Tíminn - 08.04.1983, Page 2
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Fristamat
Bændur athugið
Við framleiðum:
Fóðurdalia fyrir
kjúklinga og hænsnabú.
Fóðurdalla fyrir
refabú ásamt milli-
veggjalokum.
Hestastalla.
Verkstæðishurðir.
Umboð fyrir „FRISTAMAT" loftræstitæki í
gripahús.
Uppsenting, viðhalds- og varahlutaþjónusta.
Útvegum og önnumst uppsetningu á innréttingum í
svínahús.
Leitið upplýsinga og tilboða.
HRlSMÝRI 2A PÓSTHÓLF 206
802 SELFOSS SÍMI 99-2040-2044.
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar.
samvirki =U
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGi - SÍMI 4415 66
Starfskraftur óskast
til almennra sveitastarfa.
Upplýsingar á kvöldin í síma 95-1585.
Auglýsingasími
TÍMANS er 18-300
fréttirl
DflVIÐ VILL REISfl SKYJfl-
KUÚFA VIÐ SKÚLAGÖTUNA!
■ Hugmyndir um byggingu skýjakljúfa
við Skúlagötu í ætt við svipaðar bygging-
ar í stórborgum erlendis eru ekki svo
fjarri raunveruleikanum eins og í fyrstu
mætti ætla, ef eitthvað er að marka
umræður sem fóru fram í borgarstjórn
Reykjavíkur í gærkveldi. Var þar enn
verið að ræða byggingaráform á lóð
þeirri við Skúlagötu sem Hafnarbíó
stendur nú á, en til stendur að rífa.
Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi
svæðisins er gert ráð fyrir að þarna rísi
iðnaðar- og vörugeymsluhúsnæði, en nú
eru uppi hugmyndir um að breyta nýt-
ingu þess, þannig að í framtíðinni rísi
þar byggð tengd íbúðum og verslunar-
húsnæði. Er að vænta tillagna í þá
veruna næstu vikurnar frá Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur.
Fulltrúar Kvennaframboðsins hafa
lýst því yfir að þeir trúi ekki þeim sterka
orðrómi sem borist hefur út um að verið
sé að teikna sjö hæða byggingu á lóð
Hafnarbíós. Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, sagði af því tilefni að lóðareigend-
um væri auðvitað frjálst að láta teikna
mannvirki á lóðum sínum og koma þeim-
á framfæri við borgaryfirvöld. Frá sínum
bæjardyrum séð væri ekkert því til
fyrirstöðu að byggja sjö hæða.hús á
þessum stað. „Þaðmætti byggja verulega
hærra, jafnvel turn“, sagði borgarstjóri,
og virtist vera með því að skírskota til
hárra bygginga í ætt við skýjakljúfa, þó
hann nefndi það ekki beinum orðum.
Taldi hann að umrædd lóð þyldi mjög
vel slíkt mannvirki.
Lagði borgarstjóri áherslu á, að Skúla-
gata væri andlit Reykjavíkur séð frá
sjófarendum, og færi það til mestu
hneisu og lítilsvirðingar eins og málum
væri háttað í dag. -Kás
Leiktækjasalurinn við Skúlagötu 26, sem borgarráð hefur hafnað um rekstrarleyfi.
Tímamynd: G.E.
Leiktæki bönnuð
innan tólf ára!
- Borgarstjórn ætlar að herða reglur
um leiktækjasali
Borgarstjórn samþykkti með nítján leiktækjasalar að staðurinn hafi veitinga-
samhljóða atkvæðum að vísa til annarrar
umræðu tillögu um breytingu á lögreglu-
samþykkt Reykjavíkur sem felur í sér
verulega hertar reglur við starfsemi
svonefndra leiktækjasala í borginni.
Samkvæmt tillögunni er börnum innan
við tólf ára aldur bannaður aðgangur að
leiktækjum, nema þau séu í fylgd með
forráðamönnum sínum. Sjái rekstrar-
aðilar ekki um að framfylgja þessu banni
getur lögreglustjóri svipt þá leyfi til
starfseminnar. Jafnframt er það sett að
skilyrði fyrir leyfisveitingu til rekstrar
sölu, en í því felst að verslanir, m.a.
kvöldsölur, fengju ekki slíkt leyfi. Marg-
ir rekstiaraðilar leiktækja hafa borið því
við hingað til að rekstur þeirra væri ekki
meginhluti starfseminnar, heldur sé um
kvöldsölu að ræða, og því hafi þeir ekki
þurft að sækja um leyfi. Meðbreytingun-
um sem nú eru fyrirhugaðar á lögreglu-
samþykktinni, eru þessir staðir sem
aðrir háðir leyfi, þ.e.a.s. ekki skiptir
máli hvort leiktækin eru eitt eða fleiri.
Var vel tekið í þessa tillögu á fundi
borgarstjórnar í gærkveldi, nema hvað
borgarfulltrúar Kvennaframboðsins
vildu ganga enn lengra í því að herða á
rekstrarskilyrðum fyrir þessa starfsemi.
Adda Bára Sigfúsdóttir sagði að þarna
væri skynsamleg leið farin. Sagðist hún
vona til að ákvæðinu um aldurstakmark
yrði strangt fylgt eftir, og þeir aðilar
sviptir leyfi sem ekki færu eftir því. í
sama streng tók Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, sem taldi breytinguna til mikilla
bóta. Minnti hann á að borgarráð hefði
fyrir skemmstu hafnað aðila við Skúla-
götu um veitingaleyfi vegna leiktækja-
starfsemi án leyfis. _Kás
Aðstoð við landsbyggðina
Dreifbýlismiðstöðin býður einstakl-
ingum og fyrirtækjum þjónustu sína.
Útvegum með stuttum fyrirvara flestar
þær vörur, sem þig kann að vanta.
Símaþjónusta: Ef nauðsyn krefur,
má hringja eftir lokun í síma 76941.
Dreifum einnig vörum utan af landi, í Reykjavík og nágrenni.
Opið virka daga frá kl. 9-12 og 14-17.
Skeifunni 8 - Reykjavík. - Sími 91-39060
■ Hér þjarma Ewing bræður að Cliff Barnes (í miðið) í einum Dallas þáttanna.
: Vonandi fær hann hlýrrí móttökur hérlendis.
„Cliff Barnes”
til landsins
■ 1 morgun var væntanlegur til landsins
bandaríski leikarinn Ken Kercheval.en
hann er kunnari landsmönnum sem Cliff
Barnes úr framhaldsmyndaflokknum
Dallas. Kercheval er hingað kominn frá
Hollywood til að koma fram í skemmti-
þætti sem SÁÁ stendur fyrir í sjónvarp-
inu í kvöld vegna landssöfnunar.
Kercheval mun dveljast hér nokkra
daga áður en hann heldur vestur á ný,
þar sem hefur ærinn að starfa.