Tíminn - 10.03.1983, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
f réttir i
Heimsókn í Fiskvinnsluskólann:
?,Nýi skólinn mun
gjörbreyta ölluM
— segir Sigurður Haraldsson skólastjóri Fiskvinnsluskólans
»-
Einum af sölum í húsi BÚH hefur verið breytt í lítið frystihús og þar fer verklegt nám fram.
■ „Nýi skólinn kemur til með að
gjörbreyta öllu hjá okkur hvaö aðstöð-
una varðar en við liöfum hingað til búið
við mikil þrengsli,“ sagði Sigurður Har-
aldsson skólastjóri Fiskvinnsluskólans í
samtali við Tímann cn nýi skólinn sem
hefja á byggingu á í vor og rísa á við
Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði er lang-
stærsta framtíðarverkefni Fiskvinnslu-
skólans.
„Við höfum alltaf þurft að snapa
húsnæði hér og þar í Hafnarfirði, og
hefur skólinn af þeim sökum dreifst um
3-4 staði í bænum þannig að nýja
byggingin er veigamikið atriði til úrbóta.
Vegna húsnæðisvandræðanna hefur
þannig þurft að takmarka nemenda-
fjölda skólans, sem dæmi þá sóttu um 40
manns um í haust en við getum bara
tekið þetta 22-3 nemendur inn á hverju
hausti."
Hvað nemendurna sjálfa varðaði þá
sagði Sigurður að þeir kæmu alls staðar
að af landinu en skiptingin væri gróflega
þannig að 2/3 kæmu af landsbyggðinni
og 1/3 af höfuðborgarsvæðinu.
Fiskvinnsluskólinn var stofnaður fyrir
rúmum áratug til að útskrifa fólk með
kunnáttu og menntun og til að annast
eftirlit, verkstjórn og annað sem fisk-
iðnaðinum kæmi til góða. Blaða-
mönnum var boðið í heimsókn í skólann
til að kynna sér starfsemi hans en þetta
er liður í umfangsmiklu kynningarverk-
efni sem sjávarútvegsráðuneytið stendur
fyrir og hefur ráðið Jóhann Briem til að
annast.
Skólinn, sem staðsettur er í Hafnar-
firði, útskrifar í dag fiskiðnaðarmenn og
-fisktækna. Verklegt nám fer fram í
húsnæði BÚH og þar hefur einum saln-
um verið breytt í lítið frystihús og þar
voru 1. bekkjarnemar í tíma er blaða-
menn komu á staðinn.
Nemendur koma misjafnlega vel undir
námið búnir og útskrifast almennt eftir
2-3 vetra nám. Sumir koma eftir
stúdentspróf og hafa þannig góðan bók-
legan grunn, aðrir koma frá fiskiðnbraut
um fjölbrautarskólanna. Þá leyfist að
taka við nemendum, hafi þeir starfað í 5
ár í fiskiðnaði og orðnir eru 25 ára eða
eldri.
U.þ.b. þriðjungur námsefnis fisk-
iðnaðarmanna er bóklegt nám. Meðal
kennslugreina má 'nefna fiskvinnslu-
fræði, framleiðslufræði, sjávarlíffræði,
gerlafræði og stærðfræði. Liður í stærð-
fræðinámi er kennsla á tölvur og hvernig
þær má nýta í fiskiðnaði.
í verklega náminu er kennd almenn
■ Sigurður Haraldsson skólastjóri
Fiskvinnsluskólans
frysting, söltun og mat á saltfiski, skreið-
armat og verkun, saltsíldarverkun auk
verkstjórnarfræðslu, svo eitthvað sé tínt
til.
Athyglisvert er að af þeim 176 fisk-
íðnaðarmönnum, sem skólinn hefur út-
skrifað, eru einungis 29 stúlkur. í hópi
útskrifaðra fisktækna eru aðeins 3 stúlk-
ur af 43. Hins vegar virðist nú sem
aðsókn stúlkna hafi tekið talsverðan
fjörkipp og er það vel. Pá er það
athyglisvert hversu margir útskrifaðra
nemenda starfa í dag að fiskiðnaði. Nær
allir hafa haslað sér völl í fiskiðnaði og
greinilegt er að ekki er erfitt fyrir
útskrifaða nemendur að fá starf við hæfi
að námi loknu.
í vetur stunda nám við skólann 48
nemendur.
texti: FRI
myndir: Árni
f f Þfltttðks
kvenna hefur
aukist mikið”
— segir Lárus Björnsson
kennari í
Fiskvinnsluskólanum
m
■ Lárus Björnsson kennari
„Sett upp sem
fullkomið
frystihús”
— segir Óli G.H.
Þórðarson
arkitekt nýja skólans
■ Óli G.H. Þórðarson arkitekt
■ „Við erum nú að kenna flökun, frystingu,
viktun og pökkun eða þessi hefðbundnu verk í
frystihúsunum en síðan förum við yfir í saltfiskverk-
un í nxstu viku,“ sagði Lárus Björnsson kennari í
Fiskvinnsluskólanum í samtali við Tímann er við
báðum hann um að lýsa því sem fram færi í
vinnslusal skólans er við litum þar inn.
„Það eru 23 nemendur í bekknum, allir á fyrsta
ári en skólinn stendur frá september og fram í maí,
síðan tekur við verkleg þjálfun í frystihúsunum
sjálfum yfir sumartímann þannig að segja má að
þetta sé heilsársskóli."
Við tökum eftir því að kvenmenn í hópnum eru
tiltölulega margir og spyrjum Lárus út í það.
„Þátttaka kvenna hefur aukist mikið á síðustu
árum, þannig var enginn kvenmaður í hópnum
fyrsta árið sem skólinn starfaði eðá 1971 og aðeins
einn árið þar á eftir en nú eru þær 6 af 23 í
bekknum," sagði hann.
- FRI
■ „Nýi skólinn verður í þremur byggingum,
bóknám sem verður í 3600 fm húsnæði, verknám
sem verður í 9900 fm húsnæði og síðan er ráðgert
lítið húsnæði fyrir skreið og þurrfisk kennslu en
ætlunin er að verknámshúsið verði sett upp sem
fullkomið frystihús,“ sagði Óli G. H. Þórðarson
arkitekt í samtali við Tímann en hann hannaði hinn
nýja skóla Fiskvinnsluskólans.
„Bygging verknámsins skiptist í tvennt, vinnslusal
og þjónustuálmu en vinnslusalurinn er nokkuð stór
eða 55x24 metrar og skilyrðið var að hann yrði
súlulaus og með færanlegum milliveggjum þannig
að hægt væri að koma fyrir í honum nýjum
tæknibúnaði í framtíðinni.
Bóknámshúsið er á tveimur hæðum, annars vegar
er fullkomið kennslurými sem útbúið verður tölvum
og þess háttar en síðan eru rannsóknastofur þar sem
stundaðar verða matvæla-og gerlarannsóknir auk
rannsókna á lagmeti sem er nokkur nýjung.“
- FRI
„Höfum alltaf
unnið í fiski”
— rætt við þær Gerðu Guðbrandsdóttur og Krist-
björgu Jónsdóttur nemendur í Fiskvinnsluskólanum
■ Gerða Guðbrandsdóttir
■ „Við höfum alltaf unnið í fiski, eða
fiskvinnslu og því erum við hér,“ sögðu
þær Gerða Guðbrandsdóttir og Krist-
björg Jónsdóttir nemendur Fiskvinnslu-
skólans í samtali við Tímann og Gerða
bætti við.. „ef manni líkar vel við þessa
vinnu þá er eðlilegt framhald að mennta
sig hér í skólanum. Gerða keniur frá
Siglufirði og Kristbjörg er úr Reykjavík.
Þær sögðu að námið færi nokkuð eftir
starfsreynslu, aldri og því hvað maður
vildi nema. Æðsta stig skólans væri
fisktæknir og ef maður byrjaði frá
grunni að læra það þá tæki maður fyrst
2 ár í Fjölbrautaskólaiog síðan 2.5 ár í
Fiskvinnsluskólanum auk starfsþjálfun-
ar í sjálfum frystihúsunum.
Aðspurðar hvort þær lærðu mikið í
skólanum eftir að hafa verið svo lengi
við þessa vinnu í frystihúsunum sögðu
þær svo vera.
„Maður lærir mikið um stjórnun,
gæðamat og ýmsa útreikninga á þessu
sviði en handbrögðin sjálf er maður með
nokkuð á hreinu," sögðu þær.
Hvað aðstöðuna í skólanum varðar
þá fannst þeim að hún mætti vera betri
einkum væru þrengslin mikil.
- FRI
■ Kristbjörg Jónsdóttir