Tíminn - 24.09.1983, Page 10
íslandsmeistarinn
og silfurhafinn:
Lækka meðal-
aldurinn á HM
í golfi
■ íslandsmeistarinn í karlaflokki í golfi,
hinn rúmlega tvítugi Gylfi Kristinsson GS,
og silfurhafinn á Islandsmótinu hinn 14
ára gamli Úlfar Jónsson GK, eru nú við
keppni á Heimsmeistaramótinu í golfi,
sem er í Algarve í Portúgal. Koma þeir
kappar líklega til að lækka eitthvað meðal-
aldurinn á mótinu, en auk þeirra eru
flestir keppendur á mótinu þrautþjálfaðir
atvinnumenn. Margt íslenskra golfmanna
er nú í haustfríi í Algarve, og fylgjast
sjálfsagt grannt með mótinu, sem stendur
nú um helgina. - SÖE
Nýtt heimsmet
í hásökki - 2,38
- Kínverjinn Jianhua enn að
■ Kínverjinn Zhu Jianhua er enn að í
hástökkinu. Þessi mikli hástökkvari setti
í vikunni nýtt heimsmet í karlaflokki,
stökk 2,38 metra. Jianhua átti sjálfur
gamla metið, sem ekki var reyndar ýkja
gumalt, það var 2,37 metrar. -SÖE
Nágranna-
slagurinn í dag
í körfunni
■ í dag leika Njarðvík og Keflavík í
Reykjanesmótinu í körfuknattleik, og
ræður leikurinn úrslitum í mótinu. Njarð-
víkingar hafa ekki enn tapað leik. Keflvík-
ingar hafa aftur á móti tapað fyrir Hauk-
um, en Haukar töpuðu fyrir Njarðvík.
-SÖE
Reykjavíkurmótið
í körfu:
Hefst í dag
■ Reykjavíkurmótið í körfuknattleik
hefst í dag. Tveir leikir eru, báðir í
meistaraflokki karla. Valur og Fram byrja
klukkan 14.00, og ÍR og ÍS leika strax á
eftir, klukkan 15.30. Á morgun eru þrir
leikir, KR og Valur klukkan 14, og ÍS og
Fram klukkan 15.30. Klukkan 17.00 hefst
fyrst leikurinn ■ kvennaflokki, þá keppa ÍS
og KR. Næstu leikir eni síðan á miðviku-
dag. Leikirnir eru allir í íþróttahúsi Haga-
skóla. -SÖE
Alþjóðasamskipti íþróttafólks:
Ráðstefna á Hótel
Esju um helgina
■ Nú um helgina fer fram ráðstefna
fulltrúa International Sports Exhanges að
Hótel Esju. Ráðstcfnan er haldin í boði
Fluglciða og eru þátttakendur frá Norðnr-
löndum, Bandaríkjunum og Englandi.
A laugardaginn er forráðamönnum
knattspyrnufélaga hérlendis boðið að
koma til skrafs og ráðagerða og fá
upplýsingar um knattspyrnumót víða er-
lendis. Sú móttaka byrjar klukkan 15.30
að Skálafelli á efstu hæð Hótels Esju og
er ráðgert að hún standi til kl. 17.30.
Þar verða til dæmis gefnar upplýsingar
um Norway Cup og Dana Cup, en margir
íslenskir knattspyrnumenn hafa sótt þau
mót.
LETT HJA ÞRÓTT
Páll Ólafs með 11 f fyrri hálfleik
Þór vann
■ Þór Vestmannaeyjum sigraði Hk í annarri
deild karla í handknattleik ( gærkvöld 19-11 í
Eyjum. Þorbergur Aðalsteins og Gylfi Birgis-
son voru markahæstir með 5 mörk hvor hjá
Þór. Guðni Guðfinnsson hjá HK einnig með 5.
Þá vann Grótta Reyni frá Sandgerði 32-25.
—SÖE -SGG
■ Líklegt er að róðurinn verði erfiður
hjá Akureyríngum þennan veturínn í
handboltanum, ef litið er til fyrstu deild-
ar. KA frá Akureyri á örugglega, ef ekki
gerist kraftaverk, eftir að eiga í erfið-
leikum í baráttunni við falldrauginn. í
gær tapaði liðið sínum fyrsta leik í fyrstu
deild fyrir Þrótti, 20-26. Það má þó segja
KA-strákunum til hróss, að þeir eru
baráttuglaðir og gefast ekki upp, og ef
lukkugyðjan verður með þeim, er aldrei
að vita hvað gerist. Þeir unnu alla vega
síðari hálfleikinn 13-10.
Páll Ólafsson var maður vallarins í
þessum leik. Þessi eldhressi Þróttari
skoraði 11 mörk í fyrri hálfleik, og var
mest megnis hvíldur eftir það. Greinilegt
að nafni hans Björgvinsson þjálfari lagði
ekki mikið upp úr því að láta hann slá
markamet Eyjólfs Bragasonar, sem
hann tók af Sigga Sveins, fyrrum félaga
Páls Ólafs, í fyrra. Staðan var 16-7 í
hálfleik, en í síðari hálfleik fékk varalið
Þróttar að spreyta sig.
Eftir fjörkipp KA í lokin urðu úrslit
26-20, og því sigur Þróttar aldrei í hættu.
Ragnar
Margeirsson
knattspyrnu-
maður í símtali
frá Svfþjóð
í gær:
■ Ef ég geri samning, þá sem ég við
Örgryte, það kemur ekkert annað lið til
greina, sagði Ragnar Margeirsson knatt-
spyrnumaður i samtali við Tímann í gær,
en Ragnar dvelst nú við æfingar hjá
fyrstu deildarliðinu Örgryte í Svíþjóð.
„Ég dvelst hér í rólegheitum núna, og
mér líst vel á allar aðstæður hér, hvort
Auk Páls Ólafssonar var markvörður
Þróttar, Ásgeir Einarsson ágætur.
Mörkin: Þróttur: Páll 15, gísli 3,
Konráð 3, Jens 2, Lárus 1, Magnús 1,
Bergur 1.
KA: Sigurður 4, Logi 3, Sæmundur 3,
Jón 3, Erlingur 3, Kristján 2, Jóhann 1,
Magnús 1 og Þorleifur 1.
-SÖE
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
FH-INGAR KOMNIR
í AÐRA UMFERÐ
Liverpool dró sig út
úr IHE-keppninni
■ „Það barst skeyti frá Englandi í morgun,
þess efnis, að sökum fjárhagsörðugleika væri
Liverpool hætt við þátttöku í IHF-keppninni
í handknattlcik, sem þýðir sjálfkrafa að FH
er komið í aðra umferð kcppninnar", sagði
Egill Bjarnason formaður handknattleiks-
deildar FH í Hafnarfirði í samtali við Tímann
í gær.
Þar með er Ijóst að FH-ingar eru komnir í
aðra umferð IHF-Evrópukeppninnar, en
margar skeytasendingar og miklar áhyggjur
hafa fylgt því hjá forráðamönnum FH að
liðið dróst gegn Liverpool. Fyrst kom í Ijós
að Englendingamir áttu ekkert löglegt keppn-
ishús, og sóttu um að fá báða leikina hér á
landi. FH svaraði því, og vildi fá svar fyrir 20.
september, enda ekki seinna vænna, þar eð
leikirnir áttu að vera um næstu mánaðamót.
Það dróst lengi vel, uns botn kom í málið í
gær.
-SÖE
■ DeCarsta Webster er
giftur íslenskri konu og á
íslenskt bam, hann hefur
flest sömu félagslegu rétt-
indi og Islendingur og
borgar skatta sem slíkur.
Hann má þó ekki keppa
hér í körfuknattleik fyrr
en hann fær íslenskan
ríkisborgararétt, þó hann
hafi búið hér á landi í tæp
fimm ár.
-SÖE
„Sem við
Orgryte
geri ég samning við félag núna”
ég sem kemur í Ijós fljótlega", sagði
Ragnar.
Ragnar er á leið í frí til Spánar, en
þegar hann kemur aftur, mun hann ræða
við forráðamenn Örgryte, og kemur þá
í Ijós hvort af samningum verður.
- Ljóst er að Svíar hafa nokkurn
áhuga á Ragnari, enda sýndi hann snilld-
arleik þegar íslendingar hlutu skellinn
gegn Svíum í Laugardal á dögunum í
vináttulandsleik þjóðanna, en það kem-
ur sem sagt ekki í Ijós hvort af samning-
um verður, fyrr en að loknu sumarfríi
Ragnars, enda á hann skilið frí, hefur
leikið knattspyrnu samfellt í tvö ár, og
það fjögur keppnistímabil. Ragnar lék
nefnilega í Þýskalandi fyrír tveimur
ámm, með Keflavík sumarið eftir, í
Belgíu síðastliðinn vetur, og með Kefla-
vík í sumar. -SÖE
Hvalreki á fjöru KKÍ:
FIBA-dómari
með námskeid
■ Væntanlegur er hingað til lands dómari
frá FIBA, alþjóðakörfuknattleikssamband-
inu, til að halda hér námskeið fyrir starfandi
körfuknattlciksdómara. Er hér um meiri
háttar hvalrcka fyrir Körfuknattleikssam-
band íslands að ræða, því dómari þessi,
David Tumer, er taiinn einn sá færasti í
heiminum.
Tumer mun kenna á námskeiðinu í um viku-
tíma, á kvöldin. Námskeiðið hefst hinn 28.
september og stendur til 3. október, og hefst
klukkan 17.00 á daginn ogstendur til klukkan
22.00 dag hvern. Námskeiðið verður haldið
í Árnagarði (Háskóia íslands).
Þá er fyrirhugaður fyrirlestur Turners fyrir
áhugafólk um dómgæslu í körfuknattleik, og
verður sá haldinn sunnudaginn 2. október
klukkan 20.00, í fyrirlestrarsal Verk- og
raunvísindastofnun Háskólans. Þar em allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Enginn vafi er á að koma Turners er mikill
fengur fyrir KKÍ, en eins og lesendum er
kunnugt, hefur styr oft staðið um dómgæslu
í körfuknattleik hér, og heldur vaxið en
minnkað síðastliðin ár. Nú gefst dómumm
tækifæri til að bæta sig og samræma betur
aðgerðir, undir leiðsögu þjálfaðs og viður-
kennds dómara af alþjóðavettvangi. Nánari
upplýsingar um námskeiðið em gefnar á
skrifstofu Körfuknattleikssambandsins, í
síma 85949, þátttökugjald hvers dómara er
kr. 1000.- og enn em laus nokkur sæti.
-SÖE
Útlendingar sem eru
giftir íslendingum:
NJÓTA SÖMU
|
1
Leyfi Websters er háð samþykki KKÍ”, segir
Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri ÍSÍ
■ „Frá sjónarhóli Iþróttasambands ís-
lands er mál DeCarsta Webster alfarið í
höndum Körfuknattleikssambands
Islands“, sagði Hermann Guðmundsson
framkvæmdastjórí ÍSÍ í samtali við Tím-
ann í gær. „í reynd má segja að formið
sé það, að íþróttasambandið geti veitt
útlendingum leyfi til að keppa hér, en þó
því aðeins að sérsambandið sem í hlut á,
mæli með þvi, sagði Hermann, „en slikt
leyfi þarf sífellt að endurnýjast",
„Hermann vitnaði í svohljóðandi þátt-
tökureglur ÍSÍ 2. kafla um hlutgengi
keppenda:
„Sé um erlenda íþróttamenn ad ræða,
þurfa þeir að fi skriflegt leyfi síns
sérsambands auk leyfis frá hlutaðeigandi
sérsambandi hér á landi og fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ. - Þó má enginn út-
lendingur taka þátt í íslandsmeistara-
móti í neinni grein, nema í flokka-
leikjum, enda hafi hann þá verið búsett-
ur hér á landi í það minnsta síðastUðin
tvö ár, sé í félagi hér og hafi stundað
æfingaríþví. Einnig tilþessþarfskriflegt
leyfi framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Útlend-
ingar sem hafa verið búsettir hér á landi
í eitt ár eða lengur mega taka þátt í
öllum öðrum mótum en íslandsmeistara-
mótum og millilandakeppnum, enda
komi til þess skriflegt leyfi framkvæmda-
stjórnar ÍSÍ í hvert skipti. Þó getur
framkvæmdastjórn ÍSÍ veitt útlendingi
keppnisleyfi, þó búsetutími hans hér á
landi sé skemmri en áðurnefnd ákvæði
segja, ef viðkomandi sérsamband mælir
með því að undantekning sé gerð“.
Samkvæmt þessu getur Körfuknatt-
leikssamband íslands útilokað að allir sem
ekki eru íslenskir ríkisborgarar, með
hiiðsjón af ákvörðun á síðasta ársþingi
sambandsins, leiki með í íslands- og
meistaramótum. - En þá gerist enn
áleitin spurningin, sem varpað var fram
á íþróttasíðu Tímans í gær, er slík
útilokun lögleg gagnvart lögum um
mannréttindi og félagsfrelsi, þegar í hlut
eiga menn sem eru áhugamenn, sem
eiga sína fjölskyldu hér á landi, greiða
sína skatta hér og vinna sína vinnu, en
verða vegna strangra reglna um ríkis-
borgararétt að bíða lengi eftir honum.
Hvers vegna eru svona reglur settar?
Ástæðan
Ástæðan fyrir því að KKÍ setti þessar
harkalegu reglur, að enginn mætti leika
í íslands-og meistaramótum hér á landi,
nema vera íslenskur ríkisborgari, var
það helsi sem sambandið setti sér um
háls sjálft. Þegar leyft var að erlendir
leikmenn, sem þá voru kallaðir þjálfar-
ar, kæmu hingað til lands, kom skriða
bandarískra leikmanna hingað til lands.
Allir fengu þeir svimandi laun, hvort
sem þeir gátu þjálfað eða ekki. Sú varð
raunin að margir þeirra voru ekki hæfir
þjálfarar, fengu samt sömu laun, og
félögin þurftu samt að ráða þjálfara.
Enginn gat án útlendinganna verið, því
þá blasti við augljóst fall. - Að lokum
var þessi atvinnumennska orðin félögun-
um svo dýr, að enginn, nema kannski
helst Suðurnesjaliðin með allan sinn
áhorfendafjölda, gátu staðið undir því.
Og þá var tekið til við að setja reglur.
Útkoman varð sú, að ákveðið var, að
útiloka alla Bandaríkjamenn, sem komu
á þessum grunni sem áður er lýst, og til
að ekkert væri hægt að fara í kringum
hlutina, og örugglega væri komist hjá
atvinnumennskunni, var sú regla sett,
sem áður er nefnd. Hún nær yfir alla
sem ekki hafa íslenskan ríkisborgara-
rétt, hvaðan og í hvaða aðstöðu sem þeir
eru.
Hafa sama rétt
og íslendingar nema...
í lögum um útlendinga, sem hér á
landi vilja fá atvinnuleyfi segir að þeir
þurfi til þess meðmæli frá viðkomandi
verkalýðs- eða stéttarfélagi. í þeim til-
fellum sem um er að ræða útlending,
sem er giftur íslendingi, nýtur sá sömu
réttinda og íslendingur, að ekki sé talað
um útlendinga sem eiga íslensk börn í
sínu hjónabandi. Slíkurútlendingur hef-
ur því sömu réttindi og íslendingur í
flestu félagslegu tilliti, nema í því að
keppa í körfubolta.
Hermann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, sem áður er vitnað í
þessari grein, sagði, að ekki yrði hægt að
breyta ákvörðun Körfuknattleikssam-
bandsins fyrr en næsta ársþing yrði
haldið, en hann sagðist telja að þetta mál
yrði örugglega tekið fyrir þar. Þegar
Hermann var spurður hvort lagasetning
KK{ sem slík, þverbryti ekki í bága við
anda íþróttahreyfingarinnar, játaði hann
því og kvað það alveg rétt.
Þá er rétt að spyrja, hvert stefnir
íþróttahreyfingin úr því slíkar ákvarð-
anir eru látnar óátaldar?
- SÖE
jafnaði glæsilega
Frá Sigfúsi G. Guðmundssyni í Eyjum:
■ Það kvað við hríkalegt fagnaðar-
öskur fjölraddað meðal áhorfenda í
Eyjum í gærkvöld, þegar Hlynur Stef-
ánsson jafnaði 2-2 tiu mínútum fyrir
leikslok í leik IBV og Breiðabliks í fyrstu
deild karla í knattspymu. Ekki skrýtið
þó bergmálaði í hömranum, markið var
líftaug Vestmannaeyinga í fyrstu deild-
inni, þeir urðu að ná öðra stiginu til að
hanga í deildinni. Og það virtist ekki svo
ýkjanærrí þegar Breiðablik hafði náð
2-0 forystu.
Leikurinn var fjörugur á báða bóga.
Bæði lið fengu góð færi. Sveinn skaut
framhjá Blikamarkinu, og Jón Gunnar
bjargaði vel á síðustu stundu frá Ómari.
Eyjamenn björguðu skalla Ómars á línu
á 17. mín, og Sigurður Grétarsson skaut
framhjá. Guðmundur Blikamarkvörður
varði hjá Hlyni á 28. mínútu, en Blikar
sneru vörn í sókn og skoruðu. Sigurður
gaf vel út á Sigurjón Kristjánsson og
hann skoraði glæsimark, úr vítateigs-
horninu í vinkilinn.
Eyjamenn höfðu næstum jafnað er
Ómar, Tómas og Hlynur voru einir fyrir
innan, en gerðu sig seka um klaufalega
rangstöðu. í næstu sókn varði Þórður á
línu frá Sigga Grétars eftir klaufaleg
mistök Aðalsteins, sem Páll Pálmason
leysti af skömmu síðar. Nóg að gerast.
Páll stóð sig eins og hetja, þó standi á
herumbil fertugu, og varði eins og ljón í
síðari hálfleik. Þó réði hann ekki við
Sigurjón Kristjánsson á 60. mínútu, er
hann komst einn inn fyrir eftir góða
stungu Sigurðar 2-0.
En Eyjamenn börðust hetjulega, og
Ómar Jó skoraði 1-2. Tómas renndi á
hann úr aukaspyrnu og Ómar skoraði
örugglega úr vítateignum. Páll hélt
áfram að verja, og Hlynur jafnaði á 80.
mínútu. Ómar var arkitektinn, gaf vel á
Hlyn, sem tók boltann niður á vítateign-
um og skoraði glæsilega í hornið neðst,
og allt varð brjálað.
Úrslitin nokkuð sanngjörn, þar sem
bæði lið léku mjög vel. Vörnin hjá
Breiðabliki var aðall liðsins, Jón Bergs,
Ólafur og Ómar góðir og Sigurður og
Sigurjón áttu góða spretti. Viðar E1 og
Páll Pálma bestir í jöfnu Eyjaliði, og
dómarinn Þorvarður Björnsson dæmdi
sæmilega.
Við þessi úrslit eru Keflvíkingar fallnir
í aðra deild, með 17 stig á markahlutfalli,
sorglegt fyrir þá, en gleðilegt fyrir þá
sem sluppu fyrir horn. Gamli jaxlinn
Ingi Björn Albertsson er því marka-
kóngur íslandsmótsins í ár með 14 mörk.
-SGG-SÖE
Z
<
o
<
gi
o1
Heima
Uti
Samtals
u
Akranes 9 6 2 1 20-6 14 9 04 2 3 9-6 10 18 10 4 4 29-12 24
K.R. 9 3 5 1 9-7 11 9 2 5 2 9-12 9 18 5 10 3 18-19 20
Breiðablik 9 4 3 2 12-8 11 9 1 5 3 11-13 7 18 5 8 5 23-21 1B
Þor 9 3 5 1 15-8 11 9 2 3 4 7-12 7 18 5 8 5 22-20 18
Valur 9 5 1 3 15-13 11 9 2 3 4 14-18 7 18 7 4 7 29-31 18
Þrottur 9 4 4 1 15-11 12 9 2 2 5 9-20 6 18 6 6 6 24-31 18
Vikingur 9 2 5 2 10-8 9 9 2 4 3 10-12 8 18 4 9 5 20-20 17
ÍBV 9 5 3 1 19-7 12 9 0 4 5 8-18 4 18 5 7 6 27-25 17
ÍBK 9 4 1 4 15-12 9 9 4 0 5 9-15 8 18 8 1 9 24-27 17
era nu
afgreidd á 120
fígreidslustödum
banka og sparisjóða
VISA ÍSLAND hefur opnað aðalskrifstofu sína
að Austurstræti 7 í Reykjavík
VISA ÍSLAND er þjónustufyrirtæki á sviði greiðslukorta. Það
er sameignarfélag 5 banka og 13 sparisjóða og starfar um
allt land.
Fyrirtækið er aðili að VISA INTERNATIONAL, sem er stærsta og
öflugasta greiðslukortafélag heims.
VISA er samstarfsvettvangur 15000 banka og sparisjóða í 160
löndum. Viðskiptaaðilar VISA eru 4 milljónir fyrirtækja,
einkum á sviði verslunar og þjónustu. Handhafar VISA-korta
eru um 100 milljónir talsins.
VISA-greiðslukort eru fjórðungi útbreiddari en önnur
sambærileg kort.
Þeir, sem þurfa að ferðast mikið erlendis, eiga þess kost að
fá VISA-kort hjá viðskiptabanka sínum eða sparisjóði.
Notkun kortanna er háð sérstökum reglum Gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans.
VERIÐ VELKOMIN í VISA VIÐSKIPTI.
Eignaraðilar:
Alþýðubankinn hf.
Búnaðarbanki íslands
Iðnaðarbanki íslands hf.
Landsbanki íslands
Samvinnubanki Islands hf.
Sparisjóður Bolungarvíkur
Eyrasparisjóður,
Patreksfirði
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Mýrasýslu,
Borgarnesi
Sparisjóður Norðfjarðar,
Neskaupstað
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Sparisjóður Siglufjarðar
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Sparisjóður Svarfdæla,
Dalvík
Sparisjóður V-Húnavatnssýslu,
Hvammstanga
Sparisjóður Vestmannaeyja
VISA
V
AND
Austurstræti 7, 3. hæð. Pósthólf 1428, 121 Reykjavík, sími 29700.