Tíminn - 15.09.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.09.1983, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBFR 1983 BLAÐAUKI BORGARNES segir Húnbogi Þorsteinsson sveitarstjóri Borgarnesshrepps. Allt frá fyrsta nagla,til gólfteppisins! Þú munt komast að raun um að nú bjóðum við upp á allt það sem til þarf við húsbygginguna eða endurbætur á gamla húsnæðinu. Við leggjum allt kapp á að veita snögga og góða þjónustu í glæsilegum húsakynnum. Það er okkur hjá KB mikið ánægjuefni að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fullkomna þjónustu f nýrri Byggingarvömdeild okkar í gamla mjólkursamlaginu. Allt frá fyrsta naglanum til gólfteppisins fráKB- BYGGINGAVÖRUM! Verið vel- komin í verslunina til okkar! Byggingavörur Borgamesi Sími 93-7200 ■ /„Það er enginn vafi á að ferða- mannaþjónusta er vaxandi þáttur í at- vinnulífinu í Borgarnesi. Með tilkomu brúarinnar vfir Borgarfjörð komumst við aftur inn í alfaraleið og í kjölfar hennar var lögð meiri áhersla á ferðamanna- þjónustu og hún verður sjálfsagt meiri er fram líða stundir“, sagði Húnbogi Þor- steinsson sveitarstjóri Borgarnesshrepps í spjalli við Tímann. - Hvernær hófst byggð í Borgarnesi? „Það má rekja upphaf byggðarinnar til ársins 1867 og hér var kominn löggilt- ur verslunarstaður upp úr aldamótum. Borgarnes varð síðan sjálfstætt sveitar- félag árið 1913 en áður var það hluti af Borgarhreppi. íbúunum fjölgaði hægt hér framanaf. Árið 1878 var aðeins skráður hér 1 íbúi, árið 1900 voru þeir 50, árið 1930 voru íbúar 432, 1940 voru þeir 656, árið 1960 voru íbúar 832, árið 1970 voru þeir 1157 og árið 1982 voru íbúar orðnir 1714. Það sést af þessu að fjölgunin hefur orðið mest síðasta áratug og Borgarnes er nú næstfjölmennasta sveitarfélagið á landinu, aðeins Mosfells- hreppur er stærri, og allmargir kaupstað- anna eru með færri íbúa en Borgarnes." - Hvernig er atvinnulífi í Borgarnesi háttað? „Atvinnulífið í Borgarnesi byggist fyrst og fremst á verslun og þjónustu við héraðið hér umhverfis. Lengi framanaf voru það helst íbúar Mýrarsýslu og Borgarfjarðar norðan Skarðsheiðar sem sóttu verslun hingað en á seinni árum hafa íbúar Snæfells- og Hnappadalssýsl- anna bæst við. Eftir tilkomu brúarinnar hafa íbúar Borgarfjarðar sunnan Skarðs- heiðar sótt hingað þjónustu í auknum mæli.“ „Þá hefur framleiðsluiðnaður aukist hér undanfarið og mörg fyrirtæki hafa verið sett hér á stofn í sambandi við hann. Húsbyggingar og verktakastarf- semi hefur verið snar þáttur í atvinnulíf- inu og hér eru nú starfrækt talsvert öflug fyrirtæki á því sviði. Þá má nefna þjónustu við ferðamenn og fyrir rúmu ári var viðbygging við hótelið tekin í notkun en það er rekið af hlutafélagið þar sem hreppsfélagið er stærsti aðilinn auk Kaupfélags Borgarness, Sýslufélag- anna og ýmsra einkaaðila. Vegna góðrar legu Borgarness í kjördæminu hefur verið komið hér fyrir nokkrum stofnun- um sem þjóna kjördæminu öllu, t.d. Vegagerð ríkisins, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Fræðsluskrifstofu Vestur- lands, útibú frá Veiðimálstofnun og útibú frá Fasteignamati ríkisins.“ - Helstu framkvæmdir á vegum hreppsins? „Síðasti áratugur var tími mikillar uppbyggingar og framfara hér í Borgar- nesi, eins og víðar á landinu. íbúðabygg- ingar voru miklar, uppbygging hjá fyrir- tækjum og miklar opinberar fram- kvæmdir. Þær framkvæmdir sem skera sig sjálfsagt úr frá þessu tímabili eru Hitaveitan og brúin yfir Borgarfjörð. Þjónusta við íbúana var einnig aukin mikið á þessum árum og má þar nefna íþróttamiðstöð og leikskólá sem sveitar- félögin byggðu með kostnaðarþátttöku ríkisins og heilsugæslustöð og dvalar- heimili fyrir aldraða sem var byggt upp og rekið í samvinnu við aðra aðila. Gatnagerð hefur einnig verið snar þáttur í framkvæmdum sveitarfélagsins og nú er um 75% af gatnakerfinu með bundu slitlagi". „Uppúr 1970 var sveitarfélagið komið í mikil vandræði vegna skorts á bygging- arlandi. Það mál tókst að leysa með kaupum á hluta af landi jarðarinnar Borgar sem er í eigu ríkisins og einnig með kaupum af landi annarra jarða. Nú er lagt mikið kapp á að hafa nóg af lóðum fyrir bygginga og iðnaðarfram- kvæmdir." „Helstu framkvæmdir nú á vegum sveitarfélagsins eru viðbygging við Grunnskólann og nokkuð er unnið við gatnagerð og frágang opinna svæða en á það verkefni hefur verið lögð mikil áhersla undanfarið. Af verkefnum í undirbúningi má nefna stækkun leik- skóla, nýjan gæsluvöll, endurskoðun aðalskipulags, nýtt íþróttasvæði og safnahús.“ „Verðbólguþróunin hefur leikið sveit- arfélögin grátt undanfarið" sagði Hún- bogi að lokum“ og ef svo hefði haldið áfram sem horfði blasti við alger stöðvun allra framkvæmda sveitarfélaganna. Sveitarfélögin eiga við mörg vandamál að glíma og stærsta hagsmunamál þeirra um þessar mundir er að takist að vinna á verðbólgunni þannig að þau verði aftur í stakk búin til að veita íbúum sínum eðlilega þjónustu." ■ Húnbogi Þorsteinsson sveitarstjóri Borgarncsshrcpps Þjónusta fyrir allar gerðir bifreiða Rétting*sprautun«nýsmíð Bílaverkstæði Ragnars Borgarbraut 93-7178 93-7115 Þjónusta í þjóðbraut „ FERDAMANNAÞJON USTAN ER VAXANDI ÞÁTTUR í ATVINNULÍH B0RGARNE$$“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.