Tíminn - 03.05.1983, Síða 1
Umsjón: Samúel
örn Erlingsson
Úrslitakeppni 2. deildar fkörfu loks lokið:
Að lokum fóru
Laugdælir upp
— sigruðu Breiðablik í hreinum úrslitaleik
■ Lengstu úrslitakeppni í deild í körfu-
knattleik sem lengi hefur heyrst um lauk
í íþróttahúsi Hagaskóla í gærkvöld. Þá
lauk fjórðu úrslitakeppninni sem haldin
er í annarri deild karla í vetur, og fóru
leikar svo, að Laugdælir, úr Laugardal í
Árnessýslu komust upp í fyrstu deild.
Laugdælir sigruðu Isflrðinga á laugar-
dag, og síðan Breiðablik í gærkvöld
77-62.
í annarri deild karla í körfuknattleik
voru í upphafi fjórir riðlar. Sigurvegari
úr hverjum riðli komst í úrslit, og þegar
liðin fjögur mættust fyrst i úrslitakeppni
fóru leikar svo að íþróttafélag Mennta-
skólans á Egilsstöðum tapaði öllum
sínum leikjum, en Laugdælir, ísfirðingar
og Breiðabliksmenn úr Kópavogi hverjir
aðra. Siðan mættust þessi þrjú lið í
tveimur lokaumferðum í viðbót, og fóru
leikar þá á sama veg, hverjir unnu aðra.
Að lokum setti stjórn KKÍ þær reglur
fyrir fjórðu og síðustu úrslitakeppnina
að stigamunur skyldi ráða, ef svo færi
enn sem farið hafði.
Til þess kom þó ekki, þar eð Laugdælir
unnu báða sína leiki í fjórðu úrslita-
keppninni, og var leikur Breiðabliks og
Laugdæla í gær hreinn útslitaleikur.
Laugdælir unnu 77-66.
Stigahæstur í liði Laugdæla í leiknum í
gær var Sigurður Matthíasson, íslands-
meistari og methafi í atrennulausu há-
stökki, hann skoraði 30 stig. Sigurður
stundar nám í íþróttakennaraskóla ís-
fands á Laugarvatni, eins og reyndar
margir liðsmanna Laugardæla að þessu
sinni. Þó eru eitilharðir körfuboltajaxlar
úr sveitinni einnig í liðinu. Stigahæstir
Blikanna voru Atli Árnason með 18 stig,
og Björn Christensen með 16.
Skóstríð ÍV. Þýskalandi:
Má Atli ekki
leika á Tiger?
— Á því stranda samningarnir við Dusseldorf
■ Snæbjörn Sigurðsson Laugdælingur hefur hér betur í baráttunni um körfuboltann
í úrslitaleik annarrar deildar í gærkvöld gegn Breiðablik. Félagi hans Þorkell
Þorkelsson fylgist grannt með þróun mála. Laugdælir tryggðu sér fyrstu dcildar sæti
í körfuknattleik í gærkvöld, eftir eina lengstu úrslitakeppni sem háð hefur verið í
neðri deildum hér á landi. Tímamynd Róbert
-Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn
■ í lengri tíma hafa framleiðendur á
fótboltaskóm lifað í sátt og samlyndi í
Þýskaiandi. Flest liðin í Búndeslígunni
hafa að vísu auglýst Adidas, en Bremen,
Dusseldorf, Gladbach og Hertha Berlin
hafa þó veríð með Puma. Á síðustu
misserum hafa þó nýir erlendir framleið-
endur komið inn í myndina, og ber þar
hæst bandarískt fyrirtæki sem framleiðir
Pony skó. Fyrirtækið hefur reynt með
margvíslegum ráðum að komast inn á
þennan verndaða markað, m.a. hafa
þeir reynt að fá þekkta leikmenn til þess
að taka hliðarspor á Ponyskom, og orðið
vel ágengt.
f Kicker í gær segir, að Atli Eðvalds-
son hafi á síðustu stundu hafnað mjög
■ Eitthvað virðist Liverpool-liðið hafa
brotnað við að fara að tapa leikjum,
svona rétt í lokin á tímabilinu, þegar
■ueistaratitillinn var í höfn, eða svo til.
Liðið tapaði fjórða leiknum í röð í
gærkvöld, að þessu sinni fyrir Notting-
ham Forest í Nottingham. Þá hefndi
Arsenal heldur betur ósigranna fyrir
Manchester United í undanúrslitum
beggja ensku bikarkeppnanna, skellti
United svo um munaði 3-0 á Highbury.
Remi Moses, hinn baráttuglaði tengi-
liður Manchester United fékk að sjá
rauða spjaldið í gærkvöld í leiknum gegn
Arsenal, fimm mínútum fyrir leikslok.
Afleiðingin er tveggja leikja bann, sem
byrja þarf að afplána innan 14 daga, sem
þýðir að Moses missir af úrslitaleik
bikarkeppninnar. Moses var rekinn útaf
eftir grimmdarlegt brot á Peter Nicholas,
og sá sem fylgdi Moses til búningsklefans
var sjálfur framkvæmdastjóri Manchest-
góðu tilboði frá Frakklandi, því japansk-
ur skóframleiðandi, Tiger, hafi gert
honum mjög girnilegt tilboð varðandi
auglýsingar á þessari tegund á íslandi.
Atli mun hafa gert það að skilyrði þegar
rætt var um áframhaldandi veru hans
hjá Dusseldorf að hann fái að nota og
auglýsa þessa skó. Fái hann það ekki, sé
hann hins vegar farinn. Dússeldorf hefur
hins vegar alltaf notað og auglýst Puma-
skó, og hyggur ekki á breytingu, þannig
að óljóst er með framtíð Atla.
„Þetta er orðið að úlfalda“
„Þessi mýfluga sem stóð í veginum
fyrir samningunum er orðin að úlfalda",
sagði Atli Eðvaldsson í samtali við
Tímann í gærkvöld, þegar hann var
er United, Ron Atkinson. Atkinson
fékk reisupassann af bekknum, eftir að
hafa mótmælt kröftuglega brottrekstri
Moses. Þar með hafa bæði liðin sem
leika á Wembley misst einn mann í
bann, Brighton missti Steve Foster á
laugardag. Brian Talbot var enn einu
sinni á skotskónum hjá Arsenal, skoraði
tvö mörk, og hefur nú skorað 6 mörk í
undanförnum þremur leikjum! Fyrir*
liði Arsenal, David O’Leary skoraði eitt.
Peter Davenport skoraði eina mark
Nottingham Forest gegn Liverpool, eftir
að hafa leikið á Graeme Souness laglega,
og síðan á Bruce Grobbelaar.
Watford eitt þriggja toppliða var næst-
um búið að fara eins illa, þar var staðan
orðin 2-1 Sunderland í hag, og Luther
Blissett bjargaði stigi með því að skora
sitt annað mark í leiknum á 88. mínútu.
Það er líklegt að þeir í Sunderland séu
ekki par hrifnir af Blissett, hann skoraði
inntur eftir þessum málum. „Þetta
strandar á því að Dusseldorf hefur
samning við Puma, en Tiger hefur boðið
mér samning. Meðan ég er á samningi
við Dusseldorf, má ég ekki skrifa undir
þennan skósamning. En ef ég skrifa
undir skósamninginn þegar samningur-
inn við Dusseldorf er útrunninn er ég
ekki bundinn af því. En þá gæti aftur á
móti Puma stöðvað samning minn eða
sinn, við Dússeldrof, þar eð ég leik á
öðrum skóm. Samt vill Puma fyrirtækið
ekki taka ábyrgð á því, ef ég þarf að rifta
samningi við Dússeldorf."
„Ég hef ekki heyrt neitt ákveðið frá
Dússeldörf um þetta mál, og þess vegna
get ég'ekkert sagt um hvað gerist enn,“
sagði Atli.
nefnilega fjögur mörk í fyrri leik liðanna,
en þá vann Watford 8-0.
Annars tóku botnliðin kipp mikinn,
Swansea skellti Aston Villa, og er nú
komið í næst neðsta sæti, en Brighton er
neðst, gerði í gærkvöld jafntefli við
Birmingham sem enn rúllar upp stiga-
töfluna, meðan kular æ meir um Manc-
hester City.
í annarri deild skýrðust línur aðeins,
Queens Park Rangers orðnir sigurvegar-
ar deildarinnar, með sigri á Fulham 3-1,
og Wolverhampton er nú öruggt með að
komast upp í fyrstu deild, hvað sem
gerist, eftir að hafa krækt í eitt stig í 3-3
leik í Charlton. Og nú er Leicester búið
að ná þriðja sætinu af Fulham, gerði
jafntefli við Leeds á Elland Road 2-2.
John Gregory, Simon Stainrod og
Gordon Davies skoruðu fyrir 2. deild-
armeistarana gegn Fulham. Þá skoraði
Graeme Sharp úr víti fyrir Everton gegn
Broddi og
Guðmundur úr
leik
■ Guðmundur Adolfsson vann óvænt
í fyrstu umferð undankeppni HM f
badminton í Kaupmannahöfn Perú-
manninn Federico Valdez 15-9,17-18og
15-11. Guðmundur tapaði síðan fyrir
V-Þjóðverjanum Rússeler 10-15 og 8-
15. Broddi Kristjánsson fór létt gegnum
fyrstu umferð, Norðmaður sem hann
átti að leika við mætti ekki. í annarri
umferð tapaði Broddi fyrir Nígeríu-
manni, Samson Egbeyemi 15-18 og 10-
15. Báðir eru því úr leik. Stúlkurnar í ísl.
liðinu keppa í vikunni.
Coventry, og þar var 13. leikurinn í röð
hjá Coventry án sigurs.
■ Urslit urðu þessi í ensku knattspyrn-
unni í gær:
1. deild:
Swansea-Aston Villa ............2-1
Arsenal-Man.United .............3-0
Birmingham-Brighton.............1-1
Everton-Coventry................1-0
Luton-Stoke.....................0-0
Nott.Forest-Liverpool ..........1-0
Sunderland-Watford..............2-2
West Bromwich-Norwich ..........1-0
2. deild:
Boiton-Grimsby .................0-0
Charlton-Wolverhampton..........3-3
Chelsea-ShefT.Wednesday.........1-1
Leeds-Leicester.................2-2
Q.P.R-Fulham....................3-1
Víkingur vann
■ Víkingur vann Þrótt í gærkvöld í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu 2r0
Þá sigraði Valur KR 1-0 á laugardag.
Víkingar eru nú orðnir efstir á Reykja-
víkurmótinu með 11 stig, en Fram
kemur næst með 9 stig og á leik til góða.
STAÐAN
1. DEILD:
Liverpool.... 40 24 9 7 85 34 81
Watford...... 40 21 5 14 71 53 68
Nott. Forest... 40 19 8 13 57 48 65
Man. United .. 38 17 13 8 49 32 64
Aston Villa ... 39 20 4 15 59 48 64
Everton...... 40 17 9 14 60 46 60
Tottenham ... 38 17 9 12 : 57 46 60
Southampton . 39 15 12 12 53 54 57
Stoke ........ 40 16 9 15 52 57 57
WestHam .... 38 17 4 17 59 56 55
Arsenal...... 39 15 10 14 54 52 55
Ipswich...... 39 14 12 13 59 46 54
WestBrom. ... 40 14 11 15 49 48 53
Norwich...... 40 13 11 16 48 55 50
Notts County . 40 14 7 19 52 67 49
Luton........ 39 11 13 15 63 76 46
Sunderland ... 40 11 13 16 46 60 46
Coventry..... 40 12 9 19 43 55 45
Birmingham .. 40 10 14 16 37 55 44
Man. City .... 40 12 8 20 46 69 44
Swansea ...... 39 9 11 19 50 64 41
Brighton ..... 40 9 13 13 37 65 40
2. DEILD:
Q. P. R . 39 25 6 3 73-32 31
Wolverhampt.. . 40 21 13 6 65-39 76
Leicester . 40 19 9 12 70-43 66
Fulham . 40 19 9 12 62-46 66
Newcastle .... . 39 16 12 11 66-50 60
Sheff. Wed. ... . 40 15 15 10 57-44 60
Oldham . 40 13 19 8 59-44 58
Leeds . 40 13 19 8 49-44 58
Shrewsbury .. . 39 15 13 11 47-45 58
Barnsley . 39 14 13 12 56-49 55
Blackburn .... . 39 13 12 14 54-55 51
Cambridge ... . 39 12 11 16 38-54 47
Carlisle . 39 12 10 17 65-65 46
Derby . 39 9 19 11 47-52 46
Grimsby . 40 12 9 19 43-68 45
Bolton . 40 11 11 18 41-56 44
Middlesbrough . 39 10 14 15 44-66 44
Chelsea . 40 10 13 17 50-61 43
Charlton . 40 12 7 21 58-85 43
Crystal Pal. ... . 38 10 12 16 37-47 42
Rotherham ... . 40 9 14 17 40-65 41
Burnley . 37 10 6 21 51-62 36
SOE
Enska knattspyrnan í gærkvöld:
MIKILL SPRETRJR Á BOTNUÐUNUM
UVERPOOL LA I 4. SINN í RÖD
— Remi Moses missir af bikarúrslitaleiknum á Wembley