Tíminn - 15.09.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.09.1983, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1983 BLAÐAUKI BORGARNES ■ Þessi einbýlisKús í Borgarnesi eru byggð úr samlokueiningum frá Loftorku „Er fullkomnasta stein- húsaverksmiðja landsins segir Konráð Andrésson í Loftorku ■ - Ég held að einingahúsin okkar standist fullkomlega samkeppni við inn- flutt hús hvað verð og gxði varðar, enda er þetta fullkomnasta steinhúsaverk- smiðja landsins. Við byrjuðum á að steypa þessar einingar í janúar 1981 en þá flæddu innflutt einingahús á markað- inn. Síðan höfum við sclt 50-60 hús víðsvegar um landið og þau hafa reynst vel og þykja údýr, sagði Konráð Andrés- son annar eigandi Loftorku sf í Borgar- nesi en Loftorka framleiðir steyptar samlokuhúseiningar auk gangstéttar- hellna, hleðslusteina og röra. Hjá fyrir- tækinu vinna nú um 40 manns. - Þesar samlokueiningar henta í allar tegundir húsa, sagði Konráð, hvort sem er um að ræða íbúðarhús, fjölbýlishús eða gripahús. Við höfum fjöldann allan af teikningum til að fara eftir og síðan getur hver sem er komið með sína eigin teikningu til að fara eftir í uppsetningu. - Uppsetning húsanna er mjög fljót- leg og tekur um 10-15 daga en þá eru húsin tilbúin undir tréverk. Einingarnar eru mjög auðveldar í flutningi og sam- setningin fer fram á byggingarstað en þar eru einingarnar steyptar saman. Einangrunin cr steypt inní einingarnar og bæði burðarveggur og veðurkápa eru járnbent. - Til að gefa hugmynd um verð á húsunum má nefna að 150 fermetra hús, tilbúið undir tréverk, kostaði 775 þúsund krónur 1. júlí s.l. - Við erum með mörg járn í eldinum, sagði Konráð að síðustu, sérstaklega í sambandi við að nýta betur þá möguleika sem samlokueiningarnar bjóða uppá. Þar er framtíðin björt þó nokkur sam- dráttur hafi orðið á sölu á öðrum steypu- vörum. ■ Konráð Andrésson eigandi Loftorku sf. í símanum Allar frekari upplýsingar fást BIFREIÐA- & TRÉSMIÐJA K.B. B0RGARNESI - SÍMI (93) 7200. eu. m Stíll að utan sem innan Hliðfellihurðir íslensk framleiðsla sem stenst samkeppni ídð x jÍÉ^p Borgarnesi y. Smíðum flekahurðir fyrir: Verksmiðjur verkstæði vörugeymslur bifreiðageymslur o.fl. meðgluggum eðaáneftir vali. Öryggi - þægindi ótrúleg ending og ekki spillir útlitið. ■ Gísli Bryngeirsson er Vestmannaeyingur að uppruna en hefur rekið úrsmíðaverk- stæði við Borgarbraut í 4 ár. Gísli sagði að það væri meira en núg að gera enda er næsti úrsmiður í norðurátt á ísafirði og í suður á Akranesi. Auk úraviðgerða selur Gísli úr og skartgripi. ■ Kristín Magnúsdóttir rekur verslunina Líf sem nú er nýflutt í húsnæði við verslunina Nesbæ. Kristín hefur rekið verslunina í þrjú ár og þar eru til sölu blúm, .gjafavörur og gæludýravörur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.