Tíminn - 18.03.1983, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1983
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1983
19
fþróttir
íþróttir
Jónas kemur
frá Moskvu
■ Sá keppandi sem kemur lengst að í
fslandsmeistaramótið í fimleikum í Laugar-
dalshöll um helgina er Jónas Tryggvason,
hann stundar nám við íþróttaháskólann í
Moskvu.
Annars hefst mótið klukkan 14.30 í Laugar-
dalshöll á morgun, og klukkan 14 á sunnudag.
Á morgun verður keppt í skylduæfingum
Alþjóðafimleikasambandsins, og á sunnudag
í frjálsum æfingum.
Keppendur koma frá 5 félögum, Gerplu,
Björk, Ármanni, ÍR og ÍBA.
•
Bláfjallagangan
1983
■ Skíðagangan Bláfjöll-Hveradalir verður
haldin á morgun í fjórða skipti. Gangan hefst
klukkan 14. Leiðin sem gengin er er 22
kílómctrar að lcngd, og liggur af heiðinni há
um, Þrcngsli í Hveradali. Arlega hefur þátt-
takendum í þessari göngu fjölgað, en t' fyrra
voru um 120 þátttakendur. Búast má við
auknum fjölda nú, þar cð þetta er síðasta
gangan fyrir Lavaloppet mikla, sem er um
næstu helgi.
Gangan á morgun hefst við regnmælinn t
Bláfjöllum klukkan 14. Þátttökugjald er krón-
ur 150.- og grciðist við skráningu. Séð verður
fyrir rútuferð að göngu lökinni frá Hvera-
dölum í Bláfjöll, en umsjón með göngunni er
i höndum Skíðafélags Reykjavíkur.
Stjörnuhlaup FH
■ Stjörnuhlaup FH fór fram á dögunum, og
urðu úrslit þar þessi helst:
Karlar: (8 km.) mín.
Siguröur P. Sigmundss. FH 26:12
Einar Sigurðsson UBK 27:26
Sighvatur D. Guðmundsson ÍR 27:27
Magnús Haraldsson FH 28:53
Gunnar Birgisson fR 28:55
Sigurður Haraldsson FH 29:30
Konur: (5 km.)
Ragnheiður Ólafsdóttir FH 13:48
Rakel Gylfadóttir FH 17:48
Drengir: (3,6 km.)
Ómar Hólm FH 14,07
Viggó Þ. Þórisson FH 14,37
Helgi Freyr Kristins. FH 16,03
Pillar: (1500 m.)
Einar Páll Tamimi FH 4,53
Fiúnbogi Gylfason FH 5,02
Björn Pétursson FH 5,20
Björn Traustason UBK 5,46
Hlynur Guðmundsson FH 6,15
Tclpur: (1500 m.)
Súsanna Helgadóttir FH 5,27
Guðrún Eysteinsd. FH 5,31
Anna Valdimarsd. FH • 5,31
Reykjavíkurmót
íboðgöngu
■ Um síðustu helgi var haldið Reykjavíkur-
mót t 3x10 kílómctra boðgöngu á skíðum í
Skálafelli, en Skíðafélagið Hrönn hafði um-
sjón með mótinu. Mættar voru 8 sveitir karla,
7 frá Skíðafélagi Reykjavíkur, og cin frá
Hrönn. Úrslit urðu þessi:
1. A-svcil S.R. 2:00,2
Róbert Gunnarsson 40,46
Gylfi Árnason 41,07
Halldór Halldórsson 40,07
2. C-svcitS.R.
Halldór Matthíasson
Kfistján Halldórsson
Matthías Sveinsson
2:08,00
39,27
44,29
43,34
3. B-sveit S.R. 2:10,5
Garðar Sigurðsson 40,02
Magnús Óskarsson 49,22
Kristján Snorrason 40,41
Sveit Hrannar varð í fjórða sæti. Halldór
Matthíasson S.R. C náði bestum brautartíma,
öðrum besta brautartfma náði Bragi Jónsson
Hrönn, 39,45, og þriðja besta Garðar Sigurðs-
son S.R. B.
ÍR leikur
gegn Val
— í úrslitum bikarkeppninnar
■ IR mun leika til úrslita gegn Val í
Bikarkeppni Körfuknattlcikssambands
Islands, það er fullvíst. En það var ekki
eins fullvíst um tíma í gærkvöld, þegar
ÍR lék í undanúrslitunum við ÍS í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
ÍR hafði ein 14 stig yfir í hálfleik og
áfram þar til Pat Bock fór útaf með fimm
villur um miðjan leikinn. Ef það hefði
átt að breyta einhverju, hefðu sjálfsagt
flestir talið, að ÍR hefði átt að ná
yfirburðaforystu, en svo fór þó ekki.
Baráttuglaðir Stúdentar söxuðu á for-
skotið, og svo fór að þeir komust yfir
59-58. fR-ingar náðu síðan reisn aftur,
og nöguðu inn smáforskot að nýju, sem
dugði þeim þegar upp var staðið, og
úrslitin urðu 76-68 ÍR í hag.
Pétur Guðmundsson skoraði mest ÍR-
inga í þessum leik, 28 stig. Hjörtur
Oddsson, sem sífellt sækir í sig veðrið,
skoraði 14 stig, Hreinn Þorkelsson 12,
Kristinn Jörundsson 10 og aðrir minna.
Árni Guðmundsson og Gísli Gíslason
skoruðu mest Stúdenta, 18 stig hvor,
Benedikt Ingþórsson skoraði 12 stig,
vaxandi leikmaður Benedikt, og Guð-
mundur Jóhannsson knattspyrnumaður
og Pat Bock hinn tröllvaxni 9 stig hvor.
Gunnar Valgeirsson og Þráinn Skúlason
dæmdu.
Fram á uppleið
■ Úrslitakeppni neðri hluta fyrstu
deildar í handknattleik rann af stað
undir miklum huliðshjúpi í Laugar-
dalshöll í fyrradag. Þá sigraði Fram
Val 20-16, og Þróttur sigraði ÍR 25-19.
í gærkvöld voru einnig tveir leikir, og
fóru fram með svipaðri leynd. Þá
gerðu Fram og Þróttur jafntefli 22-22,
og Valur sigraði ÍR 21-14. Staðan er
nú þessi:
Valur 16 8 1 7 325-301 17
Þróttur 16 6 3 7 327-331 15
Fram 16 5 2 9 233-377 12
ÍR 16 0 0 16 277450 0
HÓPURINN VAUNN
— fyrir EM drengja í körfuknattleik
■ Unglingalandsliðshópur drengja 16-
17 ára í körfuknattleik hefur verið
valinn. Valdir voru 12 piltar, og taka 10
þeirra þátt í Evrópukeppninni, en eins
og kunnugt er fer einn riðill þeirrar
keppni fram hér á landi um páskana.
Alls eru 5 riðlar í keppninni. Liðin sem
sækja ísland heim í þessari keppni eru
Drengjamót
í körfuknattleik
■ Unglingaþjálfarar K.K.f. og
U.M.F.G. hafa ákveðið að efna til
körfuknattleiksmóts í Keflavík fyrir
drengi fædda árið 1968 og 1969 föstu-
daginn 7. og laugardaginn 8. apríl n.k.
Þetta er drengir á eldra ári í 5. fl. og
yngra ári í 4. fl.
Unglingaþjálfararnir munu fylgjast
með mótinu og taka það upp á
myndband. f lok mótsins verður valinn
hópur drengja sem kemur til með að
skipa drengjalandsliðið sem tekur þátt
í Evrópumótinu 1985. Verður strax í
sumar farið að vinna með þessum
drengjum að undirbúningi Evrópu-
keppninnar.
Þátttökutilkynningar ásamt staðfest-
ingargjaldi kr. 1000,- eiga að beíast
Guðna Þ. Ölverssyni Baðsvöllum 11,
240 Grindavík (s. 92-8555) fyrir 24.
vafalaust sterk, ef marka má getu A-
landsliða þeirra, en þau leika í A-flokki,
eða ofarlega í B-flokki heimsmeistara-
keppninnar, en liðin eru Spánn, Svíþjóð
og Belgía. Tvö efstu lið úr hverjum riðli
Evrópukeppninnar komast í úrslita-
keppnina í Vestur-Þýskalandi í sumar.
Þessir drengir hafa verið valdir í lands-
liðshópinn:
Ómar Schering, KR
Karl Guðlaugsson, ÍR
Hjálmar Hallgrímsson, UMFG
Kristinn Einarsson, UMFN
Hreiðar Hreiðarsson, UMFN
Matti Osvald Stefánsson, ÍBK
Magnús H. Matthíasson, Valur
Sigurður Ingimundarson, ÍBK
Skarphéðinn Héðinsson, ÍBK
Guðjón Skúlason, ÍBK
Jóhannes Sveinsson, UMFG
Theodór Jóhannsson, IR
Þjálfarar: Einar Bollason og Torfi
Magnússon.
Leikið verður á Evrópumótinu í
Reykjavík og á Suðurnesjum sem hér
segir:
Laugardag 2. apríl í Njarðvík:
Island - Belgía
Spánn - Svíþjóð
Sunnudag 3. apríl í Reykjavík:
fsland - Spánn
Svíþjóð - Belgía
Mánudag 4. apríl í Keflavík:
Island - Svíþjóð
Belgía - Spánn
Héraðsmót
Skarphéðins
■ Hérðasmót Skarphéðins í frjálsum
íþróttum innanhúss verða haldin á
morgun, og 4. apríl. Á morgun er
unglingakeppni 15-18 ára í Árnesi, og
4. apríl er fullorðinna mót á Flúðum.
Bæði mótin hefjastklukkan 14. Nánari
upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
HSK á Selfossi, sími 99-1189.
s
Þróttur og IS
í úrslitunu
Þróttur sigraði HK í fyrrakvöld í
fjögurra liða úrslitum bikarkeppni
Blaksambandsins, 3-0. Úrslit í hrinum
voru 15-8, 15-2 og 15-7. Þróttur mun
því leika til úrslita í bikamuni gegn ÍS,
og verður sá leikur á sunnudaginn.
íslandsmótið
íjúdó um helgina
■ Á morgun 19. mars verður annar
hluti íslandsmótsins í júdó. Verður þá
keppt í opnum flokki karla og í opnum
flokki kvenna. Þá er kcppt í einurn
flokki hjá körlum, þ.e. án þyngdartak-
markana, og sama gildir að sínu leyti
um kvennaflokkinn.
Allt besta júdófólk landsins mun
taka þátt í keppninni.
Mótið hefst klukkan 15.00 í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans.
Ljómamót
í badminton
■ Hið árlega Ljómamót í badminton
verður haldið á Akranesi nú um helg-
ina. Þar er keppt um farandgripi sem
Smjörlíki hf hefur gefið.
Keppt verður í meistaraflokki og
A-flokki í öllum greinum þ.e. einliða,
tvi'Jiða og tvenndaleik. Allir bestu
badmintonspilarar landsins mæta til
keppni og má búast við mikilli keppni
þar sem mótið gefur 23 stig til
landsiiðs, sem er hæsta hlutfall fyrir
utan íslandsmót.
Tveir breskir
þjálfarar
■ Dagana 26. mars til 4. apríl næst-
komandi gengst tækninefnd Frjáls-
íþróttasambands íslands fyrir náms-
keiði fyrir þjálfara í Reykjavík. Nám-
skeiðið erhaldið með aðstoð Ólympíu-
samhjálparinnar, og verða leiðbein-
endur tveir breskir toppþjálfarar,
Norman Brook og Shaun Kyle, sem
eru sérhæfðir í spretthlaupum og
grindahlaupum annars vegar og lang-
stökki og þrístökki hins vegar.
Öllum leiðbeinendum og áhuga-
mönnum um frjálsfþróttaþjálfun er
heimil þátttaka á námskeiðinu, cn
nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til
Ágústs Ásgeirssonar formanns tækni-
nefndar FRÍ í tíma.
Uansjön:
Úrslitin
hefjast
í kvöld!
— Fyrsta umferðin í toppbaráttu
fyrstu deildar í Hafnarfirdi
um helgina
■ Fyrsta leikhelgi úrslitakeppni efri
flokks fyrstu deildar karla á íslandsmót-
inu í handknattleik verður nú um helgina
í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnar-
firði, og eru fyrstu tveir leikirnir í kvöld.
Leikjadagskráin er sem hér segir:
{kvöld:
kl. 20.00 Víkingur - Stjarnan
kl. 21.15 KR-FH
Laugardagur:
kl. 14.00 KR-Víkingur
kl. 15.15 FH - Stjarnan
■ Kristján Arason og félagar sjá
um fyrstu umferðina í úrslitakeppn-
inni í handbolta um helgina. Þeir
sigruðu í fyrstu deildar keppninni, og
verða sterkir á heimavelli undir kór
grcnjandi Hafnfirðinga.
Vel heppnad unglingamót
— í bikarkeppninni á skíðum á Dalvík - Árni Grétar sigraði tvöfalt
■ Um s.l. helgi var haldið bikar- og
punktamót unglinga á Dalvík. Mótið var
haldið í Böggviistaðabrekku, en þar
hafa Dalvíkingar komið sér uppi góðri
aðstöðu til skíðaiðkunar í skemmtilegu
landi.
Að halda unglingamót fyrir skíða-
menn er ekki vandalaust. Þegar fjöldi
keppenda er orðinn 130 þá er vinnan er
inna þarf af hendi gífurleg. Slík mót sem
þessi þurfa að ganga vel fyrir sig. Þegar
fjölmennur og samhentur hópur, er
lætur vinnugleði sitja í fyrirrúmi, er
samankominn þá ganga þessi mót vel.
Leikgleði starfsmanna smitar alla þátt-
takendur. Hefðu þeir skíðasambands-
menn er starfa sem eftirlitsmenn, gjarn-
an mátt vera mættir á Dalvík um síðustu
helgi og fylgjast með skemmtilegu móti.
Fyrri dag mótsins var keppt í stórsvigi
í öllum flokkum, en þeir eru fjórir, þ.e.
13-14 ára drengir og stúlkur og 15-16
ára flokkur drengja og stúlkna.
í yngri flokki stúlkna sigraði Snædís
Úlriksdóttir Reykjavík hún hafði bestan
tíma keppenda í báðum ferðum. Önnur
varð Kristín Ólafsdóttir einnig frá
Reykjavík, stutt á eftir henni kom
Akureyringurinn Arna ívarsdóttir, en
hún hafði annan bestan tíma í seinni
umferð.
í flokki drengja 13-14 ára sigraði
Björn Brynjar Gíslason. Hann hafði það
mikið forskot eftir fyrri ferð að þó
Brynjar Bragason hafi náð bestum tíma
í síðari umferð þá var sigur Bjöms
öruggur. Þriðji varð Hilmir Valsson.
Þessir drengir eru allir frá Akureyri.
Árni G. Árnason frá Húsavík sigraði
í eldri flokki drengja. Hann hefur átt
mikilli velgengni að fagna í mótum
vetrarins. Annar varð Smári Kristinsson,
Akureyri, og þriðji Guðjón B. Ólafsson
ísafirði. Tímamismunur þessara drengja
og þeirra er á eftir komu var mjög lítill.
í stórsvigi stúlkna 15-16 ára sigraði
Guðrún J. Magnúsd. nokkuð örugglega
eftir glæsilega keyrslu í síðari umferð.
Önnur varð Anna M. Malmquist og
þriðja Guðrún H. Kristjánsd. skammt á
eftir henni kom síðan Signe Viðarsdótt-
ir. Þessar stúlkur eru allar frá Akureyri.
Síðari dag mótsins var keppt í svigi í
öllum flokkum.
í flokki stúlkna 13-14 ára sigraði
Kristín Ólafsdóttir, Reykjavík, stutt á
eftir henni kom Ama ívarsd. en hún
hafði bestan tíma í síðari ferðinni.
Þriðja varð Kristín Jóhannsdóttir frá
Akureyri.
í eldri flokki stúlkna sigraði Guðrún
H. Kristjánsdóttir, en keppnin hjá þess-
Sunnudagur:
kl. 16.00 Stjarnan - KR
kl. 17.15 Víkingur - FH
Lokastaðan í fyrstu deild gildir ekki
áfram hjá efstu liðunum en það er allt í
lagi að rifja hana upp:
FH 14 10 0 4 384-302 20
KR 14 10 0 4 345-260 20
Víkingur 14 8 3 3 300-287 19
Stjarnan 14 8 1 5 293-276 17
Sheffield í úrslit
■ Sheffield Wednesday tryggði sér
í vikunni sæti í fjögurra liða úrslitum
ensku bikarkeppninnar með 5-0 sigri
á Burnley. Sheflield mætir Brighton
í undanúrslitunum, en hinu megin
leika Arsenal og Manchester United.
■ Það var alþjóðasamband Topper-
siglingamanna sem fól Siglingasambandi
íslands í október síðastliðnum að sjá um
keppni þessa, og fól SÍL Siglingaklúbbn-
um Vogi í Garðabæ framkvæmd
mótsins. Auk félaga úr Vogi munu
félagar úr öðmm klúbbum, og stjórn
Siglingasambandsins taka virkan þátt í
öllum undirbúningi og framkvæmd
keppninnar. Keppnisstjórn mun verða
allt að 120 manns.
Keppendur á mótinu verða í það
minnsta 100 talsins, og af þeim minnst
70 erlendir, sem hafa þegar skráð sig til
keppni. Reiknað er með töluverðum
fjölda erlendra gesta vegna mótsins.
Keppnin hefst hinn 7. ágúst.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur látið
EVRÓPUMOT
ATOPPER
A fSLANDI
ÍSUMAR
■ I ágúst í sumar verð-
ur haldíð á íslandi
Evrópumót á Topper-
bátum, en þeir eru eins
og þessi hér við hliðina.
Fjöldi erlendra
keppenda
og gesta
mun sækja
mótið, og
hafa þegar 70
erlendir keppendur látið
skrá sig. Mótið verður
haldið á Skerjafirði og
rétt utan Alftaness.
ÞEKKTUR BREfl
RAÐINN ÞJALFARI
— fyrir Evrópukeppnina og vegna
undirbúnings fyrir Ól 1984
TIL FERMINGARGJAFA
Skrifborð, margar gerðir.
Bókahillur og skápar.
Steriohillur og skápar.
Stólar — Svefnbekkir — Kommóður
Húsgögn og^ ,
. Suðurlandsbraut 18
jnnrettmgar simi se 900
Siglingaklúbbnum Vogi í té afnot af
Garðaskóla og íþróttahúsinu Ásgarði,
þegar keppnin verður, til þess að hýsa
þátttakendur, og búa þeim sem besta
aðstöðu. Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa
stutt mjög við bak siglingaíþróttarinnar
þar, og býr klúbbur þeirra Garðbæinga
því mjög vel að flestum hlutum varðandi
starfsemi sína.
Keppnisstjóri á Evrópumóti Topper
báta hér á landi í sumar verður Daniel
Friðriksson úr siglingaklúbbnum Ými í
Kópavogi, en hann hefur hvað mesta
reynslu íslendinga í keppnisstjórn
■ Siglingasamband íslands hefur ráðið
Keith Musto frá Englandi sem landsliðs-
þjálfara í sumar, meðal annars vegna
Evrópurnótsins á Topper í ágúst. Keith
Musto er þekktur siglingamaður og
þjálfari í heimalandi sínu, og víða um
heim.
Musto varð silfurverðlaunahafi í
keppni á Flying Dutchman bátum á
Olympíuleikjunum í Tokýó 1964, og var
í Ólympíuliði Breta allt til ársins 1980.
Hann var fenginn til þess að skipuleggja
þjálfunarmál japanska siglingasam-
bandsins á sínum tíma, og hefur skipu-
lagsstarf hans þarborið ríkulegan ávöxt.
fslenskir landsliðsmenn í siglingum
hafa æft grimmt í vetur þrekþjálfun og
siglt þegar hægt hefur verið. Stefnt er að
því að eiga Olympíufara árið 1984, og
hafa verið keyptir hingað til lands tveir
bátar, sem eru af stöðluðum gerðum
sem keppt er á í Ólympíuleikum.
íslenskir siglingamenn kepptu erlend-
is síðastliðið suinar, og þóttu standa sig
með prýði. Siglingastarf hérlendis hefur
tekið miklum stakkaskiptum undanfarin
ár, en Siglingasamband fslands á 10 ára
afmæli á þessu ári.
Beislisvagnar
Óskum eftir 2ja öxia beislisvögnum 7-8 m löngum
og á 10 tonna öxlum.
Upplýsingar í símum 85369 og 73119
é°22\
5 OOO oj
Aðalfundur
Félags starfsfólks í veitingahúsum veröur haldinn
á Hótel Esju þriðjudaginn 29. mars 1983 kl. 20.30
Venjuleg aöalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Breytingar á reglugerð sjúkrasjóös
Önnur mál.
Stjórnin
Fulltrúaráð
félaganna í
Framsóknar-
Reykjavík
Áríðandi fundur verður haldinn með frambjóðendum
laugardaginn 19. mars kl. 14.00 að Hótel Heklu
Rauðarárstíg 18 (kjallara).
Áríðandi að fuIItrúaráðsfólk mæti vel eða tilkynni forföll ella
Stjórnin
um flokki, í sviginu, var mjög jöfn og
spennandi. Önnur varð Guðrún J. og
þriðja Anna María, fjórða varð :
Signe Viðarsdóttir. Tímamismunur milli
þessara stúlkna var ekki nema rétt rúm
sekúnda.
í flokki 15-16 ára drengja sigraði Árni
G. Árnason örugglega hann sigraði því
tvöfalt þessa helgi. Annar varð Atli G.
Einarsson, ísafirði, og þriðji varð Guð-
jón B. Ólafsson.
Björn Brynjar Gíslason sigraði einnig
í svigi drengja 13-14 ára, annar varð
Brynjar Bragason. Þessir drengir höfðu
nokkra yfirburði yfir jafnaldra sína. í
þriðja sæti var Sigurður Bjamason frá
Húsavík.
Hafi Dalvíkingar þökk fyrir velheppn-
að mót.
Fab.
Utm Ævintýraheimurinn
★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆☆★☆ ★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★★★
Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta
VIDEO SPORT
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 33460.
Opiðalladaga
kl. 13.00-23.00