Tíminn - 08.04.1983, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
5
fréttir
Fríhöfnin á
Keflavikur-
flugvelli:
Stimpil-
klukku-
málið til
saksókn-
ara á ný
■ Varnarmáladeild utanríkisráðuneyt-
isins hefur sent ríkissaksóknara Fríhafn-
armálið svokallaða, sem snýst um
meinta misnotkun starfsmanna stofn-
unarinnar á stimpilklukku, að nýju eftir
að hafa haft það til álits og umsagnar um
hríð.
Forsaga málsins er sú, að einn stjórn-
armanna Fríhafnarinnar fór fram á að
rannsóknarlögregla ríkisins kannaði
hvort starfsmenn stofnunarinnar hefðu
orðið sér úti um óunna yfirvinnu með
því að stimpla hver annan inn og út, eða
með því að skrifa á kortin með eigin
hendi. Að rannsókn lokinni þótti ekki
ástæða til að gefa út kæru, en þá krafðist
stjórnarmaðurinn opinberrar rannsókn-
ar á málinu.
- Sjó
Vegleg bóka-
gjöf til Há-
skólabóka-
safnsins
■ í febrúar s.l. barst háskólabókasafn-
inu vegleg bókagjöf frá útgáfufyrirtæk-
inu Blackwell Scientific Publications í
Oxford. Hér var um að ræða 700 bindi
vísindarita sem fyrirtækið hefur gefið út,
þar af um 200 bindi tímarita. Jafnframt
fól gjöfin í sér áskrift á 13 vísindaleg
tímarit, svo og fyrirheit um allmargar
bækur sem koma út síðar á þessu ári.
Forgöngu um gjöf þessa hafði Per
Saugman, stjórnarformaður og forstjóri
Blackwell Scientific Publications, en
hann er einlægur aðdáandi íslands og
íslenskrar menningar. Er gjöfin veitt í
tilefni af heimsókn forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur, til Oxford í
febrúar-mánuði 1982.
Bækurnar í gjöf þessari eru nýjar af
nálinni og taka til flestra greina sem
kenndar eru við Háskólann. Þó er mis-
jafnt hvað greinar bera úr býtum og fer
það eftir þeim vísindasviðum sem fyrir-
tækið hefur lagt mesta rækt við. Nefna
má sem dæmi að allmikið er um rit í
læknisfræði og skyldum greinum, nátt-
úruvísindum, hagfræði og heimspeki.
Að sjálfsögðu er Háskólabókasafni
mikill fengur að þessari höfðinglegu
bókagjöf og stendyr í mikilli þakkar-
skuld við Blackwell Scientific Publicat-
ions, og þá alveg sérstaklega Per Saug-
man sem hefur sýnt Háskólanum ein-
stæða velvild með gjöf þessari.
Bækurnar verða varðveittar í Há-
skólabókasafni og útibúum þess. Þær
verða til sýnis í handbókasal Háskóla-
bókasafns 28.-30. mars og 5-.-12. apríl
Heintíli
um stundarsakir
Merkjasala 8. og 9. apríl Póstgírónúmer: 44400-6
Kvennaathvarfið er opið allan sólarhringinn, alla daga. Þar
er alltaf einhver til að veita aðstoð þeim konum sem beittar
hafa verið ofbeldi.
Konurnar geta haft börn sín með sér.
Tökum höndum saman.
Tryggjum framtíöarhúsnæði Kvennaathvarfsins.
&