Tíminn - 24.09.1983, Blaðsíða 1
Keflvfkingar f aðra deild — Sjá bls. 10-11
Bla 1 ð 1 Tvö blöð ídag
Helgin 24.-25. september 1983 221. tölublað - 67. árgangur
Síðumúla 15—Postholf 370Reykjavik-Ritstjorn86300—Auglysingar 18300— Afgreidsla og askrift 86300 — Kvöldsimar 86387 og 86306
Ellert B. Schram tekur sér frí frá þingstörfum:
■ Þorri alþjóðar fylgd-
ist spenntur með einvígi
þeirra Steingríms Her-
mannssonar forsætisráð-
herra og Ásmundar
Stefánssonar forseta
A.S.Í. í beinni útsend-
ingu í sjónvarpinu í gær-
kveldi. Kappræddu þeir
stefnu ríkisstjórnarinnar
í efnahags- og kjaramál-
um. Það var Omar Ragn-
arsson fréttamaður Sjón-
varps sem stýrði þessum
umræðum, sem voru
undir heitinu: Sitt sýnist
hvorum. Mynd: Árni Sæberg.
Sportbátur
olíulaus
á Atlantshafi
Mistök við
eldsneytis-
áfyllingu
■ Lítill sportbátur varð
olíulaus úm 30 sjómílur vestur
af Hrollaugseyjum á fimmtu-
dag þar sem hann var á leið frá
Færeyjum til íslands. Báturinn
lét vita af þessu íim kl. 14.00
um daginn og éftir áð bátar í
nágrenninu höfðu svipast ár-
angurslaust um eftir sportbáln-
um fékk Slysavarnafélagið
flugvél frá Vurnarliðinu til að
leita að bátnum. Hún fann
síðan bátinn og vísáði Gissuri
hvíta frá Hornafirði á hann, en
Gissur hvíti var þá í um 10
sjómflna fjarlægð. Eftir að
hafa fengið olíu frá Gissuri
hvíta hélt sportbáturinn áfram
og kom til Hafnar í Homafirði
um kl. 1.30 í fyrrinútt.
Um borð í bátnum voru
feðgar, Stefán Guðbjartsson
og 10 ára gamall sonur hans
Styrmir og voru þeir á leiðinni
frá Englandi þar sem Stefán
kcypti bátinn í sumar. Aðsögn
Hannesar Hafsteins hjá SVFÍ
munu hafa orðið mistök við
eldsneytisáfyllingu í Englandi.
Líklega hefur verið nbtuð of
sterk dæla við að setja elds-
neytið á og því hafi ekki komið
það olíumagn á tankana sem
beðið var um. Stefán bjþst við
að hafa olíu í tönkunum sem
dygði til 8-900 mílna siglingu
og-það hefði dugað,til að ná
auðvcldlega til Vestmanna-
eyja. 9SH
„HEF VERIÐ SETTUR UTI HORN
Geir Hallgrímsson tekur að líkindum sæti hans á þingi
■ Nú þegar aðeins er hálfur
mánuður í það að Alþingi komi
saman á nýjan leik, gerast þau
tíðindi að Ellert B. Schram
ákveður að taka sér frí frá
þingmennsku og í bréfi sem hann
sendir forseta sameinaðs þings í
gær segir hann m.a. „Ég mun af
persónulegum ástæðum taka
mér frí frá þingstörfum um ó-
ákveðinn tíma frá og með 1.
október nk. Óska ég þess að
varamaður taki sæti mitt á Al-
þingi þar til annað verður ákveð-
ið.“
Tíminn reyndi ítrekað í gær
að ná sambandi við Ellert til þess
að inna hann eftir ástæðunni fyrir
þessari ákvörðun, en án árang-
urs. Herma fjölmargar heimildir
Tímans innan Sjálfstæðisflokks-
ins að ekki sé það að óyfirveguðu
máli sem Ellert taki þessa
ákvörðun. Hann hafi í fyrsta lagi
horfið af þingi á sínum tíma, í
þeirri góðu trú að hann hafi
verið að gera það fyrir flokkinn,
en með því hafi hann einmitt
eignast fjölmarga andstæðinga.
Þegar Ellert í vor hafi komið til
baka til starfa á þessum vett-
vangi, þá hafi hann ætlað sér
stóra hluti í stjómmálum, þ.á.m.
forystuhlutverk innan flokksins.
Hann hafi ekki náð því mark-
miði, og þar að auki tapað fyrir
Ólafi G. Einarssyni, í barátt-
unni um þingflokksformennsk-
una. Hafa þeir hans orð eftir og
segja: „Ég hef verið settur út í
horn“. Hafa allir þeir sem Tím-
inn ræddi við í gær vegna þessa
máls bent á ofangreindar ástæð-
ur, fyrir því, að Ellert hafi fengið
nóg, en jafnframt bentu þeir á
ástæðu, sem að vísu enginn
þeirra vildi sjá á prenti, en töldu
þó aðalástæðuna. Sögðu þeir
einfaldlega að Ellert hefði ekki
efni á að hætta sem ritstjóri á DV
og gerast óbreyttur þingmaður.
Óskaði Ellert eftir því í bréfi
sínu að varamaður tæki hans
sæti á þingi,-sem er Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra. Ef
Geir hafnar þeim tilmælum mun
þingsætið koma í hlut Guðmund-
ar H. Garðarssonar.
-AB
„RÆÐI FYRST
VIÐ ELLERF
áður en ég tjái
mig um málið“
sagði Geir
Hallgrímsson
■ „Ég vil ekkert segja um
þetta fyrr en ég hef haft tæki-
færi til þess að ræða við Ellert,"
sagði Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra er Tíminn náði
tali af honum í gærkveldi í
New York og spurði hvort
hann sem fyrsti varamaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík myndi taka sæti Ellerts á
þingi, nú þegar Ellert hefur
tilkynnt að hann muni taka sér
frí frá þingstörfum í bili.
Geir sagðist enga ástæðu sjá
til þess áð segja eitt eða annað
um þetta mál, fyrr en hann
hefði rætt nánar við Ellert B.
Schram. Aðspurður um hvort
hann myndi hugsanlega reyna
aðtelja Ellerti hughvarfsvaraði
Geir. „Það er okkar mál -
Þrfr menn handteknir f Keflavík og Reykjavlk:
TtKKAR FALSAÐIR ÖR20ÁRA
GÖMUI
■ Þrír menn voru handteknir í
Keflavik og Reykjavík nýlega
fyrir að hafa gefið út innistæðu-
lausar ávísamir úr stolnu tékk-
hefti. Þetta væri ef til vill ekki
fréttnæmt ef ekki hefði komið í
ljós að ávísanaheftið sem notað
STOLNU
var er 20 ára gamalt. Áður en
yfir lauk tókst mönnunum að losa
sig við milli 15-20 ávísanir úr
heftinu í verslunum í Keftavík og
Reykjavík án þess að nokkrar
athugasemdir væra gerðar af af-
greiðslufólki.
HEFT1
f samtali við Erlu Jónsdóttur
deildarstjóra hjá RLR kom fram
að alltaf koma upp nokkur tilfelli
á ári þar sem fólki tekst að svíkja
út fé með gömlum ávísunum.
Þó ávísanirnar séu í raun enn í
gildi benda þær til þess að við-
komandi ávfsanareikningur hafi
ekki verið hreyfður lengi og því
varhugavert að taka við þeim.
Erla sagði að ákaflega mikið
kæruleysi virtist ríkjandi hjá
fólki sem tekur við svona ávísun-
um því þær eru mjög ólíkar þeim
sem nú eru í umferð og því
auðþekkjanlegar.
GSH