Tíminn - 03.05.1983, Qupperneq 4
14
fþróttirl
ISiiMiií
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ1983.
enska knattspyrnan
LOKSINS ER MEISTARATITiLL-
INN í HÖFN HJA UVERPOOL!
þó töpuðu þeir raudu fyrir Tottenham um helgina
■ Livcrpool, lið sem búið er að vera
í sérflokki síðastliðið keppnistímabil á
Englandi, og verið þar í efsta sæti
síðan í október, er nú loks öruggt með
enska mcistaratitilinn í knattspyrnu.
Sjötti meistaratitill félagsins á átta
vertíðum og í sjötta sinn sem félagið
verður meistari, þær níu vertíðar sem
Bob Paisley hefur verið við stjórnvöl-
inn.
Það var þó ekki með þeim glæsibrag
sem hefur einkennt Liverpool i vetur,
sem félagið tryggði sér titilinn. Liver-
pool tapaði 0-2 í Tottenham á iaugar-
dag, en á meðan gerði Manchester
United, eina liðið sem átti möguleika
á að ná Liverpool að stigum, jafntcfli
1-1 við Norwich á heimavelli Norwich,
og þar með var sá fjarlægi möguleiki,
að Man. Utd. næði Liverpool úr
sögunni. Um leið tryggði Norwich,
sem um tíma var í verulegri fallhættu,
fyrstu deildar sætið, og hefur ekki
tapað leik 10 leiki í röð.
Swansea og Manchester City virtust
eftir leikina á laugardag vera líklegustu
fallkandidatarnir ásamt Brighton.
Brighton tapaði 0-1 fyrir Notts County,
og er nánar fjallað um það hér annars
staðar á síðunni. Swansea gerði jafn-
tefli 1-1 við Ipswich á heimavelli, og er
nú allt útlit fyrir að velska liðið, sem
var í 6. sæti í fyrstu deild á síðasta
keppnistímabili og kom þá mjög á
óvart nýkomið upp úr annarri deild,
falli í aðra deild að nýju, hefur aðeins
38 stig, einu minna en Brighton hafði
eftir leiki laugardagsins og á aðeins
þrjá leiki eftir. Manchester City sem
tapaði 1-2 fyrir Nottingham Forest er
nú fjórða frá botni og hafði 44 stig.
City hafði aðeins einu stigi meira en
Birmingham, sem var þriðja frá botni
með 43 stig, og það verður að segjast,
að af þessum tveimur liðum er nú
Birmingham mun líklegra til að halda
sér í deildinni, og þarf ekki annað en
að líta á árangur liðanna undanfarnar
vikur til að mynda sér skoðun á því.
Birmingham sem e.r vant botnbaráttu-
lið, ef svo má segja, hefur nú unnið
hvern leikinn á fætur öðrum, og nú
síðast á laugardaginn Sunderland 2-1.
Queens Park Rangers eru, eins og í
Ijós kom fyrir rúmri viku, öruggir með
fyrstu deildar sætið, og líklegastir til að
fylgja þeim fast eftir eru Úlfarnir. En
hvaða lið verður þriðja lið til að fara
upp, er ekki eins Ijóst nú og það
kannski þótti fyrir nokkrum vikum,
þegar Fulham var skammt að baki og
langt í næstu lið. En lið er nefnt
Leicester, sem var tólf stigum á eftir
Fulham, þegar sá tími var sem hér
áður er vísað til. Leicester hefur átt
mikilli sigurgöngu að fagna undanfarn-
ar vikur, meðan gengi Fulham hefur
verið skrykkjótt. Fyrir rúmri viku
sigraði einmitt Leicester Fulham á
heimavelli Fulham 1-0, og þá skildu
ekki nema 2 stig lengur. Og nú á
laugardaginn dró heldur saman: Ful-
ham tapaði 2-1 fyrir Sheffield Wednes-
day og Leicester gerði jafntefli 0-0 við
Bolton, og reyndar heima. Nú skilur
bara eitt stig, og allt getur gerst.
Archibald á skotskónum
Skoski landsliðsmaðurinn Steve
Archibald, loks kominn yfir meiðsli og
kominn á fulla ferð í sókninni hjá
Tottenham, skoraði bæði mörkin sem
færðu Tottenham sigur yfir Liverpool.
Liverpool gat þó fagnað titlinum,'
vegna jafnteflis Man. Utd. og baráttan
um UEFA sætin er í algleymingi,
Aston Villa og Nottingham Forest
unnu líka. Archibald skallaði inn fyrir-
gjöf frá Glenn Hoddle á 49. mín., og
skoraði það seinna fjórum mínútum
síðar með snaggaralegu gegnumbroti.
Fyrirliði Liverpool, Phil Thompson,
sem nú er kominn inn í liðið á ný eftir
meiðsli, sagði eftir leikinn: „Þetta er
ekki hátturinn sem við vildum hafa á
við að vinna titilinn, og við fengum
heldur betur titla í búningsklefanum
eftir leikinn. Með þrjú töp í röð á
bakinu, er jafnvel hægt að segja að við
höfum unnið titilinn með heppni á
vissu tímabili, en það er virkilega
indælt að hafa meistaratitilinn öruggan
í töskunni.“
Enn stig til Norwich
Norman Whiteside, pjakkurinn frá
írlandi, skoraði fyrsta mark leiksins
þegar Manchester United hélt til
Norwich til að kljást þar við heima-
menn. Mark írans var ekki nóg, því að
Mark Barham jafnaði fyrir Norwich,
og United er enn í þriðja sæti.
Watford, liðið sem mest hefur kom-
ið á óvart í vetur, nýkomið upp úr
annarri deild, og er í öðru sæti deildar-
innar, er nú að hressast eftir fremur
slakan kafla undanfarnar þrjár vikur.
Watford fékk Arsenal í heimsókn, og
það voru gestirnir sem skoruðu fyrstir.
Þar var að verki Brian Talbot sem
gerði þrennu fyrir rúmri viku. Talbot
skoraði rétt í byrjun síðari hálfleiks,
en John Barnes jafnaði fyrir Watford.
Luther Blissett skoraði síðan sigur-
markið úr vítaspyrnu seint í leiknum,
svo að það voru svörtu perlurnar sem
skinu skærast á Watford á laugardag-
inn.
Coventry varð að sætta sig við tap á
heimavelli gegn West Bromwich Albi-
on, það var Mike Perry sem skoraði
sigurmark gestanna.
Ian Wallace og Pete Davenport
skoruðu fyrir Nottingham Forest áður
en Graham Baker lagaði stöðuna fyrir
Man. City eftir góða sendingu frá
KevinBond. Ekki tókstCityaðjafna.
Það var Birmingham stíll á sigri
samnefnds liðs á laugardag, tíu mínú-
tum fyrir leikslok höfðu Sunderland
strákarnir yfir 1-0, en Andy Blair
jafnaði þá úrvítaspyrnu. Mick Harford
skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok
með skalla eftir aukaspyrnu, og Birm-
ingham náði í dýrmæt þrjú stig.
Brian Kilcline skoraði mark Notts
County gegn Brighton og enn eitt
skrefið stigið í átt til þess að Brighton
verði fyrsta liðið sem vinnur bika-
rkeppni og fellur í aðra deild á sama
keppnistímabilinu.
Jafntefli á Dell
Southampton fékk Luton Town í
heimsókn á The Dell, og þar var
fjörugt. Luton komst yfir á 6. mín.
með marki Peter Aylott, en Southam-
pton náði forystunni með mörkum
Mark Wright og Dave Armstrong. Þó
var gert út um leikinn fyrir leikhlé,
Júgóslavinn Antic skoraði jöfnunar-
mark Luton á 30. mínútu með gífur-
legu þrumuskoti af rúmlega 30 metra
færi.
Það var ekkert gaman að vera rönd-
óttur á Villa Park á laugardaginn.
Aston Villa rúllaði þar upp Stoke sem
ekkert væri, og fjögur mörk litu dags-
ins Ijós. Gordon Cowans, Kenny
McNaught, Tony Morley og Allan
Evans skoruðu.
Swansea náði jafntefli við Ipswich,
Paul Mariner skoraði fyrir Ispwich en
■ Á þessari mynd fagnar Steve Archibald félaga sínum Kenny Dalglish, en
þá hafði Dalglish ekki leikið þrjá leiki í röð með skoska landsliðinu, en komið
svo inn gegn Belgíu og skorað tvö mörk. Archibald átti sína „endurkomu"
með Tottenham um helgina, eftir að hafa átt við meiðsli að stríða. Archibald
lét sig ekki muna um að skora tvö mörk í leiknum, og það gegn sjálfum
meisturunum frá Liverpool!
Júgóslavinn Anti Rajkovic jafnaði fyr-
ir Swansea.
Everton skellti West Ham á Goodi-
son Park, og þar skoraði Graham
Sharp bæði mörk Everton, 2-0.
í annarri deild skoraði Andy Gray
sigurmark Wolves yfir Chrystal Palace,
og Úlfarnir því nær öruggir í 1. deild.
FOSTER EKKI A WEMBLEY?
— fékk áminningu og hefur nú yfir 30 refsistig
■ Fyrirliði Brighton, HM-liðs varn-
armaðurinn Steve Foster, sem talinn
er besti leikmaður liðsins, gæti orðið í
leikbanni í bikarúrslitaleiknum gegn
Manchester United 21. maí næst kom-
andi. Foster fékk bókun, gult spjald, í
leiknum gegn Notts County á laugar-
daginn, leik sem Foster mun líklega
seint gleyma, tapleikur sem líklegt er
að kosti liðið fyrstu deildar sætið, og
leikur þar sem mælirinn fylltist í,
refsistigin náðu hámarki hjá Foster.
Steve Foster er nú kominn með 30
refsistig, og á yfir höfði sér leikbann í
næsta mánuði. Foster fékk aðvörun í
fyrri hálfleik, og gerði reyndar sitt
besta til þess að vera rekinn útaf í þeim
síðari, þá hefði hann líka fengið leik-
bann strax í næsta leik, og engin hætta
með úrslitaleikinn. En annað hvort,
það að Foster var ekki nógu grófur,
eða glámskyggni dómarans gerðu það
að verkum að Foster fær að glíma við
höfuðverkinn, hvort hann fær leikbann
21. maí eða einhvern annan dag.
Jimmy Melia, framkvæmdastjóri
Brighton bað Knattspyrnuyfirvöld á
Bretlandi um að vera væg við Foster.
„Á þessu augnabliki á Steve á hættu að
verða í leikbanni í úrslitaleik bikar-
keppninnar", sagði Melia. „En hann á
skilið að fá að leika úrslitaleikinn,
úrslitaleikur bikarkeppninnar er tæki-
færi lífsins og leikbann í honum væri of
hörð refsing, þegar leikbann bar að
með þessum hætti“.
■ Steve Foster
Þrjú lid berjast um skoska meistaratitilinn:
ALLT i SUDUPUNKTI!
■ Allt er nú á suðupunkti í Skotlandi,
þrjú lið eru á topnnum og eitt stig
skilur á milli þeirra, Dundee United er
efst með 52 stig, Celtic í öðru sæti með
51 stig, og Aberdeen er í þriðja sæti
með 50 stig og á leik til góða. Tvær
umferðir eftir, og allt útlit fyrir mjög
skemmtilegar leikhelgar framundan,
og spennu í hámarki.
Dundee United lét dreifa 4000 mið-
um fríum til áhangenda sinna fyrir leik
liðsins við Morton á Greenock, og
örlætið borgaði sig, sannfærandi 4-0
sigur var unninn og Dundee enn efst.
Celtic var einnig í markastuði,
Danny McGrain og Murdo McLeod
gáfu Celtic 2-0 forystu í hálfleik, og
Celtic gerði 5 mörk í leiknum áður en
yfir lauk.
Aberdeen sem mætir Real Madrid í
úrslitum Evrópukeppni bikarhafa 11.
maí í Gautaborg eru einnig með í
baráttunni, hafa 50 stig eftir 2-0 sigur
á Dundee, sigruðu einnig í frestuðum
leik í síðustu viku, og eiga einn leik til
góða, nokkuð sem gæti vegið þungt.
John Hewitt og Gordon Stracha, tengi-
liður HM liðs Skota skoruðu mörkin
fyrir Aberdeen. Jóhannes Eðvaldsson
og félagar í Motherwell sigruðu Hi-
bernian 2-0, og kræktu þar með í tvö
dýrmæt stig í botnbaráttunni, hafa
tryggt úrvalsdeildarsætið. Til hamingju
og þetta lið á áreiðanlega eftir að
standa sig næsta vetur, eftir eldskírn á
fyrsta keppnistímabili í úrvalsdeild-
inni.
Urslit
Úrslit urðu þessi um helgina í
ensku knattspyrnunni:
1. DEILD:
Astun Villa-Stoke............ 4-0
Covent-West Bromwich Alb . . 0-1
Everton-West Ham............. 2-0
Manch City-Nottingh Forest . . 1-2
Norwich-Manehester United . . 1-1
Notts County-Brighton....... 1-0
Southampton-Luton ........... 2-2
Sunderland-Birmingham....... 1-2
Swansca-Ipswich.............. 1-1
Tottenham-Liverpool.......... 2-0
Watford-Arsenal.............. 2-1
2. DEILD:
Blackburn-Middlesbroug .... 1-1
Cambridge-Newcastle ......... 1-0
Cariisle-Queens Park Rangers . 1-0
Chelsea-Rotherham............ 1-1
Derby-Burnley................ 2-0
Grimsby-Oldham .............. 0-2
Leeds-Barnsley............... 0-0
Leicester-Bollon............. 0-0
Sheffield Wednesday-Fulham . 2-1
Wolverhampt-Crystal Palace . . 1-0
Skotland
Úrsiit í skosku úrvalsdeildinni urðu
þessi um hclgina:
Dundee-Aberdeen ......... 0-2
Kilmarnock-Celtic........ 0-5
Norton-Dundee United .... 0-4
MotherwelF-Hibemian...... 2-0
Rangers-ST. Mirren ...... 4-0
Staðan er nú þessi:
Dundee Unit 34 22 8 4 84-34 52
Celtic 34 23 5 6 84-34 51
Aberdeen .. 33 23 4 6 66-24 50
Rangers 33 12 12 9 47-34 36
St. Mirren .. 34 9 12 13 43-50 30
Hibernian .. 33 7 14 12 34-44 28
Dundee 33 8 11 14 38-48 27
Motherwell . 34 11 4 19 38-68 26
Norton 34 6 8 20 30-70 20
Kilmarnock . 34 3 10 21 27-85 16