Tíminn - 10.03.1983, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
B.St. og K.L.
t
■ Herragreiðsla. Formklipping og blástur, unnið af heimsmeistaranum, Siegfried Ebenhoch
■ Mikið permanent sett í hárið og klippt í
styttur. (Hárgreiðslustofan Rún)
■ Samband hárgreiðslu- og hárskerameistara
hélt sýningu sl. sunnudag í veitingahúsinu
Broadway. Tuttugu og tvær hárgreiðslustofur
tóku þátt í sýningunni, sem tókst mjög vel.
Kynnir var Arnþrúður Karlsdóttir, sem kunn er
fyrir þætti í útvarpinu.
Gestur kvöldsins var Siegfried Ebenhoch,
heimsmeistari í hárskurði. Hann vakti mikla
hrifningu áhorfenda fyrir snör og snjöll handtök,
og fallegar klippingar og greiðslur. Mjög fjöl-
mennt var á hárgreiðslusýningunni og vakti hún
hrifningu áhorfenda. Hér sjáum við nokkrar
svipmyndir frá sýningunni.
■ Samkvæmisgreiðsla á stuttu hári,
- tilvalin á árshátíðina. (Hárgreiðslu-
stofan Carmen)
■ Létt permanent og „strípur'
(Hárgreiðslustofan Hótel Sögu)
■ Samkvæmisgreiðsla ungu stúlk-
unnar (Hárgreiðslustofan Anna Bár)
(Tímamyndir Árni)