Tíminn - 12.06.1983, Qupperneq 15

Tíminn - 12.06.1983, Qupperneq 15
 W mm I neðstu hillunni er stnmillinn með helstu atriðum úr fréttunum og fyrir framan hann er einnig svarthvít myndavél. Á hinni myndinni sýnir Kari Sigtryggsson okkur svo nýtt tæki sem á að taka við af ■■■ Þar sem myndmálið ræðiir rílqiim... Þar sem myndmálið ræðiir rilqiim... Þar sem myndmálið ræðiir ríkjum Þar sem myndmálið ræður rikjiim ••• ••• Glænýjar erlendar fréttir allan sólarhringinn Þuríður vindur sér fram og vélritar fréttalistann. Pegar ég horfði á fréttirnar um kvöldið sá ég að listinn kom ekki óbreyttur, sumt hafði fallið út og annað komið í staðinn. Stundum nœst ekki í heimildir fyrir fréttunum, stundum reynist alls ekki um frétt að ræða og svo geta komið upp merkilegri mál yfir daginn sem eru þá tekin í staðinn. Það vakti athygli mína að Bogi var ekki á listanum, svo ég spurði hann að því hvort hann væri alveg sjálfráður með sínar fréttir. Hann sagði að hver einstaklingur væri að verulegu Jeyti sjálfráður með sínar fréttir, línurnar væru lagðar á fundinum á morgnana en það kæmi örsjaldan fyrir að fréttalistinn stæðist. Hann ítrekaði fjar- veru Ögmundar;„hann er sem kunnugt er formað^ ur aðdáendaklúbbs Margrét.irThatcher og verður „cheerleader" í kosningabaráttu hennar". Viö höfum nú. þegar séð árangur erfiðis Ögmundar í Bretlandi þar sem hann talaði við ýmsa menn: „aðallega blaðamenn því að það er best að ná sambandi við þá, auk þess sem þeir eru viðmóts- þýðir menn og kjaftaglaðir yfirleitt - eins og þú sérð hér." Erlendar fréttir streyma inn á printera eða telex-tæki á fréttastofu sjónvarpsins allan sólar- hringinn, frá fréttastofunum AP og Reuter.Auk þess fær sjónvarpið tíu mínútna sjónvarps- sendingu frá Visnews, í gegnum gervihnött, klukkan fimm á daginn. Visnews er sjón- varpsmyndafréttastofa í eigu BBC og Reuter. Þar að auki fær fréttastofan einu sinni í viku 60 mínútna kassettur. og stundum ríflega það, eina frá Visnews og aðra frá UPITN sem er sameiginleg fréttastofa banda- rísku fréttastofunnar UPI og ITN, sem aftur er sameiginleg fréttastofa breskra sjónvarpsstöðva sem eru í einkaeign. Þau lönd sem fá sendinguna frá Visnews klukkan fimm á daginn eru auk okkar Suður- Afríka, Finnland.grísk sjónvarpsstöðogEþíópía. Suður-Afríka var fyrst til að fá þessar sendingar en síðan komum við inn í þetta vegna þess að við þurftum þennan skrýtna tíma. Bogi sagði að við værum dálítið út úr evrópska kerfinu vegna þess að það fer frani á jarðkerfi. EBU, semer samband sjónvarpsstöðva í Evrópu, sendir sínar fréttir klukkan þrjú á daginn og stefnt er að því að íslenska sjónvarpið komist inn í kerfi þeirra í framtíðinni. Fréttir þeirra eru mun ítarlegri en Visnews-fréttirnar, enda er þar um 40 mínútna útsendingu að ræða. Þetta er hins vegar svo dýrt fyrirtæki að ef af þessu yrði nú þegar væri Póst- og símamálastofminin búin að taka stofnunina upp í skuld eftir á að giska mánuð, auk þess sem nauðsynlegan tækjabúnað vantar. Svo við hugum aftur að því hvað fólk er að gera á fréttastofunni, þá fór Þuríður í það að skrifa greiðslubeiðnir fyrir aðkeypt efni, svo sem eins og sunnudagshugvckjuna og veðurfræðina. Síðan ætlaði hún að ganga frá fréttunum frá í gær, vélrita allar ræður sem fluttar voru í sjónvarpi deginum áður (sem var sjómannadagurínn) og ganga síðan frá öllu til að hægt sé að ganga að því vísu ef á þarf að halda. Að þessu loknu byrjar svo undir- búningur fréttanna í kvöld. Tækninni fleygir fram Fréttamennirnir voru byrjaðir að hringja, en ef einhver skyldi ekki vita það upplýsist hér með að síminn er aðalatvinnutæki fréttamanna á öllum tegundum fjölmiðla. Karl og Bogi tóku að sér að leiða mig um salarkynnin og slóst Sigurveig í förina, þar eð hún náði ekki símasambandi við þá sem hún þurfti. Því miður er ég vart til frásagnar um það sem fyrir augu bar á leiðinni um húsið. Ég get einungis sagt það að það voru alls konar tæki með ótal tökkum í hverju einasta herbergi sem ég kom inn í. Og sjónvarpsskermar út um allt. Sjálfsagt þyrfti maður að dvelja þarna í viku til að kunna einhver smá skil á þessu öllu saman. Það vafðist þó ekkert fyrir mér hvað gerðist í klippiherbergjunum. í öðru eru klipptar filmur en í hinu myndbönd. Myndböndin eru þó ekki beinlínis klippt, heldur er fært af einni spólu yfir á aðra. Fréttastofa sjónvarpsins tekur nú nær allt sitt efni upp á myndbönd, en fær filmur sendar utan af landi. Um þessar mundir er óvenju mikið um filmur vegna þess að vorið er komið og allt er að spretta upp af snjónum. Fréttaritarar utan af landi senda vor- filmur. Síðan tóku við herbergi með flóknari tækjabún- aði. í einu var Bjarni Felixson að skoða íþrótta- myndir og í'öðru var verið að skoða kvikmyndir. Þetta var sem sagt „Ampex“, eða myndbanda- deildin, þar sem myndböndin eru meðhöndluð. Því næst tók við kvikmyndadeildin eða „scanner" - sem hefur verið íslenskað í „skanni" - þar sem filmurnar eru meðhöndlaðar. Þessar deildir siá um að gera sjónvarpsefnið þannig úr garði að það fullnægi tæknilegum kröfum. Fólk slettir heilmikið þarna enda mun það lenska á meðal þeirra sem þurfa að nota mikið erlend tungumál við störf sín. Og svo sem ekkert út á það að setja á meðan að fréttirnar eru sagðar á sæmilega góðu .máli. En hvað tækninni viðvíkur var mér tjáð að henni fleygði svo framaðjafnvel eftir tíu ti! fimmtán ár gætu myndbönd verið orðin úrelt og allt komið á tölvuminni. Ja hérna! í einu herberginu, eða skonsunni, var Bogi Arnar Finnbogason að æfa textun á Arfleifð herstjóranna, því að þýðandinn sendir textann út sjálfur. í öðru herbergi var strimillinn með helstu atriðum úr fréttum framan við litla svarthvíta myndavél, en nú er komið nýtt tæki sem mun taka við af strimlinum og starfsmenn sjónvarpsins eru enn að æfa sig á. í sama herbergi er einnig klukkan fræga sem reyndist agnarlítið kríli uppi í hillu. Því næst komum við í stúdíóið, þar sem gaf að líta „fréttasettið" og fjórar myndavélar. Inn af stúdíó- inu er svo upptökustjórnin til húsa, eat þar situr Karl á meðan á útsendingu frétta stendur og sér um að allt fari fram eftir kúnstarinnar reglum. Þaðan hefur hann samband við alla sem standa að fréttaútsendingu og það er enginn smáræðis hópur, nefnilega: sviðsstjóri, þrír kvikmyndatökumenn, ljósamaður, tæknistjóri, myndveljari, hljóðmað- ur, tveir menn sem sjá um myndböndin, tveir kvikmyndasýmngarmenn (scannermenn). Þá hefur hann einnig samband við aðalstjórn, en þar eru útsendingarstjóri, hljóðmaður og myndveljari eins og í öllum öðrum útsendingum. Þá má ekki gleyma þulnum, skriftunni, stúlkunni sem annast textavélritun á þýðingum og helstu atriðum úr fréttum og sminkunni. Hún sminkar alla og fylgist með útsendingunni. Ef fólk svitnar óeðlilega mikið hleypur hún fram og púðrar þá sem á þurfa að halda. Síðan eru náttúrlega fréttamennirnir fimm á vakt, en algengt er að tveir þeirra séu í hverjum fréttatíma. Þeir sem hafa unnið með þeim yfir daginn eru klippari, kvikmyndatökumaðúr, hljóðmaður, Ijósmyndari, framköllunarmaður, teiknari, kortagerðarmaður, og að sjálfsögðu fréttastjórinn. Hægt að þýða ótrúlegustu tungumál Mer er sagt að venjulega sé eitt „team" eða lið að störfum yfir daginn, en eitt lið skipa kvik- myndatökumaður og hljóðmaður. Algengt er að kallaðir séu til þýðendur þegar tekin cru viðtöl við útlendinga og eins ef mikið er að gera í erlendu fréttunum.. Yfirþýðandi sjónvarpsins hefur yfir- umsjón með öllum þýðendum og spjaldskrá yfir ótrúlegan fjölda fólks sem talar hin ótrúlegustu tungumál. Sagði Bogi að vart væri til sú þjóðtunga sem sjónvarpiðgætiekki þýtt, t.d. hefði vcrið þýtt úr kínversku. Nú var búið að leiða mig í gegnum allt ferlið, og við héldum aftur upp þar sem hver sneri sér að sínu starfi. Á° skrifstofu fréttastjórans sátu þeir Emil og Omar og veltu því fyrir sér hvernig þeir ættu að bjarga tveimur verkefnum á miðvikudeg- inum. Hið nýja skip Norröna var væntanlegt til Seyðisfjarðar klukkan eitt á miðvikudag og klukkutíma síðar átti að opna sýningu á Kirkju- bæjarklaustri í tilefni 200 ára afmælis Skaftárelda. Þeir voru komnir að þeirri niðurstöðu að líklega yrðu þeir að taka tvær flugvélar, aðra til Egilsstaða og fara síðan akandi þaðan til Seyðisfjarðar og hina til Kirkjubæjarklausturs. „Við verðum að koma báðum þessum fréttum í fréttatímann á miðviku- dag,“ sagði Emil, „sérstaklega vegna þess að það er sjónvarpslaus dagur daginn eftir. Við erum búnir að athuga þetta á alla kanta og verðum að taka tvær vélar, vél Ómars er ekki nógu stór til að taka tvö lið. Það er sjaldgæft að tveir stór- A atburðir gerist á sama tíma og vandamál af / þessu ta:i koma því sjaldan upp. Við / höfum fjögur lið og venjan /ffi ■ Bjarni Felixson skoðar íþróttamyndir niðri í myndbandadcildinni, eða „Ampex“ eins og sjónvarpsfólk kallar það. tTmwro ■ Nú er stutt í útsendingu en þó tími til að væta kverkarnar rétt aðeins. Fréttaþulur á þriðjudagskvöldið var Guðmundur Kristjánsson en í stúdíóinu voru auk hans, veðurfræðingsins og fréttamannanna Guðjóns og Boga þeir Einar Páll Einarsson myndmeistari, Óskar Arason og Gylfi Vilberg myndatökumenn, ásamt Guðmundi Guðjónssyni sviðsstjóra. Sviðsstjóri gefur merki um byrjanir og þess háttar. Hann er í beinu sambandi við útsendingarstjórann og kemur boðum hans til þeirra sem eru í stúdíóinu hverju sinni. Eitt af verkum sviðsstjóra er einnig það að taka á móti fólki og undirhúa það - taka úr því skjálftann ef taugarnar verða óstyrkar. Á hinni myndinni má sjá Borgþór H. Jónsson greina frá veðrinu umrætt kvöld. ■ Ólafur Sigurðsson fréttamaður ræðir við Miríam, príorínnuna í klaustrinu í Hafnarfirði, en nunnurnar þar yfirgáfu landið á föstudaginn. „Teamið“ skipuðu að þessu sinni þeir Jón Arason hljóðmaður og ÓIi Orn Andreassen kvikmyndatökumaður. SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983 SUNNUDAGUR 12. JUNl 1983 ■ Ingibjörg Gunnarsdóttir sminkar Katrínu Árnadóttur dagskrárþulu. Sminkan verður að vera til taks á meðan á útsendingu frétta stendur. Ef einhver svitnar óeðlilega mikið hleypur hún fram og púðrar viðkomandi. ■ Það fór vel á með forsetanum og systrunum. Ólafi þótti myndatakan dragast nokkuð á langinn - jafnvel svo að hún trufiaði athöfnina. ■ Vigdís Finnbogadóttir býður systurnar velkomnar í blómastofunni á Bessastöðum. Sjónvarpsmenn festa atburðinn á myndband. ■ Hér sjáum við klukkuna frægu, en fyrir framan hana er svarthvít myndavél. strímlinum og starfsfólk sjónvarpsins æfir sig nú á. ■ Bogi Arnar Finnbogason æfir útsendingu á textanum á Arfieifð herstjóranna. Þýðendurnir senda textann yfirleitt út sjálfir. ■ Jón Stefánsson klippari tekur til við að klippa nunnu-fréttina í samráði við Ólaf sem eiginlega ætti að vera með á þessari mynd því hann sat við hlið Jóns.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.