Tíminn - 08.04.1983, Síða 6
6______________
í spegli tfmans
■ Félagar úr aðdáendaklúbbi Beatlcs með götuskiltin með
nöfnum hljómsveitarmeðlimanna.
Liverpool heiðrar Bítlana:
nVtt íbúða
HVERFl
NEFNT
EFTIR ÞEIM
■ Það eru áreiðanlega margir
í Liverpool sem sækja um íbúð-
ir í nýja hverfinu, sem nefnt er
eftir „Bíllunum" frægu. Þarna
er um að velja Ringo Starr
Drive, Paul McCartney Way,
John Lennon Drive og George
Harrison Close.
Liverpool-borgaryfirvöld
hafa nefnt fjórar nýjar götur
nöfnum frægustu borgara
sinna, piltanna sem voru í
hljómsveitinni „The Beatles“.
Með þessu er borgin að heiðra
þá, og einnig hafa stjórnvöld í
Bretlandi heiðrað þá með
orðum. Þeir hafa líka um árabil
verið drjúg tekjulind fyrir land
sitt. „Besta útflutningsvaran“,
voru þeir kallaðir á sínum tíma,
því að gjaldeyrisgróði var ekki
svo lítill af plötum o.fl. sem
tilheyrði „Bítla-árunum“.
Meðfylgjandi mynd sýnir
götuskiltin, en sá sem heldur á
Ringo Starr skiltinu er stofn-
andi og formaður í aðdáenda-
klúbbi Beatles í Liverpool og
með honum tvær 16 ára stúlkur
úr félagsskapnum.
Þcssar götu^eru í úthverfí
Liverpoolhorgar.
HVERNIG Á AÐ KRÆKJA
í MILUONAMÆRING
og þad tvisvar!
■ Flestar píur eru liklega
ánægðar með það, að vera um
þrítugt búnar að krækja sér í
einn milljónamæring, - en
Pamela Sue Martin, „em leikur
í Dynasty-þáttunum leitúðuga
dóttur Carringtons auðkýtings,
hefur gert gott betur, því að
hún er nú nýgift í annað sinn
og er eiginmaðurinn milljóna-
mæringur frá Chile, fimm-
tugur að aldri, Manúel Rojas,
- en þar áður var hún gift
öðrum milla á svipuðum aldri
og Rojas, en hann var frá
Argentínu.
„Nú gengur þetta allt miklu
betur“, sagði Pamela við
blaðamann, sem hafði viðtal
við hina hamingjusömu brúði.
„Eg vil ekki hugsa um fyrra
hjónaband mitt, og ég vildi
ekki upplifa áratuginn frá tví-
tugu til þrítugs aftur, þó segja
megi að mér hafí gengið allt í
haginn: Beint úr skóla í fyrir-
sætustörf og síðan í kvikmynd-
ir, og þá í sjónvarpsþættina
umtöluðu Dynasty og vera
komin með 40.000 dollara í
laun á viku! Það má segja að
það sé nokkuð gott, ekki satt?
En það virtist ekki vera einhlítt
til að höndla hamingjuna.
Nú er ég 30 ára og hef meiri
lífsreynslu og ætla mér að
reyna að færa mér hana í nyt.
Ég hef meira að segja skrifað
leikrit og ætla mér að skrifa
meira, þegar ég hætti í Dyn-
asty. Það er svo margt sem ég
hef hugsað mér að gera, og ég
segi það satt, að ég er feikilega
hamingjusöm!“
Pamela hefur mikinn áhuga
á náttúruvernd og rétt áður en
hún byrjaði að leika í Dynasty,
neitaði hún stórgóðu kvik-
myndatilboði til þess að hún
kæmist til þess að mótmæla
hinu árlega selkópadrápi við
Nýfundnaland. Pamela er líka
í Greenpeace-samtökunum og
Hvalfriðunarfélagi. Hún tók
að se'r fótbrotinn hund, sem nú
fylgir henni hvert sem hún fer.
Hann heitir Gonzales, svo að
hann er líklega líka suður-ame-
rískur eins og eiginmennirnir
báðir.
■ Hamingjusöm brúður (í annað sinn) nýgift Manuel Rojas,
sem er fímmtugur Chilebúi og margmilljónari - eins og fyrri
eiginmaðurinn.
■ Pamela Sue Martin leikur í sjónvarpsþáttunum Dynasty
auðkýfingsdótturina Fallon Carrington, - en hún er nú
hálffátækleg til fara virðist okkur af myndinni að dæma.
■ „Fólk leggur oft aleigu sína undir í fasteignaviðskiptum. Þess
vegna er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að það láti fagmenn ganga
úr skugga um ástand eignarinnar,“ sagði Gunnar Indriðason.
(Tímamynd Róbert)
vidtal dagsins
JETUM KOSTI
0G GALLA
FASTEIGNA
segir Gunnar Indriðason,
byggingatæknifræðingur
hjá Fasteignaskoðun hf.
■ „Við í sjálfu sér verðmetum hugmyndir um hvað viðgcrðir og um. Einnig veitum við ýmsa
ekki íbúðir eða eignir heldur endurbætur kosta, reynum að aðra ráðgjöf sem varða fram-
metum við kosti þeirra og galla, finna dulda galla, í steinsteypu kvæmdir og viðhald á húsum,“
gefum kaupendum og seljendum tildæmis, og þar fram eftir götun- sagði Gunnar Indriðason, bygg-
ingatæknifræðingur, sem ásamt
bróður sínum Indriða, sem einn-
ig er byggingatæknifræðingur,
rekur fyrirtækið Fasteigna-
skoðun hf við Laugaveg 18 í
Reykjavík, en fyrirtækið var
stofnað í janúarmánuði síðast-
liðnum.
„Við höfum l^ngi rætt það
okkar á milli að stofna svona
þjónustufyrirtæki. Kunningjar
okkar sem staðið hafa í íbúða-
kaupum hafa margir beðið okkur
sem fagmenn að líta á íbúðir
fyrir sig áður en þeir hafa gert í
þær tilboð.
Það er líká alkunna, að fólk
leggur oft aleigu sína undir þegar
um fasteignaviðskipti er að ræða.
í kaupsamningi er þess jafnan
getið, að eign sé seld í því
ástandi sem hún er í og kaupandi
hafi skoðað og sætt sig við. Með