Tíminn - 15.09.1983, Page 7

Tíminn - 15.09.1983, Page 7
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1983 BLAÐAUKI BORGARNES ■ Indríði Albertsson mjólkursamlags- stjóri ■ Allir þekkja sýrða rjómann, sem þykir ómissandi í matargerð, og flestir hafa smakkað ídýfumar og sósumar sem komu á markaðinn í vor, búnar til úr sýrðum rjóma. Þessar vörur allar eru framleiddar í Mjólkursamlagi Borgar- fjarðar í Borgamesi. í samtali við Tímann sagði Indriði Albertsson mjólkursamlagsstjóri að um 20 tonn af sýrðum rjóma væru framleidd á mánuði hjá samlaginu og þar af færi um helmingur í kryddvörurnar. Nú eru framleiddar tvær tegundir af sósum: Þúsund eyja sósa og gúrkusósa, og tvær tegundir af ídýfum: lauk og beikonídýf- ur. Framleiðslan á kryddvörunum hófst í mars í vor og þá tók Mjólkursamlag Borgarfjarðar alfarið við framleiðslunni á sýrðum rjóma. í Mjólkursamlaginu er einnig framleitt skyr í plastpokum: gamla skyrið með lifandi gerlum, sagði Indriði. Þetta skyr kom á almennan markað í vor og sagði Indriði að sala þess hefði verið nokkuð góð, sérstaklega eftir að tókst að komast fyrir galla í pökkun sem olli því að loft vildi komast í pokana. Ostaframleiðsla hefur hins vegar legið niðri og Jarlinn. sem áður var framleiddur í Borgarnesi er nú búinn til í Búðardal. Svæði Mjólkursamlags Borgarfjarðar nær frá Skeljabrekku í Borgarfirði, um uppsveitir Borgarfjarðar og norður á Snæfellsnes. Fyrstu 7 mánuði þessa árs var innvegin mjólk 5.590.000 lítrar sem er nánast sama magn og á síðasta ári. Indriði sagði að um helmingur mjólkur- innar væri unninn á staðnum en af- gangurinn er fluttur til Reykjavíkur óunninn. Um 15 manns vinna við mjólk- urvinnsluna í stöðinni. Indriði Halldórsson sagði að lokum að helst væri á döfinni að bæta við bragðteg- undum í sósur og ídýfur. Einnig væri verið að undirbúa að nýta vélarnar við pökkun á ávaxtagrautum en það hefði sýnt sig að til væri góður markaður fyrir þá hér á landi. ■ Mjólkursamlag Borgarfjarðar fram- leiðir sýrðan rjóma og þarna rennur rjóminn í dósimar. Síðar eru þær geymd- ar í hita yflr nótt meðan hann hleypur Mjólkursamlag Borgarfjarðar: Framleiðir 20 tonn af sýrðum rjóma á mánuði ■ Starfsmenn mjólkursamlagsins vinna við skyrpökkunarvélina Klæðningarstál sem VÖRN er í. groiio ©r litaða klæóningarstálið yfjjjW með tvöföldu acrylhúðinni er framleitt með erfiðustu aðstæður í huga, sumar, vetur, vor og haust. er fáanlegt í sér lengdum eftir óskum kaupandans. qro-ko fylgihlutir fáanleg stálkjarninn sssssss*ssssss er 0,5 mm. Gerið samanburð á verði EINKALEYFIA ISLANDI BORGARNESI - SÍMI 93 7296

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.