Tíminn - 10.03.1983, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
■ Raquel Welch með syni sínum Damon (t.v.) og eiginmanninum
Andre. Hún átti von á þriöja barni sínu í ágúst n.k., en nýjustu fréttir
herma að hún hafi misst fóstrið, til mikillar sorgar fyrir þau hjónin.
Bömin hennar tvö eru um tvítugt.
Mioaldra
mæður
teknar í námi og starfi fram
eftir árunum og draga það þá
ef hægt er - að eignast börn.
því er orðið töluvert um það,
að konur verði mæður - jafnvel
í fyrsta sinn - á fimmtugsaldri.
Þegar konur, sem mikið eru
í sviðsljósinu, og komnar eru á
miðjan aldur, lýsa með fjálg-
leik hversu hamingjusamar
þær séu vegna þess. að hafa
eignast lítið barn á þessum
aldri, þá fara margar aðrar á
sama aldri að velta fyrir sér,
hvort ekki væri ráð að fara eins
að.
Oft eru þá fyrri börnin orðin
stálpuð og jafnvel farin að
heiman, og skilja tómlcika eftir
sig á heimilinu. „Það er eins og
hafa fengið frantlengingu á
lífshamingjunni. Mér finnst ég
hafi yngst um 10 ár,“ sagði
Christina Most, sem er kona
milljónamærings og plötuút-
gefanda í Bretlandi. Christina,
sem er 40 ára, hefur unnið
mikið með manni sínum í
fyrirtækinu. Þau áttu fyrir 24
ára son og yngri dóttur, en
eignuðust litla dóttur fyrir
jólin. „Við njótum þess enn
betur nú að vera nýbakaöir
foreldrar en áður fyrr. Þá
fannst okkur við vera svo
bundin yfir börnunum, en nú
erum við reyndari og þroskaðri
en hér áður þegar við stóðum í
þessu nýgift. Auðvitað hefur
líka mikið að segja, þegar fólk
er komið á þennan aldur að
það hefur oftast komið sér vel
fyrir með húsnæði og annaö og
peningamálin í betra lagi en hjá
unga fólkinu sem er að byrja.
Við mælum með því að eign-
ast börn á fimmtugsaldrinum.
Ég er hress og Mickie (faðir-
inn) er aö springa úr monti,“
sagði Christina.
Við birtum hér nokkrar
„móður og barns-myndir" af
þekktum mömmum með börn
sín, sem allar virðast vera sam-
niála ensku frúnni, henni
Christinu Most um ánægjuna
við það að eignast barn á
þessum aldri, og eru þær
talandi auglýsingar fyrir því
fyrirtæki. Þær eru ánægðar,
hressar og líta út minnst 10
árum yngri en þær eru.
■ Fram að þessu hefur það
yfirleitt verið talið óráðlegt af
konum, sem komnar eru yfir
fcrtugt, aö standa í barneign-
um, og það gæti verið hættu-
legt heilsu þcirra. En tímanir
hafa brcytst og læknavísindum
farið mikiö fratn, og því eru
mörg áhættumálin úr sögunni
með auknu cftirliti veröandi
mæðra á meðgöngutímanum.
Svo eru konur stundum upp-
■ Ursula Andress, frægasta Bond-stúlkan, með son sinn
Dmitri, sem hún eignaðist 44 ára: „Móðurgleðin er dásamleg."
■ Breska leikkonan Esther Rantzen er ein af nýju
mömmunum á fimmtugsaldri. Esther og maður hennar
Dcsmond Wilcox eru mjög hamingjusöm með „kraftavcrk-
ið“, eins og þau kalla litla Joshua, en hann er lítiö ánægður
á svipinn og er að hugsa um að halla sér og fá sér lúr.
viðtal dagsins
■ Páll P. Pálsson
■ „Þeir voru að segja mér það
hjá Tónskáldafélaginu að það
hefði enginn stjórnandi stjórnað
eins mörgum upptökum hjá út-
varpinu á íslenskum verkum eins
og ég eftir að ég varð fastur
stjómandi hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Islands árið 1971,“ sagði
Páll Pamplicher Pálsson þegar
blaðið ræddi við hann í gær. Páll
„HOLLT FYRIR STJÓRNANDA
AÐ KYNNAST NÝJUM HUÓM-
SVEITUM OG NÝJU FÓLKI’’
— rætt við Pál P. Pálsson, sem kemur fram sem gestastjórnandi
með tveim hljómsveitum í Þýskalandi á næstunni
stjórnar tónleikum í Háskólabíói
í kvöld og nú í mars og apríl
kemur hann fram sem gesta-
stjórnandi hjá tveim hljómsveit-
um í Þýskalandi.
„Ég kem fram með hljómsveit
á stað sem heitir Rheimssceidt,
ekki langt frá Köln. Þar er nokk-
uð s.tór og góð hljómsveit þar og
það spilar hjá henni óbóleikari
sem var hér á íslandi í 8 eða 9 ár,
Paul Budelsky. Það er kannske
honum að þakka að mér er
boðið þarna út núna. Ég flyt
þarna verk eftir Jón Nordal,
Tileinkun heitirþað ogvarsamið
í tilefni af fyrstu sýningu Islensku
óperunnar í Gamla bíói. Síðan
verður á efnisskránni Hornkons-
ert eftir Richard Strauss, þar
verður einleikari Hermann
Baumann sem hefur spilað hér á
íslandi og loks verð ég með
Sibelius, sínfóníuna nr. 2.
Síðan fer ég aftur út í apríl og
þá stjórna ég fernum tónleikum
í Mönchengladbach og þar í
kring. Þar verð ég líka með verk
eftir Jón Nordal, Canto Elig-
iato, verk fyrir einleiksselló og
hljómsveit sem Jón samdi við
fráfall vinar síns, Einars Vigfús-
sonar sellóleikara. Þá verður
leikinn píanókonsert í f-moll nr.
2 eftir Chopin og 1. sinfónía
Sibeliusar. Það er stjórnandi hjá
þessari hljómsveit maður að
nafni Reinhardt Schwarz sem
hefur komið tvisvar hingað til
Reykjavíkur sem gestastjórn-
andi, sem stóð fyrir því að mér
yrði boðið þarna út. Einleikari í
Chopin-konsertinum verður
þekktur þýskur píanisti sem heit-
ir Eduard Auer.“
Er þetta í fyrsta sinn sem þér
er boðið út sem gestastjórnandi?
„Nei, nei ég hef komið fram
sem gestastjórnandi bæði í Nor-