Tíminn - 23.06.1983, Síða 1
Armar dagur Vestfjardarheimsóknar Vigdísar Sjá bls- 4-5
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 23. júní 1983
142. tölublað — 67. árgangur
■ Skipverji af Gunnjóni gengur frá borði í lögreglufylgd. Tímamynd Ari
Lögregluvörður við Njarðvíkurhöfn er raekjutogarinn
Gunnjón var dreginn að bryggju:
SIÓPRÓF FARA
FRAM í DAG
EDA FÖSTUDAG
- Enn Ókunnugt um eldsupptök ■ Rækjutogarinn Gunn-
jón GK 506 var dreginn til
hafnar í Njarðvík af mb.
Bjarna Ólafssyni AK 70
laust eftir klukkan 2 í nótt.
Mikill viðbúnaður var á
bryggjunni í Njarðvík, lög-
regiuvörður auk aðstand-
enda skipverja á Gunn-
jóni. Blaðamönnum var
meinað að hafa tal af skip-
verjum, sem greinilega
voru þjakaðir eftir erfiði
og áföll undanfarna daga.
Skipverjar af varðskip-
inu Þór, Gunnjóni og
Bjarna Ólafssyni börðust
við eldinn um borð í
Gunnjóni í rúman sólar-
hring, eða frá mánudags-
morgni þar til rétt fyrir
hádegið í gær. Eldurinn,
sem ekki er vitað hvar átti
upptök sín, tók þrjú
mannslíf áður en yfir lauk.
Þótt ekki væri mikið að
sjá á skipinu utanverðu
mun það illa farið. Innrétt-
ingar eru allar taldar ónýt-
ar, sjór komst í vélarrúm-
ið, þannig að ekki var
hægt að sigla því til hafnar
fyrir eigin vélarafli.
Sjópróf í málinu fara
fram í dag eða á morgun,
en áður mun fara fram
vettvangsrannsókn.
■ Gunnjón GK 506 lagstur að bryggju í Njarðvíkurhöfn. Á innfclldu myndinni sést skipverja fagnað heilum á húfi. Tímamynd Ari
Tilboð opnuð í milliveggi í hús Rafmagnsveitu Reykjavíkur:
LÆGSTA TILBOÐ 63% UNDIR KOSTNADARÁÆTUIN!
■ í gær voru opnuð tilboð í
gerð millivcggja í fimm hæða
hús Rafmagnsveitna Reykjavík-
ur við Grensásveg. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á kr.
8.093.000, en sérstaka athygli
vekur að tvö íslensk fyrirtæki
gerðu tilboð sem námu mun
lægri upphæðum en áætlunin
gerði ráð fyrir. Ármannsfell h/f
gerði tilboð sem nam kr.
5.100.000, eða um 63% afkostn-
aðaráætlun og Mát h/f, gerði
tilboð sem nam kr. 2.988.300,
eða 37.1% af því sem kostnaðar-
áætlunin gerði ráð fyrir! Eitt
tilboð barst frá erlendu fyrirtæki,
þar sem aðeins var tekinn fram
efniskostnaður og ijórða tilboðið
var frá Guðjóni Pálssyni, og
nam það 10.236.409 krónum.
Sigfús Jónsson hjá Innkaupa-
stofnun Reykjavíkurborgar
sagði í samtali við Tímann í gær
að tilboð Guðjóns hefði verið
hið eina þar sem algerlega var
farið eftir útboðsgögnum, í tilboð-'
um Ármannsfells og Máts hefði
verið gert ráð fyrir nokkrum
frávikum, sem miðuðust við
staðlaða framleiðslu þessara
fyrirtækja.
„Við höfum endurhannað
þetta verk alveg frá grunni, byggt
tilraunaeiningar, prófað þær og
við teljum okkur fullkomlega
geta staðið við þetta tilboð,“
sagði Edgar Guðmundsson hjá
Mát h/f, og þessa vinnu okkar
höfum við ekki reiknað með inni
í tilboðinu. Við höfum haft þá
stefnu að gera það sem í okkar
valdi stendur til að stuðla að
lækkun byggingarkostnaðar í
landinu og um leið lækkun verð-
bólgunnar og við höfum einnig
haft þá stefnu að láta viðskipta-
vinina njóta þeirrar lækkunar
sem við náum fram, að minnsta
kosti til jafns við okkur sjálfa.
Edgar sagði að frávikin frá því
sem gert var ráð fyrir við útboð
væru engin útlitslega séð og taldi
að ekki væri heldur um nein
gæðafrávik heldur að ræða. Frá-
vikin kæmu fram í efni og vinnu-
liðum.
„Ég segi ekki að við verðum
ríkir af þessu verki, ef við fáum
það, en við verðum heldur ekki
fátækari. Við skulum segja að
þetta sé okkar framlag til að
lækka rafmagnskostnað Reyk-
vikinga," sagði Edgar.
Ármann Örn Ármannsson
framkvæmdastjóri Ármannsfells
tók í svipaðan streng og Edgar.
„Útboðsgögnin gera ráð fyrir að
þessi verkhluti sé heimasmíðað-
ur, en okkar tilboð byggist á
verksmiðjuframleiðslu, við
höfum raunar ekki hannað hana
sjálfir heldur er hún hönnuð í
Danmörku. Við bjóðum upp á
heldur meiri gæði en útboðsgögn
gera ráð fyrir, en sparnaðurinn
liggur að mestu í vinnusparnaði.
JGK