Tíminn - 08.04.1983, Page 3
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
3
fréttir
Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsrádherra um tillögu Hjörleifs í álmálinu:
„EKKERT ANNAB EN SYNDAR-
MENNSKA Af ÓDÝRARA TAGI”
Steingrímur segir að ÍSAL ætti að segja súrálssamningnum við Alusuisse upp tafarlaust
■ „Ég verð nú að segja það, að mér
finnsl þessi tillaga Hjörleifs í ríkisstjórn-
inni, vera rúsínan í pylsuendanum í
meðferð hans á álmálinu," sagði Stein-
grímur Hermannsson, sjávarútvegsráö-
herra, er Tíminn innti hann álits á þeirri
tillögu Hjörleifs Guttormssonar, í ríkis-
stjórninni, að ríkisstjórnin beytti sér
fyrir setningu bráðabirgðalaga, þar sem
ákveðin væri einhliða hækkun á raforku-
verði til ÍSAL, en tillaga Hjörleifs gerði
ráð fyrir að raforkuverðið yrði strax
hækkað í 12.5 mills kílówattstundin.
,.I fyrsta lagi vil ég segja það, að
bráðabirgðalög eru aldrei gefin út, nema
allsterkar líkur séu fyrir meirihluta fyrir
þeim á Alþingi. Ég veit t.d. að allir þeir
sem að ríkisstjórninni standa styðja þau
bráðabirgðalög sem ég hef gcfið út, og
ég geri mér vonir um að það geri
jafnframt fleiri," sagði Steingrímur.
Hann sagðist telja að bráðabirgðalög
um veggjaldið kæmu einnig vel til greina,
því þau væru búin að fara í gegnum efri
' deild, þar sem þau hefðu fengið mikinn
meirihluta. „í þessu tilfelli, þ.e. í þessu
álmáli, þá var mikill meirihluti á Alþingi
búinn að tjá sig andvígan frumvarpinu
hans Hjörleifs, sem hann vill svo láta
fara að Iöggilda með bráðabirgða-
lögum," sagði Steingrímur. „þannig að
þetta er náttúrlega ekkert annað en
sýndarmennska hjá Hjörleifi og það af
ódýrara taginu, sem sagt einungis kosn-
ingamál."
Steingrímur sagði jafnframt: „Ég vil
vekja athygli á því að við framsóknar-
menn við bökkuðum Hjörleif upp í öllu
þessu lirölti hans, allt þar til í nóvember
í fyrra. Við sögðum aldrei rnúkk, þótt
við satt að segja hefðura mjög miklar
efasemdir um málsmeðferð hans. Við
sögðum ekkert vegna þess að við erum
jú saman í ríkisstjórn og við lítum svo á,
að iðnaðarráðherra eigi að hafa forystu
um svona rnál. Við gerum það, þrátt
fyrir það að hann sniðgekk ráðherra-
nefndina algjörlega og í raun og veru
álviðræðunefndina einnig, fyrir utan ör-
fáa fundi fyrst. Okkur sýndist í raun að
þetta væri mest sandkassaleikur hjá
Hjörleifi og sannast sagna, ólíklegur til
árangurs.
Nú, í nóvember s.l. þá urðu þáttaskil
í þessu máli, þvíþáopnaðist mjöggóður •
möguleiki til að hefja samninga, sem við
töldum sjálfsagt að nýta, og við gátum
því ekki lengur haldið áfram þessum
leikaraskap með Hjörleifi.
Við teljum það hörmulegt að ekki
hefur enn náðst fram hækkun.á raforku-
verði og það hefur náttúrlcga kostað
þjóðina hundruðir milljóna. Við vekjunt
athygli á því að það fordæmi fékkst þó
1973-1974 að viðurkenning fékkst á
forsendunt fyrir hækkun á raforkuverði
þegar olíuverðið hækkaði. Þá fengust
samningar sem hækkuðu raforkuverðið
verulega, þó að menn hafi greint á um
það, hvort sú hækkun hafi tapast í
sköttum. Ég vil cinnig vekja athygli á
því, sem ég hef reyndar oft áður sagt,
um einhliða aðgerðir af því tagi sent
Hjörleifur leggur til að við grípum til, að
við útilokum þær alls ekki, en við
stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd
að um slíkt myndi alþjóðlegur gerðar-
dómur fjalla. Ég tel að til að góðar líkur
séu á að slíkt mál vinnist, þá verði slíkt
mál að vera mjög vel undirbúið, og ég
tel að meðlerð Hjörleifs á málinu í tæp
þrjú ár, sé ckki slík að það sé hægt að
leggja það fyrir alþjóölegan gerðardóm,
því miður. Ég tel því ekki forsendur nú
fyrir því að hækka raforku einhliða. Það
verður að gera heiðarlegri tilraun til að
ná fram samningum."
Steingrímur var spurður álits á þeim
samningi sent nú er í gildi á milli
Alusuisse og ÍSAL unt sölu Alusuisse á
súráli til ÍSAL: „Mér sýnist alveg Ijóst,
að ÍSAL sé með mjög óhagstæðan
samning við Alusuisse um kaup á súráli,
og þó slíkur samningur hafi ef til vill
verið talinn góður og hagstæður þegar
hann var gcrður, þegar allt annað vcrð
var á súráli, þá held ég að ISAL eigi strax
að segja þessum samningi upp, því það
eru allar forsendur fyrir honunt brostnar.
Vitanlega vcrður ISAL, samkvæmt
tækniaðstoðarsamningnum að njóta
hagkvæmustu hráefnisverða."
-AB
Hitaveita
Sigiuf jarðar:
Viðgerð
lokið
■ í gær var unnið að viðgerðum á
skemmdum sem urðu á dælustöð hita-
veitu Siglufjarðar í snjóflóði í fyrradag
og var vonast til að tækist að Ijúka
viðgerðinni.
Skúr sem hýsti aðra af tveim dælum
hitaveitunnar brotnaði niður og var
dælan óvirk eftir. Ekki fór þó hiti af
kaupstaðnum þar eð hina dæluna sakaði
ekki. Yfir henni er snjóflóðahelt skýli,
en þeim sem eyðilagðist hafði verið
tjaslað upp til bráðabirgða.
Skot-
vopnum
stolið og
skilað!
■ í fyrrakvöld var brotist inn í lager
verslunarinnar Sportval við Laugaveg
og stolið þaðan nokkrum rifflum og
haglabyssum, öllum ónothæfum. Þýfið
fannst fljótlega í grennd við verslunina,
en þjófarnir eru ófundnir ennþá.
Vestfirðir:
Ófærð
hamlar
framboðs-
fundum
■ Tíðarfarið hefur sett stórt strik í
kosningabaráttuna á Vestfjörðum, en
þar hefur orðið að fresta mörgum fyrir-
huguðum framboðsfundum. Ákveðið
hafði verið að halda röð framboðsfunda
í Strandasýslu, Árnesi, Hólmavík,
Drangsnesi, Króksfjarðarnesi og Borð-
eyri en þeir voru allir felldir niður vegna
ófærðar.
Áætlað er að hefja fundi á morgun á
Patreksfirði og Tálknafirði og síðan á
Bíldudal og Þingeyri. Allir fjallvegir eru
lokaðir og verða þingmenn og þing-
mannsefni því væntanlega að ferðast
flugleiðis milli fjarða.
- JGK
■ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Hendrik Berndsen, blómaskreytingamaður tóku við milljón króna gjöf til byggingar
sjúkrastöðvar SÁÁ úr hendi Tomma í gær. Tímamynd Árni Sæberg
Tommi
SafSAÁ
milljon
■ Tommi í Tommaborgurum gaf eina
milljón króna í söfnun SÁÁ til byggingar
á sjúkrastöð við Grafarvog. Afhenti
hann forráðamönnum SÁÁ, Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni og Hcndrik Berndsen,
þessa höfðinglegu gjöf að viðstöddum
fréttamönnum í húsakynnum Tomma-
borgara við Grensásveg síðdegis í gær.
Við það tilefni sagðist Tommi hafa
kynnst áfengisbölinu af eigin raun og þar
af lciðandi vita hverja óhamingju þaö
hefði í för með sér. Harmaði hann þá
gagnrýni sem fram hefur komið í fjöl-
miðlum á söfnunina, sem hann taldi yfir
gagnrýni hafna.
Sagðist hann rekstur Tommaham-
borgara hafa gengið svo vel, að hann
hefði ákveðið að gefa krónu af hverjuin
seldum hamborgara í þcssa söfnun,en
fyrir skömmu scldi fyrirtækið milljónasta
hamborgarann.
Um 30 milljón rummetrar af mó í Akranesmýrum:
ENDAST SEMENTSVERK-
SMIÐJUNNI í 150 ÁR!
■ Þurrkaður mór virðist vera fyllilega
samkeppnisfær við ódýrari olíutegundir
miðað við núverandi olíuverð. Ef brenna
ætti mó í Sementsverksmiðju ríkisins í
stað svartolíu (12.000 tonn á ári) þyrfti
um 193.000 rúmmetra af mómýri á ári.
Akranesmýrar sem innihalda um 30.
millj. rúmmetra af mó ættu því að endast
Sementsverksmiðjunni í 150 ár sem
eldsneyti. Þetta kom m.a. fram í eríndi
Braga Ámasonar á orkusparnaðarrráð-
stefnunni sem haidin var í gær, þar sem
liann ræddi um „mó í stað innfluttrar
orku“.
Bragi sagði nú fáanlega brennara til
brennslu mósalla. Mó ætti því að mega
brenna hvar sem svartolíu er nú brennt
til að framleiða hátt hitastig, svo sem í
Sementsverksmiðjunni, fiskimjölsverk-
smiðjum og graskögglaverksmiðjum.
Svartolíunotkun allra þessara verk-
smiðja þegar loðnubræðsla var hér í
hámarki hafi mest orðið um 90.000 tonn
á ári. í stað þeirrar svartolíu þyrfti um
1,5 millj. rúmmetra af mómýri á ári. Þótt
aðeins helmingur 400 milljóna rúmmetra
mó á Mýrum væri nýtanlcgur myndi
hann endast öllum þessum verksmiðjum
í 130 ár.
Bragi sagði að gerð hefði verið á því
forathugun hvað mundi kosta að vinna
mó og þurrka hann við jarðhita þar til
rakainnihald hans sé komið niður í 15%,
í þurrkverksmiðju er staðsett væri við
mýrina. Miðað við verksmiðju er fram-
leiddi 4,3 tonn af þurrmó á klukkustund,
sem að eldsneyti jafngilti 12.000 tonnum
á ári yrði þurrkunarkostnaðurinn 2,9
$/GJ, á verðlagi ársins 1983. Þá er
reiknað með 10 ára afskriftartíma verk-
smiðjunnar, 15% ársvöxtum af fjárfest-
ingu, að heita vatnið fáist á 0,67 $/tonnið
og raforkan á 60 mills/kwh.'Jafnframt er
miðað við að annar kostnaður við öflun
mósins sé sá sami og heildar vinnslu-
kostnaður við útiþurrkun mós hjá
Finnum. Samkvæmt þessum forsendum
yrði eldsneytisverð á mónum 4,4$/GJ á
verðlagi þessa árs. Með sex sinnum
stærri verksmiðju færi vinnslukostnaður-
inn niður í 2,5 dolIara/GJ. (4,4 $/GJ
jafngildir 15,5 mills/kwh)
Til samanburðar nefndi Bragi að þeg-
ar þetta væri skrifað hafi skráð OPEK
verð á óhreinsaðri jarðolíu verið 6,0
$/GJ (34 dollarar á tunnu). „Samkvæmt
því virðist mór vera fyllilega
samkeppnisfær við ódýrari olíutegund-
ir“, sagði Bragi:
-HEl
Eigendaskipti á Borginni:
„MUN KOSTA OKKUR
ÞROTLAUSA VINNU”
segir Sigurður Kárason, einn nýju eigendanna
■ „Ég held við höfum gert góð
kaup, en engu að síður geri ég mér
grein fyrir því að þetta mun kosta
okkur þrotlausa vinnu næstu árin ef
vel á að takast,“ sagði Sigurður
Kárason, sem ásamt Pálmari. Magn-
ússyni og fleirum keypti Hótel Borg
fyrir 50 milljónjr króna skömmu fyrir
páskana.
Sigurður sagði að til að byrja með
yrði rekstur Borgarinnar með svip-
uðu sniði og verið hefur undanfarin
ár - hvað sem síðar yrði.
„Ég hef ekki trú á öðru en vel
takist. Húsið er skemmtilegt og á sér
merkilega sögu og ekki spillir að það
er á besta stað í bænum. í sporum
ferðamanns í Reykjavík myndi ég
sjálfur að minnsta kosti velja Hótel
Borg til að gista á. Hin hótelin tvöj
Esja og Loftleiðir, eru þannig
staðsett, að það kostar bæði fé og
fyrirhöfn að komast í miðbæinn, en
þangað sækja nú flestir," sagði Sig-
urður.
- Þarfnast húsið ekki mikilla lag-
færinga?
„Húsið . er í tiltölulega góðu
ástandi. Að vísu þarf að gera á því
smávægilegar lagfæringar, sem
flokkast eiginlega undir almennt
viðhald,“ sagði Sigurður.
- Sjó