Tíminn - 11.10.1983, Qupperneq 1

Tíminn - 11.10.1983, Qupperneq 1
FRAM VANN sigraði IA í úrslitaleik ■ Knattspyrnufélagið Fram úr Reykja- vík varð fyrsti sigurvegarinn á stórmóti íþróttafréttamanna í innanhússknatt- spyrnu sem haldið var um helgina. Þar var keppt fyrsta sinni um ADIDAS- hikarinn. og hlaut Fram hann, eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Skaga- mönnum. Jafnt var í leik liðanna, að loknum vengjulegum leiktíma 4-4, en í framlengingu náðu Framarar að skora tvö mörk gegn engu og tryggja sigurinn, 6-4. Guðmundur Torfason var áberandi mjög í úrslitaleiknum, skoraði 4 mörk fyrir Framara. Steinn Guðjónsson og Bragi Björnsson skoruðu eitt hvor. Hörður Jóhannesson skoraði tvö marka Skagamanna, en Arni Sveinsson og Júlíus Ingólfsson eitt hvor. Framarar sigruður KR-inga í undan- úrslitum í mótinu með tveggja marka mun, og Skagamenn sigruðu Valsmenn. í átta liða úrslitum var mikil spenna. Fram vann Breiðablik eftir vítaspyrnu- keppni í fyrsta leik kvöldsins, eftir að jafnt hafði verið 5-5 eftir venjulegan leiktíma. Þá sigraði Valur Víking í vítaspyrnukeppni, þar sem teknar voru einar 14 vítaspyrnur, eftir að staðan hafði verið 4-4 að loknum venjulegum leiktíma. KR vann Selfoss örugglega en Skagamenn áttu í mesta basli með úrvalslið íþróttafréttamanna, sem lék afar vel. Skagamenn unnu þó að lokum 11-7 í ákaflega jöfnum og spennandi leik. Á mótinu gerðu nokkrir kínverskir listamenn frá Henan-flokknum mikla lukku, svo og leikur kvennalandsliðsins í knattspyrnu við stjörnulið Ómars Ragnarssonar. - SÖE ■ Lið Fram, sem sigraði á stórmóti íþróttafréttamanna í innanhússknattspymu, og hlaut að launum ADIDAS-bikarinn. I liðinu em frá vinstri: Guðmundur Torfason, Bryngeir Torfason, Steinn Guðjónsson, Kristinn Jónsson, Bragi Bjömsson og Viðar Þorkelsson. íslendingaslagur íþýskum handbolta: Essen skellti Sigga og Co. Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ■ Alfreð Gíslason og félagar í Ess- en lögðu Sigurð Sveinsson og félaga hans í Lemgo að velli í Búndeslíg- unni í handbolta um helgina. Sigur Essen var stór, 25-12. Alfreð skoraði 3 mörk fyrir Essen, en var síðan útilokaður í leiknum - fékk rauða spjaldið fyrir brot á sóknarmanni Lemgo. Sigurður Sveinsson náði sér ekki á strik í leiknum, og skoraði ekki mark. Lið Jóhanns Inga, Kiel, þokast nú upp töfluna eftir 24-14 sigur á botnliðinu Niirnberg. Göppingen heldur áfram sigurgöngu sinni. Um helgina tóku þeir Fuchse frá Berlín 19-18, og skoraði Klempel 9 mörk. Gummersbach er líka að hressast. Staða efstu liða er nú: Göppingen ..... 5 5 0 0 118-101 10 Grosswallstadt ... 5 4 1 0 100-81 9 Schwabing ..... 5 4 0 1 98-88 8 Gummersbach ... 5 3 1 1 83-76 7 Essen er í 6. sæti með 5 stig, Kiel í 8. sæti með 4 stig og Lemgo í 13. sæti með 2 stig. -MÓ/SÖE Garðar með 3 ■ Garðar Jónsson leikmaður með Skalla- grími, sá sem öll málaferlin hafa orðið útaf í haust í knattspyrnunni, virtist heldur betur springa út við það að vera loksins dæmdur löglegur með Skallagrími. Garðar skoraði þrjú af fjórum mörkum liðs síns, er Skalla- grímur lagði Tindastól að velli 4-2 í úrslita- keppni þriðju deildarinnar í knattspyrnu. Tindastólsmenn, sem léku afar vel í sumar, og sigruðu með glæsibrag í B-riðli 3. deildarinnar, náðu sér aldrei á strik í leiknum. Liðið lék síðast um miðjan ágúst í Islandsmótinu. Gústaf Björnsson skoraði bæði mörk Tindastóls, en hann skoraði 15 mörk í þriðjudeildarkeppninni í sumar. Fjórða mark Skallagríms skoraði Ólafur bakvörður. Síðari leikur liðanna verður í Borgarnesi um næstu helgi. -SÖE ■ Gunnar Gíslason, sem hér sést í „diskóútfærslu“ í landsleik lék sinn fyrsta leik í atvinnumennsku um helgina. Tímamynd ARI ■ Sveinn Hreinsson, þjálfari Fram, leiddi lið sitt til sigurs gegn sínum gömlu félögum. Reykjavíkurmótið íblaki: FRAM LAG0I ÞDÓTT Afi VEUJ ÍS Reykjavíkurmeistari kvenna ■ Framarar láta ekki að sér hæða í blakinu. Liðið, sem varð ■ öðru til þriðja sæti í annarri deild íslandsmótsins í fyrra en er nú nýbúið að tryggja sér l.deildar- sæti, varð fyrsta liðið til að sigra íslands - bikar og Reykjavíkurmeistara Þróttar í karlaflokki á þessu keppnistímabili. Fram lagði Þrótt að velli örugglega 3-1, á Loks fékk Kári ■ metið staðfest! ■ Þau gleðilcgu tíðindi hafa borist suður fyrir, að Akureyringum hafl nú loksins tekist að efna til löglegs móts í kraftlyftingum þar sem Kári Elísson lyftingakappi lyfti eins og venjulega yfir gildandi meti í bekk- pressu. Kári hefur lyft margsinnis í ár yfir gildandi met í bekkpressu í 75 kg flokki nyrðra, en met hans hefur ■ aldrei fcngist staðfest vegna þess að ® ekki hafa verið þrír löglegir dómarar I viðstaddir. Um helgina lyfti Kári 163 _ kg., sem er nýtt íslandsmet. Kára er | hér með óskað til hamingju með ■ metið og Lyftingaráði Akureyrar ■ sömuleiðis með bættan árangur í ■ starfi. - SÖJeJJ sunnudagskvöldið í Hagaskóla. Þá sigr- aði ÍS Þrótt í kvennaflokki 3-1 og tryggði sér Reykjavíkurmcistaratitilinn. Framarar létu engan bilbug á sér finna í leiknum gegn Þrótti. Hinn nýi þjálfari þeirra og fyrrum Þróttari sem einnig mun leika með í vetur, Sveinn Hreins- son, lék ekki með, heldur stjórnaði af bekknum. Það gerði einnig hinn spilandi þjálfari Þróttar Guðmundur E. Pálsson „Fommi“, sem nú hefur snúið heim frá Noregi. Báðir eru ekki orðnir löglegir með félögum sínum. - Framarar sigruðu í tveimur fyrstu hrinunum, 15-12 og 15-13, en síðan small Þróttarmaskínan í gang og Þróttur sigraði í þriðju hrinu 15- 3. I fjórðu hrinu var stiginn mikill darraðardans, og lauk með sigri Fram, 16- 14. ÍS-stúlkurnar sigruðu nokkuð örugg- lega í úrslitaleiknum við Þrótt. Þróttur vann fyrstu 15-10, en síðan varörugglega leikið Stúdentamegin, 15-12, 15-9 og 15-6. - SÖE Gunnar lék fyrsta leikinn með Osnabruck — í þýsku bikarkeppninni um helgina ■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: Gunnar Gíslason lék sinn fyrsta leik með Osnabruck um helgina. Var það í 1-2 tapleik liðsins gegn fyrstudeildarlið- inu Braunschweig í annarri umferð bikarkeppninnar. Þýska pressan segir að þessi 22 ára gamli ísienski landsliðs- maður hafi virkað taugaóstyrkur í leiknum, en þjálfari Bruhl hyggist halda áfram að prófa Norðlendinginn. Gunnar var reyndar nálægt því að skora mark í leiknum, en með 25 metra úthlaupi tókst markverði Braunschweig að hirða boltann af tám hans, er hann komst í skyndiupphlaup. - MÓ/SÖE

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.