Tíminn - 08.04.1983, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Fermingartilboð
JOKER skrifborð á aðeins
kr. 2.790.-
Húsgögn ogc M
. , . Sudurlandsbraut 18
mnrettmgar simi se 900
Framkvæmdastofnun
ríkisins auglýsir
Út hafa verið gefín eftirtalin rit:
1. „ÍBÚÐASPÁ TIL ÁRSINS 1990“.
Fjallað er ítarlega um húsnæðismarkað hér-
lendis, fjármunamyndun, íbúðabyggingar og
fjármögnun þeirra. Ennfremur er í ritinu yfirlit
yfir þróun mannfjöldans, búferlaflutninga o.fl.
Loks er framreikningur mannfjöldans til ársins
1990 og byggingarþörf í samræmi við niður-
stöður og tölfræðileg athugun á fjármuna-
myndun í íbúðarhúsnæði.
2. „MANNAFLI VIÐ
VIRKJANAFRAMKVÆMDIR “.
Lýst er rannsókn á mannafla við Hrauneyjar-
fossvirkjun, fjölda manna við störf og starf-
stéttum. Könnuð er staðbundin áhrif fram-
kvæmdanna í Rangárvallasýslu. Niðurstöður
eru síðan notaðar sem grundvöllur spár um
vinnuaflsþörf og áhrif Blönduvirkjunar.
3. „VINNUMARKAÐURINN 1981“.
Fjallað er um mannafla og tekjur á landinu öllu
og í landshlutum 1980-1981, mannafla og
tekjur eftir atvinnuvegum sömu ár og lýst
atvinnuþátttöku á árinu 1981.
Rit þessi fást keypt í húsi stofnunarinnar,
Rauðarárstíg 25, 3. hæð og kosta 40 kr. og 50
kr.
Framkvæmdastofnun ríkisins
Áætlanadeild
Rauðarárstíg 25
105 Reykjavík.
t
Eiginmaöur minn faöir okkar tengdafaöir og afi
Eyjólfur Þorleifsson
Grænumörk 1
Selfossi
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 9. apríl kl. 13.30.
Guðrún Erlingsdóttir
Steinunn Eyjólfsdóttir Gunnar Gunnarsson
Erlingur Eyjólfsson Bára Stefánsdóttir
Leifur Eyjólfsson Ásdís Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
f réttir
Léleg vertid f Grundarfirði til þessa:
„Á von á að
þetta lagist”
— segir Soffanías Cecilsson
GRUNDARFJÖRÐUR: „Vertíðin
hefur verið ákaflega léleg hjá okkur í
Grundarfirði það sem af er, þ.e. þorsk-
veiðarnar. Skelveiðarnar gengu aftur
á móti mjög vel hjá þeim bátum sem á
þeim voru - sem eru bara allt of fáir -
en þær veiðar hættu í endaðan febrúar,
því þá fer nýtingin að versna svo mikið
að það borgar sig betur að hætta
skelveiðum og taka vertíðina. En hún
hefur því miður brugðist til þessa, þótt
það standi ennþá til bótá- vonandi“,
sagði Soffanías Cecilsson, útgerðar-
maður og fiskverkandi í Grundarfirði,
spurður um vertíðina þar, s.l. miðviku-
dag.
„Það er aflaleysið fyrst og fremst“,
sagði Soffanías Cecilsson, spurður
hvort frekar væri um að kenna gæfta-
eða aflaleysi. „Okkar bátar stunda
hefðbundin mið og fiskurinn er ekki
genginn inn á þau ennþá. En tvo daga
fyrir páskastoppið var reitingsgóður
afli. Síðan hefur komið ótíðarkafli,
þannig að menn hafa ekki komið
netunum í sjó eftir páska. Við eigum
því von á að þetta lagist eitthvað, en
það verður aldrei stór vertíð hjá okkur
úr þessu“.
Soffanías kvað þó hafa verið næga
vinnu. „Ég tek þann þorsk sem kemur
og nota hann í frystingu, því hún er
nær rekstrargrundvellinum eins og er
heldur en saltfiskurinn. Það tekur líka
lengri tíma að vinna. hann í frost,
þannig að hann heldur uppi meiri
vinnu. Togararnir hafa líka skilað
töluverðum afla til hraðfrystihússins
og Sæfangs, sem skipta á milli sín afla
þeirra. En það er óhagstæður fiskur -
mest karfi, ýsa, blálanga og grálúða,
en sára lítill þorskur. Þessi afli krefst
meiri vinnu, en er hins vegar ekki eins
arðbær í vinnslu".
- Ert þú með margt aðkomufólk í
vinnu í vetur?
- Etthvað um 6 erlendar stelpur
held ég. En það kemur nú eiginlega
ekki til af góðu. Ég auglýsti eftir fólki
í haust, en út úr því kom ekkert nema
ein stúlka, sem síðan var farin eftir
vikuna. Þá buðust mér 6 erlendar
stúlkur - frá Ástralíu, Nýja-Sjálandi
og Afríku og þær eru ágætis starfsfólk.
-HEI
Tónlistarfélag
Akureyrar
með tónleika
í Borgarbíói
NORÐURLAND: Þriðju áskriftar-
tónleikar Tónlistarfélags Akureyrar
verða í Borgarbíói laugardaginn' 9.
apríl kl. 17. Boðið verður upp á mjög
fjölbreytta efnisskrá, sem kennarar
við Tónlistarskólann á Akureyri hafa
undirbúið.
Þrettán hljóðfæraleikarar flytja tón-
list allt frá 16-öld til okkar tíma eftir
tónskáldin: Samuel Barber, Bizet,
Árna Björnsson, Manuel de Falla,
Maurer, Quilter, Max Reger, Schein,
Schumann, Andreas Spirea og Verdi.
Leikið verður á blásturshljóðfæri,
strokhljóðfæri, píanó og flutt sönglög.
Flytjendur eru: Atli Guðlaugsson,
Edvard Fredriksen, Halldór Halldórs-
son, Hrefna Hjaltadóttir, Jóhann Ó.
Ævarsson, Jonathan Bager, Kristinn
Örn Kristinsson, Lilja Hjaltadóttir,
Magna Guðmundsdóttir og Þuríður
Baldursdóttir.
Tónleikar þessir eru góður vitnis-
burður um grósku í starfi Tónlistar-
skólans og hve margir ágætir tónlistar-
menn hafa ráðist til starfa við skólann.
Engin
páskahrota hjá
Grindavíkur-
bátum
GRINDAVÍK: „Það er alveg ömur-
legt - sjaldan verið eins lélegur afli eins
og í gær, svo það er engin páskahrota
komin ennþá að minnsta kosti“, sagði
Rúnar Steingrímsson á hafnarvoginni
í Grindavík. En Tíminn spurði hvort
þeir hafi fengið einhverja páskahrotu
að þessu sinni.
Rafn sagði algengan afla s.l. mið-
vikudagskvöld hafa verið 1,2 og 3
tonn. Einn bátur hafi náð 11 tonnum,
annar 8 tonnum, tveir fengið 7 tonn og
hinir allir undir 5 tonnum.
Um síðustu mánaðamót var afla-
hæsti báturinn Gaukur með 532 tonn,
2. var Hrafn með 461 tonn og 3.
Hópsnes með 456 tonn. Þessa þrjá
báta sagði Rúnar skera sig nokkuð úr
með afla, tveir þrír aðrir væru þó í
námunda við þá, en aðrir væru almennt
með afla á bilinu 150-300 tonn það
sem af er vertíðarinnar.
„Þetta líkist sýnist mér töluvert
árinu 1978, þegar vertíðin var mjög
léleg. En það verður næsta vika sem
sker alveg úr um þetta í vetur", sagði
Rúnar.
-HEI
Útlit fyrir lélega grásleppuveiði
á Hólmavík:
Engin mjólk komið
síðan á skfrdag
HÓLMAVÍK: „Það er lítið að frétta
héðan nema ótíðin. Það er alveg
óvenjulega mikill snjór - ekki verið
svona mikill í fjölda mörg ár. Rútan,
sem venjulega kemur hingað tvisvar í
viku, var komin hér nyrst í Hrútafjörð
en þar gáfust þeir upp við að opna, svo
hún sneri við aftur til Reykjavíkur
með alla farþegana og kom þangað
aftur eftir um 16-17 tíma ferð. Flutn-
ingabílar hafa heldur ekki komist
norður st'ðan á skírdag, þannig að við
höfum nú ekki fengið neina mjólk í
viku. En alla okkar neyslumjólk flytj-
um við sunnan úr Reykjavík á bílum.“
Það er Jón Alfreðsson, kaupfélags-
stjóri í Hólmavík, sem sagði okkur
þessar ótíðarfréttir frá Hólmavík s.l.
miðvikudag. Hann sagði snjóinn það
mikinn, að ekki yrði reynt að opna
aftur fyrr en veðrið gangi það mikið
niður að það hætti að skafa. En þegar
við töluðum við Jón var bæði skafrenn-
ingur og ofanbilur á Hólmavík.
- En hvers vegna að flytja alla
mjólk frá Reykjavík?
- Eina flutningakerfið sem við
höfum er við Reykjavík, þannig að
það yrði bara óþægilegra og dýrara að
aka með laust pláss á bílunum úr
Reykjavík og taka mjólkina t.d. í
Borgarnesi. Búðardalur er ekki í leið-
inni og engar ferðir á milli frá
Hvammstanga, það yrði þá að útbúa
þær sérstaklega.
Spurður um atvinnuástand á Hólma-
vík í vetur kvað Jón ekki hægt að tala
um mikið atvinnuleysi, þótt alltaf hafi
verið nokkrir á skrá. Það sé knapplega
að rækjan dugi til að halda uppi nægri
vinnu - kvóti Hólmavíkurbáta sé ekki
það mikill að hann nægi alveg til þess.
Rækjuvertíðin er nú búin og fjórir
stærstu bátarnir farnir suður til Grinda-
víkur og Þorlákshafnar til troll- og
netaveiða, þar sem Jón sagði engan
fisk að fá á flóanum. „Einhverjir af
minni bátunum fara svo sjálfsagt á
grásleppu, verði hún einhver. Veiðarn-
ar áttu að byrja 1. apríl. en það hefur
ekkert gefið ennþá og lítur heldur ekki
vel út með afla. Sjórinn hefur verið
mjög kaldur og menn eiga því von á að
grásleppuvertíðin verði léleg. Rækju-
bátarnir hafa t.d. sáralítinn rauðmaga
fengið í rækjutrollið og það þykir gefa
talsverða vísbendingu".
Til að halda uppi vinnu þar til
rækjuveiðarnar hefjast á ný í júní
treysta Hólmvíkingar á afla úr nýja
togaranum sínum Hólmatindi.
-HEI