Tíminn - 03.05.1983, Síða 2
12
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
13
íþróttir;
PETUR OG ATU ATTU GÚD-
AN LEIK GEGN BREMEN
— en Bremen vann Dusseldorf samt 5:2
-Frá Magnúsi Olafssyni í Bonn:
■ Framherjar Fortuna Dusseldorf,
þeir Atli Eðvaldsson og Pétur Ormslev
verða ekki áskaðir um stórtap liðsins
gegn Bremen um helgina, því þeir áttu
báðir skínandi leik. Það var fyrst og
fremst ótrúlega götótt vörn liðsins, svo
og stórleikur Völlers, sem gerði útslagið.
. Strax á 4. mínútu leiksins átti
Bommer, Dússeldorf þrumuskot í þver-,
slána, og var það ef til vill tákn þeirrar
óheppni sem elti liðið í leiknum. Þrátt
fyrir fyrsta mark Rudi Völlers á 12.
mínútu, það fyrsta af þremur, lék Dúss-
eldorf betur, og þá aðallega gegnum
Pétur Ormslev. Hann missti þó af gullnu
tækifæri, og eins Atli, en í staðinn
HSV VANN OR-
UGGANSKUR
— á lélegu Stuttgartlidi 2:0
-Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ HSV sigraði VFB Stuttgart örugg-
lega 2-0 í Hamborg á laugardaginn, og
eru því þýsku meistararnir enn með í
■ Sigi Gruninger var vara mark-
vörður, og var ekki talinn eiga sér
neina framtið sem atvinnuknattspymu-
markvörður, en annað hefur komið
á daginn í leikjum Stuttgart aö
undanförnu.
kapphlaupinu um titilinn. Reyndargetur
HSV frekar þakkað veiku Stuttgart liði
sigurinn, en sterku HSV-liði. í öllum
leiknum þurfti Stein, markvörður HSV
aðeins tvisvar að taka á boltanum, og
það á móti einu marksæknasta liði
Búndeslígunnar.
Það voru þeir von Heesen og Magath
sem skoruðu mörk HSV í seinni hálfleik,
og mörkin hefðu getað orðið fleiri, ef
ekki hefði komið til stórleikur Grúnin-
gers í markinu. Þessi lítt virti vara-
markvörður Stuttgart hefur nú sýnt í
leikjunum gegn Bayern og HSV að hann
eigi annað skilið en varamannabekkinn.
Þá tókst Karl-Heins Förstcr að halda
Hrubesch niðri, en aðrir leikmenn VFB
stóðu sig illa. Ásgeir fékk 4. einkunn
(þolanlegur) hjá Kicker, og er orðið
langt síðan hann hefur farið svo neðar-
lega.
Hjá HSV var Rolff eini landsliðsmað-
ur þeirra yfirburðamaður, og maðurinn
bak við flest allt sem gert var.
Enda þótt flestir spái nú að Bremen
sigri Bundeslíguna, þar sem liðið á
aðeins botnliðin eftir, er HSV óneitan-
lega inni í myndinni, og þá sérstaklega
þar sem Stuttgartliðið tapaði um helgina.
En HSV á eftir að fá bæði Dortmund og
Köln í heimsókn, þannig að vel verður
liðið að spila til þess að sigra.
skoraði Bremen tvö mörk skömmu fyrir
leikhlé, þar voru að verki Völler og
Gruber. í seinni hálfleik skoraði Fach
tvisvar fyrir Fortuna, en Völler og
Bracht fyrir Bremen.
Það var ánægjulegt að sjá loks al-
íslenska framlínu Dusseldorf, og eins
ánægjulegt hversu vel þeir Pétur og Atli
léku. Pétur ásamt Fach var besti maður
liðsins, og Atli fékk þriðju einkunn, sem
þykir gott. Pétur hefur nú verið í tvö ár
hjá Dússeldorf, en ákaflega lítið fengið
að spila. Hugmyndin með að láta hann
spila þennan leik var einfaldlega sú að
vekja áhuga annarra félaga á honum.
Vandamálið nú er hins vegar, að áhugi
Dússeldorf hefur vaknað aftur, og þeir
hafa þegar þrjá útlendinga í liðinu, Atla,
Pétur og Jarcki, sem er Pólverji.
I Kicker í gær er fjallað um Pétur í
mjög jákvæðum tón, og vandamál Dúss-
eldorf í þessu sambandi. 1 greininni
gefur Kicker til kynna að ferill Péturs
hjá Dússeldorf sé alls ekki á enda, og
vitnar í því sambandi bæði í formann
félagsins, og þjálfara.
■ Pétur Ormslev átti góðan leik
með Fortuna Dússeldorf um helgina,
og Kicker segir að það sé allt eins
líklegt að Dússeldorf bjóði honum
nýjan samning.
GUMMERSBACH
EVRÓPU MEISTARI
í HMMTA SINN
sigradi ZSKA nógu stórt í Moskvu
■ Þrátt fyrir 13-14 tap á heimavelli
gegn sóvésku meisturunum ZSKA frá
Moskvu, sigraði Gummersbach, vestur
þýska stórliðið, í fimmta sinn í Evrópu-
keppni meistaraliða um helgina, þarsem
Þjóðverjarnir höfðu sigrað örugglega í
fyrri leik liðanna, 19-15 í Moskvu í
síðustu viku.
Erhardt Wunderlich var markahæstur
að venju hjá Gummersbach með 7
mörk.., en Fey (4), og Krokowski (2)
sáu um afganginn. Þrátt fyrir fjóra
heimsmeistara í liðinu, og feikisterka
vörn tókst Rússunum ekki að sigra með
meiri mun,og mega Þjóðverjarnir þakka
landsliðsmarkverðinum Thiel sigurinn,
en hann varði oft stórglæsilega. Þessi
sigur er mikil sárabót fyrir þýskan hand-
STAÐAN
■ Úrslit í þýsku Búndeslígunni um
helgina urðu þessi:
VFL Bochum-FC Köln 0-0
Leverkusen-Schalke o4 3-1
Frankfurt-Kaiserslautern 2-2
Dússeldorf-Werder Bremen 2-5
Hamburger SV-VFB Stuttgart 2-0
Brunsweig-„Gladbach“ 0-0
Bayern Munchen-Hertha Berlin 4-0
Arminia Bielefeld-Bor.Dortmund 1-0
Karlsruher SC-FC Núrnberg 2-1
Staða efstu liða er nú þessi:
Hamburger SV 29 16 11 2 66-28 43
Werder Bremen 29 19 5 5 63-34 43
Bayern Munchen 29 16 9 4 67-23 41
VFB Stuttgart 28 15 7 6 64-38 37
FCKöln 29 14 9 6 60-35 37
FC Kaisersla. 29 12 12 5 49-35 36
Antwerpen er
búið að missa
af lestinni
— tapaði fyrir Anderlecht
um helgina
■ Pétur Pétursson og félagar í Ant-
werpen eru búnir að missa af lestinni
varðandi það að vinna belgíská meistara-
titilinn. Pétur og félagar töpuðu um
helgina fyrir Anderlecht 1-2, og nú skilja
liðin 4 stig, sem er full mikið, þegar
VERÐUR VOLLER
MARKAKÓNGUR?
— hefur nú þriggja marka
forskot á Rummenigge
■ - Frá Magnúsi Olafssyni í Bonn:
Allt bcndir nú til að Rudi Völler,
stjama Werder Bremen verði marka-
kóngur Búndeslígunnar. Völler skoraði
þrjú mörk gegn Atla og félögum um
helgina, og hefur nú skorað þremur
mörkuni fleira en Karl-Heinz Rummen-
igge. Annars lítur listinn svona út:
Völler, Bremen ....................21
Rummenigge, Baycrn................ 18
Búrgsmúller, Dortmund............. 15
Allgöwer, Stuttgart ...............15
Littbarski, Köln ................. 15
Hrubesch, HSV .................... 15
Cha, Frankfurt.....................14
Höness, Bayern ....................13
Eðvaldsson, Dússeldorf ........... 12
Breiðablik
vann
Hauka
■ Breiðablik vann Hauka í Litlu Bikar-
keppninni í knattspyrnu um helgina í
karlaflokki. Úrslitin í leiknum voru 5-2.
Dómarinn hafði nóg að gera í leiknum,
og rak út af tvo leikmenn Haukanna.
Reichert, Stuttgart
Milewski.HSV ...
12
12
■ Nú er Rummenigge ekki lengur
markahæstur í Þýskalandi.
aðeins eru eftir 4 umferðir í deildinni.
Pétur Pétursson skoraði fyrír Antwerp-
en í leiknum, en það dugði ekki til.
Danirnir í liði Anderlecht skoruðu báðir,
Olsen og Brylle, og Anderlecht siglir nú
hraðbyri í átt til meistaratitilsins.
Tongeren og CS Brugge gerðu jafn-
tefli, og íslendingarnir í liðunum, Magn-
ús Bergs hjá Tongeren, og Sævar
Jónsson og Ragnar Margeirsson hjá CS
Brugge þar með jafnir eftir þann daginn.
Arnór Guðjohnsen lék að nýju með
Lokeren; en það dugði ekki til, Lieras
vann 2-1.
Úrslit urðu annars þessi í Belgíu um
helgina:
Beerschot-Molenbeek 1-1
Tongeren-CS Brugge 0-0
FC Brugge-FC Liege 3-1
Anderlecht-Antwerpen 2-1
Seraing-Beveren 3-1
Waterschei-Courtrai 3-1
Lokeren-Lierse 1-2
Waregem-Gent 1-2
St. Liege-Winterschlag 3-0
Anderlecht er efst í Belgíu með 45
stig, Standard Liege hefur 44 stig, Ant-
werpen 41. íslendingaliðin í. deildinni
sigla flest nokkuð lygnan sjó, nema
Tongeren, sem er í verulegri fallhættu.
/A vann í
litlu bikar-
keppni
kvenna
■ ÍA vann í Litlu Bikarkeppninni í
kvennaflokki um helgina. Einungis tvö
lið tóku þátt í keppninni, og sigraði íA
Breiðablik 3-2 á Skaganum. Laufey
Sigurðardóttir skoraði tvö mörk fyrir
Akranes, en Bryndís Einarsdóttir skor-
aði bæði mörk Breiðabliks. Þar með
telst í A sigurvegari í mótinu, sem átti að
fara fram á sunnudag með þátttöku
þriggja liða, en þau urðu ekki nema tvö.
bolta, sem hefur átt erfitt uppdráttar á
alþjóðlegum vettvangi að undanförnu.
umsjón Samúel Örn Erlingsson
■ Erhard Wunderlich skoraði lið-
lega helming marka Gummersbach
gegn ZSKA Moskva um helgina.
HAFNFIRÐINGAR BESTIR
Hafnfirðingar voru bestir í aprílmóti
Billagrills í snóker sem haldið var í
Billagrilli Hverfisgötu 46 í vikunni.
Keppendur voru 34 og keppt í fjórum
riðlum. Þrír komust í úrslitakeppnina úr
hverjum riðli, og var úrslitakeppnin í
tveimur riðlum. Sigurvegarar úr hvorum
riðli léku síðan til úrslita, og þeir sem
urðu í öðru sæti um þriðja sætið í
keppninni. í úrslitaleik sigraði Hafnfirð-
ingurinn Jón Þórðarson sambæing sinn
Geir Bjamason eftir harða og tvísýna
keppni. Sverrir Júlíusson einnig úr Hafn-
arfirðl varð í þriðja sæti, hann keppti um
það við Jónas Kristjánsson frá Reykja-
vík, sem varð fjórði þegar upp var
staðið. Bikarar voru í verðlaun fyrir
fyrstu þrjú sæti mótsins, og auk þess
■ Pétur Pétursson skoraði gegn
sínu gamla félagi um helgina.
fékk sigurvegarinn gulikveikjara að gjöf,
ogsá sem varð í öðm sæti stálkveikjara.
Keflavík
sigraði
■ Keflvíkingar sigruðu FH-inga um
helgina í Litlu bikarkeppninni í knatt-
spymu á Kaplakrikavelli, 3-1. Keflavík
hefur enn ekki tapað leik í Litlu Bikar-
keppni karla, og er efst með 8 stig.
BUM KUN
CHA VILL
FARA
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Bum Kun Cha, einn besti framherji
Búndcslígunnar, vill fara frá Frankfurt
og aðeins til liðs sem tekur þátt í
Evrópukeppni. Tvö iið virðast nú aðeins
koma til greina, Stuttgart, og Inter
Milanó. Á flugvellinum í Frankfurt síð-
astliðinn laugardag ræddi Cha við þá
Förster bræður, sem voru að koma frá
Hamborg, en Cha var þá á leið til
MilanóJntcr Mílanó hefur mikinn áhuga
á að fá þennan mikla markaskorara til
liðs við sig, og hafa upphæðir í kringum
tvær milljónir marka vcrið nefndar í
þessu sambandi (um 19 milljónir ísl.
króna).
VÉSTÐNN ÍÞRÓTTA-
MADIIR H.S.K. 1982
■ Á héraðsþingi Héraðssambandsins
Skarphéðins, sem haldið var í Gunnars-
hólma í Austur-Landeyjum í lok febrúar
s.l. var Vésteinn Hafsteinsson, frjáls-
íþróttamaður á Selfossi kjörinn íþrótta-
maður H.S.K. 1982.
Aðalkeppnisgrein Vésteins er kringlu-
kast, og bætti hann áran gur sinn í grein-
inni verulega á s.l. ári og kastaði þá
59,48 m. sem er þriðji besti árangur
íslendings í þessari keppnisgrein frá
upphafi.
I kúluvarpi, sem er aukagrein hjá
Vésteini kastaði hann lengst 16,49 m. á
s.l. ári.
Vésteinn Hafsteinsson stundar nú
háskólanám í Alabama í Bandaríkjun-
um, og hefur hann nú þegar á þessu ári
kvittað fyrir tilnefninguna, með sex -
H.S.K.-metum, bæði í kringlukasti og
kúluvarpi, og hefur kastað kringlunni
60.70 m. sem veitir honum rétt til keppni
á Bandaríska háskólameistaramótinu í
byrjun júní, og Heimsmeistaramótinu í
Helsinki í sumar.
Vésteinn þarf nú aðeins að bæta sig
um 30 cm. í kringlukastinu til þess að ná
olympíulágmarkinu en það er 61 m.
Þá hefur Vésteinn einnig bætt árangur
sinn í kúluvarpinu frá í fyrra og kastað
lengst 17,17 m.
Nettelstedt
vann
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Nettelstedt sigraði botnliðið Dietzenback
örugglega 32-23 í Búndeslígunni í handbolta í
Þýskalandi um helgina. Bjarni Guðmundsson
var markahæstur sinna manna með 9 mörk. og
Sigurður Sveinsson skoraði 3 mörk. Þátt fyrir
sigurinn er staða Nettelstedt slæm. Liðið er í
næst neðsta sæti með 14 stig, en liðið fyrirofan,
Essen er með 16 stig og á leik til góða.
Vésteinn Hafsteinsson
■ Bjarni Guðmundsson skoraði 9 mörk fyrír
Nettelstedt um helgina.
Óvænt úrsiit
á Spáni:
Bilbao
meistari
■ Óvænt úrslit urðu í fyrstu deildur keppninni
i knattspymu á Spáni um helgina, og afdriíarík,
Atlctico Bilbao stóð uppi sem sigurvegari í
fyrstu deildinni þegar leikjunum var lokið.
Real Madrid, sem var efst fyrir helgi tapaði
óvænt fyrir Valencia, sem átti í mikilli fallbar-
áttu, 0-1, ogBiIbao, sem var í öðru sæti, vann
stórsigur á Las Paimas, 5-1. Þetta dugði Bilbao,
sem ekki hefur orðið spánskur meistari í
hartnær þrjá áratugi.
Las Palmas náði þó forystunni í leiknum
gegn Bilbao, en Bilbao jáfnaði og komst einu
marki yfir fyrir leikhlé. Þetta fréttist til Valen-
cia, þar sem staðan í háifieik var 1-0 Valencia
í hag, en markið hafði HM ieikmaðurinn
Miguel Tendillo skoraði á 38. mfn. Lcikmcnn
Real Madrid mættu mjög ákveðnir til leiks í
síðari hálfleik, en það kom fyrir ekki. inn vildi
tuðran ekki. Þar með varð Real Madrid að bíta
í gallsúrt epli.
Lokastaðan meðal efstu liða á Spáni varð
þessi:
Atl. Bilbao ....... 34 22 6 6 71-36 50
Real Madrid........ 34 20 9 5 57-25 49
Atl. Madrid........ 34 20 6 8 56-38 46
Barcelona .........34 17 10 7 60-29 44
Sevilla........... 34 16 12 7 44-31 42
Zaragoza.......... 34 17 6 11 59-39 40
Lens sigraði
■ Lens, lið Teits Þóroirsonar sigraði um
helgina St. Etienne 4-2 á heimavelli. Á meðan
tapaði Laval 0-2 á útivelli fyrir Lyon. Hvorki
Teitur né Karl Þórðarson léku með liðum
sínum um helgina, Teitur hefur átt í crfiðleikum
með að ná sæti í iiðinu síðan hann náði sér af
meiðslunum, og Karl á við meiðsli að stríða.
Náms-eða
starfsstyrkir
Til að efla og auka iðnhönnun á íslandi var
ákveðið á aðalfundi íslensks markaðar h.f. að
veita tvo náms-eða starfsstyrki á þessu sviði.
Styrkirnir eru hver um sig kr. 60.000, (verðtryggð-
ar) og er öllum sem hyggja á nám í iðnhönnun
eða vinna að ákveðnu verkefni á þessu sviði
heimilt að sækja um styrki þessa.
Umsóknum sé skilað til íslensks markaðar h.f.,
235 Keflavíkurflugvelli fyrir 31. maí n.k., ásamt
greinargóðri lýsingu á fyrirhuguðu námi eða
starfstilhögun.
Náms- eða
starfsstyrkir.
Til að efla og auka iðnhönnun á íslandi var
ákveðið á aðalfundi íslensks markaðar h.f. að
veita tvo náms- eða starfsstyrki á þessu sviði.
Sty rkirnir eru hvor um sig kr. 60.000.- (verðtryggð-
ar) og er öllum sem hyggja á nám í iðnhönnun
eða vinna að ákveðnu verkefni á þessu sviði
heimilt að sækja um styrki þessa.
Umsóknum sé skilað til íslensks markaðar h.f.,
235 Keflavíkurflugvelli fyrir 31. maí n.k., ásamt
greinargóðri lýsingu á fyrirhuguðu námi eða starfs-
tilhögun.
ISLENSKUR MARKAÐUR HF.
Aðalfundur
Aðalfundur Hagtryggingar h.f. árið 1983 verður
haldinn í Domus Medica við Egilsgötu laugardag-
inn 7. maí og hefst kl. 14.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykktafélagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar
verða afhentir hluthöfum eða öðrum með skriflegt
umboð frá þeim í skrifstofu félagsins að Suður-
landsbraut 10, Reykjavík dagana 4.-7. maí á
venjulegum skrifstofutíma.
Stjórn HAGTRYGGINGAR h.f.
/2%
js OOO fti
W
Starfsfólk
í Veitingahúsum
Umsóknir um dvöl í sumarhús félagsins að
Svignaskarði og Húsafelli þurfa að berast til
skrifstofu félagsins fyrir 15. maí 1983.
Félag starfsfólks í veitingahúsum Hverfisgötu 42.
Sveit
23ja ára maður óskar eftir að komast á gott
sveitaheimili.
Hef reynslu.
Upplýsingar í síma 91-45851.