Tíminn - 09.08.1983, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
7
■ Margir vilja nú feta í
fótspor Gandhis.
■ Hin margverðlaunaða
kvikmynd um Gandhi, sem nú
eru að hefjasl sýningar á hér
á landi, hefur haft áhrif á
Ýmsum sviðum. Aðalleikarinn,
Ben Kingsley, hefur nú ekki
undan að taka við atvinnutil-
boðum um hvert stórhluterkið
á fxtur örðu. Og sjálft Indland
hefur ekki farið varhluta af
þeim vinsældum, sem myndin
nýtur.
Ahrifin koma fvrst og fremst
fram í því, að ferðalög útlend-
inga til Indlands hafa stórauk-
ist. Einkum eru það Banda-
ríkjamenn og Bretar, sem hafa
fyllst skyndilegum áhuga á
Indlandi og málefnum þess.
T.d. hafa Bandaríkjamenn
aukið ferðir sínar til Indlands
um 20 prósent síðan farið var
að sýna myndina.
SUMIR
BLÍSTRAMEÐ
EYRUNUM!
■ Flestir geta blístrað meö
því að beita vörunum. En þeir
eru færri sem geta blístrað með
eyrunum!
Bandarískur vísindamaður
notaöi sjálfan sig sem tilrauna-
dýr til að komast að raun um,
hvort nokkur hljóð fælust í
mannseyranu. Hann stakk ör-
smáum hljóönema inn i aðra
hlust sína og það skipti engum
togum, hann heyrði ofur háan
tón, þrem áttundum hærri en
mið c-ið. I fyrstu hélt hann að
hann heyrði ofheyrnir. Það var
ekki fvrr en hann hafði gert
svipaðar prófanir á 30 sjálf-
boðaliðum og komist að raun
um að a.m.k. helmingur þeirra
varö fyrir sömu reynslu, að
hann sannfærðist um að hann
væri með blístur í öðru eyranu!
reyni ég að girða rúmið af. Mér
hefur orðið það æ ljösara að það
er hægt að gera heilmikið með
rímið."
Nú sé ég að eitt verka þinna
hér sem ber heitið Adam og
Eva, er nokkuð nýstárlegt og
unnið úr áli. Hvernig vannstu
það?
„Já, að því er ég best veit er
þetta fyrsta útiverkið hér á landi
sem steypt er í ál, ef undan er
skilin kúlan á þaki Heilsuvernd-
arstöðvarinnar. Eins og við vit-
um hefur það verið algengasta
formið hingað til að steypt sé í
brons, en mér þótti það þess
virði að þreiía mig áfram með
álið og sja hvað kæmi út úr því.
Það voru þeir hjá Málmsteyp-
unni Hellu sem steyptu í mótin
fyrir mig eftir að ég hafði unnið
verkið og voru mér mjög hjálp-
legir. Eins og ég sagði hefur hér
verið ákaflega lítið steypt í ál. en
ég er nú með hugmyndir um að
stækka ýmis fyrri verk mín og
steypa í ál. og ekki skaðar það
að nóg er til af hráefninu hér.
Hefðin er að vísu í bronsinu, en
ég held að í framtíðinni verði
álið mun vinsælla og almennara
en nú tíðkast."
Er ekki gífurleg vinna sem
liggur að baki verki eins og
Adam og Eva?
„Jú, þetta hefur verið gríðar-
leg vinna. Mér reiknast til að í
það verk hafi farið um 4 mánuðir
og hafa vinnudagarnir verið
langir. Verkið er soðið saman úr
20 pörtum og síðan slípað og
rúnnað til. Það er mikil ná-
kvæmni sem er fólgin í því að
setja saman svona verk."
Verk þín skreyta að sjálfsögðu
öll helstu listasöfn landsins, ekki
satt?
„Ég veit nú ekki hvað ég á að
segja um það. Það eru til tvær
myndir í Listasafni íslands, fimm
í eigu Reykjavíkurborgar og sjö
í Listasafni Borgarness. Þá gerði
ég veggmynd fyrir Vistheimilið
að Vífilstöðum 1973, minnis-
merki látinna sjómanna á Húsa-
vík 1981 og veggmynd fyrir
Menntaskólann á ísafirði 1982,"
sagði Hallsteinn Sigurðsson að
lokum.
erlent yffirlit
■ ÞAÐ ER stundum komizt
þannig að orði, að vopnin geti
snúizt í höndum manns. Ýmsir
íréttaskýrendur hafa heimfært
þetta upp á Sovétríkin í sam-
bandi við skæruhernað, sem hef-
ur verið og er beitt gegn ríkis-
stjórnum víða um heim.
Sú var tíðin, að Sovétríkin
studdu víða uppreisnarhreyfing-
ar eða sjálfstæðishreyfingar, sem
beittu skæruhernaði. Einkum
gilti þetta, þegar um var að ræða
hreyfingar, sem stóðu langt til
vinstri. Þá studdu Rússar þær á
margvíslegan hátt.
Nú eru mun minni brögð að
þessu en var um skeið. Ástæðan
er m.a. sú, að Rússarhafa fengið
ærið verkefni, þar sem er stuðn-
ingur við ríkisstjórnir í fylgiríkj-
um þeirra. sem eiga í höggi við
hægri sinnaða skæruliða. Hægri
menn hafa tileinkað sér í æ ríkari
mæli þá starfshætti, sem Sovét-
■ Samora Machcl forseti Mósambík
ar fóru þaðan, en beið þá ósigur.
Hinum nýju valdhöfum í Ang-
óla, sem hafði borizt liðsauki frá
Kúbu, tókst þó ekki að vinna
búg á Unita ti! fulls. Henni tókst
að búa um sig í suðurhluta
landsins.
Á síðari árum hefur henni svo
borizt margvísleg hjálp frá stjórn
Suður-Afríku og hefur stöðugt
veriö að færa út yfirráðasvæði
sitt.
Sumar fregnir frá Angóla
herma, að Unita ráði nú að
miklu eða mestu leyti yíir þriðj-
ungi landsins og Kúbumenn
hliðra sér hjá að lenda í átökum
við hana. Þeir leggi meira kapp
á að styrkja varnir í öðrum
hlutum landsins.
Rússar virðast hafa hægt um
sig í Angóla og láta Kúbumenn
að mestu cina um að .styðja
stjórnina. Sumar heimildir telja,
aö Rússar séu ekki mótfallnir
Skæruhernadur beinist
gegn fylgirlkjum Rússa
Andstædingar kommúnista hafa lært
af þeim vinnubrögðin
■ Jonas Savimbi leitogi skæruliða í Angóla
menn voru upphafsmenn að um
skeið.
Bandaríkin hafa hér líka farið
inn á þetta svið, þar sem mest
kvað að Sovétríkjunum áður.
Þau styðja nú t.d. eftir megni
skæruliðahreyfingarnar í Afgan-
istan.
Annars staðar eru það ríki,
sem eru í beinum eða óbeinum
tengslum við Bandaríkin. sem
styrkja urnrædd samtök skæru-
liða. Mest kveður þar að Suður-
Afríku, eins og síðar verður
rakið.
Kínverjar taka einnig þátt í
því að efla skæruhernað, sem
beinist beint eða óbeint gegn
Sovétríkjunum. Mest kveður að
þessu í Kampútseu, en þessa
gætir einnig í sambandi við Af-
ganistan.
GLEGGSTA DÆMIÐ um
skæruhernað, sem Bandaríkin
styðja og beinist óbeint gegn
Sovétríkjunum, erskæruhernað-
urinn, sem verið er að skipu-
leggja gegn Nicaragua, en náin
tengsl eru milli Nicaragua og
Sovétríkjanna. Sovétríkin styðja
mjög eindregið stjórnina í Nicar-
agua og þá stjórnmálaþróun,
sem hefur orðið þar síðan Som-
oza var steypt af stóli. Það væri
pólitískt áfall fyrir Sovétríkin, ef
skæruliðum tækist með öflugum
stuðningi Bandaríkjanna að
koma ríkisstjórn Sandinista frá
völdum.
Sumir fréttaskýrendur telja,
að Rússar myndu telja sig þurfa
að hefna þess á einhverju banda-
lagsríki Bandaríkjanna, t.d.
Pakistan.
Þessir fréttaskýrendur telja
jafnvel, að þctta valdi því, að
Bandaríkjastjórn hiki við að láta
til skarar skríða í Nicaragua.
Innrás í Pakistan gætu Rússar
réttlætt á svipaðan hátt og
Bandaríkin innrás í Nicaragua.
Bandaríkjastjórn telur sig þurfa
að fella stjórn Sandinista vegna
stuðnings hennar við skæruliða í
E1 Salvador.
Rússar gætu sagt, að þeir
neyddust til að ráðast inn í
Pakistan til að koma í veg fyrir
þá aðstoð, sem skæruliðum í
Afganistan berist þaðan.
Eins og áður segir berst skæru-
liðum í Afganistan mikil aðstoð
frá Bandaríkjunum og er ekki
farið neitt dult mcð það. í
Afganistan er langsamlega öflug-
asti skæruhernaðurinn, sem
beinist gegn Sovétríkjunum
sjálfum.
Skæruliðahernaðurinn þar
getur haldizt árum eða áratugum
saman meðan skæruliðum berst
hjálp utan frá. Það er vafalítið
eitt mesta vandamál rússncsku
valdhafanna, hvernig þeir eiga
að komast úr þeirri klípu, sem
þeir hafa sett sig í þar.
í Afríku er það Suður-Afríku-
stjórn, sem styður skæruhernað-
inn, sem beinist óbeint gcgn
Sovétríkjunum. Þessum skæru-
hernaði er beint gegn Angóia og
Mósambik, cn bæði þessi ríki
eru mjög hliðholl Sovétríkjun-
um.
Stjórninni í Angóla hefur,
þrátt fyrir stuðning Kúbumanna.
ekki tckizt að vinna bug á
Unita-samtökunum svoncfndu,
sem eru undir forustu Jonas
Savimbi. Þessi hreyfing var ein
þeirra þriggja, sem börðust um
völdin í Angóla, þegar Portúgal-
því, að Angóla semji við Suður-
Afríku og Bandaríkin á þeim
grundvclli. að þessi ríki hætti
stuðningi við Unita gcgn því að
Kúhumenn haldi heim.
I Mósambík, þar sem ríkis-
stjórnin er nijög hliöholl Rússum
og hcfur notið mikils stuðnings
þeirra, hefur Suður-Afríku-
stjórn cflt skæruliðasamtök, sem
stöðugt eru að gerast umsvifa-
nteiri með tilstvrk hcnnar.
Sumir fréttaskýrcndur telja,
að þessi samtök séu undir stjórn
manna, sem voru í nýlcnduhcr
Portúgala, en misstu atvinnu
sína, þcgar yfirráðum Portúgala
lauk.
Undanfarna mánuöi hafa
þcssir skæruliöar unnið skcmmd-
arverk og hryðjuvcrk víða um
landiö, en aðallega þó í suður-
hlutanum, Þau hafá valdiö ntiklu
efnahagslegu tjóni og mátti þó
Mósambík sízt vjð því, þar sem
þurrkar hafa veriö miklir og
horfir því víða til hungursncyðar
í landinu. Yfir höfuðborginni
vofir að verða vatnslaus.
SÍÐAST, en ekki sízt er svo
að nefna Kampútseu, þar sem
skæruliðar Pols Pot og hægri
manna hafa sameinazt og tekizt
að halda nokkrum hluta landsins
viö landamæri Thailands. Frá
Kína og Bandaríkjununt hefur
skæruliðum borizt svo mikil
aðstoð, að samcinuðum her
Kampútseu og Víetnams hefur
ekki tekizt að brjóta þá á bak
aftur.
Þá vofir stöðugt yfir Víetnam,
að Kínvcrjar cfni til átaka við
landamærin og konti þannig í
veg fyrir, að Víetnamstjórn geti
sent aukinn herstyrk til Kam-
pútseu.
Það. sem hér hefur verið
rakið, gefur ótvírætt til kynna,
að skæruhcrnaði er nú beint
gegn Sovétríkjunum og fylgiríkj-
um þeirra í vaxandi mæli.
Kommúnistar cru ekki lengur
einir um að beita skæruhernaði,
eins og oftast var áður. And-
stæðingar þeirra hafa lært vinnu-
brögðin og njóta stuðnings
Bandaríkjanna og fylgiríkja
þeirra.
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
- ÞB