Tíminn - 23.06.1983, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
12
heimilistíminn
Umsjón A.K.B.
Eldhúshornid
■ 48 ráðlcggingar og uppskriftir hafa
nú verið gefnar út hjá Osta- og Smjör-
sölunni og eru þar alls kyns ostaréttir.
i uppskriftabæklingi nr. 47 er m.a.
þcssi uppskrift:
Fasteignir þurfa að hækka
um IV2— 2% á viku til að
halda í við verðbólguna
— rætt við Elías Gíslason og Stefán Ingólfsson hjá Fasteignamati ríkisins
■ Kaup og sala íbúða er það sem
daglega gerist og þar er farið mcð
mikla fjármuni. Það er því mikið í húfi
fyrir bæði kaupanda og seljanda að
rétt ogvel sé á málum haldið. En crum
við nógu fróð um þessi mál ef við
lendum í því að kaupa eða selja
fasteign? Eg hitti að máli þá Elías
Gíslason viðskiptafræðing og Stefán
Ingólfsson, verkfræðing, sem starfa
hjá Fasteignamati ríkisins og fékk hjá
þeim ýmsar upplýsingar varðandi fast-
eignakaup og sölu.
..Getur almenningur leitað til ykkar
um núvirðisútreikninga á t.d. kauptil-
boðum?
„Við erum ekki í stakk búnir ennþá
til að geta veitt þá þjónustu í stórum
stíl en það stendur til og hugsanlega á
þessu ári. En það er mikið um að fólk
leiti til okkar um ýmsar upplýsingar
varðandi kaup og sölu og við höfum
reynt að leysa úr spurningum þeirra
sem hingað hafa leitað. Við erum með
staðgóðar upplýsingar um fasteigna-
markaðinn og gerum spár fram í
tímann."
„Teljið þið hagstætt fyrir fólk að láta
gera núvirðisútreikninga á kauptilboð-
um?“
„Já. við crum hlynntir núvirðingu og
teljum að það sc það sem koma skal.
Núvirðing er orðin nauðsyn í dag og
sérstaklega ef verðtryggð lán hvíla á
íbúðunum. Verðtryggingar hafa líka
aukist í fasteignaviðskiptum vegna
þcss að flestar skuldir sem kaupandi
yfirtekur eru vcrðtryggðar. t.d. hús-
næðismálastjórnarlán, lífeyrissjóðslán
og skammtímalán. Ef fólk yfirtekur
slík lán, þarf að reikna út í núvirði. En
þcir aðilar sem í dag rcikna út í núvirði
eru með nokkuð frjálst val um hvaða
ávöxtunarkröfur þeir gera við núvirð-
ingu og þá er miðað við hinn frjálsa
verðbréfamarkað. Það erum við ekki
alveg sáttir við.
„Hvaða áhrif hefur það á verð
fasteignar, ef hún er seld með verð-
tryggðum eftirstöðvum?"
„Ef fasteign er seld með vcrtryggð-
um eftirstöðvum lækkar heildarverð,
en það er núvirðið, sem segir til um,
hve hagstætt verðtilboð er. Helsti gall-
inn við núvirðisreikninga er sá að
þeir eru nokkuð flóknir og fólk á erfitt
með skilja þá. En þeir sem kaupa á
vcrötryggðum kjörum ciga að ganga
eftir því að fasteignasalinn útskýri
fyrir þeim forsendur núvirðingarinnar.
Þeim mun hærra, sem núvirðið er,
þeim mun hagstæðara er kauptilboðið
fyrir seljandann, en óhagstæðara fyrir
kaupandann.
Menn. sem nú eru að selja íbúð og
kaupa aðra, þurfa ekki að hugsa um
núvirðiö á útborgun, ef að hún gengur
beint í aðra íbúð. Þá er útborgun
raunverulega verðtryggð, ef að
greiðslur falla saman. Það er aftur
erfiðara fyrir húsbyggjandann, ef hann
þarf að hafa útborgun í fyrri íbúð
óverðtryggða í allt að eitt ár.
„Er stutt síðan farið var að gera
núvirðisútreikninga?"
„Já. það eru ekki nema um þrjú ár
síðan. Áður höfðu margir farið flatt á
því að verðtryggð lán voru ekki upp-
reiknuð í sambandi við íbúðasölu."
„Viljið þið nefna dæmi um áhrif
verðtryggingar við íbúðasölu?"
„Við getum tekið dæmi um tvær
íbúðir. Segjum að hvor íbúð sé seld á
I millj. kr. Önnur íbúðin er ekki með
neinu láni áhvílandi og hún er seld á
venjulegum kjörurn, 75% útborgun og
eftirstöðvar eru til 4 ára með 20%
vöxtum.
Hin íbúðin er með vertryggðum
lánum áhvílandi og útborgun er 75%.
Afgangurinn, verðtryggðu lánin, eru
til 10 ára með 3% vöxtum. Þá er
núvirði íbúðarinnar með verðtryggðu
lánununt hærra og þessi kaup því
gjörólík. Munurinn á raunverðinu í
þessum tveimur tilfellum er 100 þús.
íbúðin með engu láni áhvílandi þyrfti
því að vera með 100 þús. kr. hærra
kaupverði en hin til að sambærilegt
verð fáist fyrir hana.
Menn þurfa sérstaklega að gæta sín
á verðtryggðum lánum. sem þeir yfir-
taka.
Eftir því sem við best vitum eru
yfirtekin verðtryggð lán t.d. bankalán
fyrst framreiknuð við þær núvirðingar-
aðferðir, sem notaðar eru nú og síðan
eru reiknuð ákveðin afföll af þeim.
Þctta finnst okkur frekar varhuga-
vert. því bréfin, sem í þessum við-
skiptum verða aldrei seld, þ.e.a.s. þau
eru í hendi þriðja aðila, og aðilinn,
sem selur þau á þau ekki. Ef þcssi
aðferð er notuð getur seljandi stór-
grætt með því að setja verðtryggt lán á
íbúðina rétt áður en hún er seld og láta
u'ðan kaupanda yfirtaka það uppreikn-
að með afföllum.
Áður fyrr. meðan öll lán voru óverð-
tryggð urðu menn að vera vissir um að
■ Elías Gíslason ásamt Sverri Júl-
iussyni hafa hannað kaupsamninga og
fást þeir hjá Fasteignamati ríkisins.
Þessir kaupsamningar eru inun greinar
betri en þeir, er áður hafa verið í
notkun, þar eð á þessum er gert ráð
fyrir mjög nákvæmri sundurliðun
áhvílandi veðskulda, sem kaupandi
yfirtekur.
geta borgað útborgun og greiðslur á
fyrsta ári, þar á eftir, en nú þurfa menn
að reikna lengra fram í tímann."
„Er óhagstætt að standa í húsbygg-
ingum í dag?"
„Það er nú fremur óhagstætt, þar
sem fasteignaverð hækkar minna en
byggingakostnaður. húsbyggjendur
verða því að spá í núvirði þeirra eigna,
sem þeir ef til vill eru að selja til að
fjármagna bygginguna.
„Hvað hefur lánskjaravísitalan
hækkað í maí-júní?"
„Lánskjaravísitalan hefur hækkað
um 8,25% í maí-júní og síðan í
desember hefur hún hækkað um 39%.
Verðbólguhraðinn í júní er sá mesti,
sem verið hefur undanfarið. Kaup-
skerðingaráhrifin eru ekki farin að
hafa áhrif ennþá, en talið er að þau
byrji að hafa áhrif í október.
Fastéignir þurfa nú að hækka á
hverri viku um 11/2-2% til þess að halda
í við verðbólguna eins og hún er í dag."
AKB
H Félag matvörukaup-
manna hefur tekið upp þá
nýbreytni að veita þeim
fyrirtækjum sérstaka
viðurkenningu, sem að
mati stjórnar félagsins
skara fram úr, hvað varðar
vöruvöndun og góða þjón-
ustu við félagsmenn.
Osta- og smjörsalan sf.
er fyrsta fyrirtækið, sem
hlýtur þessa viðurkenn-
ingu. Afhending viður-
kenningarskjalsins fór
■ Guðrún S. Möller og Ingveldur Steindórsdóttir sjá um afgreiðslu á hinum Ijúffengu islensku ostum, en af þeim munu
vera rúmlega 50 tegundir. Auk þess fæst líka ítalskur Parmesan ostur í Osta- og smjörsölunni.
Osta- og sm jörsalan
fær viðurkenningu
fram í gær, en formlega
hafði verið tilkynnt um
þessa viðurkenningu á 25
ára afmæli Osta- og
smjörsölunnar, sem var í
febrúar s.l.
Stjórn Félags matvörukaupmanna
lítur svo á, að þetta sc um leið hvatning
til annarra framleiðertda, sem og hönn-
uða umbúða og dreifingaraöila um að
oft er hægt að gera betur.
Ostavenjur fólks hafa
breyst
„Ostavenjur fólks hafa breyst mikið á
síðustu árum" sagði Guðrún S. Möller
hjá Osta- og smjörsölunni, er ég kom
þar við nú í vikunni. „Fólk kaupir meira
■ Sunnlenskir bændur í kynnisferö í Osta- og smjörsölunni s.l. þriðjudag.
Tímamynd. AKB
en áður sterka osta og veisluosta, t.d.
Camenbert, gráðost óg yrju, Port Salut
og rjómaosta.
Nú seljum við líka gamlan brauðost,
sem er mun bragðmeiri en venjulegi
brauðosturinn, sem er yfirleitt 2-3 mán-
aða, þegar hann er seldur. En gamli
brauðosturinn er orðinn meira en árs-
gamall. Fólki líkar mjög vel að fá
þennan bragðmikla brauðost. En það er
svolítið skrýtið þegar fólk er að biðja um
bragðsterkan ost og spýr svo, hvort hann
sé ekki nýr. Þessi sterki brauðostur er
mjög sambærilegur við Gouda 26%,
sterkan, scm er seldur um 9-12 mánaða
gamall."
-Hvaðan kemur brauðosturinn?
„Brauðosturinn kemur frá mjólkur-
búinu á Hvammstanga, en Gouda ost-
arnir koma frá mjólkurbúunt víðs vegar
af landinu, sama gildir um 17% ostinn
og 11% ostinn."
Maribo-ávaxtabrauð
2 172 bolli hveiti,
1/2 bolli sykur,
2 tsk. lyftiduft,
1 tsk. salt,
1/2 tsk. kanill,
1/4 bolli matarolía.
2 egg.
3/4 bolli mjúlk,
11/2 bolli afhýdd smátt söxuð epli,
3/4 bolli saxaðar hnetur,
2 bollar (200 g) rifinn Maribo-ostur
Hitið ofninn í 175 gráður C. Blandið
saman hveiti, sykri, lyftidufti, salti og
kanil. Bætiö olíu, eggjum og mjólk t,
hrærið vel. Blandið eplum, hnctum og
osti saman við. Setjið deigið í smurt
formkökumót. Bakað í 1 klst. og 15
mín. Látið bíða í 5 mín. áður en það
er tekið úr mótinu og látið það kólna
á bökunargrind.