Tíminn - 27.09.1983, Page 2
13
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
BARCELONA
OG GUMM-
ERSBACH
SKILDU JÖFN
- í KVEÐJULÐK WUNDERLICHS
■ Frá Magnúsi Ólafssyni< Bonn:
í kveðjuleik fyrir Erhard Wunderlich, sem
selilur var frá Gummersbach til Barcelona
fyrir 26 milljónir íslenskra króna, gcrðu liðin
jafntefli 19-19 fyrir troðfullu húsi í Barcelona.
Wunderlich sýndi meistaratakta fyrstu 25
mínúturnar, en hægði svo á scr- Hann var
markhæstur sinna manna með 7 mðrk.
- MÓ
mi
r m Mm
I stuði
erfftt hjá Stuttgart
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonnt
Annað kvöld leikur VFB Stuttgart í Búlgar-
íu seinni leikinn gegn LS Sofia t UEFA-
keppninni. Fyrri leik liðanna lauk cins og
kunnugt er með jafntefli, þannig að VFB
Stuttgart verður að skora mörk til að komast
áfram.
LS Sofia cru í mjög góðu formi um þessar
mundir, um helgina sigruðu þeir örugglega
Schumen sem eru í 3. sæti deildarinnar 3-0.
Far meö heldur áfram einvígi milli LS Sofia
og knattspyrnudcildar hersins, sem eru í
tveiinur efstu sætunum.
Útlitið fyrir Stuttgart er allt annað en gott,
en sem betur fer mun Karl Heinz Förster geta
leikið með, en hann slasaðist í-Ieiknum gegn
Leverkusen um helgina.
- MÓ
Waas samdi
Stuttgart og Bayem höfðu áhuga
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: j
Knattspyrnusnillingurinn ungi, Herbert ]
Waas framlengdi um hclginá samning sinn við
Bayer Leverkusen til ársins 1987. Waas, senu ;
er rúmlega tvítugur, mún fá rúmlega fjórar
milljónir króna í föst laun á ári.
Waas er álitinn vera betri leikmaður en
Rummenigge var um tvítugt, og örugglega
betur borgaður, svo framtíðin virðist blasa
við þessum efnilega Þjóðverja.
Vitað cr að bæði VFB Stuttgart og Bayern
Múnchen hafa verið í sambandi við Waas, og
hefði hann án efa getað fengið enn betri
samning. „En peningar eru ekki allt", sagði
Waas einfaldlega, þegar hann skrifaði undir
12 milljón króna lágmarkslaunasamning um
helgina.
- MÓ
í Skotlandi
■ Mikið markaregn var í Skotlandi í úrvals-
deildinni um helgina. Þrjú cfstu liðin eru enn
taplaus, Dundee United, Celtic og Hearts.
Dundee United meistarinn frá í fyrra skellti
um helgina Aberdeen, Akrancsbönunum frá
um daginn, 2-1, Eamonn Bannon og Billy
Kirkwood skoruðu, en Strachan svaraði fyrir
Abcrdeen. Nýliðinn McClare skoraði fjögur
mörk fyrir Celtic í 6-2 sigri á Dundee, og
Raddy McDonald skorað sigurmark Hearts
gegn St Mirren. Ally McCoist gerði þrennu
fyrir Celtic í 6-3 sigri á St Johnstone, og
Jóhanncs Eðvaldsson og félagar lágu 1-2 fyrir
Hibernian. Celtic, Hearts og Dundee Utd
hafa 10 stig á toppi deildarinnar, en Aberdeen
hefur 7 stig.
- SÖE
SIGURÐUR
SKORADI 5
■ Frá Magnúsi Ólafssyni ■ Bonn:
Lemco, lið Sigurðar Sveinssonar tap-
aði naumlega 20-21 fyrir Schwabing í
þriðju umferð Búdeslígunnar í hand-
bolta, en lið Alfreðs Gíslasonar sigraði
Kiel liðið sem Jóhann Ingi Gunnarsson
þjálfari 13-10.
Sigurður Sveinsson virðist vera í
hörkuformi, eins og hér áður fyrr, í
leiknum í Schwabing negldi Sigurður
fimm sinnum f netið. Heimamenn í
Schwabing hafa farið illa með íslend-
ingafélögin því bæði lemco og Kiel hafa
tapað þar með eins marks mun.
Essen, með Alfreð Gíslason í farar-
broddi, sigraði lið Jóhanns Inga 13-10,
Alfreð skoraði 3 mörk og lék vel, þykir
kröftug skytta.
61 mark var skorað í leiknum Hof-
weier-Gúnzburg, sem lauk 37-24, en það
var einmitt Gúnzburg, sem lauk 37-24,
en það var einmitt Gúnsburg sem bar
víurnar í Kristján Arason síðastliðið vor,
Göppingen tók Húttenberg 29-25, og
skoraði Klempel 16 fyrir Göppingen.
Gummersbach sigraði loksins, og það
Núrnberg á útivelli 21-16.
Staða efstu liða:
Göppingen ...... 3 3 0 0 73-60 6
Scwabing ....... 3 3 0 0 59-55 6
Grsosswallstadt .3 2 1 0 62-52 5
Fuchse.......... 3 2 1 0 63-54 5
Essen er með 3 stig, en Lemco og Kiel
með 2 stig.
- MÓ
Njarðvík varð
Reykjanesmeistari
í körfuknattleik vann sfna leiki
■ Njarðvíkingar urðu um helgina
Reykjanesmeistarar í körfuknattleik, er
þeir sigruðu Keflvíkinga í síðasta leik
mótsins 61-58. Njarðvíkingar töpuðu
ekki leik í mótinu. Haukar úr Hafnar-
flrði hrepptu annað sætið, sigruðu Kefl-
víkinga í keppninni, en Keflvíkingar
urðu þriðju. Nánar verður skýrt frá
keppninni síðar.
- SÖE
Sigurður Sveinsson skorar grimmt þessa dagana fyrir Lemco.
Janus
skoradi
loksins náði Köln að sigra
■ Frá Magnús Ólafssyni í Bonn:
Eftir slaka byrjun tókst Fortuna
Köln loks að sigra í annarri deildinni,
og það 5-1 sigur á Darmstadt. Janus
Guðlaugsson kom inná í síðari hálf-
leik, og fékk góða dóma fyrir leik
sinn,
Janus hefur átt erfltt að vinna aftur
stöðu sína í liðinu, það er miðvarðar-
stöðuna, eftir veikindin í ágúst. Að
þessu sinni lék hann á miðjunni, og
skoraði þriðja mark Fortuna á 62.
mínútu leiksins.
Fortuna Köln er nú í tíundasæti af
tuttugu með 10 stig eftirlO leiki.
Gömlu fyrstu deildarliðin, Karlruh-
er og Schalke 04 eru í efstu sætunum
með 17 og 15 stig.
- MÓ/SÖE
Jena tapaði!
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
FC Jena, liðið sem Vestmannaeyingar
leika gegn í Austur Þýskalandi í Evrópu-
keppni UEFA annað kvöld tapaði um
helgina 3-5 fyrir Wismut Aue. Jena er í
13. sæti af 16 í austur þýsku deildinni
með 3 stig eftir 6 leiki, og markahlutfallið
13-19. Magdeburg og Dynamo Berlin
eru efst og jöfn með 10 stig.
- MÓ
. . . Þýska knattspyrnan. . . Þýska knattspyrnan. .Þýska knattspyrnan
BAYERN OG HSV HNÍFJÖFN!
Bayern tapaöi í Bochum-HSV gerdi jafntefli - Uerdingen tapaði
■ Frá Magnúsi Ólafssyni i Bonn...
Öruggur Bochumsigur á Bayem Múnch-
en um helgina hleypti nýrri spennu í
Búndeslíguna, því lítill munur er nú á
efstu fimm iiðunum. Stórliðin tvö eru þó
efst og meira að segja hnífjöfn, þannig
að útlit er fyrir spennandi keppni fram-
undan.
Aðalleikur 8. umferðar var viðureign
Bremen og HSV sem lauk með marka-
lausu jafntefli. Athyglisverður leikur,
sem sýndi vel mismunihn á þessum
liðum. HSV tæknilega fullkomið, en
baráttukrafturinn hjá Bremen gerði
meira en að bæta tækniskortinn. Mörk
voru ekki skoruð einfaldlega vegna þess,
að markverðirnir báðir, Burdensky og
Stein, voru í hörkustuði. HSV skoraði
heldur ekki mark í síðasta leik sínum, og
verður að fara 8 ár til baka í sögunni til
að finna hliðstætt dæmi, það er tvo leiki
í röð án marka.
Sigur Bochum á Bayern Múnchen
var öruggur, hér kom til að heimamenn
spiluðu vel, en einnig að stórstjörnurnar
voru slakar. Sören Lerby virtist þreyttur,
enda nýbúinn að leggja England á
Wembley. Karl Heinz Rummenigge
skoraði eina mark Bayern á síðustu
mínútu leiksins. Liðið hafði ekki tapað
Atli Eðvaldsson lagði upp 3 mörk:
DORTMUND 7-0!
leik síðan 7. maí síðastliðinn, og meðal
annars sigraði það þýska landsliðið í
síðustu viku 4-2.
Bayer Uerdingen tapaði í annað sinn,
en heldurþóbronssætinu. Hin nýliðalið-
in tvö, Walhof og Offenbach sigruðu
hins vegar, enda á heimavclli.
Úrslitin í áttundu umferð urðu
Offenbach-Kaiserslautem
Dússeldorf-Dortmund .
Bremen-Hamborg ....
Braunschweig-Frankfurt
Bielefeld-Uerdingen . . .
Leverkusen-Stuttgart . .
Gladbach-Köln.........
Bochum-Bayern Múnchen
Mannheim-Núrnberg . . .
þessi:
. . 3-2
. . 7-0
. . 0-0
. . 4-3
. . 3-1
. . 1-1
. . 4-2
.. 3-1
. . 1-0
Pétur átti einnig góðan leik
Staðan er nú þannig:
Bayern M ..... 8 5 2 1 18-19 12
HSV........... 8 52 1 18-9 12
Uerdingen...... 8 5 1 2 21-15 11
Gladbach....... 8 4 2 3 19-11 10
Stuttgart...... 8 3 4 1 15-8 10
Bremen......... 8 3 3 2 9-7 9
Dússeldorf.... 8 3 2 3 17-14 8
Leverkusen ... 8 3:3 3 14-12 8
Bielefeld ..... 8 4 0 4 12-14 8
Köln.......... 83 14 12-13 7
Bochum........ 8 3 14 14-21 7
Mannheim...... 8 2 3 3 10-17 7
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Stórfenglegustu úrslit áttundu um-
ferðarinnar í Búndeslígunni í knatt-
spyrnu urðu í Dússeldorf, þegar Fortuna
malaði Dörtmund, gamla félagið hans
Atla Eðvaldssonar 7-0.
Fortuna Dússledorf lék feikilega
skemmtilega í þessum leik, og sem ein
liðsheild. Rudi Bommer var þó bestur i
frábæru Fortuna liði. Mörkin skoruðu*
Bommer 2, Dusend 2, Bockenfeld,
Zewe og Thiele.
Þeir Atli Eðvaldsson, og Pétur Orm-
slev sem lék síðari hálfleikinn, fengu
báðir mjög góða dóma í þýsku press-
unni, þrátt fyrir að þeir hafi ekki skorað
mörk að þessu sinn. Atli spilaði upp
félaga sína hvað eftir annað, og lagði
grunninn að þremur mörkum.
Á laugardaginn fer Fortuna til Uer-
dingen, sem hefur 100% árangur á
.heimavelli, fjóra sigra í fjórum leikjum.
Fortuna Dússeldorf hefur ekki enn sigr-
að á útivelli.
Waas ordinn
markahæstur
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Markhæstu leikmenn Búndeslígunnar
í knattspyrnu eru nú þessir:
Wass, Leverkusen...................7
Corneliusson, Stuttgart............6
Búrgsmúller, Núrnberg..............6
Funkel, Uerdingen ................6
Schatschneider, HSV...............6
Bomer, Dússeldorf ................6
Lienen, Gladbach .................5
Rummenigge, Múnchen...............5
Sigurður Gunnarsson skoraði 5 mörk
í Kolbotn
Víkingar töpuðu 18-20 ÍKolbotn:
ppSterkt lið”
segir Hilmar Sigurgíslason Víkingur
um norska liðið
„Attum aldrei mögu-
leika gegn Standard”
sagði Lárus Guðmundsson eftir 3-0 tap
Waterschei fLiege
■ „Við munum eiga fullt í fangi með
þessa Norðmenn heima“, sagði Hilmar
Sigurgíslason Víkingur í samtali við
Tímann í gær, er hann var inntur eftir
gangi mála í leik Víkinga við norsku
meistarana Kolbotn i Evrópukeppni
meistaraliða í handbolta. „Okkur sýnd-
ist nú að handbolti í Noregi virtist ekkert
síðri en hér heima, hjá félagsliðum, og
það er alltaf erfitt að eiga við liö af
óræðum styrkleika á hcimavelli þeirra",
sagði Hilmar, en leiknum töðuðu Vík-
ingar 18-20.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, þar
sem liðin skiptust á um að leiða, þar til
slæmur kafli kom hjá Víkingum í lok
hálfleiksins, og Kolbotn náði fjögurra
marka forystu, s'em hélst til leikhlés, en
þá var staðan 9-13. Víkingar mættu svo
hressari í síðar.i hálfleikinn, og náðu að
minnka muninn í 18-20
„Við vissum náttúrulega lítið um
styrkleika þeirra í byrjun, og þeir komu
okkur dálítið í opna skjöldu í fyrri
hálfleiknum," sagði Hilmar, „og sænsku
dómararnir voru þeim fullhliðhollir. -
Einn hættulegasti maður þeirra er horna-
maður, skorar grimmt, en sá spilar í
norska landsliðinu. Þeir leika mest upp
á að skora úr hornum og langskotum,
línuspil þeirra er aftur á móti lélegt."
Viggó Sigurðsson og Sigurður Gunn-
arsson skoruðu mest Víkinga, 5 mörk
hvor, Karl Þráinsson, Hilmarog Hörður
Harðarson 2 hver, Guðmundur B
Guðmundsson og Steinar Birgisson eitt
hvor. Kristján Sigmundsson byrjaði í
markinu, en Ellert leysti hann töluvert
af, þeir vörðu báðir vel. - SÖE
■ „Við áttum aldrei möguleika gegn
sterku liði Standard Liege", sagði
Lárus Guðmundsson knattspymumað-
ur i' Waterschei í Belgíu í samtali við
Tímann í gær. „Þeir náðu sínum besta
leik á tímabilinu, en um leið lékum við
einn okkar lakasta", sagði Láras, en
leikinn vann Standard 3-0.
Lárus sagði að tímabilið hefði verið
erfitt hjá Waterschei fram að þessu,
þeir hefðu nú leikið marga erfiða
útileiki, en nú væri heldur farið að
birta til, auðveldari leikir framundan.
og heimaleikur um næstu helgi.
Arnór Guðjohnsen og Pétur Péturs-
son iéku hvorugur með liðum sínum
um helgina, Arnór lék ekki með vegna
meiðsla, og Pétur var ekki látinn ieika,
þar eð Antwerpen lék á-fimmtudag,
daginn eftir landsleikinn við íra. Ant-
werpen lék gegn hinu Liege liðinu, FC
Liege, og sigraði það á heimavelli
stórt, 4-0. Anderlecht tapaði aftur á
móti fyrir toppliðinu Beveren á úti-
velli, 1-2, og var sá sigur sanngjarn.
Lið^Sævars Jónssonar gerði best
íslendingaliðanna um helgina í Belgíu.
CS Brugge sigraði Molenbeek á úti-
velli, og lék Sævar allan leikinn. Sævar
hefur átt í erfiðleikum með að festa sig
í sessi í iiðinu, og ekki fengið að leika
sína stöðu, miðvarðarstöðuna. Hann
lék á miðjunni sem tengiliður að þessu
sinni, og stóð sig vel. - Annars er
Sævar ekki hress með gang mála, og
sagði nýlega í samtali við Tímann að
sér þætti hart að vera settur út úr liði
og einungis notaður sem varaskeifa,
við það eitt að skipt væri uni þjálfara,
en Sævar hefur síðustu tvö árin verið
fastamaður í liði Brugge, og einn
burðarása þess.
Magnús Bergs og félögum í Tonger-
en gengur ekki sem best þessa dagana
iiðinu hefur illa tekist að finna taktinn,
og gert mörg jafntefli. Svo varð einnig
um helgina. Magnús leikur yfirleitt
, stöðu miðherja, en honum hefur geng-
ið fremur illa að finna markið eins og
félögum hans í haust.
- SÖE
■ Atli Eðvaldsson skoraði ekki að þessu sinni, en lagði upp 3 mörk af 7.
Stuttgart náði
1-1 jafntefli
við Leverkusen-Waas bestur
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
I leiðinlegum og lélegum leik tókst
VFB Stuttgart að ná settu marki í
Leverkusen; jafntefli. Slíku marki nær
lið hins vegar ekki öðru vísi en að gera
áhorfendur óánægða, eins og glögglega
mátti heyra í leikslok, þegar flautað var
og púað á leikmennina 22.
Leverkusen var betri aðilinn í þessum
leik, og var þá sérstaklega landsliðsmað-
urinn Herbert Waas hættulegur. Tvisvar
komst hann í dauðafæri, en besti maður
VFB, markvörðurinn Roleder, bjargaði
meistaralega.
Röber skoraði úr vítaspyrnu fyrir
Leverkusen á 49. mínútu, og eru sagn-
fræðingar að reyna að grafa upp hvenær
Leverkusen fékksíðastdæmtvíti. Allgö-
wer jafnaði á 58. mínútu. Norðurlanda-
búarnir tveir í Stuttgart, þeir Ásgeir
Sigurvinsson og Dan Corncliusson, voru
tvímælalaust lélegustu menn vallarins.
Ásgeir vr tekinn útaf í seinni hálfleik.
Karl Heins Förster slasaðist í leiknum,
og óvíst hvort hann leikur með VFB
gegn LS Sofia í Búlgaríu í UEFA-keppn-
inni á morgun.
Stuttgart fær Köln í heimsókn á
laugardaginn, og fær Bernd Försterekki
að leika með, þar sem honum hefur
tekist að útvega sér fjögur gul spjöld í
átta leikjum.
- MÓ
Kaiserslautern .8 2 2 4 19-18 6
Núrnberg...... 8 3 0 5 15-16 6
Braunschweig . . 8 3 0 5 15-20 6
Offenbach...... 8 3 0 5 11-21 6
Dortmund....... 8 2 2 4 10-21 6
Frankfurt ..... 8 13 4 14-17 5
Bayem Múnchen fær Borussia Múnch-
engladbach í heimsókn um næstu helgi,
en hér áður fyrr voru þetta tvö voldug-
ustu lið Vcstur Þýskalands. Gladbach
gæti átt möguleika, því árangur Bayern
í Múnchen er ekkert sérstakur, og
Gladbach spilar vel um þcssar mundir.
- MÓ
BILAPERUR
ÓDÝR CÆÐAVARA rRÁ
ALLAR STÆRÐIR
HEILDSALA - SMÁSALA
rpjlHEKLAHF
IjúiciavtMj. 170 172 Simi 21240
FitnleiKasKof
_ ie\Kf«o*sKor
bestu
inniskórnir
Leikfimiskór m/leðurbotni.
Stærðir 33-42. Kr. 218,-
Leikfimiskór með hæl, leður.
Stærðir 37-42. Kr. 418,-
■w• - % 4: ,
Leikfimiskór, leður m/hrá-
gúmmísóla.
Stærðir 30-45. Kr. 274,-
Póstsendum
Sportvöruverziun
Ingólfs
Óskarssonar
Klapparstíg 44,
sími 10330
Laugavegi 69,
sími 11783