Tíminn - 25.05.1983, Blaðsíða 2
12
Wimfam
MIÐVIKUDAGUR 2S.MAI 1983
MIÐVIKUDAGUR 25.MAÍ 1983
13
fþrðttirl
umsjún Samúel Örn Erlingsson
EVIolar
Bikarkeppni
KSÍí
\
gærkvöld:
■ í gxrkvöld var leikið í fyrstu umferð í
bikarkcppni Knattspyrnusambands íslands um
land allt. Hér verða birt úrslit og umsagnir
leikjanna í gxrkvöld, mismikið eftir því hversu
gekk að afla fréttanna.
Úrslit urðu þessi:
Fylkir-Selfoss..............2-0
Bolungarvfk-Stjarnan........2-5
Víkverji-Stokkseyri ........3-0
Haukar-Árvakur............. 1-2
ÍK-Hafnir ..................2-0
Njarðvík-Fram...............0-2
Víkingur Öl.-Víðir .........2-3
Rcynir-Afturelding .........2-1
Austri-Valur Rf ............0-1
Fróttur N.-Huginn...........2-1
Fram sigraði
sanngjarnt
Framarar unnu sanngjarnan sigur á
Njarðvík, Bryngeir Torfason skoraði á 44.
niínútu eftir sendingu frá Halldóri Arasyni, og
á 7. ntín s. hálfleiks var Frömmurum dæmt
mark, eftir að skot sent var hálfvarið fór yftr
marklínuna. Ekki fékkst upp hver skoraði.
Njarövfkingar sóttu öllu meira í fyrri hálfleik,
en Framarar meira í síðari. Njarðvík fékk víti
rétt fyrir leikslok, en Haukur Jóhannsson sem
fiskaði spyrnuna, tók hana sjálfur og brenndi
af. Sverrir Einarsson og Guömundur Torfason
voru bcstir gestanna.
-TóP.
Reynir lagði
Æftureidingu
Heimantenn sóttu meira f fyrri hálfleik, en
gestirnir í síðari. Reynismenn heppnir að sigra.
Jón Guðmann Pétursson skoraði fyrst fyrir
Reyni, síðan Þórður Þorkelsson og 2-0 f
hálfleik. Lárus Jónsson skoraði fyrir Aftureld-
ingu í sfðari hálfleik.
-TÓP
Valsmenn
uppskáru
Valsmenn frá Reyðarfirði sóttu sigur á
Eskifjörð, skoruðu úr einni þriggja sókpa sinna
í lciknum. Ólafur Nikulásson skoraði. Þróttarar
í Neskaupstað sigruðu verðskuldað Hugin frá
Seyðisftrði í Neskaupstað, Björgvin Haraldsson
og Sigurður Friðjónsson skoruöu fyrir Þrótt en
eitt markið var sjálfsmark. Birgir Guðmunds-
son skoraði fyrir Hugin.
Þorsteinn Einarsson og Jens Daðason
skoruðu fyrir Bolvíkinga gegn Stjörnunni, en
ekki dugði það, Stjörnumcnn skoruðu 5
mörk, en ckki fékkst upp hverjir skoruðu.
Hörður Sigurðarson skoraði tvö mörk fyrir
ÍK á „Wentbley“ í Kópavogi, gegn iiðinu úr
Höfnunum.
Unglingamót
Ægis
■ Sundfélagið Ægir inun halda unglingamót í
sundi í Sundhöll Reykjavíkur sunnudaginn 29.
ntai. Mótið hefst kl. 15 en upphitun byrjar kl.
14. Keppt vcrður í eftirtölduni greinum:
1. gr. 400 m skrið. pilta
2. gr. 100 m skriö. telpna
3. gr. 50 m skrið. sveína
4. gr. 100 m brínga drengja
5. gr. 100 iit bringa stúlkna
6. gr. 50 m bringa meyja
7. gr. 100 m flug. pilta
8. gr. 200 m fjórs. telpna
9. gr. 4x50 m flugs. pilla
10. gr. 4x50 m skriös. telpna
Tilkynningar um þátttöku á mótinu skulu
hafa borist til þjálfara félagsins í sírna 10963 eða
formanna i síma 18134, fyrir föstudaginn 27.
maí. Þátttökugjald er 10 kr. fyrir hvcrja grein.
■ Ámundi Sigmundsson með skot á Vestmannaeyjamarkið í leik ísfirðinga og Vestmanneyinga á föstudag. Þar gekk þó
ekkert hjá Ámunda og félögum, Eyjapeyjar sigruðu 4-0. En Isfirðingum gekk betur á mánudag gegn Þrótti, enda þá á
heimavelli.
Ljósm. Guðmundur Sigfússon.
Þróttarar töpudu
stigum fyrir vestan
asfirðingar sigrudu 2-0 í roki
■ Þróttarar töpuðu dýrmætum stigum
í fyrstu deild á mánudag þegar þeir
töpuðu fyrir heimamönnum á Isafirði í
rokleik á mölinni þar. Það var Bjarni
Enn sigrar
Guntmers-
bach
- Frá Magnúsi Olafssyni í Bonn:
■ Vestur-þýska stórliðið Gummers-
bach sigraði um helgina SKA Minsk frá
Sovétríkjunum í keppninni um besta
Evrópska liðið í handbolta, „Super-
Cup“, 17-16 í spennandi leik.
Sýnt var úr leiknum í sjónvarpinu, og
fannst undirrituðum hinn frábæri mark-
vörður Þýskalands, Andreas Thiel, vera
maðurinn bak við sigur Gummersbach.
Það er með ólíkindum hvað þessi 23 ára
gamli lagastúdent getur varið. Það var
Wunderlich, sem skoraði flest mörk
Þjóðverja að vanda, þrátt fyrir að hafa
verið í strangri gæslu allan leikinn.
-MÓ
Jóhannsson sem átti heiöurinn af fyrsta
marki ísfirðinga þegar hann gaf fyrir
markið í fyrri hálfleik, með þeim afleið-
ingum að Jóltann Hreiðarsson skoraði af
slysni í eigið mark. Síðara markið skor-
aði Jóhann Torfason úr víti.
Leikurinn var rokleikur, vindur stóð
þvert á völlinn og erfitt að leika knatt-
spyrnu, enda mismikið af henni á
köflum. Þó vonast ísfirðingar til að leika
næst á grasi, enda hálfur mánuður í
næsta leik sem verður 7. júní þar.
Á 83. mínútu komst Jón Oddsson
hlaupagarpur einn innfyrir vörn þróttar,
og var honum brugðið innan vítateigs.
Úr vítaspyrnunni skoraði Jóhann Torfa-
son með öruggu skoti í markhornið
neðst.
Önnur færi voru ekki mörg í leiknum,
utan að Jón Oddsson átti skot í stöng í
byrjun leiks eftir að hann komst einn inn
fyrir vörn Þróttara.
Dómari í leiknum var Helgi Kristjáns-
son og dæmdi þokkalega. Bestu menn
liðanna voru Páll Ólafsson hjá Þrótti, og
þá átti þjálfarinn Ásgeir Elíasson sæmi-
lega spretti. Hjá ísfirðingum Jóhann
Torfason góður, og Bjarni Jóhannsson
og Jón Oddsson áttu góða spretti.
Fjórir leikmenn fengu gul spjöld, Jón
Ólympíunefnd út-
hlutar styrkjum
til frjálsíþróttamanna
■ Ólympíunefnd íslands ætlar að
styrkja sex frjálsíþróttamenn íslenska
sem náð hafa lágmörkum í sínum grein-
Kiel
stendur vel
- Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn.
■ Þegar tvær umferðir eru eftir í
Búndeslígunni í handbolta er staða 5
efstu liða þannig:
Gummersbach 462-381 32
Kiel 464-419 29
órosswallstadt 453-391 29
Schwabing 502-458 29
Göppingen 450-439 25
Athyglisverðastur er árangur Kielar-
liðsins, sem Jóhann Ingi Gunnarsson
þjálfar. Nettelstedt, sem Bjami Guð-
mundsson og Sigurður Sveinsson leika
með eru í næst neðsta sæti og fallið í aðra
deild.
um fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles
1984. Þessir frjálsíþróttamenn era: Ósk-
ar Jakobsson ÍR, Einar Vilhjálmsson
UMSB, Þórdis Gísladóttir ÍR, Þráinn
Hafsteinsson HSK, Vésteinn Hafsteins-
son HSK, og Oddur Sigurðsson KR.
Styrkurinn nemur alls 180 þús. kr.
Fimm þau fyrstu hafa öll náð lág-
mörkum fyrir Ólympíuleikana, og
Oddur er alveg við það. Styrkurinn, 180
þúsund krónur skiptist þannig, að Óskar
og Einar fá 40 þúsund krónur hvor, og
hin fá 25 þúsund hvert.
Ólympíulágmörkin gilda frá og með
1. júlí næstkomandi. Þar sem þetta
frjálsíþróttafólk hefur náð þeim árangri
sem þarf til nú þegar, er engin hætta á
öðru en þau endurtaki það, og að Oddur
nái sínu. Fleiri frjálsíþróttamenn þykja
jafnvel líklegir til að ná lágmörkunum,
og verður þá að öllum líkindum um fleiri
styrkveitingar að ræða. Allt áðurnefnt
frjálsíþróttafólk stundar nám í Banda-
ríkjunum, en þar eru nokkrir fleiri slík.
Oddsson ÍBÍ, Ársæll Kristjánsson,
Kristján Jónsson og Ásgeir Elíasson hjá ;
Þrótti.
Jafntefíi hjá
pólskum og
sovéskum
- Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Það var leikmaður Juventus Turin
og pólska landsliðsins, Zbigniew Boniek
sem skoraði mark Pólverja í 1-1 jafn-
teflisleiknum gegn Sovétríkjunum í Pól-
landi um helgina. Staðan í öðram riðli
Evrópukeppninnar er nú sú að Sovét-
menn era efstir með 5 stig, Portúgal með
4 stig, Pólland með 4 stig og Finnland
með 1 stig.
Keflvíkingar skelltu Eyjamönnum:
Þorsteinn og
félagar betri
á mölinni
■ Þorsteinn Bjarnason markvörður í
Keflavík og félagar hans skelltu í fyrra-
dag Eyjamönnum á mölinni í Keflavík,
en þangað komu Eyjamenn vígreifir
með 4-0 sigur á Isfirðingum í pokahorn-
inu. Rúnar Georgsson skoraði fyrsta
mark Keflvíkinga á 9. mín leiksins, og
Óli Þór Magnússon bætti við öðru fyrir
hálfleik. Kári Þorleifsson minnkaði
muninn á 4. mín. síðari hálfleiks, en Óli
Þór innsiglaði sigur Suðurnesjamann-
anna undir lok leiksins.
Malarvöllurinn í Keflavík var góður,
eins og malarvöllur líklega helst getur
orðið, eftir rigningu á mánudag. Hafði
völlurinn gott af bleytunni, sem hafði
verið þó nokkur, veitti ekki af eftir að
þurrkur hafði brakað alllengi. Keflvík-
ingar létu sér þetta vel líka, og byrjuðu
leikinn vel. Rúnar „Bangsi“ Georgsson
skoraði fyrsta markið strax á 9. mín.,
hann fékk sendingu inn á vítateiginn,
frá Einari Ásbirni Ólafssyni, og skoraði
með viðstöðulausu skoti. Keflvíkingar
voru eftir þetta öllu sterkari í fyrri
hálfleik, héldu sig við jörðina og spiluðu
saman, meðan Vestmannaeyingar voru
öllu meira í háloftaspyrnum og kraftafót-
bolta.
Óli Þór Magnússon átti næsta leik,
hann einlék upp megnið af vellinum á
35. mín., gerði ýmsargabbhreyfingarog
þóttist ætla að gefa boltann, svo Vest-
mannaeyingar gættu hans ekki, heldur
dekkuðu frekar upp félaga hans. Óli Þór
hélt því uppteknum hætti, uns hann lét
ríða af þrumuskot af 10 metra færi, sem
hafnaði í netmöskvunum. 2-0 í hálfleik,
þrátt fyrir tvö góð færi Vestmanna-
eyinga, þar sem Þorsteinn Bjarnason fór
á kostum og varði sitt hvort skotið frá
Hlyni Stefánssyni og Kára Þorleifssyni.
Þessi sprettur Vestmannaeyinga, sem
þeir tóku í lok fyrri hálfleiks, entist fram
í miðjan síðari hálfleik. Strax á 49.
mínútu, fjórum mínútum eftir leikhlé
skoraði Kári Þorleifsson fyrir Eyjamenn,
með virkilegu þrumuskoti úr miðjum
vítateignum. Vestmannaeyingar réðu
síðan lögum og lofum í leiknum fram í
miðjan hálfleikinn, en tókst ekki að
skora meir. Keflvíkingar komu síðan
inn í ieikinn í lokin, náðu þá undir-
tökunum og endaðj með að Óli Þór
skoraði sitt annað mark, og þriðja mark
Suðurnesjamanna. Einar Ásbjörn Ólafs-
son skaut á markið, markvörður Eyja-
manna varði, en ÓIi Þór náði frákastinu
og skoraði af stuttu færi. Þegar þetta
gerðist voru 6 mínútur til leiksloka. Rétt
í lok leiksins komst síðan Tómas Pálsson
Eyjamaður einn innfyrir, en Þorsteinn
varði hjá honum eftir úthlaup, meistara-
lega, og lagði þar með sitt síðasta sterka
innlegg í leikinn.
Bestir Eyjamanna voru gömlu
mennirnir, Tómas Pálsson og Snorri
Rútsson, sem var eins og klettur í
vörninni. Hjá ÍBK Þorsteinn Rúnar
Georgsson og Óskar Færseth bestir, og
Einar Ásbjörn áttu góða spretti. Dómari
Kjartan Ólafsson og dæmdi vel. Áhorf-
endur 640. TÓP/SÖE
■ Óli Þór Magnússon var í stuði á
heimavelli í Keflavík á mánudag.
Hann gerði tvö af þremur mörkum
Keflvíkinga gegn Eyjamönnum.
VALSLIÐIÐ í
FÍNU FORMI
Dýri Guðmundsson skoraði sigurmarkið gegn
Breiðabliki á mánudag
■ Valsliðið í knattspyrnu virðist vera í
góðu ásigkomulagi, enda segir árangur-
inn til um að svo sé. 2-1 sigur í Keflavík
í fyrstu umferð í síðustu viku, og annað
eintak, 2-1 sigur á Breiðabliki í fyrra-
kvöld á laugardalsvellinum, segja til um
það. Valsmennirnir léku mjög vel í
fyrrakvöld, allan tímann, á nteðan Blik-
arnir sýndu góð tilþrif á stundum, en
hurfu inn á milli. Hilmar Harðarson
skoraði fyrsta mark Vals á 28. mín., en
Benedikt Guðmundsson jafnaði fyrir
Breiðablik á 33. mín. Dýri Guðntunds-
son skoraði síðan sigurmark Vals á 72.
mínútu.
Það blés ekki byrlega fyrir Vals-
mönnum strax í upphafi. Þá lenti mark-
vörður þeirra, hinn þéttvaxni Brynjar
Guðmundsson í samstuði við nokkra
Blika, með þeim afleiðingum að hann
varð að yfirgefa leikvöllinn. Óöryggi vill
oft fylgja slíku hjá liðum, ekki síst þar
sem varamarkverðir fá ógjarnan að
spreyta sig. Sú er hins vegar ekki raunin
hjá Val, þar er á bekknum Guðmundur
Hreiðarsson, sem fengið hefur að
spreyta sig öðru hvoru, og skilaði hann
sínu hlutverki þegar upp var staðið með
mikilli prýði, og átti eftir að sýna hvað í
honum býr, áður en þessum leik lauk.
Enda tóku Valsmenn snögglega við sér,
og sóttu meira framan af fyrri hálfleik.
Þá áttu Blikarnir fyrsta hættulega mark-
tækifærið, Sigurður Grétarsson komst
einn inn fyrir, en var of seinn að skjóta.
Valsmenn sóttu þungt, og uppskera
kom á 28. mín. Gefið var fyrir Blika-
markið, Ingi Björn Albertsson skallaði
út til Hilmars Harðarsonar, sem sendi
knöttinn rakleiðis til baka með lágu
föstu skoti í gegnum varnarvegg Blik-
anna og í markið. Boltinn fór ekki fjarri
Guðmundi markverði Ásgeiresyni, en vont
að átta sig á boltum sem koma gegnum
þvögu.
Áfram sóttu Valsmenn, en mörgum á
óvart skoruðu Blikarnir rétt strax, 5
mín. eftir mark Hilmars. Blikarnirfengu
hornspyrnu, sárasaklausa að því er
virtist, enda sóknarþunginn búinn að
liggja hinum megin. Sigurður Grétarsson
spyrnti fast fyrir markið, og Benedikt
Grasið er frábært
í Njarðvík - Mikið af leikjum í annarri
■ Á stórkostlegum grasvelli í Njarðvík
lögðu heimamenn að veUi gesti sína af
Austfjörðum á laugardag. Það var Ein-
herji frá Vopnafirði sem fékk tvö mörk
á bakið til að bera heim. Jón Halldórsson
markamaskína þeirra Njarðvíkinga
skoraði bæði mörkin, og var óheppinn að
skora ekki fleiri.
Grasvöllurinn í Njarðvík hefur komið
sérstaklega vel undan vetri. Þar er grasið
gott og völlurinn sléttur, slíkt hlýtur að
vekja unaðskenndir hjá knattspyrnu-
mönnum á þessum árstíma, enda fengu
Njarðvíkingar að sjá fallegasta mark
Skagamenn skelltu
Víkingum á Skaganum
sigurinn verðskuldaður,Víkingar áttu ekki möguleika
■ Skagamenn skelltu íslandsmeistur-
um Víkings í leik liðanna á Akranesi á
mánudag 2-0. Úrslitin voru eiginlega
aldrei spurning, heimamenn léku ein-
faldlega betur, og uppskáru eftir því.
Sigþór Ómarsson skoraði fyrst á 28.
mínútu, en Hörður Jóhannesson það
síðara á 76. mínútu.
All nokkur vindur var þegar leikurinn
fór fram, og vindáttin slík að blés eftir
endilöngum vellinum. Skagamenn léku
undan vindi í fyrri hálfleik. Skagamenn
áttu slatta af færum, það fyrsta var á 14.
mínútu, þá átti Guðbjörn Tryggvason
skot á Víkingsmarkið, en Þórður Mar-
elsson bjargaði á línu. Þá átti Hörður
Jóhannesson þrumuskot á 25. mín, sem
Ögmundur varði með tilþrifum. Heimir
Karlsson átti skot að marki Skagamanna
í millitíðinni, en hættulaust.
Mark Sigþórs kom á 28. mín. Sigþór
Ómarsson komst einn inn fyrir Víkings-
vörnina, eftir sendingu Guðbjarnar, og
skoraði framhjá Ögmundi markverði.
Sigþór komst í svipað færi í síðari
hálfleiknum, en þá varði Ögmundur.
Heimir Karlsson átti hættulegasta
marktækifæri Víkinga í leiknum rétt
fyrir hálfleik, skallaði lágan bolta með
því að skutla sér, en Bjarni Sigurðsson
markvörður skutlaði sér líka, og varði
vel.
Víkingar fengu vindinn í bakið í síðari
hálfleik, og áttu menn þá von á að betur
gengi. Svo fór þó ekki, Skagamenn áttu
hættuleg upphlaup meðan Víkingar
þvældust aðallega um völlinn á miðj-
unni. Skagamenn skoruðu sitt annað
mark á 76. mín. þar átti Sigþór heiður-
inn, skot í slána, sem Hörður Jóhanns-
son fylgdi eftir, og tók frákastið.
Bestu menn Akraness Sigþór Ómars-
son og Sigurður Jónsson. Ögmundur
bestur Víkinga, eins og oft áður. Dómari
Grétar Norðfjörð, gaf 5 gul spjöld, Árna
Sveins og Guðjóni Þórðar ÍA, og Aðal-
steini Aðalsteins, Heimi Karls og Þórði
Marels Víkingi.
Sanngjarn
Framsigur
á Fylki í Arbæ
■ Framarar sigruðu Fylkismenn sann-
gjarat á föstudagskvöld í fyrstu umferð í
annarri dcild í knattspyrnu á Árbæjar-
veUi. Úrslitin urðu 3-1, eins og skýrt var
stuttlega frá í Tímanum á laugardag, og
skoruðu Halldór Arason, Guðmundur
Torfason og Steinn Guðjónsson fyrir
Fram, en Jón Bjarni Guðmundsson fyrir
Fylki.
Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik,
nánar tiltekið á um 25. mín. Framarar
skoruðu fyrst á 15. mín.,þarvaraðverki
Halldór Arason, skallaði boltann í slána
og inn upp úr þvögu. Fylkismenn jöfn-
uðu fimm mínútum síðar, Jón Bjami
Guðmundsson skoraði með góðu skoti
eftir hornspyrnu Guðmundar Baldurs-
sonar. Á 26. mínútu komust Framarar svo
yfir, Sverrir Einarsson, besti maður
Framliðsins gaf langan stungubolta fram
á völlinn, þar sem Steinn Guðmundsson
tók við honum eftir dálítinn samleik við
félaga sína, og skora í með þrumuskoti
sem átti upptök rétt innan vítateigs. Á
34. mínútu skoraði síðan Guðmundur
Torfason þriðja mark Framara, með
þrumuskoti eftir að Gísli Hjálmtýsson
hafði átt skot í þverslá.
Bestu menn Fram voru Sverrir Einars-
son og Guðmundur Baldursson mark-
vörður, en nafni hans í fylkisliðinu þar
bestur. Sigur Framara var verðskuldað-
ur.
sem þar hefur verið skorað í langan
tíma. Jón Halldórsson, öflugur marka-
skorari þeirra Njarðvíkinga sýndi fólki á
vellinum þetta síðast í fyrri hálfleik, þar
sem hann fékk fyrirgjöf rétt innan
vítateigs, sem hann setti með miklu'
þrumu skoti upp samskeytin viðstöðu-
laust. Ekki fór knötturinn þó beina leið
í markið, heldur úr samskeytunum í
jörð, þaðan upp í þverslá, og síðan inn
fyrir marklínu. Auk þess má geta þess,
að hinn örvhenti og fætti Jón Halldórs-
son gerði þessi ósköp með hægra fæti.
Jón skoraði annað mark Njarðvíkinga
í síðari hálfleik, og munaði litlu að hann
skoraði fleiri. Einherjar áttu fá færi í
leiknum, nánast um einstefnu að ræða.
Þó áttu þeir þokkalegt færi í lok leiksins..
- Tóp/SÖE
Jafntetli
á Siglufirði
■ Siglfirðingar, sem leika nú í 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu eftir 15 ára
fjarveru þaðan léku sinn fyrsta leik um
helgina gegn FH. Mikil vinna var lögð í
að gera völlinn á Siglufirði leikhæfan og
tókst það bærilega, en m.a. var keyrð
möl í völlinn frá Hofsósi.
Ekkert mark var skorað í þessari
deild um helgina
marki við en þá áttu þeir Kristján og
Björn Olgeirssynir báðir góð færi.
Annað mark leíksins kom svo á 65.
mínútu. Kristján Olgeirsson fékk bolt-
ann 35-40 metra úti á vellinum og sendi
sannkallaðan þrumufleyg í mark Víðis.
Eftir þetta gullfallega mark náðu Völs-
ungar yfirhöndinni en mörkin urðu ekki
fleiri.
viðureign sem einkenndist af mikilli
baráttu þar sem aldrei var gefið eftir.
Bæði liðin fengu nokkuð þokkaleg
marktækifæri sem ekki nýttust og þegar
upp var staðið máttu báðir aðilar vel við
una að hafa náð í stig.
gk~-
Völsungar
byrjuðu
með sigri
■ Völsungar byrjuðu keppnina í 2.
deild eins og reiknað hafði verið með -
með sigri gegn nýliðunum í deildinni
Víði úr Garði, er liðin mættust á
Húsavík á föstudagskvöld.
Völsungarnir, undir stjórn þeirra
Kristjáns Olgeirssonar og Helga Helga-
sonar sem þjálfa liðið og leika með því
hafa staðið sig vel í vorleikjum sínum og
því var pressa á þeim að halda upptekn-
um hætti í fyrsta leiknum í 2. deildinni.
Leikurinn einkenndist af nokkurri
taugaspennu en hart var barist á báða
bóga og ekkert gefið eftir. Það var á 43.
mínútu að fyrra mark leiksins kom oj>
var JónasHallgrímsson þar að verki. Á
lokamínútu fyrri hálfleiksins voru
Völsungarnir síðan nærri því að bæta
Gunnar
gerði þrjú
■ Gunnar Gíslason skoraði þrjú mörk
þegar KA frá Akureyri sigraði Reyni
Sandgerði 2-0 á föstudag. Gunnar skor-
aði fyrst úr víti á 3. mínútu, sem hann
sjálfur útvegaði, brotið á honum innan
teigs. Gunnar skoraði síðan tvisvar í
viðbót, og Ormarr Örlygsson bætti
fjórða markinu við. Sigurður Guðnason
skoraði fyrir Reyni.
Gunnar skoraði fyrsta markið úr víti.
Annað markið skoraði hann með skalla,
og það þriðja með lausu skoti í tómt
markið, eftir að hann hafði leikið á
megnið af vörn Reynismanna, og síðan
á markvörðinn. Landsliðsklassi á Gunn-
ari, enda er hann kominn í landsliðið.
TóP/SÖE
Guðmundsson nikkaði boltanum
skemmtilega í netið með kollinum,
óverjandi.
Eftir þetta tók ekki að lyfta minnis-
blaði í hálfa klukkustund af leiktíma, og
ekki bætti úr að ásamt því var 25
mínútna leikhlé, allt of langt. Þó voru
Valsmenn sterkari, með Njál Eiðsson
sem besta mann. Blikarnir áttu ógóða
kafla, þeirra bestur Jón Gunnar Bergs
fyrrum Valsmaður.
Loks á 65. mínútu leiksins kvað við
annan tón en miðjuþófs. Sigurjón Krist-
jánsson Bliki komst einn inn fyrir, en var
of lengi að, og Þorgrímur Þráinsson,
varnarmaðurinn sterki, stal boltanum
skemmtilega frá honum. Sigurður Grét-
arsson var á ferð mínútu síðar, stakk sér
inn í hornið hægra megin, en lét Þorgrím
ekki plata sig, heldur plataði Þorgrím.
Sigurður sneri Þorgrím af sér og skaut
miklu þrumuskoti á Valsmarkið. Þarvar
fyrir Guðmundur Hreiðarsson mark-
vörður, sem varði vel, en ekki hélt hann
knettinum, svo fast var skot Sigurðar,
boltinn fór af Guðmundi aftur fyrir
mark.
En Valsmenn tóku við sér eftir þetta,
enda búnir að eiga megnið af hálf-
leiknum, nema færin. Ingi Björn Al-
bertsson, sem er nú í fínu formi, gerði
harða atlögu að Blikamarkinu, komst
tvisvar einn inn fyrir, lagaði í fyrra
skiptið boltann fyrir sér með hendinni og
skoraði, dæmt af að sjálfsögðu, og í
síðara sinnið stal Ólafur Björnsson bolt-
anum á síðustu stundu. Þetta var á 70.og
71. mín, og svo kom sigurmarkið. Dýri
Guðmundsson skallaði knöttinn í netið
eftir aukaspyrnu, að vísu reyndi einn
Blikanna að verja á línu, og Dýri fylgdi
vel á eftir og skoraði aftur, en línuvörð-
urinn var búinn að veifa marki.
Valsmenn áttu tækifærin eftir þetta,
Valur Valsson átti gott skot á mark eftir
að hafa einleikið upp hægri kantinn, en
Guðmundur varði. Njáll átti einnig gott
skot framhjá.
f heild nokkuð góður leikur, Vals-
menn virkilega góðir og áreiðanlega
banka einhverjir þeirra á dyrnar hjá
Jóhannesi Atlasyni landsliðsþjálfara.
Má þar nefna Njál Eiðsson og Þorgrím
Þráinsson og kannske Dýra Guðmunds-
son. Þá er Jón Gunnar Bergs Bliki og
fyrrum Valsmaður í fínu formi, átti
góðan leik, og líka félagi hans Sigurður
Grétarsson, enda þótt honum hætti til að
ætla að gera hlutina einn á stundum.
Dómari var Þorvarður Björnsson og
dæmdi allþokkalega. Dálítil harka fékk
að sjást, en tvö gul spjöld voru þó gefin
í síðari hálfleik. Fengu þau Blikarnir Jón
Gunnar Bergs og Sigurður Grétarsson,
Siggi nú kominn með tvö slík í tveimur
leikjum.
UNITED HEPPIÐ AÐ TAPA EKKI
■ Manchester United, stórliðið sem
varð í þriðja sæti fyrstu deildarinnar
ensku í vor, tapaði úrslitaleiknum í
mjólkurbikarnum gegn Liverpool, og
hefur óteljandi stjöraum á að skipa,
var heppið að tapa ekki bikarnum
enska á laugardaginn til Brighton,
Uðið sem nýfallið er í aðra deild, en
hefur staðið sig með ólíkindum í
bikarkeppninni. Það var Gordon
Smith, sóknarmaður þeirra mávanna
sem svo eru stundum nefndir, sem
klúðraði hroðalega síðustu spyrau
leiksins, á 120. minútu, og þar með
verður leikið að nýju á fimmtudag.
Smith, sem kom flestum á óvart skor-
aði fyrsta mark leiksins fyrir Brighton
á 14. mínútu.fékk dauðafxri í lokin
aðeins Gary Bailey markvörður Unit-
ed til varaar, en Bailey varði. Þá var
staðan 2-2.
Bikarúrslitaleikurinn var mjög vel
leikinn, og að sögn breskra íþrótta-
fréttamanna með þeim líflegri. Mörkin
alls fjögur, og öll mörk augnabliksins,
það er gerbreyttu leiknum, og viðhéldu
spennunni.
Gordon Smith skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Brighton á 14. mín., með
skalla eftir fyrirgjöf Gary Howlett.
Markið var skorað úr annarri sókninni
sem Brighton átti, og í nokkru ósam-
ræmi við gang leiksins. Man. United
hafði verið í sókninni lengst af, en þó
ekki náð að ógna verulega.
Á 53. mínútu leiksins gerðist atvik,
sem sneri gangi leiksins. Norman
Whiteside, ungi írski efnilegi landsliðs-
maðurinn braut illa á Chris Ramsey,
bakverði Brighton, svo illa að Ramsey
var borinn af leikvelli. -óttaleg belja
stundum, Whiteside. - Brightonliðið
fór nokkuð úr liði við þetta, enda
Ramsey búinn að láta mikið að sér
kveða. Inn kom Gary Howlett, fram-
línumaður, og stóð sig vel, en kom þó
ekki í veg fyrir óöryggi í liðinu fyrst
eftir að Ramsey fór út af. Tveimur
mínútum síðar skoraði Frank Staple-
ton jöfnunarmark Man . United,
Norman Whiteside sótti knöttinn af
miklum dugnaði út á hliðarlínu, kom
honum inn á ótrúlegan hátt, þar sem
Mike Duxbury tók við og gaf fyrir.
Moseley markvörður lét sér sjást yfir
þennan bolta, sem Stapleton setti inn
af 2-3 m færi við fjærhornið, fylgdi þar
vel á eftir.
Frank Stapleton er þar með fyrsti
leikmaðurinn sem skorar fyrir lið og
gegn því í bikarúrslitaleik á Englandi,
hann skoraði fyrir Arsenal 1979 gegn
United, og nú fyrir Uniied gegn
Brighton.
Það var svo Ray Wilkins sem skoraði
2-1 fyrir United á 72. mín.Hann komst
frír inn á vítateigshornið, lék þar á
andstæðing, og sendi síðan skrúfubolta
hátt í fjærhomið, glæsilegt mark.
Eftir þetta var United allsráðandi á
vellinum, allt þar til á 86. mín þegar
Brighton jafnaði. Glæsilegt mark,
skorað af besta manni leiksins, Stevens
miðverði Brighton. Jimmy Case tók
horn, gaf langt út til Tony Grealish
sem gaf inn í teiginn þar sem Stevens
var fyrir og skoraði óverjandi fyrir
Bailey af 10 m. færi.
Leikurinn var framlengdur, eitt færi
þá í hvorum 15 mín. hálfleik, og
Brighton átti bæði. Hið síðara sem í
upphafi var lýst. Greinilegt að United
hefur ekki úthald í framlengingar.
Besti maður United var Bailey, og
bestur hjá Brighton Stevens miðvörð-
ur. Ánægðasti maðurinn eftir leikinn
sennilega Steve Foster, landsliðsmið-
vörðurinn í Brighton sem var í leik-
banni og missti af leiknum. Hann
verður með á fimmtudaginn, þegar
liðin hittast á ný.