Tíminn - 18.03.1983, Page 3
FOSTUDAGUR 18. MARS 1983
Hörd gagnrýni á
í borgarstjórn:
flliT AD TVEGGJA KÍU)
METKA GANGUR í SKÓLANN
„Sönnun
þess að
ég er á
réttri leið”
— segir Ólafur
Jóhannesson
■ „Ég er ákaflega ánægður yfir því,“
sagði Olafur Jóhannesson, utanríkisráð-
herra í samtali við Tímann í gær, er hann
var spurður hvað hann vildi segja um
skammir þær sem Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins hefði
sent honum á fundi ungra framsóknar-
manna í fyrradag.
„Það er sönnun þess að ég sé á réttri
leið,“ sagði Ólafur, „og það hefur alltaf
orðið mér til góðs, þegar Þjóðviljinn
hefur skammað mig sem mest, og hann
hefur nú ekki dregið af sér á þessu árinu,
frekar en hinum fyrri!“
-AB
■ Það var hálf myrkvað í borgarstjórn
í gærkveldi þegar umræður fóru fram og
staðfesting á nýju deiliskipulagi vegna
fyrsta áfanga íbúðarbyggðar norðan
Grafarvogs og tillögu um brcytta land-
notkun á þessu svæði miðað við núgild-
andi aðalskipulag. Myrkurinn stafaði af
því að rafmagn fór af mestum hluta
borgarstjórnarsaiarins meðan á hluta
umræðunnar stóð, en fulltrúar minni-
hlutans í borgarstjórn voru að sama
skapi myrkir í máli í afstöðu sinni til
tillagnanna.
Töldu fulltrúar minnihlutans að stór-
kostleg skipulagsleg mistök væru að eiga
sér stað með samþykkt deiliskipulags
hins nýja íbúðahverfis í Grafarvogi.
Taldi Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi,
það greinilega einkennisorð sjálfstæðis-
manna í þessum málaflokki að vinna
„fljótt og flausturslega“ að öllum
málum. Forsögn skipulagsins væri
meingölluð sem aftur leiddi af sér slæmt
skipulag.
Nefndi Sigurjón sem dæmi að skóla-
börn í væntanlegu íbúðahverfi þyrftu að
ganga allt að 1-2 kílómetra til að komast
Davíð Oddsson gagnrýndur fyrir málsmeðferð
við Viðeyjarsamninginn:
pÁmælisvert’
■ Borgarstjórn samþykkti með öllum
greiddum atkvæðum á fundi sínum í
gærkvcldi samning um kaup Reykjavík-
urborgar á meginhluta Viðeyjar af Ólafi
Stephenscn fyrir 28 mUljónir króna.
Greiðslukjör eru þau, að útborgun er
2.4 mUljónir króna, en afgangurinn,
25.6 mUljónir króna, greiðast á næstu 15
árum í misstórum afborgunum.
Taldi Davíð Oddsson, borgarstjóri,
að merkum áfanga í sögu Reykjavíkur
hefði verið náð með þessum samningi. í
sama streng tók Kristján Benediktsson,
borgarfulltrúi, sem sagði að hugur borg-
Nú fá 25 þúsund viðbótar-
láglaunabætur:
Viðbótargreiðslur
nema 22.8 milljónum
■ Rúmlega 25 þús. manns, sem litlar
eða engar láglaunabætur fengu í des-
ember s.l. - langflestir vegna of lágra
launa - eiga nú von á viðbótar lág-
launabótum í dag eða næstu daga.
Flestir þeirra munu nú fá um 1.000
króna ávísun. Samtals nema þessar bóta-
greiðslur um 22,8 millj. króna er fara til
25.400 einstaklinga. En bætumar í des-
ember fóru til 38 þús. einstaklinga.
Þar sem eignamörk hafa nú verið
hækkuð um 50% hjá einstaklingum og
um 100% hjá einstæðum foreldrum geta
ýmsir úr þeirra hópi, sem fengu skertar
eða engar bætur í desember vegna of
mikilla eigna, nú hlotið bætur, og þá í
ýmsum tilvikum eitthvað meira en um-
ræddar 1.000 krónur.
Jafnframt fá þeir bætur núna sem
fengu minna en 1.000 kr. í desember en
höfðu þó 10-70 þús. króna laun á árinu
1981. Aðrar tekjur mega þó ekki hafa
verið hærri en 20 þús. kr., útsvarsstofn
maka ekki yfir 140 þús. krónur og eignir
ekki yfir mörkunum. Þeir sem uppfylla
þessi skilyrði eiga nú að fá 1.000 kr.
bætur að undanskildum þeim náms-
mönnum er höfðu hærri námsfrádrátt en
5.438 kr. á skattaframtali 1982, nema að
þeir hafi haft börn á framfæri sínu. Frá
þessum 1.000 krónum dragast þó þær
bætur sem greiddar voru í desember s.l.
og verði upphæðin þá lægri en 300
krónur verður hún ekki greidd.
Þá fá bótaþegar óskertrar tekjutrygg-
ingar nú einnig 1.000 króna bætur, en
750 krónur þeir sem hafa skerta tekju-
tryggingu.
I fréttatilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu segir m.a. að við úthlutun bóta
í desember hafi sú meginhugsun verið
ráðandi að bæta að nokkru vísitölu-
skerðingu bráðabirgðalaganna. Ýmsir
ágallar hafi síðan komið fram á reikni-
reglunum. T.d. segir að líkur bendi til að
þessi fyrsta tölvuútsending á launabótum
hafi ekki hitt í mark í allmörgum tilvik-
um.
Þá segir m.a. að reglan um ákvörðun
bóta hjá hjónum hefði í mörgum tilvik-
um haft villandi niðurstöðu í för með
sér. í ýmsum tilvikum hafi menn með
sæmilegar tekjur fengið bætur vegna
lágra tekna makans, sem oftast fékk þá
engar bætur. _H£I
aryfirvalda hefði lengi stefnt að því að
eignast Viðey.
Hins vegar gagnrýndi borgarfulltrúinn
harðlega hvemig að undirbúningi og
kynningu samningsins hefði verið staðið.
í yfirlýsingu sem Kristján og Sigurjón
Pétursson létu færa til bókar segir m.a.:
^„Málsmeðferð borgarstjóra í sambandi
við samning um kaup á landi í Viðey er
að okkar dómi ámælisverð. Sjálfsagt var
og eðlilegt að kynna samninginn í
borgarráði áður en hann var undirritaður
og kynntur Morgunblaðinu.
Þegar að undirritun kom var einungis
Morgunblaðið látið vita og gefinn kostur
á að senda blaðamann og fylgjast með
athöfninni. Meðferð borgarstjóra á
þessu máli bendir ótvírætt til þess að
hann telji sig fyrst og fremst borgarstjóra
meirihlutans og öðrum fjölmiðlum en
Morgunblaðinu séu stjórnarathafnir
hans óviðkomandi: Þetta viðhorf borgar-
stjóra ber að harma.“
Samkvæmt samkomulaginu eignast
Reykjavíkurborg alla Viðey að undan-
skilinni 11.5 hektara landspildu ríkis-
sjóðs og 4.5. hektara landspildu, er
seljandi heldur eftir, og er sú landspilda
aðliggjandi að landspildu ríkissjóðs. Þá
er áskilið, að Reykjavíkurborg eignist
öll jarðhitaréttindi í eyjunni að undan-
skildum réttindum, er fylgja spildu ríkis-
sjóðs, þar sem ríkissjóður fær 50% þess
heita vatns, sem fram kynni að koma við
boranir þar. -Kás
í skóla þar sem lengst væri. „Þetta eru
gönguleiðir sem hvergi þekkjast annars
staðar í Reykjavík og þó víðar væri
leitað", sagði Sigurjón.
Gerður Steinþórsdóttir, borgarfull-
trúi, sagði að með samþykkt þessarar
tillögu væri verið að slá feilnótu í
skipulagsmálum. f bókun sem hún og
Kristján Benediktsson lögðu fram segir
að hér sé verið að afgreiða lítinn hluta
af lítt unnu og óljósu skipulagi „og er
slíkt engan veginn tímabært. Óðagot
hefur einkennt alla málsmeðferð.“
Jafnframt segir í bókuninni: „Sam-
kvæmt tillögunni verður byggðin fá-
breytt, mest sérbýlishús á löngum og
mjóum lóðum við botnlangagötur og er
slík einhæfni stórt skref aftur á bak í
skipulagsmálum... Gatnakerfið er viða-
mikið og flókið og götuhalli oft meiri en
eðlilegt getur talist í nýju hverfi og getur
skapast neyðarástand að vetrarlagi."
Tillögur sjálfstæðismanna voru sam-
þykktar af þeim sjálfum en fulltrúar
minnihlutans greiddu atkvæði á móti.
-Kás
Sjö haeða blokk í
stað Hafnarbios?
■ Magdalena Schram spurðist fyrir um
það á borgarstjórnarfundi í gærkveldi
hvort það væri rétt sem hún hefði frétt
að byggja ætti sjö hæða fjölbýlishús á
lóð þeirri sem Hafnarbíó stendur nú á
við Skúlagötu. Engin svör fengust við
fyrirspurninni á fundinum.
Nú liggur fyrir byggingarnefnd
Reykjavíkur erindi frá Þórði Magnús-
syni, Kvisthaga 14, sem sækir um leyfi til
að rífa þrjú hús á lóðinni númerfjörutíu
við Skúlagötu, til að reisa þar fjölbýlis-
hús í staðinn. Húsin eru skúr, sem
notaður hefur verið sem bílasala, skúr,
sem notaður hefur verið sem geymsla,
og braggi, sem notaður hefur verið sem
kvikmyndahús. Á fundi byggingamefnd-
ar fyrir viku síðan var afgreiðslu erindis-
ins frestað þar sem ekki lágu fyrir
upplýsingar um hvernig lóðin yrði nýtt.
Magdalena Schram spurðist jafnframt
fyrir um hvers vegna deiliskipulag
svæðisins sem samþykkt hefði verið á
árinu 1979 hefði ekki verið staðfest, en
Ijóst væri sjö hæða fjölbýlishús rúmaðist
ekki innan þess ramma sem þar væri
gefin. Svör urðu engin við þessari fyrir-
spurn frekar en hinni fyrri.
Sem kunnugt er þá hafa þrjú leikhús
aðsetur sitt í Hafnarbíói, og verða þau
öll á götunni upp úr næstu mánaða-
mótum vegna áforma um að rífa húsið.
-Kás
Hverjir starfa helst f anda Marx, Engels og Lenin?
Skiptaráðandi verður
að skera úr um það
vegna skiptingar á dánarbúi hjóna úr Reykjavlk
■ NúerskiptaráðandanumíReykja-
vík mikill vandi á höndum að úrskurða
hvcr cða hverjir telji til arfs eftir
dánarbúSólveigar Jónsdóttur, Bolla-
götu 12 Reykjavík, en hún lést 23.
desember síðast liðinn.
Eiginmaður Sólveigar, Sigurjón
Jónsson, lést árið 1964 og sat Sólveig í
óskiptu búi þeirra hjóna til dauðadags.
Við könnun á skjölum í vörslu dánar-
búsins hefur komið fram erfðaskrá
Sigurjóns, scm gerð var 1961, tveim
árum áðuf en hann kvæntist Sólveigu.
í erfðaskránni arfleiðir hann stofnun
á vegum Sameiningarflokks alþýðu,
Sósíalistaflokksað eignarhluta sínumí
húseigninni að Bollagötu 12. Vandinn
er; hvaða flokkur eða flokksbrot er
arftaki Sameiningarflokks alþýðu, Sós-
íalistaflokksins sem lagði upp laupana
fyrir allmörgum árum? Víst má telja
að margir telji sig eiga tilkall til arfsins
og því hefur skiptaráðandinn skorað á
„alla þá, er telja til arfs eftir Sigurjón
Jónsson og Sólveigu Jónsdóttur, sam-
kvæmt erfðaskrá'1 að mætá á skrifstof-
ur borgarfógeta og lýsa kröfum sínum
innan fjögurra rnánaða.
Erfðaskráin birtist ,óbreytt og óstytt
f Lögbirtingablaðinu, en eftir því sem
Tíminn kemst næst, mun afar sjaldgæft
ef ekki ejpsdæmi að birta erfðaskrár í
Lögbirtingi.
Erfðaskráin er svohljóðandi:
„Ég undirritaður, Sigurjón Jónsson,
Bollagötu 12, Reykjavík, sem er fjár-
ráða og á engan líferfmgja, geri hér
með svofellda
arfleiðsluskrá:
Eignarhluti minn í húseigninni
Bollagötu 12, Reykjavík, skal verða
fræðslu- og menningarstofnun á vegum
Sameiningarflokks alþýðu, Sósíalista-
flokksins, og starfi jafnan í anda sósíal-
ismans, eins og hann er túlkaðup af
aðalhöfundum hans, Marx, Engels og
Lenin.
Stjórn stofnunarinnar verði skipuð 3
mönnum, sem valdir skulu af stjórn
Sósíalistafélags Reykjavíkur.
Eigi£r heimilt að sclja eignina nema
andvirði hennar sé jafnframt varið til
að koma upp fræðslu- og menningar-
stofnun á vegum flokksins.
Stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur
lætur setja stofnuninni starfsreglur.
Stjórn stofnunarinnar skal heimilt
að nota hana í þágu flokksins að svo
miklu lcyti, sem það fer ekki í bága við
megintilgang hennar.
Sósíalistaflokkurinn eða sá aðili,
sem kcmur í hans stað, skal sjá um
rekstur og viðhald stofnunarinnar að
öllu leyti á sinn kostnað, enda er
óheimilt að taka lán í nafni hennar né
veðsetja hana. ^
Verði Sameiningarflokkur alþýðu,
Sósíalistaflokkurinn, lagður niður, eða
klofni hann í fleiri flokka, starfi stofn-
unin jafnan undir stjórn og á vegum
þess flokks, sem skipar sér t hina
alþjóðlegu fylkingu marxísk-lenin-
ískra flokka og er viðurkenndur af
henni. Fari svo, að enginn slíkur
flokkur verði til um skeið, skal stofn-
unin halda áfram að starfa sem óháð
fræðslustofnun í sama anda og áður
getur undir þriggja manna stjórn, sem
valin sé af formönnum Reykjavíkur-
deilda vináttufélaga íslands og sósíal-
ísku landanna. /
Allar aðrar eignir, hverju nafni sem
nefnast, skulu renna til áður nefndrar
stofnunar, og skal þeim eða andvirði
þeirra varið til að greiða áhvílandi
skuldir á fbúðinni og tii kaupa á
húsbúnaði og bókum handa stofnun-
inni.
Ég áskil mér þó rétt til að ráðstafa
cinstökum munum öðruvfsi en að
framan greinir, og finnist í vörslum
mínum listi yftr slfka ráðstöfun, óska
ég að eftir honum ver^i farið, enda
þótt hann verði ekki í lögmæltu erfða-
skrárförmi.
' Erfðaskrá þessa undirrita ég í
viðurvist notarii pubiici í Reykjavík.
Skráin er gerð í tveim samhljóða
eintökum, sem bæði skulu jafngild, en
breytingar eru því aðeins gildar, að
þær séu færðar á bæði eintökin í -
viðurvist notarii publici eða tveggja
votta skv. erfðalögum. Annað eintakið
• varðveiti ég undirritaður en hitt skal
geymt í vörslum Sigurðar Baldursson-
ar, hrl. Vonarstræti 12, Reykjavík.
Reykjavfk, 19. apríl 1961.
Sigurjón Jónsson (sign.)“
-Sjó.