Tíminn - 12.06.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.06.1983, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 12. JUNI 1983 Hann er eins og fæddur í hlutverk Scarpias, lögreglustjórans grimmlynda í Toscu, hafa menn haft á orði eftir hina prýðilegu konsertuppfærslu synfóníunnar á þessari frægu óperu í vor. Eg gæti líka séð hann fyrir mér í hlutverki márans Óþellós. Með svart hrokkið hár, snöggklippt skegg, há kinnbein og stór gneistandi augu. Eins og sniðinn í hlutverk illmennisins, vonda gæans. Þetta er Róbert W. Becker, amerískur óperusöngvari, sem hér hefur sungið í vetur við góðan orðstír. Hann býr vestast í vesturbænum, út við haf og fjall, ásamt konu sinni íslenskri, Guðrúnu Tryggvadóttur lista- konu. Ekki fyrsti útlendingurinn sem auðgar ís- lenskt tpnlistarlíf með nærveru sinni. ■ Ég vil nú helst ekki láta uppi hvenær ég er fæddur, svarar Róbert fyrstu spurningu minni og horfir á mig grun- semdaraugum. Svo hugsar hann sig tvisvar um. Jæja þá, er ekki nóg fyrir þig að vita að ég er fæddur í júní 1945 í Cleveland, Ohio? Sumsé rétt mátulega í stríðslokin, álykta ég í hljóði. Maður skyldi passa sig á því að segja meira, bætir hann við. Pað er aldrei að vita nema einhverjir stjörnuspekingar fari af stað, reikni mann út og komist að alls konar niðurstöðum um mann. Ég læt það gott heita og spyr: Er það ekki rétt hjá mér að þú hafir verið poppari eða dægurlagasöngvari hér í eina tíð? Ja, ég byrjaði fyrst að iðka tónlist þegar ég var eitthvað 8-9 ára, og spilaði þá á hin og þessi hljóðfæri - valdhorn, túbu, kontrabassa. En þegar ég var ópera og fræg synfóníuhljómsveit, sem George Szell stjórnaði um langt skeið. En það er víst að án Gyðinganna væri allt þetta ekki til, þarna ei'ns og í New York koma þeir þessu af stað, skipu- leggja, sitja í nefndunum, stjórnunum og ráðunum. Hvenær hvarflaði það fyrst að þér að leggja fyrir þig klassískan söng? Ég fékk fyrst áhuga á klassískum söng þegar ég heyrði í Cesare Seipi, gríðar- voldugum ítölskum bassa. Nei, ekki í eigin persónu, á plötum og í sjónvarpi. Þá var ég rétt að Ijúka gagnfræðaskóla, og varð alveg bergnuminn af því sem hægt væri að gera við mannsröddina. Bob tekur sér málhvíld og ég stelst til að kveikja í sígarettunni sem ég má helst ekki reykja upp í vitin á honum - um kvöldið er hann nefnilega að fara að syngja Scarpia, lögreglustjórann vél- ráða, í Toscu eftir Puccini. Ég blæs reyknum í hina áttina... 990f lítíd ■ „...í Bandaríkjunum þarf maður helst að vera reiðubúinn að drepa ömmu sína og selja kölska sálina til að komast áfram. af þnimiim og eldingum — Rætl við Robert W. Becker, bandarískan söngvara, sem hér heldur sig fimmtán ára fór ég að spila ásamt nokkrum öðrum strákum á dansbúllum og í næturklúbbum. Ég spilaði á gítar og söng aðalrödd, mestanpart ballöður, lög úr söngleikjum og svo auðvitað rock’n roll. Ég var í þessu næturklúbbastússi allt að 6-7 kvöld í viku þangað til ég var rúmlega tvítugur; þá var ég byrjaður að læra klassík við Tónlistarstofnunina í Cleveland og búinn að fá mig fullsaddan af næturklúbbum - það fór ekki vel saman að stúdera Bach á daginn og spila villta rokkmúsík á kvöldin. Glamrar á rafmagnsgítar Bob Becker er þó, veit ég, ekki fráhverfari rokkinu en það að hann glamrar ennþá á rafmagnsgítar sér til hugarhægðar - og lét meira að segja tilleiðast og spilaði með Bubba Morth- ens og fleirum á tónlistaruppákomunni Mental Óverdós í vetur. Cleveland er mikill tónlistarbær, ekki satt? Cleveland er merkilegur bær á margan hátt. Fyrst og fremst er þetta stálborg, mikill þungaiðnaður, enda er mikill hluti íbúanna svartur, næstum fimmtíu prósent. En jafnframt er geysimikið á seyði í listum og tónlist. Þarna er ágæt I Cleveland var ég aðallega hjá Eleanor Steber, sem er töluvert þekkt söngkona. Þá var ég meðal annars samskipa Gilbert Levine, forstjóra Metropolitan Óperunnar i New York, sem byrjaði feril sinn þarna undir leið- sögn George Szell. Síðan á hef ég verið hjá mörgum kennurum, einkum þó fimm eða sex. Ég átti lengst af í erfiðleikum með að finna kennara sem skildi hverseðlisröddin í mérværi, þeim hætti oftast til að dempa hana niður, gera minna úr henni en efni stóðu til. Þetta flækti málin fyrir mér á ýmsa lund. Það var yfirleitt reynt að kenna mér á of vitsmunalegan hátt. Tækni sem kom að engum notum Ég gæti skrifað fleiri bækur um tækni sem mér var kennd og kom mér að engum notum. Ég fór frá einum kennara til annars í leit að einhverjum sem gæti fært mér það raddfrelsi sem ég sóttist eftir. Þetta tekur allt sinn tíma, nú síðast vann ég með kennara sem hjálpaði mér geysimikið í fáeinum kennslustundum, frábærum kennara, Sigurði Demetz Fra- nzsyni. Ég skil ekkert í því af hverju söngfólk hér leitar ekki meira til hans til að njóta reynslu hans og hæfileika sem gætu verið mikils virði í uppbyggingunni hér á Islandi. Þú segir að þér hafi verið kennt á of vitsmunalegan hátt? Það er algengt í dag að söngvarar séu of vitsmunalegir. Þeir geta sungið allt mögulegt, en þá vantar ástríðu, snerpu, eitthvað upprunalegt. Þegar ég heyri í söngvara hlusta ég alltaf eftir þessum dýrslega krafti, krafti líkamans, ein- hverri spennu í söngnum. Auðvitað þarf maður að hafa kunn- áttu til að lesa nótur, telja inn, læra tungumál, en það er einskis virði nema það blandist skilningi líkamans, kraftin- um, tilfinningunum. Án líkamans er ekkert Er söngur þá fyrst og fremst líkam- legur? Líkamlegur að því leyti að án líkam- ans er ekkert, líkaminn hefur líf út af fyrir sig sem ekki er það sama og líf hugans. Það sem ég sækist eftir er eitthvert innblásið líf í söngnum, þar sem vitsmunirnir, kunnáttan og afl lík- amans ná saman og fuðra upp, kveikja í. Þetta er spurning um að virkja vissan kraft sem er í senn líkamlegur og andlégur. Afreksíþróttamaður sem þjálfar sig fyrir Ólympíuleika fer eins að - allt er stillt til að ná einu marki, bæði það líkamlega og það andlega. Hvernig á þá að kenna söng? Það eru margar aðferðirnar og ekki svo mikið af stórum sannindum sem hægt er að styðjast við, leiðirnar eru næstum eins margar og nemendurnir. Vandamálin erusvo ólík, þarfirnemand- ans svo breytilegar, og kennarinn verður að hjálpa honum að finna þægilegustu leiðina í gegnum vandamálin. Samt eru auðvitað viss grundvallaratriði sem ekki er hægt að líta framhjá, öndunin, góð heilsa, hugarástandið og hæfileikinn til að laga sig að mismunandi kringumstæð- um; ýmsum blæbrigðum tónlistarinnar til dæmis, blíðum, ástríðufullum, drama- tískum, sem eru til staðar í allri tónlist, meira að segja hjá þorparanum Scarpia í Tosca. En lykillinn að góðri kennslu er auðvitað fyrst og fremst viljinn til að koma einhverju til skila og hæfileikinn til að setja sig í spor nemandans. Þú starfaðir sem söngvari í Bandaríkj- unum í mörg ár, hver er reynsla þín af því? Reynsla mín af því að vera söngvari í Bandaríkjunum er nú að mörgu leyti svolítið blendin. Ég lenti í hálfgerðum flokkunarvandræðum. Stundum héldu menn að ég væri baritónn, stundum bassi, stundum bassabaritónn. Menn áttuðu sig ekki alveg á því til hvaða hluta væri best að nota mig, og því var ég beðinn um að gera ýmislegt sem átti ekki vel við röddina. Tra-la-la stíllinn allsráðandi Hvernig hlutverk fellur þér þá best við? Mér líður best í þyngri og dýpri dramatískum hlutverkum. Til dæmis sem Scarpia í Tosca, Rigoletto eða einn af þorpurunum fjórum í Sögum Hoff- mans eftir Offenbach. En eins og ég sagði þér áðan er röddin mín ennþá að breytast, hún er orðin fullþroskuð, þyngri og myrkari, svo ég get farið að taka að mér hlutverk sem ég hefði ekki getað látið mig dreyma um áður, til dæmis hlutverk Mefistófelesar í Fást. Annars held ég að það sé erfiðast fyrir söngvara með þungar, dramatískar raddir að fá almennilega ieiðsögn og góða umboðsmenn í Bandaríkjunum. Því miður er það svo að þar sækist fólk einkum eftir því létta og yfirborðs- kennda. Fólk er hrætt, hrætt við það hvernig er umhorfs í heiminum, ástandið W

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.