Tíminn - 09.08.1983, Blaðsíða 6
6 ____________
í spegli tímans
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
■ Þegar ástralska rokkhljóm-
svcitin Men At Work hélt sína
fyrstu tónleika í London í
desember sl., hlaut hún þann
dóm eins af þekktustu popp-
gagnrýnendum þarlendum, að
tónlistin þeirra væri „ólýsan-
lega andstyggileg“ og hann
bætti við: „Þessir áströlsku
monthanar eru ekki þess virði
að hlusta á þá, ekki einu sinni
þó að manni væri borgað fyrir
það!“
Það er hætt við að þessi
gagnrýnandi iðrist nú heldur
betur sföryrðanna, því að á
þeim fáu mánuðum, sem liðnir
eru síðan þau voru rituð, hafa
Men At Work náð þeim ár-
angri að verða vinsælasta nýja
rokkhljómsveitin á árinu 1983,
þeir hafa unnið til Grammy-
verðlaunanna handarísku sem
bestu nýfistamennirnir, selt
yfir 6 milljónir af albúmi sínú
Business As Usual, sem var
frumraun þeirra í plötuútgáfu,
og komist í efstu sæti vinsælda-
lista Bandaríkjanna og Bret-
lands samtímis með plötu sína
Down Under.
A þessari stundu eru þeir á 7
mánaða löngu hljómleika-
ferðalagi, sem hófst í Japan,
síðan lá ferðin til Bandaríkj-
anna, Bretlands, um Evrópu
og Norðurlönd (eins og al-
kunna er komu þeir fram sem
upphitunarhljómsveit fyrir Da-
vid Bowie á víðfrægum tón-
leikum hans í Gautaborg í
sumar). Ferðþessarilýkurekki
fyrr en í septcmber.
Hljómsveitina skipa 5
náungar frá Melbourne, Colin
Hay, Greg Ham og Jerry
Speiser, allir 29 ára gamlir,
John Rees, sem er 31 árs, og
Ron Strykcrt, 26 ára gamall,
sem sagt allir heldur í eldri
■ Áströlsku rokkstjörnurnar, sem eru á góðri leið með að sigra heiminn. Talið f.v.: Ron, sem í félagi við Colin semur mest af efni
hljómsveitarinnar. Greg, fyrrum félagi í drengjakór kirkju sinnar. Hann leikur á saxófón og tlautn. Aðalsöngvarinn Colin, driffjöðr-
in í hljómsveitinni. Jerry, sem stundaði vísindanám við háskóla áður en hann gerðist trommuleikari. John, fyrrum tónmennta-
kcnnari, en nú bassaleikari og draumóramaður.
klassanum miðað við rokktón-
listarmenn, sem eru að hefja
feril sinn. Það er fleira ólíkt
með þeim og öðrum nýbökuð-
um rokkhetjum. Þrír þeirra,
þeir Greg, John og Colin eru
háskólagengnir. Ron aftur á
móti vann sem gjaldkeri í
banka. Allir eru þeir ógiftir.
Þeir leggja mikla áherslu á að
þeir séu lítið gefnir fyrir áfenga
drykki og eiturlyf, þeir líti svo
á, að þeir séu í strangri vinnu,
enda beri nafnið á fyrsta al-
búmi þeirra þess vott, en það
nefna þeir, sem fyrr segir Bus-
incss As Usual.
Þeir félagar kunna vel að
meta frægðina, semþeirnjóta
nú. Að vísu eru til á henni
skuggahliðar, eins og þær að
vera álitnir skrýtnir, ef þeir
taka sér fyrir hendur einfalda
hluti, eins og kaupa sér sína
mjólk sjálfir. - Þá segir fólk:
Þetta getur ekki verið hann,
hann hlýtur að hafa þjón til að
gera svona nokkuð, segir
Greg, sem oftast hefur orð
fyrir þeim félögum og slær
gjarna á létta strengi.
Nafnið á hljómsveitinni varð
til, þegar þeir fengu i fyrsta
skipti samning um að koma
fram. Þá leist þeim svo á, að
loks væru þeir komnir í vinnu!
En þeir hafa starfað saman
undanfarin fjögur ár, svo að
ekki er hægt að segja, að
frægðin hafi vitjað þeirra á
einni nóttu.
eru svo sannarlega
MEN ATWORKbúnir að fá
DRAUGAGANGURMN KOM EKN
AÐ TUIUJDUM NUIUM ■
■ Undarleg, ógnvekjandi
hljóð að næturlagi í litla einbýl-
ishúsinu í Suður-Frakklandi
voru um það bil að gera Clau-
detta Brumelot viti sínu fjær af
hræðslu. Og ekki bætti það úr
skák, þegar maður hennar
upplýsti hana um, að framin
hefðu verið fjöldamorð ná-
kvæntlega á þeim stað, sem
húsið var síðar reist. Claudette
pakkaði niður í einum grænum
og flúði heim til mömmu.
En gamla konan hafði ekki
trú á draugum og grunaði, að
ekki væri allt með felldu. Hún
fékk leynilögregluþjón til liðs
við sig og bað hann að kanna
inálið.
Fljótlega kom í Ijós hvers
kyns var. Eiginmaðurinn var
kominn með aðra konu í takið
og átti með henni Ijúfar stundir
i húsinu um nætur. En til að
konan hans hefði hvorki kraft
né skynscmi til að fylgjast með
háttalagi hans, útbjó hann þessi
óhljóð, sem konan hans var
svo upptckin af, að hún sinnti
ekki öðrum. Með því að flæma
hana úr húsinu gerði hann sér
vonir um að halda því fyrir
sjálfan sig.
En málið fór á annan veg.
Claudette fékk skilnað og
helming eignanna, eins og vera
ber.
viðtal dagsins
Skúlptúr- myndasýning að Kjarvalsstöðum
„VERK MfN ERU FYRST
OG FREMST ÓHLimÆG",
— segir Hallsteinn Sigurðsson myndlistarmaður
■ Um þcssar mundir stendur
yt’ir að Kjarvalsstöðum hér í
Reykjavík sýning a.verkum Hall-
steins Sigurðssonar myndlistar-
manns, og stendur sýning hans
til 28. ágúst n.k. Hallsteinn er 38
ára gamalt og lauk námi við
Myndlista- og handíðaskólann
1966 og var síðan við framhalds-
nám í St. Martin’s School of Art
1969-1972. Tíminn náði tali af
Hallsteini þar sem hann var
staddur að Kjarvalsstöðum og
var hann spurður nánar út í
sýningu sína þar og fyrri sýning-
ar.
Þú hefur haldið oft áður sýn-
ingar, er ekki svo?
„Jú, ég hélt nokkrar einkasýn-
ingar hér í Reykjavík á árunum
1971-1972, einnig að Korpúlfs-
stöðum 1975,ogíF.Í.M.-salnum
1980. Einnig hef ég áður sýnt hér
að Kjarvalsstöðum 1981 ogeinn-
ig tekið þátt í samsýningu Mynd-
höggvarafélagsins 1974, 1978 og
1979. Þá hef ég tekið þátt í
útisýningum á Skólavörðuholti
1967 og 1968ogsýningunni Ung-
ir myndlistarmenn 1973. Erlend-
is hef ég sýnt á sýningunni Young
Artists '73 í New York, í Bergen
1975, Sveaborg í Finnlandi 1978,
Middelheim Biennal í Antwerp-
en 1979 og í sýningu norskra
myndhöggvara í Osló 1980."
Hvernig myndir þú lýsa verk-
um þínum?
„Verkum mínum myndi ég
fyrst og fremst lýsa sem óhlut-
lægum, því þær hafa ckki neina
ákveðna skírskotun til einhverr-
ar sögu eða veruleika eins og hjá
svo mörgum öðrum myndlistar-
mönnum. Eins og sést þegar
verk þessi eru skoðuð, kemur í
Ijós, að þau eru eitthvað sent
kalla mætti línur í rími, eða
leikur að rími. Verkin spanna
yfir ákveðið rúmtak en eru ekki
massíft form, og í stað þess að
byggja upp massa í verkunum
■ Hallsteinn Sigurðsson myndlistamaður við eitt verka sinna,
„Adam og Eva.“ Tímamynd Arni Sæberg