Tíminn - 10.03.1983, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
■ Á blaðamannafundinum í gær, f.v. Örvar Sigurðsson, Sigurjón Harðarson og
Ólafur Guðmundsson.
„Vandinn kominn
upp vegna
afskiptaleysis
stjórnvalda”
— segja „rallarar” um
alþjódarallid umdeilda
Framsóknarflokkurinn í Reykjavlk
Frambodslist-
inn ákvedinn
Kjördæma-
málid komið '
til efri deildar:
Samþykkt
fyrir helgi
■ Frumvarpið um stjórnskipunarlög,
eða kjördæmumáiið, var afgreitt t'rá
neðri deild í gær. Var það samþykkt
með 27 atkvæðum gcgn 7, 5 greiddu
ekki atkvæði. Málið var sent efri deild
og skömmu síðar mælti formaður Al-
þýðuflokksins fyrir því þar. Búist er
við að afgreiðsla efri deildar verði
liðleg þannig að hin nýja skipan verði
að lögum i dag eða á morgun.
Málið hefur verið mikið rætt í neðri
deild, meðal annars á kvöld og nætur-
fundum. Þcir sem greiddu atkvæði á
móti breytingunni eða sátu hjá gerðu
það af ýmsum ástæðum, cn aðallega
þó þeirri að þeir víldu að stjórnarskrár-
málið yrði tekið fyrir í heild en kiör-
dæmamálið ekki afgreitt sérstaklega.
Samþykkt var brcvtingartillaga frá
stjórnarskrárnefnd unt að lækka kosn-
ingaaldur í 18árog rýmkun á ákvæðum
um heimilisfesti kjósenda. ,
Bandalag jafnaðarmanna lagði fram
fjölda breytingartiliagna og voru þær
allar felldar. Með flestum þeirra
greiddi aðeins einn þingmaður jáyrði
en um 30 voru á móti, nokkrir sátu hjá.
Breytingartillaga frá Stefáni Val-
gcirssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni um að
við ákvörðun skatta á tekjur og eignir
skuli gætt jafnræðis, þannig að til
lækkunar komi sérstakur kostnaður
vegna búsetu. Atkvæði um tillöguna
féllu þannig að 10 vildu samþykkja
hana 21 á móti og 7 sátu hjá.
Forsætisráð-
herra um til-
lögu Alþýdu-
bandalagsins
og stjórnar-
andstödunnar,
að þlng komi
saman, ekki
síðar en 18
dögum eftir
kosningar:
„Ekki Alþingi
sem ákveður
aukaþing”
■ „Samkvæmt 22. grein stjórnar-
skrárinnar þá getur forseti íslands,
þ.e. þá cftir tillögu forsætisráðhcrra
kvatt Alþingi til aukaíundar þegar
nauðsyn er til. Það er því ekki Alþingi
sem ákvcður hvort aukaþing kemur
saman. samkvæmt þessari grein,“
sagði dr. Gunnar Thoroddsen, for-
sætisráðherra er hann var spurður álits
á tillögu þeirri sem greint er frá á
forsíðu blaðsins í dag, um það hvenær
Alþingi skuli koma saman á nýjan leik
eftir kosningar.
Forsætisráðhera sagði jafnframt:
„Alþingi getur að sjálfsögðu lýst yftr
óskum sínum og vilja í þessu efni, en
hinsvegar verður að hafa það í huga að
kannski er eðlilegt að það Alþingi sem
kosið verður nú í apríl, eða meirihluti
þess, hafi eitthvað um það að segja
hvenær þing verður kvatt saman.“-
Er forsætisráðherra var spurður um
það hvað hann myndi gera, ef þessi
tillaga yrði samþykkt t báðum deildum
Alþingis, og svo færi sem horfði, að
ráðherrar Framsóknarflokksinsgengju
úr ríkisstjórn, sagði hann aðeins: „Við
skulum ekki verað að „fantasera"
svoleiðis," og blaðamanni er ekki ör-
grannt'um að hann hafi hlcgið við um
leið og hann mælti svo.
- AB
■ „Ef alþjóðarallið sem fyrirhugað er
á hálendi íslands í sumar verður leyft, þá
verður það besta og ódýrasta auglýsing
sem Náttúruverndarráð og náttúru-
verndarfólk á íslandi geta fengið á því
hvcrnig á að aka um hálendið án þess að
valda spjöllum á gróðri og umhverfi,“
sögðu forráðamenn akstursiþrótta á Ís-
landi á blaðamannafundi i gær. Þeir
sögðu að sá vandi sem upp er kominn
vegna umferðar safari bíla á hálendinu
væri til kominn vegna afskiptaleysis
yfirvalda og slælegs eftirlits. Umferð
rallybílanna á hálendinu yrði best skipu-
lagða hópferð sem farið hefði upp á
hálendið, og mættu Íslendingar sjálfir
mikið af því læra, því ekki væri þeirra
umgengni við landið til fyrirmyndar.
„Náttúruverndarráð fær í gegnum
keppnina tækifæri til að auglýsa það í
blöðum og sjónvarpi út um alla Evrópu
hvað má og hvað ekki, þegar akstur á
hálendinu er annars vegar. Kynning á
því myndi koma fyrir augu milljóna
manna.
„Eftirlit með keppendum í rallinu
verður geysiöflugt og íslendingar hafa
■ „Dóntsrannsókn er lokið og málið
var tekið til dóms síðdegis í dag, en
dómur liggur ekki fyrir, enda er þarna
um mjög sérstakt mál að ræða,“ sagði
Jón Þorsteinsson, fógetafulltrúi í Vest-
munnacyjum. En þar var í gær fjallað
um kæru Landhelgisgæslunnar um ólög-
legar veiðar togskipsins Einars Benc-
diktssonar, sem fiugvél Landhelgisgæsl-
unnar kom að við togvciðar rúmar 4
mílur út af Vík í Mýrdal á þriðjudags-
morguninn.
„Að okkar mati liggur það Ijóst fyrir
að skipið er með of stóra vél til að geta
■ Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra lagði fram í gær frumvarp um
stjórnarskrá. Frumvarpið er byggt á
starfi og tillögum stjórnarskrárnefndar
og samkomulagi formanna stjórmála-
flokkanna um jöfnun atkvæðisréttar.
alræðisvald um það hvaða reglur verða í
gildi“, sögðu þcir ennfremur. „Ef kepp-
endur brjóta af sér t.d. með því að aka
út fyrir vegi verður þeim umsvifalaust
vísað úr keppni.
Það er ekki rétt að rallið hafi verið
auglýst erlendis. Væntanlegum kepp-
endum hefur verið send gögn um reglur
keppninnar, en rallið verður fyrst auglýst
opinberlega í Lyon í Frakklandi þann
26. mars n.k. ef leyfi verður þá fengið.“
Þeir félagar sögðu einnig að reglun-
um væri hægt að breyta í samræmi við
aðstæður, allt frani undir það að keppnin
hefst. Þegar er ákveðið að einungis
fjórhjóladrifs bílar fái að aka Arnar-
vatnsheiði og ætti því ekki að vera hætta 1
á að þcir festist og valdi skemmdum á
þann hátt.
Eftirlit verður í höndum Aksturs-
íþróttaráðs og Frakkans Jean-Claude
Bertrand, sem er skipuleggjandi rallsins,
auk yfirvalda á hverju svæði fyrir sig.
Aðeins verður ekin ein sérleið á dag og
gerir það eftirlit allt mjög auðvelt. 20
bílar auk einnar þyrlu verða í eftirlitinu
af hálfu umsjónarmanna rallsins. - JGK
talist bátur og þá er það togari, sem ekki
má þá vera við veiðar innan 12 mílna
markanna. Við lítum því á þessarveiðar
sem landhelgisbrot", sagði Guðmundur
Kjærnested, skipherra í gær. Einar
Benediktsson, sé eitt þcirra 5 skipa sem
nokkrar deilur hafi verið um hvort
teljast eigi til báta eða togara, þar sem
þau séu undir 39 metrurn að lengd. „En
við töldum að nú væri öllum orðið Ijóst
að þau teljast til togara þar sem í nýrri
skipaskrá eru þessi skip öll tekin inn með
vélastærð yfir 1.000 hestöflum", sagði
Guðmundur. _ yjgj
Forsætisráðherra mun mæla fyrir
frumvarpinu fyrir þingrof, en það þing
sem nú situr mun ekki afgreiða stjómar-
skrármálið, nema að því er varðar
kjördæmamálið. -
-OÓ
■ Frainboðslisti Framsóknarflokksins
í Reykjavík við komandi alþingiskosn-
ingar hefur verið ákveðinn og er hann
þannig skipaður:
1. Olafur Jóhannesson, utanríkisráð-
herra
2. Haraldur Ólafsson, dósent
3. Björn Líndal, deildarstjóri
4. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
dagskrárgerðarmaður.
5. Bolli Héðinsson, hagfræðingur.
6. Sigrún Sturludóttir, skrifstofumaður.
7. Árni Benediktsson, framkvæmda-
stjóri.
8. Kristín Eggertsdóttir, fulltrúi.
9. Viggó Jörgensson, skrifstofumaður.
10. Dolly Erla Nielsen, verslunarmaður.
11. Jón Þór Þorbergsson, lögreglu-
maður.
12. Jakobína Guðmundsdóttir, skóla*
stjóri.
13. Bjarki Magnússon, iæknir.
14. Þóra Einarsdóttir, fyrrv. formaður
Verndar.
15. Gunnar Einarsson, kaupmaður.
16. Matthea Jónsdóttir, listmálari.
17. Ármann Höskuldsson, jarðfræði-
neini.
18. Guðrún Harðardóttir, fóstrunemi.
19. Hreinn Hjartarson, verkamaður.
20. Guðrún Einarsdóttir, kennari.
21. Gissur Jóhannsson, húsasmiður.
22. Edda Kjartansdóttir, húsmóðir.
23. Þorsteinn Ólafsson, viðskiftafræð-
ingur.
24. Rannveig Þorsteinsdóttir, fyrrv. al-
þingismaður.
Fulltrúastaða
í utanríkisþjón-
ustunni.
Staða háskólamenntaðs fulltrúa í utanríkisþjón-
ustunni er laus til umsóknar. Laun samkv. launa-
kerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfis-
götu 115, 105 Reykjavík, fyrir 30. mars 1983.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 8. mars 1983
W Utboð
Tilboö óskast í 240 lítra plastsorptunnur meö hjólabúnaði fyrir
hreinsunardeild Reykjavíkur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri
að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboöin veröa opnuð á sama staö fimmtudaginn
7. apríl 1983 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvcgi 3 — Simi 25800
STOR/
GLÆSI-
LEG
ASKRÍFENDA
Drögum 24. mars 1983 um
DAIHATSU
CHAR
1983
Nú er stóra tækif ærið
aðverameð
Aðeins skuldlausir áskrifendurgetatekiðþatt i getrauninni.
Getraunaseðlarnir birtast i laugardagsbloðunum
Síöumúla 15, Reykjavík
Dómsrannsókn lokið í máli
bv. Einars Benediktssonar:
„Með of stóra vél
að teljast bátur”
Gunnar leggur fram
frumvarp um stjórnarskrá