Tíminn - 18.04.1983, Blaðsíða 1
■ íslenska landsliðið í körfuknattleik
náði í þriðja sætið á Norðurlandamótinu
í körfuknattleik á elleftu stundu á
sunnudag, liðið hafði þá ekki náð sigri í
neinum leik, m.a. tapað fyrir Norð-
mönnum, og átti eftir að leika við Dani
eina, sem höfðu áður sigrað Norðmenn
með einu stigi. Til þess að ná þriðja
sætinu þurftu íslendingar að sigra Dan-
ina með 13 stigum, og það gerðu þeir
sannarlega, og vel það, sigruðu Dani
75-55, og bronsverðlaunin komu heim.
Leikur íslendinga gegn Norðmönnum
var hinn hroðalegasti, liðið náði ekki að
sýna sitt besta, lenti í villuvandræðum,
og tapaði að lokum með 67 stigum gegn
74. Axel Nikulásson, Flosi Sigurðsson
og Þorvaldur Geirsson fóru allir út af
með 5 villur í þessum leik, og þessi
villuvandræði háðu íslenska liðinu
mikið, sérstaklega munaöi um Flosa í
vöminni. í hálfleik var staðan 34-32
Norðmönnum í hag. Kristján Ágústsson
og Jón Kr. Gíslason skoruðu mest
íslendinga íþessum leik, 13 stighvor, og
Axel Nikulásson skoraði 12.
íslendingar höfðu alltaf frumkvæðið
gegn Dönum, komust í 26-13, 26-21,
38-22, en Danir löguðu dálítið stöðuna
fyrir leikhlé, og þá var staðan 40-32.
Forskot íslendinga rokkaði dálítið til í
síðari hálfleik okkar menn höfðu yfir
48-32, 56-41, 58-44, 60-47 og þegar tvær
mínútur voru til leiksloka var staðan
64-52. Þá tóku íslendingar mikinn sprett,
Axel skoraði 6 stig í rykk, Kristján og
Flosi sína körfuna hvor, og strákamir
tryggðu sér brosið 75-55.
Kristján Agústsson var stigahæstur
íslendinga í leiknum, og langbestur,
hirti mikið af fráköstum. Kristján skor-
aði 16 stig. Axel Nikulásson skoraði 14
stig, þar af mikilvæg 6 í lokin. Flosi
Sigurðsson skoraði 11, og var allsráðandi
á miðjunni í vörninni, Jón Sigurðsson
skoraði 9, Þorvaldur Geirsson 8, Torfi
Magnússon 7, Hreinn Þorkelsson 6 og
Jón Kr. Gíslason 4.
Finnar urðu Norðurlandameistarar,
sigruðu Svía 86-77, í síðasta leikmótsins.
Þegar litið er á úrslit þessa leiks sést hve
góður fyrsti leikur íslendinga gegn Finn-
um hefur verið, þar sem Finnar sigruðu
með 65-49. Lélegasti leikur íslendinga
var aftur á móti gegn Svíum 50-96, og
svo gegn Norðmönnum, en fyrir þeim
höfum við ekki tapað lengi.
■ Víkingar urðu íslandsmeistarar í handknattleik um helgina. Á myndinni eru þeir að tollera hinn frábæra þjálfara sinn,
Bogdan Kovalczyk eftir sigurinn gegn Stjörnunni á sunnudag, sem endanlega tryggði þeim titilinn. Víkingar eru nú
íslandsmeistarar fjórða árið í röð undir stjórn Bogdans. Á litlu myndinni hlaupa Víkingar „meistarahringinn“, Guðmundur
Guðmundsson fyrirliði í fararbroddi. Tímamynd: Róbert.
Umsjón: Samúel
örn Erlingsson
NAÐU 3. SÆT1
A 11. SIUNDU
■ íslandsmót fatlaðra var haldið á Selfossi um helgina. Sökum skorts á rými í blaðinu
í dag, verður greint frá mótinu í blaðinu á morgun. Myndin er tekin þegar keppni
stóð yfir í bogfimi, fremst er Elísabet Vilhjálmsson, sem hlaut 3 gull í bogfimi. Nánar
á morgun. Tímamynd: Hrafn Óskarsson.
Hrepptu 2. sæti
— á NIVI pilta í handbolta í Færeyjum
■ íslenska piltalandsliðið, 18 ára og
yngri urðu í öðru sæti á Norðurlanda-
móti piltaiandsliða í handknattleik um
helgina. Liðið tryggði sér silfurverðlaun-
in á sunnudagskvöldið með því að sigra
Norðmenn með 22-19 í síðasta leik
liðsins á mótinu. íslenska liðið hlaut sex
stig. Svíar urðu Norðurlandamcistarar,
unnu alla sína leiki og fengu 10 stig.
ísland varð í öðru sæti með 6 stig,
Norðmenn þriðju með 5, Finnar fjóröu
með 5, Danið fimmtu með 4 stig og
Færeyingar sjöttu með ekkert stig.
Úrslit leikja urðu:
Island-Færeyjar 33-17
Finnland-Danmörk 20-19
Svíþjóð-Noregur 22-12
Danmörk-Færeyjar 32-9
Noregur-Finnland 17-17
Svíþjóð-Island 25-20
Ísland-Finnland 23-21
Svíþjóð-Færeyjar 40-14
Noregur-Danmörk 23-16
Danmörk-lsland 26-22
Svíþjóð-Finnland 29-19
Noregur-Færeyjar 34-9
Ísland-Noregur 23-19
STUTTGART HEPPIÐ AÐ
NA JAFNTEFU GEGN BAYERN
— Atli Edvaldsson skoraði fyrir Dússeldorf gegn Nurnberg
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Stuttgart var heppið að ná jafntefli á
heimavelli gegn Bayern Miinchen um
helgina. Fyrir framan 72 þúsund áhorf-
endur virkaði heimaliðið ósannfær-
andi, meðan Bayern var yfirburðalið á
öllum sviðum: lék vel saman, fljótara og
mun hættulegra. Einungis óvæntur stór-
leikur varamarkvarðar Stuttgart, Sigi
Grúninger, kom í veg fyrir stórtap
heimamanna, því hann varði bókstaflega
aUt sem verjanlegt var, og jafnvel í við
meira. Sigi, sem nú lék sinn fyrsta
Bundesliguleik, hefur aldrei þótt efni-
legur, og í síðustu viku leit jafnvel út
fyrir að hann mundi hvergi fá samning,
og því hverfa út úr atvinnuknattspymu-
mennskunni. Fn þá var aðalmarkverði
Stuttgart, Roleder, vísað útaf leikvelli,
og næstu fjóra leiki fær Sigi því að reyna
sig og bæta orðstírinn. Og svo sannarlega
stóð hann fyrir sínu, enda víðast hvar
valinn maður dagsins.
Mikið var skrifað um leikinn í síðustu
viku af þýsku pressunni, og þá sérstak-
lega vegna þeirra Ásgeirs Sigurvinssonar
og Niedermayers, sem báðir léku með
Bayem á síðastakeppnistímabili. Kicker
var með forsíðumynd af Ásgeiri, og
stórblaðið Welt með viðtal. Frammi-
staða Ásgeirs olli þó vonbrigðum. Ekki
þó vegna þess að hann hafi staðið sig illa,
heldur vegna þess að búist var við
afburðaleik hjá Ásgeiri, og slíkt er
vitanlega alltaf erfitt að framkvæma,
þegar andstæðingarnir leika jafn vel og
Bayern gerði á laugardaginn. Ásgeir átti
reyndar að mínu mati þokkalegan leik,
og tvö góð marktækifæri, þrumuskot af
25-30 metra færi sem Pfaff rétt tókst að
bjarga, svo og lúmskt skot með hægra
fæti sem fór rétt framhjá.
Bayern tók strax völdin í sínar hendur,
og á 43. mínútu tókst Mathy loks að
koma knettinum framhjá Sigi Grún-
inger. í sinni hálfleik setti Helmut Bent-
haus, þjálfari Stuttgart tvo sóknarmenn
inn á, en nokkrum mínútum seinna
meiddist Niedermayer svo illa, að hann
leikur ekki meira á þessu keppnistíma-
bili. Einum færri tókst Stuttgart þó að
jafna, á 82. mínútu með fyrsta marki
varamannsins Habiger, og segir það sína
sögu um baráttuandann hjá Stuttgart.
Aí/i skoraði
Atli Eðvalsson skoraði eina mark
Dsseldorf í tapleiknum gegn Núrnberg,
og fleiri mörk hefur hann ekki skorað á
einu keppnistímabili á ferli sínum hér í
Þýskalandi. Atli lék allvel í leiknum, en
var óheppinn_með lokahnykkinn, sem
þarf til að skora mörk. Þess má geta að
varnarmaður Táubiger bjargaði þrisvar
sinnum á línu, og svo var mark dæmt af
Dússeldorf snemma í leiknum vegna
rangstöðu.
Dortmund Köln og HSV töpuðu öll
stigum á laugardaginn, meðan Bremen
sigraði sannfærandi 6-0. Nú er almennt
búist við að það verði Werder Bremen
sem fari með sigur af hólmi í Bundeslíg-
unni, þeir eiga mjög auðvelda leiki eftir.
Árangur Bremen hefur komið mjög á
óvart, því langt er orðið síðan að þeir
þóttu frambærilegir. Sigurinn á laugar-
daginn er til dæmis stærsti sigur liðsins í
allri sögu þess. Um næstu helgi er ekki
leikið í Búndeslígunni, en helgina þar á
eftir eigast meðal annars við HSV og
Stuttgart, og Dússeldorf og Bremen, og
er það eini erfiði leikurinn sem Bremcn
á eftir.
Úrslitin í Þýskalandi urðu þessi:
Schalke-Kalsruhe 1:0
„Gladbach“-Hamburg 1:1
Stuttgart-Bayern 1:1
Hertha Berlin-Bochum 1:1
Cologne-Frankfurt 2:2
Bremen-Braunschweig 6:0
Dortmund-Leverkusen 3:3
Kaisersl.-Biclcfeld 3:0
Nuremberg-Dusseldorf 3:1
Staða efstu liða er nú þessi
Hamborg. 28 15 11 2 64 28 41
Bremen 28 18 5 5 58 32 41
Bayern M. 28 15 9 4 63 23 39
Stuttgart 27 15 7 5 64 36 37
Dortmund 27 15 5 7 64 41 35
Kaisersl. 28 12 11 5 47 33 35
Fengu 6 gull
— 6 silfur og 2 brons á Kalott í sundi
■ Ferð íslenska landsliðsins í sundi á
Kalottkeppnina í sundi gekk ekki nógu
vel að sögn forráðaQanna Sundsam-
bandsins. Islenska liðið varð í neðsta
sæti í stigakeppninni, hlaut 167,5 stig,
Finnar sigruðu, hlutu 265 stig, Svíar í
öðru sæti með 209,5 og Norðmenn
þriðja með 185 stig. tslensku strákamir
urðu í öðru sæti í karlakeppninni. ís-
lenska iiðið hlaut 6 gull í keppninni, 6
silfur og 2 brons.
Eðva'rð Þ. Eðvarðsson sigraði í 100 m
baksundi á 1:01,7 mín sem er ísl.
piltamet og Kalottmet, og í 200 m
baksundi á 2:15,1 mín. Tryggvi Helga-
son sigraði í 100 m. bringusundi á 1:08,1
mín, og 200 m bringusundi á 2:30,6 mín.
Hann varð annar í 200 m. flugsundi á
2:13,1 mín, og annar í 100 m. flugsundi
á 1:00,6, en þar sigraði Ingi Þór Jónsson
á 59,1 sek sem er íslandsmetsjöfnun, og
Kalottmet. Ingi Þór varð annar í 100
metra skriðsundi á 54,0 sek, og 200 m.
fjórsundi á 2:15,7 mín., og þriðji í 100
m. baksundi á 1:02,7 mín. Árni Sigurðs-
son varð annar í 200 m. bringusundi á
2:32,3 mín, Guðrún Fema Ágústsdóttir
varð önnur í 200 m. bringusundi á 2:43,9
mín., og þriðja í 100 m. bringusundi á
1:16,4 mín. Þá unnu íslensku strákarnir
í 4x100 m fjórsundi á 4:05,3 mtn.
Það sem olli ekki betra gengi á mótinu
var að sögn forráðamanna Sundsam-
bandsins mannfæð í ísl. liðinu, en hún
stafaði af fjárskorti sambandsins.