Tíminn - 27.05.1983, Blaðsíða 9
9
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
fréttir
Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar:
■ Þjóðinni er brýn nauðsyn að brjótast út úr
vítahring verðbólgunnar til þess að unnt sé að
tryggja grundvöll atvinnulífsins og koma í veg
fyrir atvinnuleysi og draga úr skuldasöfnun við
útlönd. Aðeins með víðtækum, samstilltum aðgerð-
um, er taka til allra þátta hagkerfisins er unnt að
vinna bug á þeim þrengingum, sem nú steðja að
þjóðarbúskapnum, og leggja grundvöll að fram-
förum.
Ríkisstjórnin hefur því sett fyrstu aðgerðum
sínum í efnahagsmálum eftirfarandi markmið:
• Atvinnuöryggi.
• Hjöðnun verðbólgu.
• Viðunandi jafnvægi í viðskiptum við önnur
lönd
• Verndun kaupmáttar lægstu launa og lífskjara
þeirra, sem þyngst framfæri hafa.
Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahags-
málum ber að skoða sem mikilvægan þátt í
efnahagsstefnu hennar sem miðar að því að
• Koma sem fyrst á viðunandi jafnvægi í efna-
hagsmálum þjóðarinnar.
• Beina fjárfestingu fyrst og ffemst í arðbær
verkefni.
• Örva framfarir og fjölbreytni. í atvinnulífinu.
• Bæta skipulag stjórnkerfisins og peninga- og
lánastofnana.
Hér á eftir verður nánar lýst þeim aðgerðum,
sem ríkisstjórnin hefur ákveðið, en þörfin er brýn
fyrir róttæka stefnubreytingu, til þess að sporna
við þeirri óheillaþróun sem fylgt hefði óheftri
verðbólgu og jafnvægisleysi í þjóðarbúskapnum,
og teflt efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í
tvísýnu.
Efnahagsmál
1. Grundvöllur
efnahagsstefnunnar
Festa verði sköpuð með raunhæfri gengisstefnú
sem ásamt aðhaldssamri fjármála- og peninga-
stefnu myndi umgerð ákvarðana í efnahagslífinu.
Aðilar vinnumarkaðarins beri ábyrgð á samn-
ingum um kaup og kjör í ljósi hinnar opinberu
stefnu í gengis- og kjaramálum.
2. Yerðbótakerfíð
Núgildandi tilhögun launa og verðlagsákvarð-
ana, sjálfvirkt, vélrænt víxlgengi verðbótakerfis-
ins, stefnir í ófæru. Af þessum sökum er nauðsyn-
legt að nema úr gildi ákvæði laga og samninga um
verðbætur á laun frá 1. júní 1983 til 1. júní 1985.
Á tímabilinu verði samkomulags leitað um afnám
vísitölukerfisins eða aðra viðmiðun launabreyt-
inga.
Til þess að draga úr þeirri röskun sem í fyrstu
fylgir því að afnema verðbætur á laun og gefa
vinnumarkaðnum ráðrúm til þess að laga sig að
nýjum aðstæðum verða launabreytingar ákveðnar
með lögum fyrst um sinn sem hér segir:
1. júní 1983 hækki laun um 8%.
Þó skulu lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu
skv. þar um gildandi ákvæðum kjarasaminga ASÍ
og BSRB hækka um 10% 1. júní 1983.
1. okt. 1983 hækki laun um 4%.
AUir gildandi og síðast gildandi kjarasamningar
framlengist með þessum hætti til 31. janúar.
Ríkisstjómin mun í tengslum við afgreiðslu fjár-
laga og lánsfjár- og fjárfestingaráætlunar fyrir árið
1984 og í Ijósi þjóðhagsáætlunar að undangengn-
um viðræðum við aðila vinnumarkaðarins marka
stefnu í fjármálum, peningamálum, gengismálum
og launamálum og taka ákvarðanir um nauðsyn-
legar ráðstafanir tilað tryggja áframhaldandi
hjöðnun verðbólgu, verndun kaupmáttar og at-
vinnuöryggi.
3. Verndun kaupmáttar
Óheftri verðbólgu mun fylgja atvinnuleysi og
gífurleg kjaraskerðing. í hjöðnun verðbólgu felst
því aukið atvinnuöryggi og varanlegar kjarabætur.
Á hjöðnúnartímanum verður þó ekki hjá því
komist, að kaupmáttur kauptaxta rýrni a.m.k.
reikningslega um sinn og viðnámi gegn verðbólgu
fylgir í byrjun röskun á hag manna.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bæta hag þeirra,
sem verst eru settir með eftirgreindum kjarabót-
um:
3.1. Opinberar tilfærslur
' Þessar kjarabætur, sem einkum munu gag,nast
þeim, sem lægstar tekjur og þyngsta framfærslu-
byrði hafa, eru:
1) Skattar og tollar, sem nú leggjast með miklum
þunga á ýmsar nauðsynjavörur, verði lækkað-
ir.
2) Barnabætur barna að 7 ára aldri verða hækkað-
ar.
3) Tekjuskattur verði lækkaður með auknum
persónuafslætti.
4) Jöfnun húshitunarkostnaðar verður aukin
verulega.
5) Tekjutrygging lífeyrisþega hækkar umfram
laun og mæðra- og feðralaun hækka sérstak-
lega.
6) Hækkun lífeyrisbóta verður í samræmi við
almennar launahækkanir.
3.2. Aðrar kjarabætur
1) Veittur verði frestur á hluta af greiðslum vaxta
og afborgana verðtryggðra lána.
Skal þeim greiðslum, sem frestað er, bætt við
höfuðstól lánsins og lánstíminn lengdur þannig
að greiðslubyrði á hverjum tíma aukist ekki af
þeim sökum. Þessi aðgerð nái til lána Bygg-
ingarsjóðs ríkisins, Byggingarsjóðs verka-
manna, lífeyrissjóða banka og sparisjóða.
2) Gerðir verði heildarsamningar við lána-
stofnanir um skuldbreytingalán fyrir þá, sem
stofnað hafa til skuldar vegna byggingar eða
kaupa á eigin húsnæði í fyrsta sinn undanfarin
2-3 ár.
4. Verðlagsmál
Fyrst um sinn skal aðeins heimila þá hækkun á
vörum og þjónustu sem nauðsynleg er til að
standa undir óhjákvæmilegum kostnaðarhækkun-
um. Síðan verði dregið úr opinberum afskiptum,
þannig að neytendur og atvinnulífið njóti hag-
kvæmni frjálsrar verðmyndunar, þar sem sam-
keppni er næg. Sveitarfélög ákveði sjálf gjaldskrár
þjónustufyrirtækja sinna.
5. Búvöruverð
Laun bónda og verkafólks hans í verðlagsgrund-
velli landbúnaðarafurða skulu ekki hækka um-
fram þau mörk sem almennum launabreytingum
eru sett. Með breytingar á búvöruverði skal að
öðru leyti fara með sama hætti og önnur verð-
lagsmál.
6. Fiskverð
Verð á þeim fisktegundum, sem tilgreindar eru
í tilkynningu Verðlagsráðs sjávarútvegsins nr.
4/1983 skal ekki hækka að meðaltali umfram
mörkin sem sett eru almennum launabreytingum.
7. Yextir og verðtrygging
Vextir lækki í samræmi við verðbólgustig síðar
á árinu, svo fljótt sem árangur af hjöðnunarað-
gerðum gegn verðbólgu leyfir. Grundvöllur láns-
kjara verði endurskoðaður og stefnt að lengri
lánstíma.
8. Húsnæðismál
Lán Byggingarsjóðs ríkisins til þeirra, sem
byggja í fyrsta sinn, hækki um næstu áramót.
Jafnframt verði húsnæðislánakerfið eflt svo á
næstu árum, að lán þessi geti numið allt að 80%
af byggingarkostnaði staðalíbúðar. Samsvarandi
hækkun verði til þeirra, sem kaupa íbúð í fyrsta
sinn.
9. Ríkisfjármál og
erlendar lántökur
Að óbreyttu eru horfur á verulegum halla
ríkissjóðs á árinu 1983. Leitað verði allra leiða til
að hallinn verði sem minnstur.
Auknum útgjöldum ríkissjóðs vegna þeirra
aðgerða sem ákveðnar eru til þess að styrkja stöðu
þeirra, sem lakast eru settir, verði eins og frekast
er unnt mætt með sparnaði og aðhaldi á opinber-
um rekstri.
Gerð fjárlaga fyrir árið 1984 miðist við að ná
jafnvægi á ný í ríkisfjármálum.
Gagnger endurskoðun fari fram á ríkisfjármál-
um við undirbúning og gerð fjárlaga framvegis
með það fyrir augum að draga úr ríkisumsvifum
og útgjöldum. Skipan tolla og aðflutningsgjalda
verði einfölduð, uppsöfnunaráhrifum eytt og
stefnt að lækkun þeirra.
Aðhalds verði gætt í erlendum lántökum og þær
bundnar við hagkvæmar framkvæmdir.
Atvinnuvegirnir
1. Almennt
Til þess að auka hagvöxt og atvinnuöryggi
verður áhersla lögð á að efla atvinnustarfsemi og
atvinnuuppbyggingu. í því skyni verða m.a.
starfsskilyrði atvinnuveganna jöfnuð og sam-
keppnisstaða íslenskra atvinnugreina styrkt.
Skattalögum verði breytt þannig að þau örvi
fjárfestingu og eiginfjármyndun í atvinnulífinu.
í einstökum atvinnugreinum verður m.a. lögð
áhersla á eftirgreindar aðgerðir:
2. Sjávarútvegur
Afrakstur fiskstofna og hagkvæm nýting fiski-
skipastólsins haldast í hendur. Átak verði gert til
veiða á fleiri tegundum nytjafiska. Verðlagning
sjávarafla fari eftir gæðum, en það er forsenda
fyrir bættri vöruvöndun og aukinni ábyrgð fram-
leiðenda og útflytjenda sjálfra.
Rannsóknir í fiskiðnaði og hafrannsóknir verði
efldar í samvinnu við fyrirtækin sjálf og með
þátttöku þeirra. Auknar verði aðgerðir til orku-
sparnaðar við veiðar og vinnslu.
Samstarfi verði komið á við nágranna þjóðirnar
um að tryggja hámarksafrakstur þeirra fiskstofna
sem fara á milli auðlindalögsögu þjóðanna.
Ráðstafanir verða gerðar án tafar til þess að
mæta rekstrarvanda sjávarútvegsins. Jafnframt
verður gerð ítarleg athugun á því hvað gera má til
þess að auka hagkvæmni í útgerð og vinnslu.
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verði efldur
og eingöngu beitt til þess að jafna sveiflur á verði
sjávarafurða.
3. Landbúnaður
1. Unnið verði að aðlögun búvöruframleiðslunn-
ar að markaðsmöguleikum og dregið úr þörf fyrir
útflutningsbætur, þannig að þær fari lækkandi.
2. Lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins
verði endurskoðuð meðal annars með tilliti til
eftirfarandi atriða:
a) Skipulagningar búvöruframleiðslunnar eftir
héruðum eða framleiðslusvæðum, þar sem
tekið er tillit til framleiðsluskilyrða, markaða
og hóflegrar landnýtingar.
b) Breytinga á verðlagningarkerfmu.
c) Meiri hagkvæmni í verslun með garðávexti.
3. Lögð verði áhersla á nýjungar í vinnslu- og
sölustarfsemi landbúnaðarafurða og hagræðingu
til að draga úr vinnslu- og dreifingarkostnaði.
4. Nýjar búgreinar, svo sem loðdýrarækt, fisk-
eldi o.fl. verði efldar og stærri hluti fjárveitinga til
landbúnaðar renni til þeirra.
5. Með þessum og öðrum nauðsynlegum ráð-
stöfunum verði unnið gegn byggðaröskun og
hagur bændastéttarinnar tryggður.
4.Iðnaður
Unnið verði að því að bæta starfsskilyrði
iðnaðar. Meðal annars verði það gert með bættum
skilyrðum til eiginfjármyndunar, greiðari aðgangi
að rekstrarlánum og fjármagni til fjárfestingar,
endurbótum í skatta- og tollamálum, hagnýtri
rannsóknarstarfsemi af hálfu hins opinbera, af
námi verðlagsákvæða í samkeppnisiðnaði, inn-
kaupastefnu opinberra aðila o.fl.
Gerðar verði sömu gæða- og öryggiskröfur til
innfluttrar vöru og íslenskrar framleiðslu. Jafn-
framt verði gerðar ráðstafanir sem milliríkjasamn-
ingar leyfa, til verndar innlendum iðnaði gegn
óeðlilegum styrktaraðgerðum og undirboðum.
5. Orkumál og
orkufrekur iðnaður
Orkulindir landsins verði hagnýttar til að leggja
grundvöll að nýrri framfarasókn þjóðarinnar. Við
byggingu orkuvera sé þess gætt að samræmi sé á
milli markaðsöflunar fyrir orku og virkjunarfram-
kvæmda.
Samningar verði teknir upp að nýju við sviss-
neska álfélagið um verulega hækkun raforkuverðs
og önnur atriði. í tengslum við fjármálalega
endurskipulagningu Jámblendifélagsins verði
kannaðir möguleikar á þriðja eignaraðila. Nýjum
aðilum verði gefinn kostur á eignaraðild í Kísil-
málmverksmiðjunni.
Endurskipu-
lagning í stjórn-
kerfí og
peninga- og
lánastofnunum
1. Stjórnkerfíð
Til þess að gera stjórnkerfið-virkara og bæta
stjórnarhætti mun ríkisstjórnin beita sér fyrir
breytingum á stjórnkerfinu.
Markmið slíkra stjórnkerfisbreytinga er að
einfalda opinbera stjórnsýslu, bæta hagstjórn og
samræma ákvarðanir í opinberum fjárfestingum,
draga úr ríkisumsvifum og efla eftirlit löggjafar-
valds með framkvæmdavaldinu. M.a. verði:
a) Lagt fyrir Alþingi frumvarp að nýjum lögum
um Stjórnarráð íslarjds.
b) Ríkisendurskoðun breytt á þann veg, að hún
heyri undir Alþingi.
c) Rekstrarlegt eftirlit með ríkisfyrirtækjum eflt,
t.d. með auknu markaðsaðhaldi.
d) Stefnt að því að auka útboð við opinberar
framkvæmdir.
2. Peninga- og
lánastofnanir
Mikilvægt er að tryggja aukna arðgjöf fram-
kvæmdafjár, treysta innlendan sparnað og endur-
skoða sjóða- og bankakerfið. í því sambandi verði
unnið að eftirfarandi málum:
a) Komið verði í veg fyrir óhóflega útþenslu í
bankakerfinu með heildarlöggjöf um banka og
sparisjóði. Yfirstjórn bankamála verði færð i
eitt ráðuneyti.
b) Núverandi afurða- og rekstrarlánakerfi verði
endurskoðuð m.a. með það í huga, að þau
verði á vegum viðskiptabanka.
c) Unnið verði að endurskipulagningu fjárfesting-
arsjóðakerfisins. Stefnt verði að fækkun sjóða
með sameiningu þeirra til að draga úr kostnaði
og gera starfsemi þeirra heilsteyptari m.a. með
samræmingu lánskjara.
d) Áhersla verði lögð á fjölbreyttari sparnaðar-
form fyrir almenning, t.d. samningsbundinn
sparnað, tengdan réttLtil húsnæðislána.
e) Frjálsræði í gjaldeyrisverslun verði aukið og
réttur til að eiga fé á innlendum gjaldeyris-
reikningum rýmkaður.
f) Lög um Framkvæmdastofnun ríkisins verði
endurskoðuð. Verkefni áætlanadeilda verði
færð til annarra stofnana. Framkvæmdasjóði
verði mörkuð staða í tengslum við endurskipu-
lagningu sjóðakerfisins. Lánastefnu Byggða-
sjóðs verði breytt í samræmi við upphaflegan
tilgang samhliða því sem sjálfvirkni í lánveit-
ingum verði afnumin.
Utanríkismál
Meginmarkmið utanríkisstefnu íslendinga er
að treysta stjórnarfarslegt og efnahagslegt sjálf-
stæði landsins. Það verði m.a. gert með þátttöku
í norrænu samstarfi, varnarsamstarfi vestrænna
þjóða, alþjóðasamvinnu um efnahagsmál, starfi
Sameinuðu þjóðanna og stofnana, sem þeim eru
tengdar. Á alþjóðavettvangi beiti ísland sér fyrir
aukinni mannúð, mannréttindum og friði.
Stefna íslands í afvopnunarmálum miðist við
það að stuðla að gagnkvæmri og alhliða afvopnun,
þar sem framkvæmd verði tryggð með alþjóðlegu
eftirliti.
Standa þarf vörð um fyllstu réttindi íslands
innan auðlindalögsögunnar og réttindi landsins á
hafsbotnssvæðunum utan hennar verði tryggð svo
sem alþjóðalög frekast heimila.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á velferð, jafnræði,
öryggi, menntun, félagslegar umbætur og góða
heilbrigðisþjónustu. Ríkisstjórnin mun á starfs-
tfma sínum vinna að þessum og öðrum framfara-
málum.