Tíminn - 10.03.1983, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
Bóka
mark
aðuim
fréttir
Góöar
bækur
Gamalt
verö
<94 h\
Bókamarkaóurinn
HÚSGAGNAHÖLLINNI,
ÁFTTÚNSHÖFÐA
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44(5 S6
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
í frystiskápa.
Góð þjónusta.
REYKJAVIKURVEGI 25 Hálnarfirði sími 50473
útlbú að Mjölnisholti 14 Reykjavík.
Bilaleigan\$
CAR RENTAL
29090 SSSS2?
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsimi: 82063
Vestmannaeyjar:
Þridjungi minni
afli á land
— fyrstu tvo mánuði ársins, en á sama tíma f fyrra
VESTMANNAEYJAR: „Þetta er
svona að skríða í gang,“ svaraði Hjörtur
Hermannsson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum,
spurður hvort Eyjamenn væru ekki að
komast í vertíðarstuð.
„Það kom t.d. dáldill afli á föstudag-
inn var, en það var fjögurra nátta.
Síðan hefur þetta ekki verið mikið og
sá eini sem búinn er að melda í dag er
með 6 tonn. Sá hinn sami var með 13
tonn á laugardaginn og 9 tonn í gær,
svo manni finnst þetta ekki of björgu-
legt“, sagði Hjörtur.
Hann kvað fiskiríið hafa verið ákaf-
lega lélegt það sem af er vertíðinni.
Fyrstu mánuðina hafi aðeins borist á
land 4.420 tonn af fiski í Eyjum, miðað
við 6.535 tonn á sama tíma í fyrra og
þó var þá verkfall á togurunum fyrri
hluta janúarmánaðar. Aflinn nú sé þó
svipaður og hann var á sam tíma árið
1981.
Afli Eyjatogaranna fjögurra frá jan-
úarbyrjun til febrúarloka var nú rúm-
um þriðjungi minni en í fyrra, eða
1.535 tonn nú miðað við 2.347 tonn á
sama tíma í fyrra. Lang aflahæstur er
Breki nteð 553 tonn, þá Vestmannaey
með 360 tonn og 3. Sindri með 318
tonn. Þess má geta að Klakkur var
bilaður framanaf vertíðinni.
Aflahæstur netabáta um síðustu
mánaðamót var Suðurey með 310
tonn, þá Heimaey með 297 tonn og
þriðji Sighvatur Bjarnason með 266
tonn. Á trolli var Huginn efstur með
180 tonn, þá Gullberg með 166 tonn og
þriðji Frár með 134 tonn. _ hei
„Er þetta ekki
mitt líf” sýnt á
Skagaströnd
SKAGASTRÖND: Leikklúbbur
Skagastrandar frumsýndi sjónleikinn
„Er þetta ekki mift líf“, eftir Brian
Clark, í þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur
í Fellaborg á Skagaströnd s.l. fimmtu-
dag. Leikstjóri er Ásgeir Sigurvalda-
son. Auk fleiri sýninga á Skagaströnd
eru sýningar fyrirhugaðar í nágranna-
bæjunum.
„Er þetta ekki mitt líf" er 8. verkefni
Leikklúbbs Skagastrandar frá því hann
var stofnaður haustið 1975, að því er
segir í frétt frá klúbbnum. Með helstu
hlutverk í leiknum fara þau Magnús
Jónsson, Ölafur Bernódusson, Guð-
björg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir,
Ágústa Friðriksdóttir og Kristján
Blöndal, en alls eru leikendur 14. Að
sýningunni hafa starfað um 20 manns.
- HEI
Þing Alþýðu-
sambands
Suöurlands
á Selfossi
ÁRNESSÝSLA: Sjöunda þing Alþýðu
samb'ands^/Suðurlands verður haldið í
Hótel Selfoss dagana, 26. og 27. mars.
n.k. Þingið verður sett kl. 14.00. á
laugardeginum, og byrjar með hefð-
bundnum þingstörfum. Tveim tímum
síðar hefjast framsögur um eftirtalin
málefni: Vinnuvernd, kjaramál, at-
vinnumál, lífeyris- og félagsmál og
tölvur og tækni. Að því loknu hefjast
nefndastörf og síðan vcrður efnt tii
kvöldvöku á laugardagskvöldið. Á
sunnudeginum verða nefndarálit kynnt
fyrir hádegi. Eftir hádegi ávarpa gestir
þingið. Kosningar fara fram síðdegis á
sunnudag.
- HEI
Séra Auður
Eir messar
í Gaulverja-
bæjarkirkju
GAULVERJABÆR: Á sunnudaginn
kemur, 13. þ.m., messar séra Auður
Eir í Gaulverjabæjarkirkju. Kirkjukór
Hábæjarkirkju annast sönginn undir
stjórn Sigurbjartar Guðjónssonar
organista.
í fyrravetur fór sóknarprestur Gaul-
verjabæjarkirkju ásamt kirkjukór og
söngstjóra Pálmari Þ. Eyjólfssyni aust-
ur í Þykkvabæ og önnuðust guðsþjón-
ustu í Hábæjarkirkju. Móttökur Þykk-
bæinga voru hinar höfðingleg-
ustu. Vonum við að hópferð Þykkbæ-
inga til okkar á sunnudaginn kemur
verði skemmtileg tilbreytni og minni
okkur á að mannleg samskipti og
gagnkvæmar heimsóknir cru ómetan-
legur þáttur í mannlífskeðjunni.
- Stjas.
— Leikarar og aðstoðarfólk í sýningunni.
.99
„Deleríum Bubonis
frumsýnt f Hveragerði
HVERAGERÐI: Leikfélag Hvera-
gerðis frumsýnir hinn sívinsæla gaman-
leik „Deleríum Búbonis", eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni í
Hótel Hveragerði n.k. föstudag, 11.
mars klukkan 21.00. Leikstjóri er
Ragnhildur Steingrímsdóttir, sem
einnig gerði leikmyndina.
Alls taka um 20 manns þátt í
sýningunni, en hlutverk eru níu talsins.
Með helstu hlutverk fara: Hjörtur Már
Benediktsson, Kristín Jóhannesdóttir,
Margrét Ásgeirsdóttir, Garðar Gísla-
son og Magnús Stefánsson.
Næstu sýningar eru áformaðar
sunnudaginn 13. mars, þriðjudaginn
15. mars og fimmtudaginn 17. mars.
Að venju verða dagsýningar fyrir börn
og svo hin hefðbundna sýning fyrir
ellilífeyrisþega búsetta í Hveragerði.
Hvetur Leikfélag Hveragerðis sem
flesta til að koma á þessar sýningar.
Að sögn Garðars Hannessonar ríkir
nú ófremdarástand fyrir félagsstarfsemi
sem þessa í Hveragerði, þar sem Hótel
Hveragerði hefur nú verið lokað. Ein-
göngu hafi verið gerlegt að koma sýn-
ingunni á fjalirnar með því að taka
Hótelið á Ieigu um tveggja mánaða
tímabil og sé það í mikið ráðist af svo
litlu félagi. Kvað Garðar það ein-
dregna von L.H. að úr þessum málum
rætist sem fyrst.
Þess má geta að þetta er í annað sinn
sem L.H. sýnir Deleríum Búbónis.
Fyrsta skiptið var árið 1966. I sýning-
unni nú eru tveir félagar Leikfélagsins,
sem einnig voru með í fyrri sýningunni,
Auðbjörg M. Jóhannsdóttir og undir-
leikarinn Theddór Kristjánsson.
- HEI
■ Ægir Ó. Ægis, forstjóri og jafnvægismálaráðherrann, sem leiknir eru af Hirti
Má Benediktssyni og Magnúsi Þ. Stefánssyni.