Tíminn - 10.03.1983, Qupperneq 18
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1983
18
þingfréttir
Ríkisstjórnin hefur lagt fram þingsályktunartillögu
um kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði:
Stef nt að gang-
setningu 1986-88
■ Ríkisstjórnin hefur iagt fram þings-
ályktunartillögu um kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði, þar sem ályktað cr
að stefna eigi að gangsetningu verk-
smiðjunnar á árunum 1986-88.
Með tillögunni fylgir mikil skýrsla frá
stjórn Kísilmálmvinnslunar um starf-
semi félagsins og þær athuganir sem hún
hefur gert. í athugasemdum segir ma:
Á grundvelli skýrslunnar telur stjórn
félagsins, að kísilmálmverksmiðja á
Reyðarfirði geti verið vænlegur kostur í
innlendri orkunýtingu og að stefna eigi
að gangsetningu verksmiðjunnar á árun-
um 1986-1988, en allan undirbúning á
næstunni beri að miða við, að fyrsti ofn
hcnnar taki til starfa 1986. Nánari á-
kvarðanir um tímasetningu innan framan-
greindra marka skuli teknar á grundvelli
upplýsinga um þróun markaðsmála og
almenna þróun efnahagsmála í heimin-
um.
Stjórnin telur störf sín hafa mótast af
varfærni og hafi hún leitast við að leggja
sjálfstætt mat á rekstrargrundvöll og
samkeppnishæfni verksmiðjunnar og
leitað til innlendra og erlendra ráðgjafa
í því sambandi. Um mat á þróun mark-
aðar fyrir kísilmálm og hagkvæmni kísil-
málmverksmiðju á íslandi sneri stjórnin
sér til bandaríska fyriritækisins Chase
Econometrics, en áður hafði verkefnis-
stjórn iðnaðarráðuneytisins fengið
breska fyrirtækið Commodities Res-
earch Unit Ltd, til að gera sambærilega
athugun.
Niðurstöður beggja þessara aðiia
hníga mjög í sömu átt og telja þeir að
markaður fyrir kísilmálm fari vaxandi og
verksmiðja á fslandi geti í framtíðinni
framleitt kísilmálm á samkeppnishæfu
verði.
Stjórnin hefur haft samband við fjöl-
marga aðila, sem látið hafa í Ijós áhuga
á samvinnu um sölumál, cða vilja taka
að sér sölu á framleiðslu verksmiðjunnar
í heild eða að hluta.
Þá hefur stjórnin unnið að gerð santn-
inga um kaup á vélbúnaði í verksmiðjuna
og hafa náðst fram verulegar verðlækk-
anir frá upphaflegum tilboðum. Liggja
nú fyrir samningsdrög um kaup á búnaði
til verksmiðjunnar.
Meginniðurstöður arðsemisútreikn-
inga eru þær, að afkastavextir verði
11.2% miðað við varfærna spá Chase
Econometrics um verðþróun á kísil-
málmi. Er þetta heldur meiri arðsemi en
gert var ráð fyrir á síðasta ári í greinar-
gerð með frumvarpi til laga um verk-
smiðjuna. Á grundvelli aðalspár Chase
Econometrics um markaðsþróun áætlar
stjórnin, að arðsemi heildarfjárfestingar
(afkastavextir) í verksmiðjunni verði
13.5%.
I arðsemisútreikningum er gert ráð
fyrir, að verksmiðjan greiði að meðaltali
tæplega 18 mill á kílóvattstund fyrir
raforku, en í niðurstöðum stjórnar verk-
smiðjunnar kemur fram, að hún telji að
verð á raforku til kísilmálmverksmiðj-
unnar eigi að vera sambærilegt við
raforkuverð til hliðstæðra fyrirtækja.
Niðurstöður skýrslu stjórnar Kísil-
málmvinnslunnar hf.' um starfsemi fé-
lagsins og athuganir skv. 3. gr. laga nr.
70/1982 um kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði eru:
Niðurstöður:
„Stjórn Kísilmálmvinnslunnar hf.
telur, á grundvelli þessarar skýrslu að:
- kísiimálmverksmiðja á Reyðarfirði
geti verið vænlegur kostur í innlendri
orkunýtingu.
- Stefna eigi að gangsetningu verk-
smiðjunnar á árunum 1986-1988, en allan
undirbúning á næstunni beri að miða við
það að fyrsti ofn hennar taki til starfa
1986.
- ákvörðun um tímasetningu innan
framangreindra marka skuli tekin af
stjórn félagsins á grundvelli upplýsinga
um þróun markaðsmála og með hliðsjón
af almennri þróun efnahagsmála í heim-
inum.
- auka þurfi hlutafé félagsins.
- verð raforku til kísilmálmvinnslunn-
ar skuli vera sambærilegt og til hlið-
stæðra fyrirtækja.
- vinna eigi markvisst að því á næstunni
að fá til samstarfs við íslenska ríkið aðra
cignaraðila, innlenda og erlenda.“
Neðri deild álítur:
Álitlegt ad
bjarga gullskipinu
■ Neðri deild hcfur samþykkt að
heimila ríkisstjórninni að ábyrgjast lán
vegna björgunar skipsins Het Wapen
frá Amsterdam, allt að 50 millj. kr.,
gegn þeini tryggingum, sem fjármála-
ráðuneytið telur fullnægjandi, svo scm í
verðmæti hins bjargaða og söluandvirði
skipsins úr landi, enda liggi fyrir sam-
þykki fjárveitinganefndar.
Þetta er náttúrlega gullskipið í Skeið-
arársandi sem strandaði 1667.
Flutningsmenn að frumvarpinu um
ríkisábyrgðina eru Birgir ísleifur Gunn-
arsson, Þórarinn Sigurjónsson, Sverrir
Hcrmannsson og Magnús H. Magnús-
son.
Svo sem menn rekur minni til var lagt
fram frumvarp þessa efnis með fjárlaga-
frumvarpi, eða öllu fremur breytingartil-
laga við það, skömmu áður en fjárlög
voru afgreidd. Var tillagan felld, en
ekki fyrr en eftir talsverðar umræður.
Umræður urðu ekki miklar um þetta
nýja frumvarp en margir þingmenn
gerðu grein fyrir atkvæði sínu en það var
samþykkt með nafnakalli, og sent efri
deild, þar sem vitað cr að nokkrir
velunnarar frumvarpsins sitja.
Vilmundur sagði að ekki næði nokk-
urri átt að ævintýramennska væri kostuð
af almannafé og sagði nei.
Garðar Sigurðsson hélt að við hefðum
allt annað við pcninga að gera en kasta
þeim í 300 ára gamalt skipsflak.
Hjörleifur taldi að þótt flakið sé í hans
kjördæmi sé það allvel geymt í sandi um
sinn og tók ekki afstöðu.
Ólafur Þ. Þórðarson kvaðst forðast að
greiða atkvæði með að leggja fjármuni í
sokkin og týnd skip. Sagðist óttast mjög
um framtíð Framkvæmdastofnunar ef
þessi háttur verði tekinn upp, leit við á
Sverri forseta og sagði nei.
Málinu lyktaði með því í deildinni að
17 sögu já, 11 nei og 4 greiddu ekki
atkvæði.
I greinargerð segir m.a. um fram-
kvæmdina og ágóðavonina:
Síðastliðin 22 ár hefur verið unnið að
leit skipsins og varið til þess miklum
verðmætum og vinnu. 28. júlí 1982
fannst skipið loks.
Áætlun hefur verið gerð um að bjarga
verðmætum þeim, sem hér um ræ ðir, á
þessu ári. Fullvíst er talið að skips-
skrokkurinn sé heill og allur sá farmur.
sem niðri ískipinu var, sé þarenn. Engin
leið er að gera sér grein fyrir þeim
verðmætum sem hér kann að vera um að
ræða, en naumast geta þau verið minni
en nemur kostnað við björgun - eða 50
milljónir króna.
Hagsmunir ríkisins af björgun þessara
verðmæta eru að sjálfsögðu langmestir,
þar sem það fengi, auk 12% þóknunar-
innar, miklar skatttekjur ef um veruleg
verðmæti er að ræða. Einstaklingar þeir,
sem reftindin eiga, hafa ekki bolmagn til
þess einir að bjarga verðmætum á þessu
ári, en framkvæmdir þyrftu að byrja í
marsmánuði n.k., þar sem venja þarf
árnar frá björgunarstað meðan þær eru
litlar. Þeir eru hins vegar reiðubúnir til
hvers kyns samninga við íslenska ríkið,
en að því frágengnu yrði væntanlega að
leita samninga við Hollendinga, sem
sýnt hafa mikinn áhuga. Væntanlega
tækju samningar við þá þó svo langan
tíma að slá yrði málinu á frest í a.m.k.
eitt ár, sem raunar gæti verið áhættusamt
vegna hættu á Skeiðarárhlaupi, en stað-
urinn, sem skipið er á, hefur lengst af
verið undir vatni í ósum Skeiðarár, en
nú eru aðstæður hinnar ákjósanlegustu.
Landsbanki Islands er reiðubúinn að
annast lántöku, svo að íslendingar geti
annast björgunaraðgerðir, en leitar-
menn geta ekki einir lagt fram trygging-
ar, sem bankinn telur fullnægjandi. Hins
vegar er unnt að tryggja alla verkfram-
kvæmdina hjá Lloyds í London og
minnkar það áhættuna verulega.
Flutningsmenn telja eðlilegt að á
grundvelli samnings þess, sem gerður
var af forsætisráðuneytinu 27. september
1960, verði samið við leitarmenn um
björgun skipsflaksins og annarra verð-
’ mæta og félagi þeirra, Gullskipinu h/f,
veittar til þess nægilegar ábyfgðir sam-
hliða því sem íslenska ríkið tryggir sína
hagsmuni. Ábyrgð þessi yrði þó ekki
veitt nema fjármálaráðuneyti og fjárveit-
inganefnd telji þeim hagsmunum nægi-
lega vel borgið, m.a. með því að verk-
framkvæmdin verði tryggð og skipið selt
úr landi, ef ekki væri talin ástæða til að
varðveita það hér á landi. Tillöguflutn-
ingurinn miðar að því í senn að bjarga
merkilegum menningarverðmætum og
tryggja ríkissjóði álitlegan hagnað án
verulegrar áhættu.
Tillaga um breytingu á
stjórnskipunarlögum:
Kostnaður vegna
búsetu verði
frádráttarbær
■ Tveir framsóknarmenn, Stefán
Valgeirsson og Ólafur Þ. Þórðarson,
hafa lagt fram breytingartillögu við
frumvarp til stjórnskipunarlaga, þ.e.
breytingu á kosningalögum. Tillagan
gerir ráð fyrir að við ákvörðun skatta á
■ tekjur og eignir skuli gætt jafnræðis
þegnanna, þannig að til lækkunar komi
sérstakur kostnaður vegna búsetu, eftir
því sem nánar verður ákveðið í lögum.
I umræðum um kjördæmamálið gagn-
rýndu flutningsmenn báðir mjög að ekki
er gert ráð fyrir annari jöfnun í stjórn-
skipunarlagafrumvarpinu en á at-
kvæðum, en ekki minnst orði á annan
jöfnuð meðal landsmanna. OÓ
, Kvikmyndir
BM \
HOIUM
Sími 78900 GmU-o
Salur 1
Frumsýnir grfnmyndina
Allt á hvolfi
(Zapped)
Splunkuný bráðfyndin grínmynd i
algjörum sérflokki, og sem kemur
öllum í gott skap. Zapped hefur
hvarvetna fengið frábæra aðsókn
enda með betri myndum i sinum
flokki. Peir sem hlóu dátt af Porkys
fá aldeilis að kitla hláturtaugarnar
af Zapped. Sérstakt gestahlutverk
leikur hinn frábæri Robert Mandan
(Chester Tate úr SOAP sjónvarps-
þáttunum).
Aðalhlutverk: Scott Baio, Willie
Ames, Robert Mandan, Felice
Schachter.
Leikstjóri: Robert J. Rosenthal.
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Salur 2
Dularfulla húsið
Kröftug og kyngimögnuð ný mynd
sem skeður i litilli borg i Bandarikj-
unum. Þar býr fólk með engar
áhyggjur og ekkert stress, en allt i
einu snýst dæmið við þegar ung
hjón flytja i hið dularfulla Monroe
hús. Mynd þessi er byggð á
sannsögulegum heimildum.
Aðalhlutverk: Vic Morrow, Jess-
ica Harper, Michael Parks.
Leikstjóri: Charles B. Pierce
Sýnd kl. 5,7,9, og 11.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Salur 3___________
Óþokkarnir
Frábær lögreglu og sakamála-
mynd sem fjallar um það þegar
Ijósin fóru af New York 1977, og.
afleiðingarnar sem hlutust af því.
Petta var náma fyrir óþokkana.
Aðalhluterk: Robert Carradine,
Jim Mitchum, June Allyson, Ray
Mllland
Sýnd kl. 5,7,9,11
Bönnuð börnum inna 16 ára
Salur 4
Gauragangur
á ströndinni
Lótt og fjörug grínmynd um hressa
krakka sem skvetta aldeilis úr
klaufunum eftir prófin I skólanum
og stunda strandlifið og skemmt-
anir á fullu. Hvaða krakkar kannast
ekki við fjöriðá sólarströndunum?
Aðahlutverk: Kim Lankford, Jam-
es Daughton, Stephen Oliver
Sýnd kl. 5,7 og 11.10. .
Fjórir vinir
Ný frábær mynd gerð af snillingn-
um Arthur Penn en hann gerði
myndirnar Litli Risinn og Bonnie
og Clyde. Myndin gerist á sjöunda
áratugnum og fjallar um fjóra vini
sem kynnast i menntaskóla og
verða óaðskiljanlegir ‘Arthur Penn
segir: Sjáið til svona var þetta í þá
daga.
Aðalhlutverk: Craig Wasson, Jodi
Thelen, Michael Huddleston, Jim
Metzler.
Handrit: Steven Tesich. Leikstjóri:
Arthur Penn.
Sýnd kl. 9
Salur 5
Being there
Sýnd kl. 9
(Annað syningaár)