Tíminn - 28.09.1983, Blaðsíða 13

Tíminn - 28.09.1983, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 17 heimilistrminn umsjón B.St. og K.L. „Hugsið vel um fæturna“ — er góð regla fyrir alla, en nauðsynleg fyrir sykursjúka ■ Þeir sem eru sykursjúkir, eða þjást af æðaþrengslum í fótum, þurfa að leggja sig fram um að hugsa vel um fæturna. Hreyfing er nauðsynleg og því er gott að temja sér að ganga frekar en að fara allt í strætó eða bíl. Eins að ganga stiga í stað þess að taka lyftuna á milli hæða, og þeir sem hafa grun um að blóðrennslið sé ekki nógu gott til fótanna (fótkuldi) ættu að gera einhverjar fóta- æfingar daglega. Hér sýnum við nokkrar fótaæfingar, sem samtök sykursjúkra mælir með: Hvað cr unnt að gera til að auka vellíðan í fótum? 1. Við getum aukið gönguferðir okkar. 2. Við getum gert fótaæfingar. 3. Ef við reykjum, getum við dregið úr reykingum eins mikið og mögulegt er. Er unnt að fyrirbyggja fótasár? Já, með því að: 2. Hugsa vel um fæturna 2. Reyna að forðast sköddun í húðinni. Nokkrar fótaxfmgar: 2. ■ Gleymið ekki heilsugæslu fótanna! ■ Fótasveifla ■ Fjaðrandi ganga 4. Fjaðrandi ganga. Styðjið ykkur við stól og fjaðrið vel í fótunum (gangið á staðnum) nokkra stund. 1. Á hæl og tá! Standið bein og látið þungann koma á allan fótinn, teygið ykkur upp og standið á táberginu. Gerið æfinguna um það bil 20 sinnum. 3. Fótasveifla. Sveiflið fætinum fram og 5. Stólæflng. Krossleggið hendurnar, aftur eins og sýnt er á myndinni og setjist í stól og standið upp til skiptis standið t.d. á símaskrá eða einhverri nokkrum sinnum. upphækkun. Sveiflið fætinum fram og aftur um það bil 10 sinnum og skiptið síðan um fót. 6. Stigaæfing. Gakktu út á stigaganginn og flýttu þér upp stigann upp á næstu hæð.... Þeir sem eiga ekki heima í fjölbýlishúsi eða hafa ekki tækifæri til að gera slíkt heima hjá sér geta notað tækifærið þegar það gefst eða skapað sér það sjálfir. ■ Æfing gegn krampa 7. Æfing gegn krampa í fótleggjum. Standið svolítið frá vegg og leggið lófana upp að veggnum og' reynið að beygja ekki hnén. Standið þétt í fæturna og beygið handleggina um leið og þið hallið ykkur upp að veggnum án þess að lyfta hælunum. Gerið þetta nokkrum sinnum. ■ í hinni nýju sportvöruverslun Ingólfs Óskarssonar að Laugavegi 69. Vilhjálmur Sigurgeirsson verslunarstjóri stendur lengst til vinstri og við hlið hans Ingólfur Óskarsson, eigandi verslunarinnar. (Tímamynd: Árni Sæberg) Sportvöruverslun Ingólfs Óskarssonar nú líka við Laugaveg ■ Sportvöruverslun Ingólfs Óskars- sonar hefur nú hafið starfsemi á nýjum stað, að Laugavegi 69. Verslunin á Klapparstíg verður einnig starfrækt áfram. Að sögn Vilhjálms Sigurgeirssonar verslunarstjóra verður fjölbreytt úrval alls þessa varnings, sem íþróttum tilheyr- ir, á boðstólum í versluninni. Á það ekki sísí við um boltaíþróttir, en allur fatnað- ur, sem til þeirra þarf, er af vörumerkinu PUMA. Þá má nefna sundfatnað bæði fyrir dömur og herra og alla aldursflokka af vörumerkinu ARENA. Af því vöru- merki er líka mikið úrval af fatnaði til fimleika, en ein af starfsstúlkum verslun- arinnar er fyrrverandi íslandsmeistari í þeirri íþróttagrein, Karólína Valtýsdótt- ir, og sér hún um öll innkaupin á því sviði. Er því mikið um nýjungar í fimleikafatnaði í versluninni nú. Þá fá skokkarar allan þann útbúnað, sem þeir þurfa, í versluninni. Badmintoniðkend- ur fá þar líka allt við sitt hæfi, en vinsældir þeirrar íþróttar aukast jafnt og þétt. Þá er fjölbreytt úrval háskólabola og stakra buxna á boðstólum. Allur skófatnaður í verslurin er frá PUMA, en leikfimisskór frá ARr.NA. Áhrifaríkur megrunarkúr — sem Heimilistiminn treystir ser þo ekki til að rnæla með! ■ Hafið þið heyrt um „hvít- vínskúrinn"? Hann er sagður áhrifaríkur megrunarkúr, en ekki er hann talinn hollur. Og alls ekki á að halda þennan kúr nema tvo daga í einu. Þetta er mjög erfiður og strangur kúr, og eiginlega ekki nothæfur nema í neyðartilvik- um, t.d. ef fötin eru orðin of þröng og stendur til að fara í stórafmæli eða aðra hátíð um næstu helgi. Ef farið er ná- kvæmlega eftir hvítvíns- kúrnum á fólk að geta náð af sér fimm pundum á tveim dögum. Ráðlegt er að taka auka- vítamín þessa daga. Það verð- ur að líða langur tími á milli þe'ss að farið er eftir þessum megrunarkúr, en sem sagt. - Það er gott að geta grípið til hans fyrír þá viljasterku, sem vilja ná af sér tveimur og hálfu kflói á tveim dögum. Mataræðið þessa 2daga erþannig: Um morguninn -Svart kaffi, 1 linsoðið egg, 1 glas af þurru hvít- Hádegisverðurinn -Svart kaffi, 2 linsoðin egg, 2 glös af hvítvíninu. Miðdegiskaffið -Svart og sykurlaust kaffi Kvöldverður -200 grömm af nauta- kjöti, þurrsteikt eða grill- að og með því er drukkið það sem eftir er í hvít- vínsflöskunni. (Á dag er ncyslan þannig. Kjöt 200 grömm, 3/4 1 hvítvín og 3 linsoðin egg og svart kaffi) þurrt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.