Tíminn - 18.03.1983, Page 6
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1983
■ Bette Midler á fáa sína
líka, reyndar enga, segja
sumir!
Húshaldið í
fínu lagi
hjá Zsa Zsa!
■ Hún Zsa Zsa Gabor er lagi. - í hvert skipti, sem ég heldur sem hjónaböndin, sem
alltaf jafn hress. Nú hefur hún skil, held ég húsinu, segir hún hún á að baki, eru orðin sjö
upplýst heiminn um að hús- hróðug. Þetta hefur reynst eða átta. En satt best að segja
haldið hjá henni sé sko í fína henni drjúg tekjulind, hvort er enginn viss hvor talan ei rétt!
Allir eru sam-
mála um að Bette
Midler sé umdeild
kona. Þykir það svo
sjálfsagt álit, að ekki
taki að vera að skegg-
ræða það neitt.
Nú nýlega hefur
hún lokið við að
leika í nýrri
kvikmynd, „Jinxed“
(I álögum eða eitt-
hvað á líka), og hafa
fréttir borist frá
Hollywood um, að
sú kvikmyndataka
hafí ekki gengið
átakalaust. Mótleik-
ari hennar, Ken
Wahl, hefur svarið
þess dýran eið að
leika aldrei með
Bette framar. Yið-
brögð Bette við
þessari yfirlýsingu
voru þessi eftir
mikla yfirvegun: -
Skítt með það. Ef
þessir gaurar geta
ekki tekið gríni, þá
verður bara að hafa
það!
En þó að sumir kunni ekki
að meta Bette eða kímnigáfu
hennar, viðurkenna þó allir,
að hún sé engin meðalmann-
eskja. Hún er ein þriggja
systra, sem móðirin nefndi eftir
eftirlætisleikkonum sínum,
þ.e. Susan (Hayward), Judy
(Garland) og Bette (Davis).
Bette lýsir uppvexti sínum svo,
að hún hafi alist upp sem eini
krakkinn af Gyðingaættum í
hverfi Samóa á Hawaii! Sumir
velta því fyrir sér, hvort þessar
aðstæður hafi leitt til þess að
Bette varð sú, sem hún er í dag!
Síðar fluttist hún til New
York. Þar varð á vegi hennar
ungur maður, sem samdi fyrir
hana lög og útsetti.
Sá ungi maður var Barry
Manilow, en nú er liðin sú tíð,
þegar þau höfðu nána og góða
samvinnu! Þó segir Bette að
þessir tímar hafi verið dýrðar-
dagar. - Þá var ég alsæl, ef ég
gat keypt mér smáhluti og dót.
Núna er ég farin að leggja fyrir
til framtíðarinnar og handa
fjölskyldunni, segir hún.
En þegar talið berst að nýju
kvikmyndinni, verður henni
skyndilega orðfátt. Þó fæst hún
til að lýsa áliti sínu á mótleikar-
anum, Ken Wahl. sem þykir
fríður maður. - Hann er frábær
fyrir framan spegil. Hann fyllir
vel út í hlutverkið sitt, segir
hún ísmeygilega.
Hin stórbrotna Bette situr
nú við skriftir. í takinu hefur
hún skáldsögu og leikrít, sem
hún ætlar sjálf að leika aðal-
hlutverkið í. Og svo er hún
önnum kafin í selskapslífinu. -
Það er engin hætta á að ég
verði einmana. Ég á fullt af
kærustum á öllum aldri. Því
fleiri, sem þeir eru, því fjör-
ugra, segir hún!
Það er kannski ekki furða,
þó að menn séu ekki á einu
máli um ágæti Bette Midier!
BETTE MIDLER GER-
IR í ÞVÍ AD GANGA
FRAM AF FÓIKI
viðtal dagsinsj
.JUtAHGUWNN ER MEIRI
EN V» NRDUM NOKKRU
V
SINNI AD VONA
— rætt við Sigurð Gunnsteinsson um
meðferð áfengissjúklinga á Sogni
■ „Frá því að SÁÁ byrjaði
rekstur meðferðarheimilisins á
Sogni hafa komið þangað til
meðferðar um 1810 manns úr
öllum stéttum, þar er engin meir
áberandi en önnur. Þeir sj úkling-
ar sem koma til okkar á Sogn
hafa áður orðið að fara í gegnum
minnst 10 daga meðferð á Sil-
ungapolli. Á Sogni eru 30 sjúkl-
ingar í meðferð í einu, bæði
konur og karlar. Það er áberandi
að konum sem gangast undir
meðferð fer fjölgandi og einnig
að nú kemur yngra fólk í með-
ferð en áður. Meðalaldur sjúkl-
inga árið 1981 hefur sennilega
verið 36-37 ár, sá yngsti sem
hingað hefur komið var 15 ára en
sá elsti sjötugur, og hlutfall
kvenna um 27%,“ sagði Sigurður
Gunnsteinsson meðferðarfull-
trúi á Sogni í samtali við blaðið
í gær.
Geturðu lýst því hvernig með-
ferð áfengissjúklinga fer fram?
Það er kannske best að lýsa
því hvernig einn dæmigerður
meðferðardagur líður. Fólkið er
■ Sigurður Gunnsteinsson
vakið kl. 7.00 að morgni og þá er
morgunverður, en kl. 9.00 hefst
morgunstund í sal sem kallað er
og þá eru þeir einstaklingar sem
eru að fara kvaddir af hópnum,
það fara fram umræður milli
vistmannanna um daginn fram-
undan, stefnumörk og annað og
kl. 10.00 hefst hópvinna. Þá er
sjúklingunum skipt í 3 hópa með
10 manns í hverjum og hver
hópur hefur sinn stjórnanda. Þar
eru rædd þau vandamál sem
fólkið í hópunum er að glíma
við, áfengisvandamál, sam-
skiptavandamál og önnur per-
sónuleg vandamál. Fólkið ræðir
þessi mál sín í milli og fær
stuðning hvert af öðru og þarna
næst oft mikil samstilling, en
hóparnir eru látnir halda sér
allan meðferðartímann eftir því
sem unnt er.
Eftir hádegi er farið yfir
reynsluspor AA samtakanna í
fyrirlestraformi og eftir það er
aftur fræðsluerindi um drykkju-
sýki frá ýmsum sjónarhornum,
læknisfræðilegum félagslegum
og sálfræðilegum. Ætli það séu
ekki fluttir 28-30 fyrir-
lestrar á meðferðartímabil-
inu. Einu sinni í viku kemur
læknir heimilisins í heimsókn og
flytur fyrirlestur. Yfirlæknir