Tíminn - 10.03.1983, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
minnmg
árnað heilla
Maríus
Ólafsson
Kveðja frá bindindishreyfingunni
Föstudaginn 4. mars s.l. andaðist
aldursforseti okkar félaga í stúkunni
Einingunni nr. 14, Maríus Ólafsson,
skáld okkar. Hann var fæddur á Eyrar-
bakka 28. október 1891 og var því á öðru
ári yfir nírætt. Hann gat að vísu ekki sótt
fundi okkar í vetur en þar lét hann sig
ekki vanta meðan hann var ferðafær.
Ég kann ekki að rekja ævisögu Mar-
íusar. Ég veit að hann var Eyrbekkingur
og þar var faðir hans söðlasmiður en auk
þess að stunda iðn sína stundaði hann
flutninga á hestvögnum milli Reykjavík-
ur og Eyrarbakka.
Skáldskapur Maríusar ber því vitni
hve mikill Eyrbekkingur hann var.
„Við finnum það best þegar Bakkans
er getið,
Hve blóðið til skyldunnar örvandi
snýr,
og hugur vorgleðst, er það manntak er
metið,
sem mótast þar hefur og vegi sér býr,
því mannsálin sköpuð úr minningum er,
og myndirfrá æskunni i hjartanu ber.-“
Það var alla tíð þrá hans og fögnuður:
„að hlusta á niðinn sem hafaldan ber
og hitlast að nýju á ströndinni hér. “
Minningar frá bernskunni á Bakkan-
um urðu honum löngum yrkisefni beint
og óbeint og íslenskri þjóðmenningar-
sögu er fengur að þeim skáldskap. Hann
orti um frátök og gæftir og fjölmargt
annað. En öðrum stendur nær að minn-
ast þess.
Þegar Maríus Ólafsson gekk til liðs
við templara með því að gerast félagi í
stúkunni Einingunni 1944 hafði hann
lengi verið verslunarmaður í Reykjavík
en var þá orðinn starfsmaður Reykjavík-
urborgar við gjaldkerastörf og því hélt
hann það sem eftir var starfstímans.
Maríus var félagslyndur maður og
alvörumaður í trúmálum. Söguskilning-
ur hans var sá að
„Trú á guð í mannsins mœtti,
miskunnsemi og brœðralag
- hjartakuldans bölið bœtti -
bendir fram á nýjan dag.“
Á grundvelli þessarar lífsskoðunar
spurði hann:
„Oger ekki gleðin sú himninum hœrri
að hlúa að þeim gróðri, sem kringum
oss býr?"
Hann vissi að tvöfeldni og óheilindi
tefja framsókn okkar í viðleitni að bæta
heiminn og því kvað hann:
„Þó víða sjáist merki um viljann til að
bœta
úr vandamálum öllum og sefa þjóðar-
harm,
þá stendur varla nærri að endi þessi
þrœta,
efþarfei nokkur maður að líta í eigin
barm. “
Þetta var trú og lífsskoðun Maríusar
Ólafssonar að mannúð og góðvild væru
guðlegrar ættar og leiðin fram á við til
meiri þroska og fegurra mannlífs væri sú
að líta í eigin barm, gera kröfu til sjálfs
sín fyrst og fremst.
Á þetta er nú bent af því að þar eru
forsendur þess hve mikill og tryggur
templar Martus varð.
Maríus var ekki fæddurbindindismað-
ur og sem gleðiinaður og góður félagi
prófaði hann að eigin raun sannindi þess
að hóflega drukkið vín gleður mannsins
hjarta. Hann orti Bakkusi lof og sagði
þar m.a.
„Þegar ég er þreyttur, kaldur,
þjakaður á lífi og sál,
lyftirðu mér í Ijóssins veldi
langtfyrir ofan svik og tál."
En revnslan kcnndi honum að taka
þessi- orð til endurskoðunar og sýndi
skáldinu að það var höfuðvilla að fría
vínguðinn við svik og tál. Það munu vera
áhöld um það hvort meira gæti sem
yrkisefna hjá Maríusi Eyrarbakka og
upprunans þar eða félagsskapar templ-
ara og hugsjóna hans og stefnu.
Það var rökrétt afleiðing þeirrar lífs-
skoðunar og trúar.
Sem fyrr er getið að Maríus orti á
aldarafmæli góðtemplarareglunnar:
„Þeir vinna lieitið: Mannsins böl að
bœta
og byggja ríki Drottins hér á jörð
því bróðir eigi bróður síns að gœta
og bróðurást að halda um lífið vörð.
Og voldug trúin, von og kærleiksandi
þeim vitrun gaf: Að frelsist löndin öll,
er þverri böl, sem göfgi mannsins
grandi,
og grafi undan mannfélagsins höll. “
Þá vissi skáldið að svik og tá! Bakkusar
grafa undan höll mannfélagsins. Og
Maríus Ólafsson vann af fullum heil-
indum gegn því sem hann vissi að var
hættulegt mannlegri hamingju.
Maríus Ólafsson og Karólína Andrés-
dóttir kona hans sóttu fundi Einingarinn-
ar flestum betur meðan heilsan leyfði.
Maríus naut þess að vera á fundum með
templurum og honum entist fjör og
hugsun og söngrödd uns hann var ní-
ræður. Félögum hans svo sém 20 árum
yngri, sem þóttust finna á sér ýms
ellimörk, var huggun að hugsa til þess að
samkvæmt reynslu hans kynnu þeir að
eiga framundan 20 gleðirík ár í góðum
félagsskap.
Það er vafasamt að nokkur félaga
okkar hafi tekið Maríusi fram í hvetjandi
áhuga. Fram til hins síðasta var hann
óþreytandi að eggja til dáða samkvæmt
því sem segir í einu tækifærisljóði hans.
„Hve fagnandi sjáum vér framtíðar-
braut
með fækkandi slysum og tárum,
er áfengisvillunnar þungbæra þraut
fer þverrandi á komandi árum.
Vér heitum á alla að Itefja það starf
sem hamingju þjóðinni leggttr í arf."
Og annars staðar í hvatningaljóðum
hans er þetta:
„Okkar hlutverk er að vekja
íslendinga af svefni í dag,
bölið mesta burtu hrekja,
benda á sannan þjóðarhag,
heita á alla að hœtta að gœla
Iteimsku og spilling þjóðar við.
Svo að heilbrigð inegi mæla
minning, trú og stefnumið. “
Vildu menn hætta að gæla við heintsk-
una og spillinguna yrði vímuefnamálin
viðráðanleg.
Maríus horfinn, víst er sjónarsviptir
sjá ekki lengur gamla fullhugann,
minningin yfir móðu tímans lyftir
mannorði hans er lengi dyggur vann,
hans sem að aldrei lét sig beygja og
letja,
Ijóðskáldsins sem var óþreytandi að
hvetja.
Skyldugt er okkur skáldsins hvöt að
geyma
skila henniáfram, lengra og víðar ná,
fyrstokkurerum betri daga að dreyma
drengskap og skyldu meta verður þá.
Hlutlausi maður! Hverjum viltu duga.
Heimurinnþarfþín. Spurt erum þinn
huga.
H.Kr.
íslenskum hestum
sæma best
íslensk reiðtygi
Vönduð vinargjöf
Allt til reiðbúnaðar
Þorvaldur mom
Guðjonsson mnakkar
Söðlasmíðameistari, Einholti 2 - inngangur frá
Stórholti - sími 24180.
Gunnar
Sveinsson
kaupfélagsstjóri
sextugur I
Sextugur er í dag Gunnar Sveinsson
kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Suður-
nesja. ’
Hann er fæddur 10. mars 1923 að
Góustöðum í N-ísafjarðarsýslu. For-
eldrar hans voru hjónin Guðríður
Magnúsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík og
Sveinn Guðmundsson frá Hafrafelli.
Gunnar er kvæntur Fjólu Sigurbjörns-
dóttur og eignuðust þau fimni mannvæn-
leg börn. Hann gekk í Samvinuskólann
árin 1940 til 1942, og má segja að síðan
hafi samvinnuhreyfingin notið nær óslit-
ið starfskrafta hans.
Gunnar réðist sem kaupfélagsstjóri til
Kaupfélags Suðurnesja í ársbyrjun 1949,
en hafði þá starfað hjá nokkrum kaupfé-
lögum víðs vegar um landið. Kaupfélag
Suðurnesja var stofnað í ágúst 1945 og
hafði því vart slitið barnsskónum þegar
það kom í untsjá Gunnars Sveinssonar.
Hallarekstur varð hlutskipti félagsins
fyrstu árin, en strax á öðru ári eftir að
Gunnar var ráðinn, sýndu ársreikning-
arnir tekjuafgang. Síðan eru liðin meira
en þrjátíu ár. Ungt og fátækt félag hefur
orðið eitt af stærstu kaupfélögum lands-
ins undir stjórn Gunnars. Ég tel að
kappsemi hans og dugnaður hafi þar
ráðið mestu. í tuttugu ára samstarfi
mínu við Gunnar hef ég kynnst því, að
vinnutími hans var aldrei á enda fyrr en
búið var að ljúka því af sem þurfti að
gera fyrir kaupfélagið, jafnvel þótt
leggja þyrfti nótt við dag.
Árangur hans hefur vakið athygli
samvinnumanna í landinu. 1973 var
hann kosinn í varastjórn Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga og 1979 í aðal-
stjórn þess.-Gunnar hefur beitt sér á
fjölmörgum sviðum félagsmála, svo of
langt mál yrði upp að telja, en ég vil þó
nefna nokkur dæmi þess. Hann hefur
allar götur verið áhugamaður um íþrótt-
ir, síðan hann var liðsmaður knatt-
spyrnufélagsins Vestra á ísafirði. Hann
var í stjórn Ungmennafélags Keflavíkur
í 10 ár og þar af formaður í tvö. í stjórn
Ungmennafélags íslands var hann frá
'1968 til 1974. Þegar Suðurnesjamenn
fóru að hyggja að fjölbrautaskóla á
svæðinu var Gunnar kosinn í undirbún-
ingsnefnd, en cftir að skólinn reis ogtók
til starfa hefur hann verið formaður
skólanefndar. Hann hefur einnig verið í
fræðsluráði Reykjanesumdæmis frá
stofnun þess. Að lokum vil ég geta þess
að Gunnar var varaþingmaður fyrir
Framsóknarflokkinn á árunum 1974 til
1978 og sat á þingi um tíma. Þar flutti
hann nokkiir frumvörp og má þar til
nefna frumvarp um Éramkvæmdasjóð
Suðurnesja, scm átti að fjármagnast af
starfsemi innlendra verktaka á Suður-
nesjum. Einnig flutti hann frumvarpum
mjög gagnlega breytingu á lögum um
Menningarsjóð félagsheimila. Þá var
hann meðflutningsmaður að frumvarpi
um jarðhitaréttindi og svo mætti lengi
tclja.
Gunnar er ennþá í fullu fjöri og
sístarfandi. Á hverju ári cru honurn falin
ný verkefni, sem leysast af dugnaði hans
og framsýni.
Ég vil svo enda þessar línur með
árnaðaróskum til Gunnars og fjölskyldu
hans, um leið og ég þakka honum fyrir
langt og gott samstarf að málefnum
Kaupfélags Suðurnesja.
Til athugunar fyrir vini og kunningja
þeirra hjóna skal þess getið að þau eru
að heiman á afmælisdaginn.
Sigfús Kristjánsson.
Eigum fyrirliggjandi
CAV 12 voita startari:
Bedford M. Ferguson
Perkins Zetor
L. RoverD. Ursusofl.
CAV 24 volta startari:
Perkings
Scania
JCB o.fl.
Lucas 12 volta startari:
M. Ferguson
Ford Tractor ofl.
CAV 24 volta alternator:
35 amper einangruð jörð
65 amper einangruð jörð
Butec 24 volta alternator:
55 ampers einangruð jörð
Einnig startarar og alternatorar fyrir allar
gerðir af japönskum og enskum bifreiðum.
Þyrill s.f.
Hverfisgötu 84
101 Reykjavík
Sími29080