-Sheffield Wednesday
1-1
Queens Park Rangers-Newcastle 2-0
Rotherham-Fulham 0-1
Shrewsbury-Oldham 0-0
Staðan
Staðan í fjrstu og annarri deild litur þannig út
eftir leiki helgarinnar:
1. Deild:
Liverpool
Manchester llnited
Nottm Forest
Watford
Coventrj
WestHam
Aston Villa
Manehester Cily
ipswich
Tottenham
Everton
West Bronvvich
Arsenal
Stoke
Southampton
Notts County
Luton
Swansea
Sunderland
Norwich
Brighlon
Birmingbam
2.Deiid
Wolves 24 15 5 448 22 50
Q.P.R. - 24 14 4 6 37 22 46
Fulham 24 13 5 646 32 44
Sheffield Wednesday 24 10 7 7 39 32 37
Leicesler 24 11 3 10 41 27 36
Shrewsburj 24 10 6 330 30 36
Leeds 24 3 11 5 27 24 35
Oldham 24 7 13 4 39 31 34
Bamslev 24 3 10 6 35 23 34
Grimsby 24 10 4 10 34 42 34
Rotheiham 24 8 8 828 32 32
Cbelsea 24 8 7 9 31 29 31
Blackhum 24 8 7 936 37 31
Newcastle 24 7 9 834 36 30
Crysta) Palace 24 7 9 8 27 29 30
Cariisle 24. 8 5 1145 47 29
Bolton 24 7 7 10 27 31 28
Chariton 24 8 4 12 36 50 28
Middlesbrough 24 6 10 828 43 28
Cambridge 24 6 6 12 25 40 24
Bumlcj 24 5 4 15 32 46 19
Derby 24 ; 3 10 11 24 39 19
Markahæstu leikmenn
■ Markahæstu leikmenn iyrstu deildar
skomðu ekki mikið um helgina, aðeins
Ian Rush og Bob Latchford bættu við
einu hvor enda reyndar orðið sígilt að
Jan Rush skori. Þetta em Ijórir efstu
í fvrstu deild:
1. Ian Rush Liverpool 23
2. Bob Latchford Swansea 18
3. Luther Blissett Watford 16
4. Brian Stein Luton 15
24 16 5 3 59 21 53
24 12 7 5 33 19 43
24 13 4 7 40 31 43
24 12 4 8 42 26 40
24 11 5 8 33 30 38
24 12 1 11 42 36 37
24 11 2 11 34 33 35
24 10 5 9 33 37 35
24 9 7 8 39 29 34
24 10 4 10 35 34 34
24 9 6 9 39 32 33
24 9 6 9 36 35 33
24 9 6 9 31 32 33
24 9 4 11 35 39 31
24 8 6 10 29 39 30
24 8 4 12 31 44 28
24 6 9 9 42 49 27
24 7.5 12 31 36 26
24 6 8 10 27 37 26
24 7 5 12 26 40 26
24 6 6 12 21 44 24
24 4 1 9 19 34 23
ÞAU FJ0GUR EFSTU ERU
ENNÞÁ Á SÍNUM STAÐ
■ Liverpool toppliðið á Englandi,
hélt tíu stiga forystu sinni í fyrstu deild,
þegar þeir mörðu sigur yfir West
Bromvich Albion á útivelli.
Það var þó ekki þessi sigur Liverpool
sem fréttnæmastur þótti á laugardag í
Englandi, heldur var það endurkoma
Argentínumannsins Osvaldo Ardiles.
En um það er hægt að lesa hér annars
staðar á síðunni.
Manchester United hélt strikinu í
kjölfari Liverpool með því að sigra
Birmingham 2-1 í Birmingham, og
Notthingham Forest fylgdi þeim að 43
stiga línunni með því að sigra West
Ham 1-0.
Watford, aftur á móti sem fyrir helgi
hafði 40 stig eins og hin tvö, og var
ofar vegna betra markahlutfalls, datt
niður í fjórða sæti á laugardaginn,
þegar Everton sigraði þá 1-0, og eiga
nú 13 stiga hyldýpi fyrir framan sig
þegar þeir líta til Liverpool.
Liverpool strákarnir máttu þakka
sínum mikla markaskorara, Ian Rush
fyrir að þeir fóru heim frá West
■ Norman Whiteside skoraði fyrsta
markið fyrir United.
Bromwich með 3 stig, en ekki eitt.
Eftir 90 mínútur án marks, leiddist
Rush loks þófið og skoraði úr síðustu
spyrnu leiksins og ekki hafði boltinn
fyrr legið í netinu, en leikurinn var
flautaður af og allir í bað takk.
Fátt gladdi augað á St.
Andrews Ground
Það var fátt sem gladdi augað á St.
Andrews Ground í Birmingham, utan
■ Frank gamli Worthington er sko
ekki dauður úr öllum æðum, hann
setti inn sigurmark Sunderland.
sex mínútna kafli í byrjun síðari
hálfleiks, en þá voru öll mörk leiksins
skoruð. Það var framherji Norður
írska landsliðsins í heimsmeistara-
keppninni á Spáni Norman Whiteside,
sem kom United yfir á 49. mínútu, en
Kevin Dillon jafnaði fyrir Birmingham
á 54 mínútu úr vítaspyrnu. Landsliðs-
fyrirliði Englands Bryan Robson skor-
aði sigurmark United einni mínútu
síðar.
Everton sigraði strákana hans Elt-
ons á Goodison Park. Það var vara-
maðurinn David Johnson sem skoraði
markið með fyrstu snertingu sinni við
knöttinn eftir að hann kom inn á.
Notthingham Forest fengu smá
andlitslyftingu á heimavelli þegar þeir
sigruðu West Ham 1-0. Ekki veitti af,
því það mun sitja illilega á áhangend-
um liðsins tap þeirra í bikarkeppninni
um daginn gegn annarrar deildar
botnliðinú Derby. Það var Ian Wall-
ace sem skoraði markið fyrir liðið hans
Brians Clough, en þetta var ellefta
mark Wallace á keppnistímabilinu.
Markvörður West Ham, Phil Parkes
varði frábærlega, en rúmlega 17 þús-
und áhorfendur fögnuðu sigri í Nott-
ingham.
Sunderland hélt hreinu,
en skoraði tvö
Sunderland lengdi enn met sitt, í sex
taplausa í fyrstu deildarkeppninni,
það er að segja þeirra eigin, þegar þeir
sigruðu Aston Villa 2-0. Chris Turner
markvörður hélt marki sínu tómu í
sjötta sinn í sjö leikjum um leið. Ken
McNought varnarmaður Villa var svo
óheppinn á 27. mínútu að krukka í
kollspyrnu Colin West og þar með fór
knötturinn í netið hjá Villa. Frank
Worthington innsiglaði síðan sigurinn
á 48 mínútu leiksins.
Júgóíslavinn Vladimir Petrovic
skoraði fyrsta mark sitt á laugardag í
ensku knattspyrnunni, þegar hann
setti inn annað mark Lundúnaliðsins
gegn Stoke á heimavelli. Það var
Graham Rix sem kom Arsenal á
bragðið snemma í fyrri hálfleik, og það
var aldrei spurning um úrslit leiksins
eftir það. Petrovic skoraði sitt fyrir
leikhlé, og John Hollins gulltryggði
síðan stigin þrjú er hann skoraði úr
vítaspyrnu á 57,mínútu.
Mark eftir 14 sekúndur í
Southampton
Það var ekki liðið langt af leik
Southampton og Coventry í Sout-
hampton, þegar Mark Hately skoraði
fyrir gestina. En Adam var ekki í
paradís hjá þeim nema næstu 37
mínúturnar eða svo, því að David
Armstrong jafnaði fyrir heimaliðið, og
fleiri urðu mörkin ekki þar.
Skosku landsliðsmennirnir John
Wark og Alan Brazil voru hetjur
Ipswich á Portman Road, skoruðu
mörkin tvö sem urðu til þess að átján
w n
■ Glenn Hoddle jafnaði fyrir
Spurs.
■ David Cross var á skotskónum í
Manchester.
tapleikir Brighton á útivelli urðu
nítján.
Á sama tíma brutu svanirnir af sér
álagahaminn, höfðu tapað sjö leikjum
í röð á heimavelli. Swansea sem sagt
sigraði Notts County, og Darren Gale
og aðalmarkaskorari liðsins Bob Latc-
hford sáu um að gera mörkin tvö.
City skellti Norwich
David Cross var á skotskónum
heldur betur á laugardaginn þegar
Manchester City lék gegn hans gamla
liði Norwich á Maine Road. Cross lék
við hvern sinn fingur, og skoraði tvö
mörk af fjórum gegn einu marki
Nbrwich. Kevin Bond og Asa Hartford
skoruðu líka fyrir City, en það var
Martin O’Neill sem svaraði fyrir
Norwich.
í annarri deildinni hélt Wolverham-
pton forystunni, þrátt fyrir að gera
aðeins jafntefli gegn Blackburn. Qu-
eens Park Rangers og Fulham sem eru
riú helstu ógnendur Úlfanna á toppn-
um sigruðu aftur á móti bæði, og
komu aðeins hreyfingu á málin.
ARDILES FEKK
dBIÍDAR MÓTTÖKUR
Osvaldo Ardiles
■ Osvaldo Ardiles hóf að leika á
Englandi aftur á laugardaginn, en eftir
því höfðu knattspyrnuaðdáendur beð-
ið með öndina í hálsinum frá því að
hann kom aftur til Tottenham fyrir
hálfum mánuði. Líklegt er að Ardiles
reyni sem allra fyrst að gleyma þessum
degi endurkomunnar, Því að Totten-
ham, liðið hans sem hann hafði saknað
svo mjög, gerði jafntefii 1-1 í Luton,
og áhorfendur púuðu á litla Argentínu-
manninn, í hvert skipti sem hann snerti
knöttinn.
Ardiles nefnilega, ef það skyldi hafa
farið framhjá einhverjum, fór að leika
með franska liðinu Saint Germain í
sumar sem leið, eftir Falklandseyja-
stríðið. Félagi hans Ricardo Villa sem
lék með Ardiles í heimsmeistara-
i keppninni 1978 í heimsmeistaraliði
j Argentínumanna, og hóf að leika með
, Tottenham haustið eftir með Ardiles,
i hélt hins vegar áfram að leika með
Tottenham, hvað sem öllu stríði leið.
Ardiles kom aftur til Tottenham nú
eftir áramótin, en lék sinn fyrsta leik
á laugardag.
Tottenham liðið með Ardiles í
!fararbroddi fór til Luton ákveðið í að
i binda enda á marklausan feril liðsins
á útivelii sex leiki í röð. Þetta tókst,
j en ekki var neinn glæsibragur yfir fyrsta
markinu í leiknum, og fyrsta marki
Tottenham á útivelli allan þennan
tíma. Það var nefnilega bakvörðurinn
Gary O’ReilIy sem sendi boltann í
eigið mark, þegar hann ætlaði að
hreinsa frá markinu.
En O’Reilly braut alla vega ísinn og
’énski landsliðstengiliðurinn Glenn
Hoddle jafnaði metin fyrir Tottenham
með því að skora í rétt mark sautján
mínútum fyrir leikslok. Glenn Hoddle
skoraði beint úr auka spyrnu, með
góðu snúningsskoti, og er þetta fyrsta
mark Hoddles á þessu keppnistímabili.
Spurs hafa nú ekki sigrað í útileik í
síðustu níu skipti sem þeir hafa ferðast
frá Tottenham.